Skessuhorn - 04.07.2007, Side 22
22
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
Byggðarmerki
Hvalí] a rðarsveitar
- af gefiiu tilefiii
í grein sem birtist í Skessuhorni
27. júni sl. og fjallar um óánægju
með byggðamerki Hvalfjarðar-
sveitar er haft effir sveitarstjóran-
um ,,..að óþarfa viðkvæmni sé fyrir
krossinum og að sjálfur hefði hann
ekki sett sig á móti heiðnu tákni s.s.
Þórshamri.“
Ekki veit ég hvort ummæli sveit-
arstjóra voru sögð í gamni eða al-
vöru, en í þessum orðum speglast
glöggt misskilningur þeirra sem
sætta sig við „vörumerki" eða
„lógó“ í merki sveitarfélagins. Sem
heiðin kona hefði ég orðið alveg
jafn agndofa yfir að sjá Þórshamar
eða Davíðsstjömu í merki sveitar-
innar eins og krosstáknið. Það sama
hefði gerst við að sjá þar Cola Cola
lógóið eða hamar og sigð.
Eg vona að forvígismenn sveitar-
félagsins sýni íbúunum ffamvegis
þá virðingu að skoða þessa gagn-
rýni á málefnalegum forsendum í
stað þess að reyna að persónugera
hana.
Svona horfir málið einfaldlega
við:
Þetta snýst ekki um trú
Þetta snýst ekki um einstaklinga
Þetta snýst ekki um listrænan
smekk.
Gagnrýni þeirra sem hafa tjáð
sig um merkið snýst um að farið sé
eftir lagalegum og siðferðislegum
reglum samfélagsins:
Þetta snýst um að fara eftir skil-
málum keppninnar.
Þetta snýst um að virða landslög
(sbr. Stjórnarskrá).
Þetta snýst um að lúta alþjóðleg-
um lögum gegn mismunun þjóðfé-
lagshópa (sbr. Mannréttindasátt-
máli S.Þ.)
Þetta snýst um að sýna samferða-
mönnum sínum á jörðinni virðingu
og neyta ekki aflsmunar gagnvart
minnihlutahópum.
Það verður enginn maður af
meiri að reyna að breiða yfir tákn-
mál þessa merkis. Lógóið er í sjálfu
sér afar skýrt - það er krosstákn,
tákn einnar sterkustu trúarsam-
steypu heimsins. (Efist einhver get-
ur hann lesið bækling sveitarfélags-
ins því til staðfestingar).
Ibúar Hvalfjarðarsveitar sem
gagnrýna merkið vilja sameiningar-
tákn. Af nógu er að taka í sveitarfé-
laginu okkar.
Jóhanna Harðardóttir í Hlésey,
Hvalfjarðarsveit
Draumur sem varð að
veruleika
Guðrún Elísabet Jensdóttir við eitt verka sinna.
Opnuð hefur verið ljós-
myndasýningin „Heima er
best“ í Gamla Rifi - kaffi-
stofu. Það er G. Elísabet
Jensdóttir frá Rifi sem sýnir
þar hluta af lokaverkefni
sínu sem hún vann í Ljós-
myndaskóla Sissu og Leifs
síðastliðinn vetur og lét þar
með gamlan draum rætast.
Þessi myndaröð sýnir
nokkra heldri borgara úr Snæfells-
bæ í starfi og leik. Sýningin mun
standa í nokkrar vikur og er opið í
Gamla Rifi frá kl. 12 - 22 alla daga.
Myndirnar eru allar svarthvítar,
teknar á filmu og handpentaðar á
fíberpapír.
Elísabet sagði í samtali við
Skessuhorn að hún hefði verið með
ljósmyndadellu í 30 ár og tekið
mikið af myndum á þessum árum.
„Eg á orðið mikið myndasafh en
hef ekki verið nógu dugleg að skrá-
setja myndinar. Ég hef heillast af
svarthvítum myndum og mér finnst
einnig skemmtilegast að taka
myndir af heldra fólki við þeirra
kjöraðstæður og reyna að ná fram
tilfinningum þeirra. Ég fór í skól-
ann í vetur en það hafði verið
draumur minn lengi að fara í ljós-
myndanám. Draumar eru bara
draumar nema þeir verði að veru-
leika þá verða þeir að persónuleg-
um sigrum."
Elísabet segir að sér finnist
skemmtilegara að taka á filmur og
bætir við að ef hún vilji taka góðar
myndir velji hún filmuvél. „Þá
vandar maður sig meira og meiri
vinna liggur á bak við hvern
ramma. Svo þarf náttúrulega að
framkalla myndirnar í myrkra-
hergi, en digital tæknin er þægileg
og fljótleg og ég nota einnig digital
þótt filmunar séu skemmtilegri."
af
Enn beðið átekta við ámar
Óhætt er að segja að laxveiði-
menn séu allt armað en kátir þessa
dagana. Ekki hefur rignt í margar
vikur og margar af gjöfulustu lax-
veiðiám landsins eru að þorna upp.
Veiðimenn eru víða orðnir nokkuð
óþreyjufullir og gleyma því kannski
Kíkt eftirfiski t Alftá á Mjrum á dögun-
um.
að veiðin er lotterí, sérstaklega ef
leyfin eru keypt með margra mán-
aða fyrirvara. Miðað við langtíma-
veðurspá í upphafi vikunnar má
gera ráð fyrir úrkomu í vikulokin og
því ætti brúnin að geta farið að lyff-
ast á veiðimönnum og öðrum sem
hagsmuna hafa að gæta. Þá var stór-
straumur í vikunni sem vonandi
skilar fleiri löxum í árnar.
Sökum þurrka hafa margar veiði-
ár aldrei í sögunni gefið jafn fáa laxa
í upphafi veiðitímabilsins og nú í ár.
Straumfjarðará og Laxá í Leirár-
sveit hafi aðeins gefið örfáa laxa
effir marga daga veiði. Þó hefur
bleikjuveiði verið góð í Straum-
fjarðará.
Nokkrir lúsugir
Smá von vaknaði meðal veiði-
manna þegar ffegnir bárust af ellefu
nýgengnum löxum sem náðust í
Straumunum í Borgarfirði við ár-
mót Norðurár og Hvítár um miðja
síðustu viku. Um svipað leiti veidd-
ust fimm laxar í Hræsvelg í Norð-
urá, allt nýgenginn fiskur, svo það
hefur greinilega komist einhver
ganga í ána.
Fiskurinn úr fengsælum lax-
veiðiám Borgarfjarðar heldur sig
liklega niður í Hvítá og lætur ekki
sjá sig fyrr en vætan fer að skila sér.
I Gljúfurá heyrðum við í veiði-
mönntun og þar var rólegt og lítið
sást af fiski. „Þetta hefur verið ró-
legt hérna við Gljúfurá en við höf-
um undið hag okkar vel, þrátt fyrir
fiskleysið og notið þess að veðrið er
gott,“ sagði Hrafhhildur Halldórs-
dóttir sem var að veiðum við
Hítará hefurfarið rólega af stað eins og
aðrar ár á Vesturlandi. Veiðimaðurinn á
myndinni er Þorsteinn Olafs sem hér
landar einum affyrstu löxunum úr ánni.
Gljúfurá ásamt fjölskyldu sinni.
Hún bætti því við að fjölskyldan
ætlaði upp í Langavatn því þar gætu
ungu veiðimennirnir í fjölskyldunni
allavegana átt von á að fá eitthvað.
Gufuá í Borgarfirði er nánast
þornuð upp og erfitt fyrir mávana
að drukkna í henni, þó þeir hafi
vissulega reynt hvað eftir annað við
sílaveiðar rétt neðan við brúna á
þjóðveginum.
„Við erum að byrja í Álftá, vorum
að setja saman veiðidótið, en staðan
hérna er ekki sérstaklega góð, en
við reynum samt,“ sagði Marteinn
Jónasson við Álftá en þar var kom-
inn einn fiskur á land. „Það rigndi í
Hvalfirðinum áðan [á sunnudag]
og aldrei að vita hvað gerist hérna í
kvöld,“ sagði Marteinn ennfremur.
Áfram var málið kannað og
Skessuhorn heyrði í veiðimönnum
við Hítará. Þar var búið að veiða
einn lax í hollinu og hann var lúsug-
ur en annars var ekki mikil hreyf-
ing. Nokkrir laxar hafa veiðst í
ánni. ,Jú, það er aðeins líf af nýjum
fiski hérna fyrir framan veiðihúsið
en þetta mætti
vera meira,“ sagði
Þorsteinn Ólafs.
inni þegar svona árar. Ágæt veiði
hefur verið í vötnunum á Arnar-
vatnsheiði síðan þar opnaði en
einna helst kvarta menn yfir mý-
varg sem náð hefur sér vel á strik í
blíðviðrinu. Veiðimenn sem voru
við Arnarvatn litla í síðustu viku
þoldu ekki við, þrátt fyrir góða
veiði, og flúðu til byggða undan
mývarginum.
Sama er hvar
borið er niður við
laxveiðiárnar, fátt
getur bjargað
ástandinu annað
en væn rigning og
því ættu veiði-
mennirnir bara að
dansa réttu rign-
ingardansana og
bíða svo átekta.
Mikið meira líf
er í silungsveið-
Vantar þig veiðileyfi? www.svfr.is er rnálið!
Úrval veiðileyfa - og þú gengur frá kaupunum beint á netinu
Fréttir, greinar, fróðleikur og margt fleira
Wnet
ÁREIÐANLEIKI - ÞJÓNUSTA - ÁRANGUR
www.limtrevirnet.is