Skessuhorn - 04.07.2007, Qupperneq 18
18
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
J&jLSaunokU
Frd Vesturlandsskógum og Félagi skógarbænda á Vesturlandi:
Góð sprettutíð í skóginum, en fullþurrt til nýgróðursetningar
Ævintýri á gönguför íJafhskarðsskógi.
Engar umtalsverðar skemmdir
urðu á trjágróðri í hinu árvissa maí-
hreti. Júní hefur verið afar hagstæð-
ur trjágróðri, en í seinni hluta mán-
aðarins varð jörð æ þurrari, svo síð-
ustu dagana hættu flestir gróður-
setningu vegna þurrka. En stálpað-
ar plöntur hafa svo sannarlega
kunnað að meta blíðuna. Þess
vegna er útlit fyrir góða sprettu í
sumar. Vegna þess að september á
sl. ári var óvenjuhlýr, má einnig bú-
ast við, að þær tegundir, sem
ákvörðuðu vöxt þessa sumars síð-
sumars í fyrra, nái óvenjugóðum
árssprotum þetta ári. I því sam-
bandi kemur fyrst uppí hugann
stafafuran, en einnig allt greni.
Verði áframhald á blíðunni má
einnig búast við óvenjugóðum vexti
í birki (sem hefur víða sloppið
nokkuð vel við maðkaplágu þetta
árið), sem og ösp og lerki.
Ný plága breiðist nú út
firá Mógilsá
I vor varð vart við nýja plágu,
sem leggst á víði og ösp. Um er að
ræða bjöllutegund, sem étur blöðin
og skaðar einkum ungar plöntur.
Þó hefur stálpuð viðja á Mógilsá
orðið nokkuð illa úti í sumar. Þetta
leiðir hugann að því, hve galopið
Island virðist vera fyrir innflutningi
á lifandi plöntum. Þótt einhverjar
hindranir séu í lögum og reglu-
gerðum, hefur ffamkvæmd efrirlits-
ins of oft brugðist. Sumir segja að
hægt sé að finna nánast allar hugs-
anlegar tegundir innfluttar á sum-
um sölustöðum plantna!
Skógarbændur! Ferð um
B orgarfj arðardali
þriðjudaginn 10. júlí.
Félag skógarbænda og Vestur-
landsskógar efna til skoðunarferðar
um Borgarfjarðardali þriðjudaginn
10. júlí næstkomandi. Lagt verður
af stað með rúm ffá Hyrnunni kl.
10:00 um morguninn og farið um
Andakíl í Skorradal, þaðan í Lunda-
reykjadal og Reykholtsdal, og end-
að um sexleytið í Fossatúni, þar sem
fólk mun snæða saman. Síðan verð-
ur þátttakendum skilað til bfla sinna
í Borgarnesi. Tilgangur fararinnar
er að skoða skógrækt meðal skógar-
bænda á svæðinu og ræða við þá.
Jafhframt verður farið í gönguferð
um stórvaxinn barrskóg í Skorradal,
svo menn fái smjörþefinn af því,
hvemig þeirra skógur gæti litrið út
eftír 4 áratugi.
Þeir sem áhuga hafa á að koma
með í ferðina era beðnir um að hafa
samband við starfsmenn Vesmr-
landsskóga í síma 433-7053 á skrif-
stofutíma á fimmtudag eða fösm-
dag eða Þórarinn í síma 869-8278.
Fresmr til að tilkynna þátttöku er
til kl. 18:00 laugardaginn 7. júlí.
Rúmferðin verður í boði FsV og
Vesturlandsskóga, en veitingamar
verða menn að greiða sjálfir.
Vel heppnuð
afmælishátíð FsV
Félag skógarbænda á Vesmrlandi
hélt upp á 10 ára afmæli sitt 23. júní
s.l. Félagsmenn og gestir hitmst á
Hreðavami kl. 14:00 í blíðskapar
veðri. Birgir Hauksson skógar-
vörður á Vesturlandi tók á móti
okkur og sagði frá staðnum og
starfsemi Skógræktar ríkisins þar.
Síðan hélt hópurinn, 30-40 manns,
létmr í spori og lund í gönguferð
um Jafnaskarðsskóg undir leiðsögn
Birgis. Skógurinn og landslagið á
þessum fallega stað skartaði sínu
fegursta. Gönguferðin var bæði
skemmtíleg og fræðandi, þar sem
Birgir fræddi okkur um skóginn,
landslagið og líf og starf fólks á
Hreðavatni og nágrenni fyrr og nú.
Að var í skógarlundi, þar sem hitað
var ketilkaffi í forláta katli sem FsV
fékk eitt sinn að gjöf ffá Félagi
skógarbænda á Suðurlandi. Aðrar
veitingar voru í boði MS í Búðar-
dal, Skógræktar rfldsins og FsV.
Þegar komið var aftur heim að
Hreðavatni var kynt upp í kolunum
og grillað. Borðaði hópurinn und-
ir berum himni dýrindis grillmat
með fjölbreytm meðlæti. Fullorðn-
ir átm ánægjulega samverusmnd og
bömin léku sér í skóginum. Segja
má að afmælishátíðin hafi tekist vel
og þátttakendur voru ánægðir með
samveruna, sem eflir samheldni og
kynni meðal félagsmanna. Við
þökkum fyrir samveruna á afmælis-
daginn og Birgi fyrir góðar móttök-
ur og að mega njóta þeirrar aðstöðu
og fegurðar sem Hreðavatni hefur
upp á að bjóða.
Stjóm FsV.
Vinsamlegast skilið
framkvæmdaskráningu
fyrir 20. júlí!
Skógarbændur hafa nú lokið
haustgróðursetningu, enda er víð-
ast hvar orðið of þtnrt til að halda
áfram gróðursemingu. Þeir sem
ekki hafa lokið gróðursemingu
þetta „vorið", ætm að íhuga að
fresta ffekari gróðursemingu ffam í
ágúst, enda verður vonandi kominn
meiri raki í jörð þá. Vesturlands-
skógar minna skógarbændur á að
nú rennur skilafresmr fram-
kvæmdaskýrslu vegna vorgróður-
semingar út 20. júlí. Þeir sem ætla
að fá uppgjör fyrir 25. ágúst ættu
því að drífa í að skila framkvæmda-
skráningu hið fyrsta.
Hjördts Geirdal, nýrformaíur Skógrœktarfélags Borgarfjarðar. Upp er vaxinn timbur-
skógur!
Með hækkandi sól kjósa flestir að
eyða tíma sínum í eitthvað annað en
húsverkin heima fyrir og hugsa ef-
laust margir að nú væri hentugt að
hafa húshjálp. Nýlega kom á markað
tölvustýrð heimihshjálp, þökk sé gíf-
urlegum tækniffamförum síðusm
ára. Roomba er sjálfvirkur
ryksuguróbóti sem þrífur gólf án
nokkurra mannlegra afskipta og ger-
ir það vel og örugglega. Þegar kveikt
hefur verið á róbótanxun skynjar
hann herbergið og leggur það á
minnið áðtu- en hann leggur upp í
leiðangur til hreinsistarfa. Róbótinn
getur þrifið tun 45 m2 á 40 til 50
mínútum og samkvæmt upplýsingum
ffá ffamleiðanda skilar hann gólfinu
99,7% hreinu. Rafmagnshleðslan í
Roombunni getur enst í allt að 120
mínútur og þegar hún tæmist fer ró-
bótinn af sjálfsdáðum heim í hleðslu.
Fyrir tæplega 45 þúsund krónur get-
ur fólk semsagt farið að heiman að
morgni og treyst því að þegar það
kemur heim að kvöldi að búið sé að
ryksuga íbúðina og getur þar af leið-
andi slakað á út í garði og nýtt góða
veðrið í stað þess að ryksuga.
Þessi ryksuguróbóti fæst nú meðal
Nýja húshjálpin er vélmenni
annars í versluninni Model á Akra-
nesi og að sögn Guðna Tryggvason-
ar, kaupmanns hefur sala hans geng-
ið vel. „Við höfum fengið mjög já-
kvæð viðbrögð en fólk sýnir flestum
nýjungum mikinn áhuga,“ segir
Guðni og bendir á að að tölvur séu
ffamtíðin. í haust er væntanlegur
sams konar róbóti, Scooba sem er
skúringaróbót og geta þeir sem
kaupa sér ryksuguróbótinn fyrir 15.
ágúst nk. átt möguleika á að vinna sér
inn skúringaróbót í happadrættis-
vinning hjá Módeli. Nú er bara
spumingin hvemær sjálfvirkur af-
þurrkunarrótót, sjóða fisk róbót, setja
í þvottavélina róbót eða bóna bflinn
róbót komi á markaðinn. Víð bíðum
spennt.
kóó
Roomba erfier íflestan sjó ogfer út í alla króka og kima.