Skessuhorn - 04.07.2007, Page 12
12
MIÐVIKUDAGUR 4.JULI2007
^Ktasunu^. i
✓
Otímabær
framúrakstur
LBD: Alls urðu 7 umferðaró-
höpp í síðastliðnni viku í um-
dæmi lögreglunnar í Borgarfirði
og Dölum. Oll voru þau án telj-
andi meiðsla en mikið var um
eignatjón. Ahöfh þyrlu í eftir-
litsflugi tilkynnti um eitt óhapp-
ið til lögreglunnar í Borgarnesi
en þyrlan var töluvert á ferðinni
við umferðareftirlit í Borgarfirði
um helgina. Mikil mildi var að
ekki varð stórslys þegar vörubíll
með aftanívagn í ótímabærum
framúrakstri olli árekstri við
Svignaskarð á föstudeginum.
Að sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi voru alls 55 ökumenn tekn-
ir fyrir of hraðan akstur í síðustu
viku, þar af óku átta þeirra á yfir
120 km. hraða þar sem leyfður
hámarkshraði er 90 og þrír á yfir
80 km hraða þar sem hámarks-
hraði er 50 km/klst. Einn var
tekinn fyrir að aka undir áhrif-
um fíkniefna, fjórir teknir fyrir
að hafa fíkniefni í fórum sínum.
Tveir voru teknir fyrir ölvun við
akstur. -mm
Hámarkslán
lækkuð í 80%
ÍBÚÐALÁNASJ: Hámarkslán
Ibúðalánasjóðs verða lækkuð úr
90% í 80% á morgun. Þetta er
samkvæmt reglugerð sem Jó-
hanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra, hefur undirritað.
Hún ætlar að stórefla félagslega
þátt húsnæðislánakerfisins. Ráð-
herra segir að ákveðið hafi verið
að lækka lánshlutfall Ibúðalána-
sjóðs til að bregðast við hækk-
unum á fasteignamarkaði,
þenslu og verðbólgu. Þannig
eigi að draga úr eftirspurn og
senda skýr skilaboð á markað-
inn. Jóhanna hefur einnig
ákveðið að efla félagslegan þátt
húsnæðiskerfisins, þar á meðal
leigumarkaðinn og með lánveit-
ingum til fólks sem er undir skil-
greindum tekju- og eignamörk-
um. Einnig er gert ráð fyrir því
að skýrar verði skilið milli al-
mennra og félagslegra lánveit-
inga. „iVleð þessu er ekki verið
að boða breytingar á stöðu
Ibúðalánasjóðs, heldur áherslu-
breytingar," segir Jóhanna.
Skipuð verður nefiid til að semja
frumvarp þessa efnis og það
verður lagt fram á komandi
þingi. Frumvarpið verður unnið
í samráði við sveitarfélög og
verkalýðshreyfmguna. -mm
Nýr
framkvæmda-
stjóri LSS
LANDIÐ: Sigurður Eyþórsson
tók við starfi framkvæmdastjóra
Landssamtaka sauðfjárbænda og
Markaðsráðs kindakjöts um
mánaðamótin. Sigurður tekur
við af Birni Elísyni sem ráðinn
var í október síðastliðnum. Sig-
urður er 37 ára gamall og hefur
unnið hjá Framsóknarflokknum
síðustu 13 ár, þar af fram-
kvæmdastjóri ffá 2003 til síðustu
áramóta. Aður hefur Sigurður
meðal annars starfað hjá Sjávar-
útvegsstofnun Háskóla Islands
og í forfallaþjónustu bænda. A
heimasíðu Landssamtakanna
kemur fram að Sigurður stund-
aði nám í stjómmála- og tölvun-
arfræði og hefur auk þess lokið
margvíslegum námskeiðum. Þá
var hann m.a. formaður nefndar
allra flokka um lagaumhverfi
stjórnmálasamtaka sem undirbjó
lagafrumvarp um fjármál þeirra
sem varð að lögum í lok síðasta
árs. -kóp
Búfé við þjóðvegina vandamál
Að undanförnu hefur mátt sjá
mikið af fé á beit meðfram þjóðveg-
um í Borgarbyggð og er það hald
manna að um meira magn sé að
ræða en á síðasta ári. Nokkuð hefur
borið á því undanfarið að ekið sé á
fé, bæði fullorðið og lömb og voru
sem dæmi ummerki um slíkt við
Gljúfurárbrú í Borgarfirði, síðasta
mánudagskvöld.
Lausaganga búfjár er ekki bönn-
uð í sveitarfélaginu. Skessuhorn
hafði samband við Pál S. Brynjars-
son sveitarstjóra og spurði hvort til
stæði að breyta því. „Það hefur eng-
in ákvörðun verið tekin um það
mál. Hins vegar sat ég fund í gær,
þriðjudag, með fulltrúum frá Vega-
gerðinni og lögreglunni um búfé
við þjóðvegina. Tilfinning manna
er sú að meira sé af fé við vegina
þetta sumar en verið hefur og
bregður mönnum við effir mörg
góð ár. Sérstaklega er verið að
skoða hvernig málin standa á
Holtavörðuheiði sem er afréttur
margra Borgfirðinga. Þar þarf að
knýja á um lagfæringu og meining-
in er að þessir aðilar fari saman í
það verkefni," sagði Páll.
Holtavörðuheiðin verst
Að sögn Theódórs Þórðarsonar,
yfirlögregluþjóns í Borgarnesi er
það árvisst vandamál að ekið sé á
búfé á vegum í umdæminu en
óvenju mörg tdlvik hafa komið upp
á þessu ári. Samþykkt var á fúndin-
um að stórauka forvarnir með því
að semja við nokkra lykilmenn í
héraði um að bregðast snarlega við
lausagöngu á vegsvæðum umferð-
armestu veganna, handsama gripina
og koma þeim í öruggar girðingar.
„Langversta svæðið er afrétturinn á
Holtavörðuheiði en þar verða á
hverju sumri milli 20 og 30 ákeyrsl-
ur á kindur og lömb. Það er sjaldan
sem hægt er beinlínis að girða fyrir
slysin en á Holtavörðuheiðinni er
það hægt með mjög ódýrum hætti,
miðað við það tjón sem þarna verð-
ur á hverju ári. Um er að ræða 12
km vegarkafla, frá Miklagili niður
að Fornahvammi, sem girða þyrfti
beggja vegna vegarins. Þegar brúin
í heiðarsporðinum var endurnýjuð
var gert ráð fyrir sérstakri gang-
braut fyrir kindur, undir hana. Þeg-
ar umferðin er mikil má sjá kind-
urnar velja það í dag að fara frekar
undir brúna heldur en yfir veginn,
þó ógirt sé meðffam honum. Við
viljum því að lögð verði mikil
áhersla á að fá sérstaka fjárveitingu
í þessa girðingu,“ sagði Theódór.
Unniðvið
lagfæringar girðinga
Guðmundur Pétursson er yfir-
maður girðingamála á umráðasvæði
Vegagerðarinnar í Borgarnesi.
Hann sagði í samtali við Skessu-
horn að Vegagerðin sæi um viðhald
girðinga við hringveginn á svæði ffá
Hvalfirði að Hítárá í vestri og upp
að Norðurá við Hellisá. A þessu
svæði væri búið að fara yfir allar
girðingar og lagfæra á flestum stöð-
um. „Við eigum eftir að fara í lag-
færingar á girðingum við Svigna-
skarð í Borgarhreppi hinum gamla.
Vonandi tekst að gera það í sumar.
Þar hefur oft verið mikið vand-
ræðasvæði. Margir staðir eru þar
fyrir fé að leynast og það skýst oft
upp á veginn með alvarlegum af-
leiðingum. En sá staður sem er erf-
iðastur er Holtavörðuheiðin og það
endar á því að illa fari þar, með
skaða á fleiru en fé og ökutækjum.
Einnig erum við að girða rétt fyrir
neðan, ffá Sanddalsá og yfir í fjall-
girðinguna sem þar er. Á þennan
hátt erum við að vonast til að fé sem
leitar niður af heiðinni eða úr
Sveinatxmgulandi lendi í þessu hólfi
og fari þá ekki á veginn. En því
miður er það svo að sumum kind-
um halda engar girðingar, hversu
vel sem þær eru gerðar,“ sagði
Guðmvmdur Pétursson.
Við þetta má bæta að á hverjum
fimmtudegi fer smali á vegum
Vegagerðarinnar, vítt og breytt um
umdæmið og smalar vegsvæðið.
Eru flestir sammála um að það hafi
verið til bóta.
bgk
Þjóðlegur matur í ön<*
ÁJónsmessunni stóðu Húnvetn-
ingar fyrir héraðshátíð undir heit-
inu Bjartar nætur. Hátíðinni lauk
með hinu árlega Fjöruhlaðborði
húsffeyjanna á Vatnsnesi sem hald-
ið er í snotru félagsheimili sem
nefnist Hamarsbúð. Á Vatnsnesi
standa konurnar í ströngu í marga
daga við að útbúa hlaðborð með
tugum þjóðlegra rétta sem margir
hverjir eru við það að falla í
gleymskunnar dá. Afurðir af sel og
fuglum, sauðfé og úr sjávarfangi
ýmiss konar gladdi bragðlauka
þeirra sem gefnir eru fyrir mat eins
og hann var verkaður á öldum áður.
Samkoman var haldin í fallegu
umhverfi Hamarsbúðar á vestan-
verðu Vatnsnesi þar sem sjórinn,
fjaran og fjallið var umgjörðin.
Þrátt fyrir að gustaði ffemur köldu
af hafi skemmtu á fjórða htmdrað
gesta sér ágætlega. Auk hlaðborðs-
ins var á dagskrá bögglauppboð og
söngur og að endingu var dansað í
stóru samkomutjaldi.
Bjartar næmr njóta sífellt meiri
vinsælda og kemur fólk langt að til
að njóta veitinganna sem tvímæla-
laust má flokka sem eina merkileg-
ustu viðleitni landsmanna til að
viðhalda upplýsingum um forna
matargerð. Því hvar annarsstaðar
er gegn vægu verði hægt að bragða
á selkjöti, höfrungs- og hrefnukjöti,
grásleppuhrognabollum, reyktum
hrútspungum, skötustöppu, súrum
hænueggjum, blóðpönnukökum,
súrsuðum selshreyfum eða öðru
góðgæti? Þeim sem ekki hugnaðist
þessi matur bauðst að bragða á
ýmsu sem fólk þekkir betur, svo
sem hangikjöti, reyktum fiski ýmiss
konar og brauðmeti eins og það
best þekkist til sveita.
A hjalli úti við er sýnishom afþmrkuðu
og hertu sjávarfangi afýmsu tagi. ViS
þurrkun getur ftskurinn tekið á sigýmsar
kynjamyndir eins ogþessi mynd ber með
sér.
A hjallinum mátti já
sýnishom af síld og loðnu,
silungi, rauðmaga, þorski,
steinbíti ogýmsu öðru
sjávarfangi.
Nokkrir Borgfirðingar l'ógðu leið sína á Vatnsnesið. Þeiira á meðal voru þau Dagbjartur
og Þórdís í Hrísum sem hér glugga í upplýsingar um veisluréttina á borðum húnvetn-
inga.
Það tók gesti talsverðan tíma að velja sér á diskana, enda af m'órgu að taka. Allt varþó
merkt. I eftirrétti var hœgt að velja úr ábrystum úr kúm eða kindum, rabbarbaragraut,
heimalöguðu skyri ogjjallagrasamjólk.