Skessuhorn - 04.07.2007, Síða 8
8
SIESSUHÖEM
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
SPA og TM hafa keypt endarýmið að Stillholti 18 þar sem verslunin Model er nú til húsa. Þar verður framtíðarhúsnœíH sparisjóðsins.
Bankar á faraldsfæti á Akranesi
Mikil hreyfing fólks og fyrir-
tækja á sér stað á Akranesi um
þessar mundir og á það einnig við
um bankana og starfsemi þeirra.
Allir bankarnir að undanskildum
Kaupþingi fyrirhuga nú flutninga í
nýtt og betra húsnæði. Vert er að
og dafna. Við viljum auðvitað flytja
sem fyrst en fáum húsnæðið vænt-
anlega ekki afhent fyrr en í maí á
næsta ári og það hangir að sjálf-
sögðu saman við smíði Þjóðbrautar
1 þangað sem Model flytur,“ segir
Þorkell og er fyrir hönd síns fyrir-
tækis alsæll með kaupin. Eftir
þessar breytingar verða þessir þrír
bankar, þ.e. Glitnir, Landsbankinn
og Sparisjóður Akraness, allir í
næsta nágrenni en útibú Kaupþings
áfrarn við Kirkjubrautina.
kóó
Sííar á þessu ári veríur öll starfsemi Glitnis á Akranesi flutt í nýtt
húsnteði að Dalbraut 1
A Þjóðbraut 1 kemur til meí rísa átta hæða jjölbýlishús með
þjónustujyrirtækjum ájarðhœð. A næsta áriflytur Landsbank■
inn þangað ásamt Model.
Fyrirhugað útboð á
fjarskiptum í dreifbýli
í ffétt sem birtist í Skessuhorni
fyrir skömmu sagði Jón Baldur
Lorange sérfræðingur hjá Bænda-
samtökum Islands, landsbyggðina
vera útundan í upplýsingasamfélag-
inu. Skessuhom hafði því samband
við Ottó V. Winther forstöðu-
manns ráðgjafadeildar Póst- og
fjarskiptastofnunnar. Hann segir að
það sé undir bjóðendum í fyrirhug-
uðu útboði Fjarskiptasjóðs komið
hversu öflugt háhraðasamband
verði í boði á svæðum á lands-
byggðinni þar sem fjarskiptafyrir-
tækin treysta sér ekki í uppbygginu
á markaðsforsendum. „Gerð verð-
ur krafa um ákveðna bandbreidd í
útboðsgögnum sem fyrirtækin
verða að lágmarki að uppfylla eigi
tilboð þeirra að koma til greina. Ut-
boðsleiðin er svokölluð „fegurðar-
samkeppni" þar sem bjóðendur em
metnir út ffá fleim en tilboðsupp-
hæð. Þeir sem bjóða betur verða
hærra metnir. Meiri hraði, hraðari
uppbygging og aðrir jákvæðir þætt-
ir verða hafðir til hliðsjónar við mat
á tilboðum. Markmiðið er að laða
ffam það besta sem fjarskiptafyrir-
tækin era tæknilega tilbúin að veita
íbúum þessara svæða.“
Svara kalli
Fjarskiptasjóðs
Sveitarfélögin á Vesturlandi era
þessa dagana að svara kalli Fjar-
skiptasjóðs um yfirferð búsetuupp-
lýsinga á lögheimilum í dreifbýli
sveitarfélaga sem ekki hafa aðgang
að ADSL tengingum, óháð því
hvort þau eigi kost á öðrum teg-
undum háhraðatenginga. Fjar-
skiptasjóður er þar að auki að kort-
leggja þau svæði sem þegar hafa há-
hraðatengingar eða þar sem þær eru
fyrirhugaðar á næstu misserum án
aðkomu sjóðsins. Niðurstaða þeirr-
ar greiningar mun affnarka svæðin
sem Fjarskiptasjóður mun styrkja
uppbyggingu á. Ottó sagði að bú-
setukönnunin væri afar mikilvæg
fyrir þá vixmu sem nú væri í gangi.
„Þegar búsetuupplýsingar liggja
fyrir verða þær kynntar öllum hags-
munaaðilum opinberlega þannig að
hægt verður að leiðrétta ef eitthvað
er rangt. Ef lögheimili með fastri
búsetu vantar inn á kort af þeim
svæðum sem fyrirhugað er að bjóða
út, þá breytum við því svo framar-
lega sem við fféttum af því.“
Utboð eins fljótt og
auðið er
Aðspurður hvort sjá mætti útboð
fljótlega, sagði Ottó að stefht væri
að útboði eins fljótt og auðið er.
„Búsetuskráningin í samstarfi við
sveitarfélögin gengur hægar en gert
var ráð fyrir en mun ekki tefja út-
boðið. Hins vegar hefur staðið á því
að einstaka fjarskiptafyrirtæki hafi
skilað inn fúllnægjandi gögnum um
markaðsleg áform. Sérstaklega hef-
ur vantað upp á nákvæmni í út-
breiðslukortum en verið er að vinna
í þeim málum með aðilum. Það þarf
að fást vitneskja um hvaða svæði ná-
kvæmlega má bjóða út því ekki
stendur til að vinna gegn markaðsá-
formum fjarskiptafyrirtækjanna.
Við viljum laða fram það besta hjá
þessum fyrirtækjum.“
Aðspurður um eftirlitið með
verkefninu sagði Ottó að það yrði
skilgreint í samningi og fylgt fast
eftir. „\,7ið erum í aðstöðu til að
kaupa ákveðin gæði meðal annars í
uppitíma og afköstum og ætlum
okkur að gera það,“ sagði Ottó V.
Wmther að lokum.
bgk
Nýr samningur um fyrirkomulag
umferðarfiræðslu í grunnskólum
Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Guðbjartur Hannesson skólastjóri Grunda-
skóla, Kristján Móller samgönguráðherra, Karl Ragnars forstjóri Umferðarstofu og Sig-
fús Grétarsson skólastjóri Grunnskóla Seltjarnamess. Að bakiþeim standafrá vinstri:
Bima Hreiðarsdóttir lögfræðmgur samgönguráðuneytisins, Ragnhildur Hjaltadóttir
ráðuneytisstjári samgónguráðuneytisins og Birgir Hákonarson framkvæmdastjóri um-
ferðaröryggissviðs Umferðarstofu.
taka það fram að væntanlegar
bankabyggingar eru allar staðsett-
ar ofar í bænum sem ýtir óhjá-
kvæmilega undir þá þróun að mið-
bær Akraness sé smám saman að
færast ofar.
Glitnir flytur síðar í sumar ffá
Kirkjubraut 40 í nýtt húsnæði að
Dalbraut I þar sem fyrir eru með-
al annars Krónan og Tölvuþjón-
usta Vesturlands. Þá flytur Lands-
bankinn bæði sín útibú, á Suður-
göm og í Stillholti, undir eitt þak
við Þjóðbraut 1 í húsi sem nú er
búið að steypa grunninn að. I því
húsnæði verða þjónustufyrirtæki á
jarðhæð ásamt 38 íbúðum á átta
hæðum. Auk Landsbankans mun
verslunin Model einnig flytja starf-
semi sína á jarðhæð Þjóðbrautar 1.
Aætlað er að Landsbankinn og
Model fái húsnæðið afhent næsta
vor.
Sparisjóður Akraness og TM
leituðu hins vegar ekki langt yfir
skammt og hafa nýverið keypt
endaplássið í Stillholtri 18 þar sem
blóma- og gjafavöradeild Models
er nú með starfsemi sína. „Þetta er
mjög hentugt fyrir okkur. Við fær-
um okkur bara um nokkra metra
og þurfum þar af leiðandi ekki að
breyta heimilisfanginu okkar,“
segir Þorkell Logi Steinsson, úti-
bússtjóri SPA. „Þetta húsnæði er
samt sem áður helmingi stærra en
það sem við erum í núna og mjög
glæsilegt í alla staði. Við höfum ffá
opnun útibússins í fyrra verið að
skima eftir ffamtíðarhúsnæði þar
sem húsnæði okkar í dag var alltaf
hugsað sem byrjunarreitur. Við
erum auðvitað mjög spennt að
flytja og með nýju húsnæði höfum
við frekari möguleika á að stækka
Síðastliðinn þriðjudag voru und-
irritaðir nýir samstarfssamningar
um fyrirkomulag umferðarfræðslu í
grunnskólum landsins. Grundaskóli
á Akranesi verður áffam leiðandi
móðurskóli í verkefhinu og miðstöð
þróunar og nýbreytni. Skólinn mun
leiða samstarf fjögurra leiðtoga-
skóla, en það era Flóaskóli á Suður-
landi, Brekkuskóli á Akureyri,
Grunnskóli Reyðarfjarðar á Austur-
landi og Grunnskóli Seltjamarness
fyrir Reykjavíkursvæðið. Grunn-
skólinn á Seltjarnarnesi er nýr leið-
togaskóli og fór undirrimnin fram
við bæjarmörk Seltjarnamess við
Norðurströnd.
Kristján Möller samgönguráð-
herra, Guðbjartur Hannesson
skólastjóri Grundaskóla og alþing-
ismaður, Karl Ragnarsson forstjóri
Umferðarstofu og Sigfús Grétars-
son skólastjóri Grunnskóla Sel-
tjarnarness undirrimðu þennan
nýja samning sem byggir á umferð-
aröryggisáætlun ríkisstjórnar ís-
lands 2005-2008. Kristján Möller
sagði við undirritunina að þetta
verkefni væri afar mikilvægt því hér
væri fjárfest í ffamtíðinni. Umferð-
arffæðsla í grunnskólum væri lykil-
hlekkur sem hann þyrfti að efla enn
ffekar. Bar hann lof á þá vinnu sem
hefði verið unrún til þessa og taldi
þá vinnu góðan grunn til að byggja
enn ffekar á.
Undirritunin var eitt af síðustu
formlegu embættisverkum Guð-
bjarts Hannessonar sem skólastjóra
í Grundaskóla. I ávarpi sínu fagnaði
hann þessum áfanga og hvattd sam-
göngyfirvöld til enn ffekari átaka á
þessum vettvangi. Vinna með börn
og ungmenni væri lykillinn að betri
árangri í forvörnum tengdum um-
ferðarslysum. Harrn kvaðst ánægð-
ur með þá þróunarvinnu sem hefði
verið unnin í Grundaskóla enda
væri þetta þróunarstarf mikilvægt
fyrir grunnskólann og samfélagið í
heild.
Þann 1. júní sl. tóku gildi breyt-
ingar á reglugerð um sektir og
önnur viðurlög vegna brota á um-
ferðarlögum en þær lúta að hert-
um viðurlögum við hraðabrotum.
Sektir vegna einstakra hraðakst-
ursbrota hækka töluvert og eru nú
ffá 5 til 150 þúsund krónur en fyr-
ir breytingar voru þær ffá 5 til 110
þúsund krónur. Hækkunin nemur
36 prósentustigum. Þá geta sektir
vegna brota á 38. gr. umferðalaga
um ökuhraða sérstakra gerða öku-
tækja numið allt að 180 þúsundum
kr. Með breytingum þessum hefur
Ljóst er að sú þróunarvinna sem
hér er unnin er mikilvæg og skilar
án vafa árangri ef til lengri tíma er
htið. Lesendur Skessuhoms geta
kynnt sér verkefnið enn ffekar og
ýmsar nýjungar á þessu sviði á um-
ferðarvefnum (www. umferd.is).
Þessi nýi samningur milli Umferð-
arstofu og Grundaskóla gerir skól-
anum kleift að sækja enn ffekar
ffam og ráða starfsmann til að sinna
verkefhinu sérstaklega.
mm
ökuréttindasvipting einnig lengst í
sumum tilfellum úr einum mánuði
í þrjá. Til dæmis fengi ökumaður í
dag 90 þúsund kr. sekt ef hann
ekur á 105 km. hraða þar sem há-
markshraði er 50 km. á klst. og
yrði að auki sviptur ökuréttindum í
þrjá mánuði. Fyrir breytingarnar
hefði sá sami ökumaður fengið 75
þúsund króna sekt og verið sviptur
ökuréttindum í einn mánuð.
Hraðasektir voru hækkaðar síðast í
desember í fyrra, þá í fyrsta skipti
síðan árið 2001.
kóó
Hert viðurlög vegna
hraðakstursbrota