Skessuhorn - 04.07.2007, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 4. JULI 2007
>>nU3unuK.
Isólfur (t.v.) og Ingþór Bergmann.
Gerum það sem okkur þykir skemmtilegt
Spjallað við Vini hallarinnar um veislur og viðhurði
Framkvcemd ll.júníhátíöarhaldanna áAkranesi vakti athyglifyrir góóa skipulagn-
ingu í ár, en þar spiluðu Vmir hallarinnar stórt hlutverk. Hér syngja Hara systurnar á
sviði íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum.
loka þannig fyrir umferð í miðbæn-
um. Þar verður heljarinnar dagskrá
um daginn en um kvöldið munu
Stuðmenn halda uppi fjörinu til
miðnættis. Þannig viljum við ljúka
grillveislunni með stæl,“ segir Ing-
þór.
Isólfur bætir því við að þeim hafi
fundist vanta dagksráratriði í mið-
bæinn. „Þetta er liður í að lífga að-
eins upp á gamla bæinn, vera ekki
með þetta í útjaðrinum heldur í
hjarta bæjarins. Þetta verður flottur
endir á flottu kvöldi."
Fundir og ráðstefhur
Þeir ísólfur og Ingþór koma ekki
einungis að skipulagningu stórra
viðburða eins og írskra daga. Þeir
bjóða fyrirtækjum einnig upp á al-
hliða þjónustu þegar kemur að því
að skipuleggja fundi og ráðstefnur.
I nóvember síðastliðnum var haust-
fundur Glitnis haldinn á Akranesi
og sáu Vinir hallarinnar um fram-
kvæmd hans í samráði við markaðs-
deild Glitnis. „Við fengum alla
hingað uppeftir og settum upp allt
sem þurffi að vera til að hægt væri
að halda svona fund, allt sem laut
að myndstjórnun, hljóði og lýsingu.
Þá sáum við einnig um að útvega
veitingar og aðstöðu sem við sett-
um upp í tjöldum í grennd við Bíó-
höllina," segir Ingþór. Isólfur bætir
því við að þeir hafi lokið fundinum
með stæl. „Effir kokteilboð í Har-
aldarhúsi sendum við alla í ævin-
týrasiglingu sem endaði í Reykja-
vík. Það var nýstárleg leið fyrir
marga að ferðast frá fundum bank-
ans og gerði daginn í leiðinni
ógleymanlegan. Með því er okkar
takmarki náð.“
Stórhuga athafnamenn
Fyrirtækjum stendur til boða að
hafa samband við Vini hallarinnar
fyrir hverslags fundi og mannfagn-
aði og fyrirtækið skipuleggur þá frá
a-ö. Þeir Isólfur og Ingþór ítreka þó
að þeir séu ekki í ferðaþjónustu,
„ekki ennþá að minnsta kosti“ bæt-
ir Ingþór við, „hver veit í hverju við
endum. Engin hugmynd er svo vit-
laus að maður hlusti ekki á hana.“
Þeir félagar eru stórhuga og hafa á
skömmum tíma byggt upp stórtækt
fyrirtæki í erfiðum bransa. „Við
þekkjum fólk úr öllum þáttum
skemmtanageirans og erum með
mjög gott og víðtækt tengslanet,"
segir Isólfur. „Að svo komnu erum
við bara tveir starfsmenn í fullu
starfi en auk okkar er fólk í hluta-
störfum í tengslum við Bíóhöllina.
Að stærri viðburðum og hljóðkerfa-
leigunni koma svo nokkrir menn
sem varktakar hverju sinni. Það er
því lítil yfirbygging ennþá, sem þó
gæti breyst með örum vexti.“
Isólfur og Ingþór eru vissulega
með mörg járn í eldinum og koma
að hinum ólíkustu viðburðum. Fyr-
irtækið hefur þróast úr einfaldri
Bíóhöll og hljóðkerfaleigu í alhliða
viðburðaskipulagningu og ekki sér
fyrir endann á þróun þess. Þeir fé-
lagar segjast enda vilja hafa það svo-
leiðis. „Við gerum bara það sem
okkur finnst skemmtilegt að gera,
það er ekki flóknara en það,“ segja
þeir að lokum.
kóp
Fegurðarsamkeppni Vesturlands fyrr í vetur. Þar spila hljóð og Ijós stórt hlutverk við að skapa góða stemningu.
framhvæmd og skipulagningu á
stórum hluta hátíðarhaldanna á 17.
júm', sem þótti heppnast með ein-
dæmum vel. Þá sá það einnig um
kvöldvöku á Kauþingsmótinu, en
aðstandendur UKÍA hafa sérstak-
lega fagnað því hvað vel var haldið
á þeim málum. „Það skiptir miklu
máli fyrir aðila eins og Akranes-
kaupstað sem og önnur fyrirtæki
eða bæjarfélög sem standa að við-
burðahaldi að vera með vana og vel
tengda aðila sér til aðstoðar. Það
sparar bæði tíma og peninga að hafa
allt sem þessu við kemur á einni
hendi og auk þess hefur það sýnt sig
að útkoman á viðburðinum er betri.
Þetta er eitthvað sem t.d. markaðs-
deild Akraneskaupstaðar hefur gert
sér grein fyrir og vitum við ekki
betur en að menn séu mjög ánægð-
ir með það sem við erum að gera,“
segir Isólfur.
Nýjungar á
Irskum dögum
Vinir hallarinnar koma einnig að
skipulagningu á Irskum dögum um
næstu helgi, þó að heildarskipulag
dagskrárinnar sé ekki á þeirra
höndum. Standa þeir einir og sér
fyrir Lopapeysunni líkt og hin fyrri
ár sem haldin er á laugardagskvöld-
inu en fyrir hönd bæjarfélagsins
ffamkvæma þeir félagar ýmsa við-
burði tengda dagskránni. Þar verð-
ur bryddað upp á ýmsum nýjung-
um. Venjulega hefur götugrillinu
verið lokið með kvöldvöku á þyrlu-
pallinum við Jaðarsbakka en í ár
verður bryddað upp á nýjung hvað
það varðar. „Við munum setja svið
þvert á miðja Kirkjubrautina og
Fyrirtækið Vinir hallarinnar ehf.
var stofnað í september árið 2005
til að annast rekstur Bíóhallarinnar
á Akranesi. Smátt og smátt víkkaði
rekstur fyrirtækisins út, það starf-
rækti ljósa- og hljóðkerfaleigu og
skipulagði viðburði. Nú er svo
komið að Vinir hallarinnar er orðið
alhliða viðburðafyrirtæki og tekur
að sér skipulagningu og fram-
kvæmdir af ýmsum toga. Skessu-
horn hitti að máli þá Isólf Haralds-
son framkvæmdastjóra og Ingþór
Bergmann Þórhallsson nýráðinn
starfsmann fyrirtækisins. Ingþór
hafði áður komið að þónokkrum
verkefnum fyrirtækisins en um
þessar mundir eru þeir félagarnir á
kafi í skipulagningu fyrir Irska daga
sem verða um næsm helgi.
Fyrirtæki í þróun
Þeir Isólfur og Ingþór segja að
starfsemi fyrirtækisins sé í stöðugri
þróun. Þróunarferlið hafi ekki verið
meðvituð ákvörðun, þetta hafi ein-
faldlega æxlast svona. „Ég byrjaði
að fást við viðburði tengda Bíóhöll-
inni,“ segir Isólfur. „Það vom t.d.
bíósýningar, tónleikar, leikrit og
ýmislegt í þeim dúr, samhliða
hljóðkerfaleigu." Ingþór bætir því
við að vel hefði getað farið svo að
fyrirtækið hefði haldið áfram að
þróast í þá átt. „Þetta hefði vel get-
að þróast út í að við yrðum miklu
meiri hljóðkerfaleiga en við erum í
dag. Hins vegar erum við í auknum
mæli að skipuleggja og framkvæma
ýmis konar viðburði og er nú svo
komið að mesta vinnan okkar hgg-
ur í því.“
Verktaki hjá bænum
Fyrirtækið sinnir fjölbreyttum
viðburðum um allt land, þó vissu-
lega sé aðaláherslan á Akranes. Þar
hefur það komið að ýmsum við-
burðum og nýverið gerðu Vinir
hallarinnar samkomulag við Akra-
neskaupstað um ýmist viðburðahald
bæjarins í sumar. Fyrirtækið sér um
A risa afmœlishátíð Einars Skúlasonar í vor sáu Vinir hallarinnar um að stilla upp um-
gjörð; Ijósum, hljóði og Ijósam.