Skessuhorn - 04.07.2007, Side 23
SlESSlí|g©BR(
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
23
Fólk hefur í gegnum tíðina valið
sér hinar ýmsu tegundir dýra til
þess að ala sem gæludýr, en villtar
gæsir eru yfirleitt ekki þar á meðal.
Fjölskyldan á Ennisbraut 33 í O-
lafsvík lenti í því, fyrir um mánuði
síðan, að vera hundelt af 7 litlum
ungum á göngu sinni í grasagarði
Reykjavíkur. Fjölskyldan reyndi
hvað hún gat til að losna við ungana
en enginn virtist vilja eiga þá,
hvorki fuglar né menn, og sátu þau
því uppi með þá. Fyrstu dagana
efrir að ungarnir fluttu til fjölskyld-
unnar var mikið deilt um hvort
þetta væru gæsa- eða andarungar.
Fljótlega kom þó í ljós að þetta
hlytu að vera gæsarungar og má því
segja að á Ennisbrautinni sé nú
sannkallað gæsapartý alla daga.
Það er greinilegt að gæsimar eru í góðum fe'lagsskap í Ólafsvík
með hundasúrum og njóla sem er
alls ekki gæsamatur.
Fróðir menn um gæsir hafa sagt
fjölskyldunni að sennilega verði
hægt að sleppa gæsaungunum í á-
gúst en þeir eru nú þegar orðnir
þónokkuð stórir. Þeim verður þá
sleppt á svæði þar sem villtar gæsir
halda sig yfir sumarið. Fjölskyld-
una langar til þess að fá tmgana
merkta svo að hægt verði að fylgjast
með ferðum þeirra. Það er nú aldrei
að vita en kannski verður gæsa-
stofninn á Ennisbraut 33 kominn í
14 fugla næsta vor, þegar að gæsirn-
ar koma aftur ffá vetrarstöðvunum.
af
Dagskráum
sr. HaUgrím Pétursson
Errósýning iramundan
í Ólafsvflk
Allt er gert til þess að ungunum
líði vel. Þeir hafa stórt afgirt svæði
á lóðinni og þar er einnig lækur
sem að þeir synda og kafa í. Einnig
standa ýmsar rannsóknir yfir á því
hvemig ungarnir þróast t.d. hversu
hratt þeir stækka og hvað þeim þyk-
ir gott að borða, en fíflar og arfi eru
fæðutegundir í uppáhaldi hjá þeim
og ekkert þýðir að reyna að plata þá
Dagskrá um Sr.
Hallgrím Pétursson og
samtíð hans verður
flutt að Hótel Glymi á
Hvalfjarðarströnd
þann 14. júlí nk. Um
er að ræða samstarfs-
verkefni þriggja aðila,
þ.e. Snorrastofu í
Reykholti, Hallgríms-
kirkju í Saurbæ og
menningarmálanefnd-
ar Hvalfjarðarsveitar.
Tilefnið er að Hall-
grímskirkja í Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd var vígð árið
1957 og á því 50 ára vígsluafmæli
um þessar mundir. I því sambandi
hefur Hallgrímskirkja staðið fyrir
ýmsum áhugaverðum viðburðum á
árinu.
Markmiðið með dagskránni um
sr. Hallgrím er að efla vitund Vest-
lendinga og annarra landsmanna
um sr. Hallgrím og þau miklu
menningarverðmæti sem tengjast
lífi hans og starfi í Saurbæ. Fjöl-
margt hefur verið um hann rætt og
ritað, og margir viðburðir verið
tengdir honum og ómetanlegu ævi-
starfi hans. Snorrastofu, Hall-
grímskirkju og öðrum aðstandend-
um gefst nú í tengslum við 50 ára
vígsluafmælið gott tækifæri til að
4 w 2
Frá sýningunni „Mynd mín afHallgrími“ sem sett var
upp í Hallgrímskirkju fyrr á árinu.
Ljósm. kóp.
miðla þekkingu um sögu Saurbæjar
og veru sr. Hallgríms og konu
hans, Guðríðar Símonardóttur, á
staðnum.
Fyrirlesarar í dagskránni, sem
ber heitið „Hallgrímsstefna á
heimaslóð,“ verða Margrét Egg-
ertsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir
og Kristján Eiríksson, sérfræðingar
við Stofmm Arna Magnússonar í
íslenskum ffæðum, Steimmn Jó-
hannesdóttir, rithöfundur og Einar
Sigurbjörnsson, prófessor í guð-
ffæði. Sigurbjörg Þrastardóttir, rit-
höfundur mun stjórna dagskránni
en Einar Orn Thorlacius, sveitar-
stjóri Hvalfjarðarsveitar, setur
hana.
(fréttatilkynning)
Atakshópur í Borgamesi undir stjóm Margrétar Astrósar tókþátt í sumamámskeiði sem
lauk um síðustu helgi með göngu á Hafnarjjall. Hópurinn lauk þannig námskeiðinu á
„ toppnum “ og voru þátttakendur áncegðir með það eins og sjá má á Ijósmynd Evu
Summ.
Anám-
skeiði hjá
Guðmundi
Inga
Dagana 4.-15. júní sl. stóð Is-
Nord tónlistarhátíðin í samvinnu
við Borgarbyggð fyrir leiklistar-
námskeiði fyrir unglinga í vinnu-
skóla Borgarbyggðar. Guðmund-
ur Ingi Þorvaldsson leikari stjórn-
aði krökkunum á þessu námskeiði.
Þau voru almennt mjög ánægð
með framtakið. A myndinni er
Guðmundur Ingi ásamt krökkum á
Hvanneyri.
Helgina 14. og 15. júh' nk. verður
ERRO-sýning í félagsheimilinu
Klifi í Olafsvík í tilefni 7 5 ára afmæl-
is listamannsins, öðru nafni Guð-
mundar Guðmundssonar. Hann er
fæddur í Olafsvík og eru Olsarar
ákaflega stoltir af listamanninum og
þykir því við hæfi að heiðra hann
með þessum hætti.
Lista- og menningamefnd Snæ-
fellsbæjar stendur fyrir þessari sýn-
ingu og hefur fengið Þorbjörgu
Gunnarsdóttur til að útfæra hana. „I
þetta verkefni fengum við styrk ffá
Menningarráði Vesturlands og
Sparisjóði Olafsvíkur auk þess sem
Snæfellsbær stendur vel á bak við
okkur til að gera okkur þetta kleift.
Þetta er tækifæri sem engin ætti að
láta ffam hjá sér fara og einstaklega
skemmtilegt að skoða verkin eftir
þennan htríka og fjölbreytta lista-
mann í hans fæðingarbæ," sagði
Þórdís Björgvinsdóttir í hsta- og
menningarnefnd Snæfellsbæjar í
samtah við Skessuhom. Errósýning-
in verður opin frá klukkan 13-17.
mm
Fjölskylduhátíðin Irskir dagar
írskir dagar verða á Akranesi um
helgina og verður tekið forskot á
sælvma með leik IA og Keflavíkur í
kvöld klukkan 20. A fimmtudag
verða síðan tónleikar í Iþróttahús-
inu á Jaðarsbökkum, en formleg
dagskrá hefst með stórhátíð í mið-
bænum klukkan 14 á föstudag og
heldur áffam út alla helgina. Þetta
er í áttunda sinn sem hátíðin er
haldin og hefur hún vaxið og dafii-
að með hverju ári og náði hámarki í
fyrra þegar um 10 þúsund gestir
komu á Skagann. Hátíðin í fyrra
tókst mjög vel, en læti unglinga á
tjaldstæðinu í Kalmansvík settu
nokkurn blett á hana. Tekið hefur
verið mið af því við undirbúninginn
í ár.
Tómas Guðmundsson, markaðs-
og atvinnufulltrúi Akraneskaup-
staðar sagði í samtali við Skessu-
horn að menn væm nokkuð bjart-
sýnir fyrir hátíðina. Hann sagði lít-
ið hægt að spá fyrir um hve margra
gesta væri von, en reiknaði með að
miðað við veðurspá mundi þetta
sleppa. Hann segir að við undir-
búning hafi sérstaklega verið hugað
Hin írskættaða Pauline McCarthy verður
með keltneska söngveislu á Café Mörk á
laugardagskvöldið.
að unglingunum. „Við höfum haft
veður af því að að það verði mikið
af unglingum í bænum, sem og fullt
af öðru fólki, ekki síst brottfluttum
Skagamönnum. Effir reynsluna ffá
því í fyrra má búast við hópi af ung-
lingum sem komi á mjög stuttum
tíma. I fyrra vorum við ekki undir
það búin en erum það nú. Björgun-
arfélagið verður með gæslu við
tjaldstæðið alla helgina og lögregl-
an verður með aukaviðbúnað og
einn til tvo fíkniefhahunda."
Tómas leggur hins vegar áherslu
á að Irskir dagar séu ekki unglinga-
hátíð heldur fjölskylduhátið. „Við
munum ekki einblína sérstaklega á
unglingana. Við búumst við mikl-
um fjölda, allur viðbúnaður okkar
gerir ráð fyrir því. Við reiknum
með fjölskyldufólki og tjaldstæðið
er búið tmdir það. Þá er dagskráin
sniðin að því að allir í fjölskyldunni
finni eitthvað við sitt hæfi.“
Fjöldi fólks hefur unnið að und-
irbúningi hátíðarinnar um langa
hríð og hefur verið séð fyrir öllu
sem hægt er að sjá fyrir. Veðrið er
hins vegar óvissuþáttur. Tómas
segir að samkvæmt spánni megi bú-
ast við vætu á fimmtudag og föstu-
dag, menn verði bara að bíða og sjá
hverju ffam vindur. „Þetta er hluti
af því að halda útihátíð á Islandi og
ekkert hægt að gera við því. Við
erum búin að gera okkar, búa til
glæsilega dagskrá og skapa góða
umgjörð og allir ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi,“ segir Tómas að
lokum.
kóp
TILB0Ð
IRSKUM
D0GUM
20%
afsláttur
Dömufatnaði
Herrafatnaði
Snyrtivörum
iímum
Skóm
—' SÍMI431 2007 £ 4 m'*
STILLHOLTI I 1 d
AKRANESi
✓
Stanslaust gæsapartý í Olafsvík