Skessuhorn - 04.07.2007, Síða 24
f
24
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2007
aaissuHöBH
I
Ófremdarástand í sjúkraflutningum
Á nokkrum stöðum á landinu við-
gengst sú vinnuregla að hafa aðeins
einn sjúkraflutningamann á vakt í
einu. Það er allt annað þjónustustig
en viðgengst á höfuðborgarsvæðinu
og á mörgum fjölmennari stöðum.
Þar sem aðstæður eru þannig að að-
eins einn sjúkraflutningamaður fer í
útkall hefúr það komið fyrir að við-
komandi þarf aðstoð vegfarenda til
að bera sjúkrabörur. Sjúkraflutn-
ingamenn keyra oft langar leiðir
einir með alvarlega veika sjúklinga
og menn hafa sett spurningamerki
við hvort hægt sé að veita eðlilega
þjónustu eða virka endurlífgun þeg-
ar aðstæðum hagar þannig. Skessu-
hom hafði samband við nokkra sem
málið varðar og þeir voru margir
hverjir myrkir í máli um ástandið.
Flýtur á meðan
ekki sekkur
Kristján Guðmundsson, sjúkra-
flutningamaður við heilsugæslu-
stöðina í Olafsvík segir að það sé
búið að vera margra ára barátta að
fá það í gegn að tveir sjúkraflutn-
ingamenn séu í hverjum sjúkra-
flutningabfl. „Hér virðist hugarfarið
vera, flýtur á meðan ekki sekkur og
þetta er svipað og að spila rússneska
rúlettu," segir Kristján. „Eg get
bent á nýlegt dæmi. Tilkynnt var
um rútuslys og þegar tilkynningin
barst var ég í sjúkraflutningi. Sá sem
er á móti mér á vakt var að gera sig
kláran í útilegu en ekki farinn, úti-
legunni hafði seinkaði vegna veðurs
og því gat hann farið í útkallið. Það
em svona tilviljanir sem hafa bjarg-
að okkur svo off. Sem betur fer
reyndist útkallið ekki eins alvarlegt
og tilkynningin bar með sér.“
Kristján bendir einnig á það að
sjúkraflutningamaður ber ekki
sjúkrabörurnar einn. „Það hefur
komið fyrir að við höfum stoppað
vegfarendur til að fá aðstoð eða
hlaupið í næsta hús eftír aðstoð sem
er algjörlega óviðeigandi." Kristján
ViS slysstaS í GrundarfirSi.
*
Umhverfislistayerk Páls
og Unnsteins
i.
4
*
4
Nýlega var lokið við allsérstakt
umhverfislistaverk í Reykholti í
Borgarfirði. Á vegum Reykholts-
staðar var ákveðið að ganga frá um-
hverfi hversins Skriflu, sem Snorri
Sturluson nýtti svo vel hér forðum
daga meðal annars til upphitunar á
heita pottinum sínum, eins og flest-
ir þekkja. Grjóthleðslumeistarinn
Unnsteinn Elíasson var fenginn til
að hlaða grjótvegg umhverfis hver-
inn og lokaði honum að ofan með
hellum. Grjótið var flutt úr Norð-
urárdal og hellurnar í þakið af
Kaldadal. Þorsteinn Guðmundsson
frá Húsafelli fékk síðan þá hug-
mynd að bróðir hans, Páll á Húsa-
felli gerði höggmynd til að prýða
hleðsluna og úr því varð. Páll gerði
Unnsteinn og Páll tylla sér á umhverfislistaverkiS ofan á Skriflu í Reykholti.
Snorri á Húsafelli kveður niSur draugana í Húsafelli. Listaverk Pálsfrá 1986.
myndarlega höggmynd af Snorra
sem prýðir nú topp hleðslunnar
ásamt strompi sem leiðir út gufuna
úr hvernum. Þeir Unnsteinn og
Páll eru sjálfir mjög ánægðir með
afraksturinn en verkinu luku þeir
fyrir skömmu.
Samstarfinu héldu Páll og Unn-
steinn síðan áfram og luku nýverið
við að endurgera umhverfi Drauga-
réttarinnar svokölluðu í Húsafelli.
Réttin var fyrsta listaverk Páls á ní-
unda áratug síðustu aldar og er af
Snorra á Húsafelli þar sem hann
kveður niður draugana forðum
daga. Draugarnir eru 18 en í þjóð-
sögunni sagði að þeir hafi verið 81,
en tölunum sneri hann við á sínum
tíma til að auðvelda verkið. I botn
réttarinnar hlóð Unnsteinn hellum
og fegruðu þeir félagar listaverkið
og umhverfi þess þannig að það
nýtur sín vel í landslaginu á móts
við Húsafellsbæina.
Aðspurðir segjast þeir félagar
Unnsteinn og Páll að samstarfið
hafi verið þeim báðum svo ánægju-
legt að vafalaust eigi effir að verða
framhald á því.
mm
Sjúklingur fœrSur inn í bíl í Grundarfiröi á síöasta ári.
bætir við að það góða fólk sem komi
til starfa á heilsugæslunni hafi ekki
þjálfun í búnaði sjúkrabílsins
þannig að hann hafi þurft að stöðva
bflinn við aksturinn til að leiðbeina
um notkunina í miðjum sjúkra-
flutningi.
Tilmæli landlæknis
hunsuð
I upphafi árs 2005 sendi Land-
læknir erindi til allra heilbrigðis-
stofnana þar sem ffam komu til-
mæli um að í hverjum sjúkrabfl
væru tveir menntaðir sjúkraflutn-
ingamenn og að þeir fylgdu sjúk-
lingnum allan tímann á meðan á
flutningi stendur. Kristján segir að
skemmst sé ffá því að segja að ekki
hafi verið tekið mark á þessum til-
mælum Landlæknis. „Tilmælum
embættisins var hafhað með þeirri
ótrúlegu röksemdarfærslu að þau
styðjist ekki við reglugerð. Mér
finnst að hér sé verið að þvæla sér í
reglugerðarafsakanir til að koma sér
undan því að veita fullnægandi og
eðlilega þjónustu við íbúana."
I desember árið 2006 samþykkti
Landlæknir vinnuferla fyrir sjúkra-
flutningamenn. Þeir taka af allan
vafa um til hvers ætlast er af sjúkra-
flutningamanninum við meðferð á
sjúklingi. Kristján segir að ekki sé
hægt að fara effir þeim ferlum á O-
lafsvíkursvæðinu þar sem einungis
einn maður sé á vakt og það sé ekki
hægt að skylda þann sem sé í ffíi til
að vera til taks. „Af hverju ætli það
fari tveir fullmannaðir sjúkrabflar af
höfuðborgarsvæðinu í útkall þegar
um endurlífgun er að ræða, ætli það
sé af forvitni hinna, eða þarf fleiri
en einn sjúkraflutningamann ásamt
lækni í þeim tilfellum? Það er og
hefur verið skýlaus krafa af okkar
hálfú að tveir sjúkraflutningamenn
séu í sjúkrabfl og þeir hafi til þess
réttindi eins og segir í reglugerð um
sjúkraflutningamenn. Ekkert annað
kemur tíl greina," segir Kristján.
Annað þjónustustig á
landsbyggðinni
Vernard Guðnason, formaður
landssambands slökkviliðs- og
sjiikraflutningsmanna, er ómyrkur í
máli þegar hann ræðir um þessi mál
og segir að um ófremdarástand sé
að ræða. Segir hann að þetta fyrir-
komulag viðgangist á nokkrum
stöðrnn á landinu en þekkist ekki í
þeim löndum sem Islendingar vilja
miða sig við. „Hverslags þjónusta er
það að við alvarleg veikindi og slys
sé sendur sjúkrabíll með einum
manni? Er það í lagi að í Borgarnesi
og nærsveitum, þar sem er eitt
stærsta sumarhúsasvæði landsins og
öll umferð norður og vestur fer um,
sé einn sjúkraflutningamaður til
taks í útköll? Er það í lagi að ffá ut-
anverðu Snæfellsnesi sé einn sjúkra-
flutningamaður sendur með alvar-
lega veika sjúklinga alla leið til
Reykjavíkur? Við þannig aðstæður
er ekki hægt að veita nokkra að-
hlynningu og sjúklingar eru jafnvel
í lífshættu."
Vernhard segir að auðvitað sé
ekki í lagi að þjónustustigið sé eitt-
hvað allt annað á landsbyggðinni en
á höfuðborgarsvæðinu. „Hvaða
stjórnmálamaður eða forstöðumað-
ur heilsugæslu léti hafa eftír sér að
það væri í lagi að fólk létíst jafnvel
vegna þess að ekki sé hægt að veita
eðlilega þjónustu eða virka endur-
lífgun af því að þetta sé úti á landi
og útköll þar færri? Svona er þetta
hins vegar og það er sorglegt til
þess að vita að allt of víða er málum
þannig háttað enn í dag,“ segir
Vemhard.
Stefiit að fjölgun
í Snæfellsbæ
Björg Bára Halldórsdóttir, ffam-
kvæmdarstjóri heilsugæslunnar í
Olafsvík sagði í samtali við Skessu-
horn að aðalástæðan fyrir því að að-
eins einn sjúkraflutningamaður sé á
vakt í héraðinu væri skortur á fjár-
magni. „Við stefiium að að því að
fjölga mönnum á næstu misserum
og hafa tvo sjúkraflutningamenn á
vakt í einu. Það er hins vegar ekki
allskostar rétt að það sé alltaf einn
sjúkraflutningamaður sem fer í
flutning. Þeir sjúkraflutningamenn
sem starfa hér hafa stundum kallað
hvor í annan til aðstoðar, auk þess
sem hjúkrunarfræðingar og eða
læknar fara með bflnum, ef um al-
varleg slys eða veikindi er að ræða.“
Hún segir að heilsugæslustöðin í
Olafsvík hafi ekki sótt um aukafjár-
veitingu til að tveir bflstjórar geti
verið á vakt samtímis við stöðina.
Margoft sótt um
aukið fjármagn
Guðrún Kristjánsdóttir, fram-
kvæmdastjóri heilsugæslunar í
Borgarnesi, segir að það sé ekki til
fjárveiting til þess að hafa tvo
sjúkraflutningamenn á vakt í einu.
Hún hafi sótt um aukið fjármagn í
ráðuneytið á hverju ári en því hafi
ávallt verið synjað. „Hér hafa
slökkviliðsmenn farið í útköll með
sjúkraflutningamönnum og þeir eru
allir með réttíndi sem sjúkraflutn-
ingamenn. Þeir eru samt ekki á bak-
vaktarskyldu hjá okkur. Þeir fara
eingöngu með ef sérstaklega er kall-
að í þá, en almennt fer sjúkraflutn-
ingamaður einn með lækni.“ Guð-
rún segir að í ár stefhi í að sjúkrabfll
fari í yfir 300 útköll á þessu ári ffá
heilsugæslunni í Borgarnesi, en
stöðin er stærsta einstaka heilsu-
gæslustöðin á landinu. Hún er með
fjárveitingu fyrir fjóra lækna yfir
sumarið en þrjá yfir veturna.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náð-
ist ekki í heilbrigðisráðherra, Guð-
laug Þór Þórðarson, vegna málsins.
af