Skessuhorn - 04.07.2007, Side 27
-msasumiiaí!!
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ2007
27
Holumar á Hamri orðnar átján
Síðastliðinn sunnudag var form-
lega opnaður stækkaður átján holu
golfvöllur að Hamri í Borgarbyggð.
Þar er því annar völlurinn af þessari
stærð á Vesturlandi, hinn er á Akra-
nesi. Víxlan var táknræn því heið-
ursfélagi klúbbsins og einn af stofh-
endum hans, Albert Þorkelsson, sló
fyrsta höggið. Albert verður áttatíu
og fimm ára í sumar og spilar enn
golf á hverjum degi, alla daga árs-
ins. Margt var um manninn að
Hamri þennan dag enda fátt betra
að gera fyrir golfáhugamenn en að
nýta veðurblíðuna og spila golf.
Guðmundur Eiríksson, formaður
Golfklúbbs Borgarness sagði í sam-
tali við Skessuhorn að saga upp-
byggingar að Hamri væri ögn
lengri. „Upphafið má rekja til árs-
ins 1971 þegar áhugasamir golfarar
komu saman til að skoða möguleika
þess að gera golfvöll. Formlega var
Golfklúbbur Borgarness stofnaður
21. janúar 1973 og árið 1975 var
undirritaður samningur við Borg-
arneshrepp, sem nú er Borgar-
byggð, um land undir níu holu
golfvöll að Hamri. Það var síðan
árið 1978 að klúbburinn fékk húsið
að Hamri til afnota sem þá var í
döpru ásigkomulagi, en klúbbfélag-
ar hafa tekið það alveg í gegn,“
sagði Guðmundur. Hann bætti við
að árið 1992 hefði verið samið við
Hannes Þorsteinsson golvallar-
hönnuð um gerð tillögu að 18 holu
golfvelli og hefði hönnun hans ver-
ið fylgt í meginatriðum síðan. Völl-
urinn var níu holu völlur þar til árið
2005 þegar hann var stækkaður í 12
holur og var þá par 72. I dag er
Þeir voru kampakátir Sigurgeir Erlenisson bakari og golfari og Guðmundur Eiríksson
formaður GB með nýja völlinn og ekki síst tertuna sem bökuð var í tilefni dagsins.
Og út um allan völl varfólk að spila golf enda veðrið tilþess.
Páll S. Brynjarsson sveitarstjóri og Guðmundur Eiríksson formaður GB innsigla með
handabandi undirritun um meira samstarf.
völlurinn fullar 18 holur og er par
71.
F ramkvæmdastj óri
ráðinn
Umsvif klúbbsins hafa vaxið og
árið 1998 var ráðinn framkvæmda-
stjóri til að annast þann daglega
rekstur sem áður hafði verið unnin í
sjálfboðavinnu. Fram kom í máli
Guðmundar að sjálfboðavinnan
hefði alltaf verið einn af grunnstoð-
um klúbbsins sem og góður smðn-
ingur fyrirtækja í sveitarfélaginu. „-
Fyrsti framkvæmdastjórinn var
Símon Aðalsteinsson sem reyndist
happafengur og mikil vítamín-
sprauta fyrir starfið. Hann lét af
störfum núna í vor og Jóhannes Ar-
mannsson tók við sem fram-
kvæmdastjóri GB. Völlurinn er
hæfilega erfiður og krefjandi og í
raun tilvalinn fyrir meðalkylfinginn.
Við höfum einnig hugmyndir um að
trjágróður verði ríkjandi og ein-
kennandi fyrir völlinn og umhverfi
hans í ffamtíðinni. Þegar er búið að
gróðursetja á fjórða þúsund plönmr
sem Bragi Jónsson hlúði að í upp-
hafinu en nú hefur Guðríður Ebba
Pálsdóttdr tekið við því starfi.“
Frekari uppbygging
að Hamri
Jafnframt opnun vallarins var
undirritað endurnýjað samkomulag
milli Borgarbyggðar og Golfklúbbs
Borgarness um áframhaldandi upp-
byggingu á svæðinu og viljayfirlýs-
ing um enn meiri rækt við unglinga-
starf hjá klúbbnum, sem enn meiri
áhersla verður lögð á í framtíðinni.
Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri
sagði í sínu ávarpi að sveitarfélagið
hefði ákveðið að setja fimmtíu millj-
ónir í þetta verkefni á næsm tíu
áram og að golfvöllurinn á Hamri
og uppbygging hans væri fjöður í
hatt Borgarbyggðar. Guðmundur
bætti við að uppbyggingu golfvallar
lyki sennilega aldrei. Nú væri verið
að spá í að byggja vélageymslu und-
ir tæki klúbbsins og nýtt klúbbhús.
Gamla húsið yrði þó ekki rifið, því
verði fundið nýtt hlutverk.
Hluti af uppbyggingu
ferðaþjónustu svæðisins
Guðmundur bætti við að auðvitað
væri þetta stór stund að opna þenn-
an stórglæsilega völl sem golfarar
líta á sem hluta af uppbyggingu
ferðaþjónusm á svæðinu. „Hér geta
þeir komið sem eiga eða dvelja í
styttri tíma í sumarhúsum í hérað-
inu og leikið. Eða þá að fólk fær sér
gistingu á Hótel Hamri og nýmr
þess að auki sem þar er í boði. Að
sjálfsögðu munu aðrir vellir verða
byggðir upp hér í ffamtíðinni og um
það er allt gott að segja. Við límm
ekki á það sem neina ógnun við
okkur, mikið ffemur tækifæri. Því í
huga okkar flestra er það kappsmál
að sem flestir geti spilað golf. Okk-
ar markmið er að byggja upp góðan
golfvöll og leggjum á það megin á-
herslu að hér verði allt í hæsm gæð-
um,“ sagði Guðmundur Eiríksson.
bgk
Stór stund í íþróttalífi Hvanneyringa
Fyrr í vikunni hófust Jörvamenn
á Hvanneyri handa við undirbún-
ing sparkvallargerðar við Anda-
kílsskóla á Hvanneyri. Verkefnið
er liður í sparkvallaátaki KSI og
verður lítill og snomr gervigras-
völlur byggður á lóð skólans. Þeir
Haukur Júlíusson og félagar hjá
Jörva sjá um jarðvegsvinnuna og
ætla þeir að ljúka verkinu tíman-
lega svo að völlurinn verði öragg-
lega tilbúinn þegar skólastarf hefst
í haust. Hér mun langþráður
draumur félaga í Ungmennafélag-
inu Islendingi rætast, en gamla
sveitarstjórn Borgarfjarðarsveitar
hafði sótt um og fengið styrk ffá
KSI til vallargerðarinnar.
Núverandi sveitarstjórn Borgar-
byggðar hefur síðan fylgt málinu
eftir og er mikil ánægja með þessa
ffamkvæmd. Allir íbúar Hvann-
eyrar og nágrennis munu njóta
verksins um ókomna ffamtíð, ekki
síst nemendur á Hvanneyri, hvort
heldur þeir eru í leikskóla-, grann-
skóla-, framhaldsskóla- eða há-
skólanámi á Hvanneyri.
Sverrir Heiðar
íþróttaálfurinn og sjónvarpsstjaman Hauk Júl. við upphaf verksins, sigutreifur með gul-
an knött á lofti og gular vélar í baksýn, ánægjan skín úr hverjum drœtti.
Guðlaugur Þór Þórðarson með tveimur
vistmónnum.
Heilbrigðisráð-
herra heimsótti
Höfða
Nýr heilbrigðisráðherra, Guð-
laugur Þór Þórðarson, heimsótti
Dvalarheimilið Höfða á Akranesi á
laugardaginn. Ráðherrann ræddi við
framkvæmdastjóra Höfða um rekst-
ur og ffamtíðaráætlanir heimilisins.
Að fundi loknum gaf ráðherrann sér
góðan tíma til að rölta um húsið og
heilsa upp á íbúa heimilisins. Var
honum afskaplega vel tekið og sum-
ir gaukuðu að honum góðum ráðum
um hvað væri brýnasta verkefhið
fyrir nýjan heilbrigðisráðherra. A-
bendingar vistmanna vora fjölmarg-
ar og m.a. var ráðherra bent á að
eyða biðlistunum. Guðlaugur Þór
tók öllum ábendingum vel, enda
nemur ungur það sem gamall temur.
kóp