Skessuhorn - 04.07.2007, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
SSESSiíiieBK!
Sektað fyrir
símann
AKRANES: Lögreglan á
Akranesi stöðvaði alls fimm
ökumenn í síðustu viku fyrir
að tala í farsíma án þess að
nota handfrjálsan búnað. Eiga
hinir málglöðu ökumenn von
á fimm þúsund króna sekt fyr-
ir athæfið. Sérstak átak stend-
ur nú yfir hjá lögreglunni til að
ýta undir notkun handfrjáls
búnaðar sem og bílbeltanotk-
un. I síðustu viku stöðvaði lög-
reglan ellefu ökumenn sem
ekki voru með bílbelti. Sekt
við því er tíu þúsund krónur.
-kóp
Skráning
ómerktra leiða
SNÆFELLSNES: Nú vinnur
sóknarnefnd Ingjaldshóls-
kirkju á Snæfellsnesi að skrán-
ingu og merkingu legstaða í
kirkjugarðinum. Þeir sem telja
sig hafa upplýsingar um ó-
merkt leiði vinsamlega hafið
samband við Smára Lúðvíks-
son í síma 436-6644 eða 893-
2738. -mm
Lokað vegna
óhapps
HVALFJARÐARGÖNGIN:
Loka þurfti Hvalfjarðargöng-
unum í hálftíma á föstudags-
morgun vegna umferðarslyss
sem varð við suðurenda gang-
anna. Fólksbíll fór yfir á rang-
an vegarhelming og rakst á
vörubifreið. Engin slys urðu á
fólki en göngunum var lokað
vegna vettvangsvinnu lögreglu
á staðnmn.
-kóp
Sveitamarkaður
að Breiðabliki
SNÆFELLSNES: Sveita-
markaður verður haldinn að
Breiðabliki í Eyja- og Mikla-
holtshreppi næstkomandi
laugardag. Forsaga þess að
markaðurinn er haldinn nú er
að síðastliðna tvo vetur hafa
verið haldin námskeið sem
kallast Byggjum brýr og var á
vegum Lifandi landbúnaðar,
Bændasamtaka íslands og
Lbhí. A Snæfellsnesi voru þrír
hópar á námskeiðunum en það
fór fram að mestu í fjarnámi er
haldnir voru vikulegir fundir
og á þeim kom þessi hugmynd
að halda sveitamarkað þar sem
allt mögulegt væri í boði.
Næstkomandi laugardag verð-
ur þessi markaður að veruleika
og hefst hann klukkan 12 og
stendur til 18. Ýmislegt verður
á boðstólum svo sem hand-
verk, málverk, garðplöntur,
sultur, bakkelsi, notaðir hlutir
sem vilja nýtt líf, rjúkandi
kaffi og ný bakaðar pönnukök-
ur, krakkahom og fleira.
-mm
Fjármögnun Höfða samþykkt
í Hvalfj arðarsveit
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
hefur samþykkt erindi frá stjórn-
endum dvalarheimilisins Höfða um
fjármögnun vegna fyrirhugaðrar
stækkunar heimilisins. Aætlað er að
stækka þjónusturými og matsafi og
verður það gert með sama hætti og
hafður var á við fyrsta og annan
áfanga Höfða. Bygging Höfða og
stækkun var á sínum tíma fjár-
mögnuð með langtímalánum sem
eigendur heimilisins greiddu. Líkt
og Skessuhom hefur greint ffá tel-
ur stjóm heimilisins aðkallandi að
stækka þjónusturýmið, þ.e. matsal,
samkomusal og matsal hjúkrunar-
deildar. Mikil þrengsli stafa af því
að æ fleiri íbúar heimilisins þrrrfi að
nota hjólastól eða göngugrind.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar
hafði áður samþykkt erindið fyrir
sitt leyti og hafa því báðir eigendur
Höfða lagt blessim sína yfir fyrir-
komulagið og ekkert því til fyrir-
stöðu að hefjast handa.
kóp
Þurrkar há grassprettu
Miklir þurrkar hafa verið imdan-
farið og hafa margir haft áhyggjm:
af grassprettu og vatosbólum þess
vegna. Skessuhomi hafa borist á-
bendingar um að farið sé að
minnka í mörgum hefðbundnum
vatnsbólum skepna. Eiríkur Blön-
dal, framkvæmdastjóri Búnaðar-
samtaka Vesturlands, sagði í samtali
við blaðamann að vissulega bæri
mönnum að hafa eftirlit með dýr-
um og því að þau hefðu aðgang að
vatni. „Þetta er hins vegar eitthvað
sem menn þekkja vel, merm hafa
upplifað svona tíð áður og vita vel
hvað þarf að gera. Menn kunna á
þetta, en vissulega er ástæða til að
vera á varðbergi.“
Eiríkur segist vita til þess að
þurrkurinn sé farinn að há gras-
sprettu verulega og hafi leitt til þess
að minni uppskera sé í fyrra slætti
en ella. Engin ástæða sé hins vegar
til að örvænta, þetta sé bara eðlilegt
íslenskt sumar. „Við höfum upplif-
að þetta allt áður. Sumarið ræður
því hvernig háin kemur út. Það þarf
ekki mikinn rigningarkafla í júlí til
að hún verði góð. Ef það verður
hins vegar þurrt í júlí horfir málið
öðruvísi við.“
kóp
Góð aflabröð en langt á miðin
Ágæt aflabrögð hafa verið að
undanförnu hjá handfærabátum
sem róa frá Snæfellsnesi. Omar
Marísson er einn þeirra sem gerir
út frá Snæfellsnesi en hann rær á
trillu sinni Rakel SH 700. Ómar
sagði í samtali við Skessuhorn að
aflabrögð hefðu verið ágæt að und-
anförnu en nokkuð langt að sækja,
alveg undir Bjarg sem er um 40
mílur. „Þetta er langt að fara effir
fiskinum. Stöku bátur er þó að fá á-
gætis afla á grunninu og allsstaðar
er mikið af síld í sjónum. Aflinn hjá
mér er um 1600 kíló eftir daginn
svo ég er bara ánægðtn með mitt.
Það er búið að vera gott tíðarfar að
Omar að landa afla dagsins
undanförnu en í apríl og maí var
það mjög erfitt en á móti kom að þá
var styttra að fara eftir fiskinum,'
sagði Ómar. af
Miniii fískafli í maí en í fyrra
Fiskaflinn maí var 142.061 tonn
sem er rúmlega 38 þúsund tonnum
mirmi afli en í sama mánuði 2006
en þá var aflinn 180.630 tonn.
Minni kolmunnaafli og botnfisks-
afli skýrir að mesto samdrátt í afla
milli ára. Botofisksaflinn í maí 2007
var 51.998 tonn sem er tæplega sex
þúsund tonna minni afli en í maí í
fyrra þegar hann var 57.837 tonn.
Þorskafli var nánast sá sami nú og í
maí í fyrra eða tæplega 19 þúsund
tonn. Hinsvegar dróst ýsuafli sam-
an um 2 þúsund tonn milli ára og
úthafskarfaaflinn var rúmlega 4
þúsund tonnum minni en í maí
2006.
Kolmunnaaflinn í nýliðnum maí
var rúmlega 84 þúsund tonn en afl-
inn var tæplega 116 þúsund tonn í
maí 2006. Landað var tæplega 4
þúsund tonnum af norsk-íslenskri
sfid í maí 2007 en aflinn var tæplega
6 þúsund tonn í maí 2006. Heildar-
afli íslenskra skipa á árinu var kom-
inn í 745 þúsund tonn í lok maí
2007. Það er 90 þúsund tonnum
meiri afli en á sama tíma á síðasta
ári þegar heildaraflinn í janúar -
maí var 654 þúsund tonn. Aukning
í afla milli ára er vegna meiri loðnu-
afla í ár.
Þegar fjórðungur er eftir af fisk-
veiðiárinu eru eftirstöðvar boto-
fisksaflamarks ennþá talsvert meiri
en á sama tíma á síðasta fiskveiðiári.
T.a.m. eru eftirstöðvar þorsks rúm-
lega 3 þústmd tonnum (slægt) meiri
en á sama tíma í fyrra. Eftirstöðvar
ýsu eru þriðjungi meiri en í fyrra.
Annars gildir svipað um flestar
botnfisktegundir að meira aflamark
er effir núna í lok maí en var á sama
tíma á síðasta fiskveiðiári.
kóp
Refa- og minkaveiðimenn
í Borgarbyggð
Sveitarfélögum ber að gera ráð-
stafanir til þess að draga úr hættu á
tjóni af völdum refa og minka. Til
þess að ná árangri við veiðamar er
sveitarfélögum heimilt að greiða
eingöngu verðlaun til ráðinna
veiðimanna og fer Borgarbyggð þá
leið. Hér að neðan er listi yfir ráðna
refa- og minkaveiðimenn í Borgar-
byggð árið 2007. Farin er sú leið að
nota gömlu hreppaheitin til að auð-
veldara sér fyrir fólk að sjá hverjir
sjá um veiðarnar í þeirra næmm-
hverfi.
Fyrir Kolbeinstaðahrepp eru
Guðmundur Árnason, Sigurður
Jón Ásbergsson fyrir refaveiði,
Magnús Kristjánsson fyrir minka-
veiði og Guðmundur Símonarson
fyrir hvort tveggja ref og mink. I
Hraunhreppi sér Snorri Jóhanns-
son bæði um ref og mink og sama
gildir um Álftaneshrepp þar sem
Gylfi Jónsson sér um hvort tveggja.
I Borgarhreppi sér Stefán Ingi
Ólafsson um minkaveiði og Sigur-
björn Garðarsson og Gunnar
Magnússon um refaveiði. Um Staf-
holtstungurnar sjá Magnús Magn-
ússon um ref og Tómas Einarsson
um mink. I Norðurárdal era Gunn-
ar Þór Þorsteinsson og Þorvaldur
Jósefsson í refaveiðinni og Magnús
Kristjánsson í minkaveiðinni. I
Þverárhlíð og Hvítársíðu sér Snorri
Jóhannsson um hvort tveggja. I
Borgarfjarðarsveit er Snorri Jó-
hannesson í refa- og minkaveiði og
sama gildir um Birgi Hauksson og
Björn Bjömsson.
bgk
Nýtt lögbýli
HVALFJARÐARSVEIT:
Sveitarstjórn samþykkti á síðasta
fundi sínum stofhun nýs lögbýl-
is út úr jörðinni Galtarvík. Mun
það bera heitið Aðalvík. Fyrir-
huguð notkun er í samræmi við
skipulag, en vakin var athygli á
því að hluti Aðalvíkur er innan
þynningarsvæðis frá iðnaðar-
svæðinu á Grundartanga. -kóp
Línuívilnun í ýsu
LANDIÐ: Frá og með 6. júlí
nk. fellur niður línuívilnun í ýsu
að því er ffarn kemur á vef Fiski-
stofu. Á fiskveiðiárinu
2006/2007 var miðað við að
línuívilnun yrði 1.722 tonn í ýsu
en aflinn er nú þegar orðinn
rúm 1.729 tonn, eða 7 tonnum
meiri en til stóð. Öðra máli
gegnir um hnuívilnun í þorski.
Enn vantar 1.088 tonn upp á að
viðmiðunarmörkum í þorski
verði náð. Þá vantar 394 tonn
upp á að línuívilnun { steinbít
náist. Sjá nánar á
www.fiskistofa.is. -af
Sex umsóknir
DALABYGGÐ: Byggðaráð
Dalabyggðar tekur ákvörðun
um ráðningu ferða,- menningar
og markaðsfulltrúa Dalabyggðar
í dag, miðvikudag. Sex sóttu um
starfið og var Capacent ráðning-
um falið að taka umsækjendur í
viðtöl og greina hver væri hæf-
astur til starfans. Skýrsla með
niðurstöðum verðm send for-
svarsmönnum Dalabyggðar sem
eins og áður segir taka ákvörðun
um ráðninguna í dag. Að sögn
Gunnólfs Lárussonar sveitar-
stjóra voru sex sem sóttu um
störfin: Anna L. Sigurðardóttir
sölu og markaðsstjóri, Georg
Heiðar Ormsson barþjónn,
Hallfríður Jóna Jónsdóttir sölu-
maður, Helga H. Agústsdóttir
grunnskólakennari, Margrét
Ákadóttir listmeðferðarfræðing-
ur og Stefán H. Valsson leið-
sögumaður. -bgk
Lopapeysan á
Irskum dögum
AKRANES: Nú um helgina eru
svokallaðir Irskir dagar á Akra-
nesi sem er allsherjar bæjarhátíð
og nær hámarki á laugardags-
kvöldinu með risatónleikunum
„Lopapeysunni 2007“. Lopa-
peysan er haldin niður við Akra-
neshöfn á svæði Sementverk-
smiðjunnar. Þar koma fram
nokkrir af þekktostu skemmti-
kröftum landsins, en hitann og
þungann af hljóðfæraslættinum
bera Bubbi Morteins með
hljómsveitina Stríð og friður og
hljómsveitin Buff ásamt Matta
úr Pöpunum. Einnig mun stíga
á stokk hinn ástsæli Ragnar
Bjamason og sjá tun upphitun
og fjöldasöng ásamt öðrum. Er
þetta í fjórða skipti sem Lopa-
peysan er haldin í tengslum við
Irska daga á Akranesi. Á síðasta
ári lukkuðust tónleikarnir í alla
staði ffábærlega, enda um ein-
stakan viðburð að ræða. Til að
tryggja fjölbreytni og góða að-
stöðu era á svæðinu úrval veit-
inga í tjöldum, þar sem allir ættu
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Forsala á Lopapeysuna
2007 gengur vel en miðar í for-
sölu eru seldir í Pennanum
Akranesi, Kirkjubraut 54 (s.
431-1855). Miðaverð er kr.
3.000 en einnig verða seldir
miðar á staðnum frá kl: 21:30.
Aldurstakmark á Lopapeysuna
er 18 ár.
{'fréttatilkynning)