Skessuhorn - 04.07.2007, Qupperneq 31
>>B£sauiu/áj.
MIÐVIKUDAGUR 4. JULI 2007
31
Skúli Skúlason, starfsmannastjóri Noóuráls og Valgeir Ingólfison, formaður knattspymu-
deildar Skallagríms handsala samninginn.
Norðurál og Borgar-
verk styrkja Skallagrím
Samningar hafa náðst á milli
Norðuráls á Grundartanga og
knattspyrnudeildar Skallagríms um
stuðning fyrirtækisins við félagið.
Samið var um stuðning til ársins
2009 og verður Norðurál með
samningnum einn af aðalstyktarað-
ilum félagsins. Þá var á föstudag
Oskar Sigvaldason hjá Borgarverki og
Valgeir Ingólfsson.
skrifað undir styrktarsamning á
milli Skallagríms og Borgarverks.
Sá samningur gildir frá 2007 til
2010.
Skallagrímur tapaði á fösmdag á
heimavelli sínum gegn Hvöt frá
Blönduósi. Loktaölur urðu 1-2
Hvöt í vil. Ekkert mark var skorað
í fyrri hálfleik sem var þó fjörugur
og einkenndist af mikilli baráttu.
Hvöt komst í 0-1 á 51. mínútu en
Kristófer Róbertsson jaínaði metin
fyrir Skallagrím 15 mínútum síðar.
A 72. mínútu skoraði Hvöt aftur og
Sköllunum tókst ekki að jafna leik-
inn. Leikurinn skipti miklu máli
þar sem liðin voru jöfh í öðru til
þriðja sæti riðilsins. Eftir leikinn er
Skallagrímur í þriðja sæti með ell-
efu stig, Hvöt í öðru með 14 og
Tindastóll á toppnum með 19 stig.
kóp
IA mætir
Víkingi
í bikamum
ÍA mætir Víkingi úr Reykjavík í
VISA bikarkeppni karla í knatt-
spymu. Dregið var í sextán hða úr-
slit á fimmtudag. IA á heimaleik
gegn Víkingi, en liðin mættust í
síðustu umferð úrvaldsdeildarinn-
ar og höfðu Skagamenn þá sigur
3-0. Tvær aðrar viðureignir verða
á milli úrvalsdeildarliða, KR tekur
á móti Val og í Kópavoginum
mætast nágrannarnir Breiðablik
og HK. Leikimir fara fram þriðju-
daginn 10. júlí og miðvikudaginn
11. júlí og leikur IA á heimavelli
klukkan 19:15 á miðvikudag.
Leikir sextán liða
úrslitanna:
Keppt í boltakasti.
Skagamenn treystu sig í sessi
með sigri á Víkingi
Skagamenn unnu verðskuldaðan
sigur á Víkingi á Víkingsvelli á
þriðjudag í liðinni viku þegar þeir
unnu 3:0. Leikurinn var upphafs-
leikur áttundu umferðar í Lands-
bankadeildinni í knattspymu. Fyrir
leikinn vom hðin jöfii með átta
stig. En með sigri fór IA í fjórða
sæti deildarinnar ásamt Fylki með
11 stig. Það var Króatinn
Svadumovic í liði LA sem átti
stærstan hlut í sigri Skagamanna en
hann skoraði tvennu, þriðja markið
skorar síðan hinn ungi og efnilegi
Jón Vilhelm Akason.
Víkingur byrjaði leikinn betur og
vora mun sterkari aðilinn fyrsta
korterið. A fimmtu mínútu átti
Grétar Sigfinnur Sigurðarson Vík-
ingi ágætt marktækifæri þegar hann
skallaði knöttinn að marki IA. Þar
var Bjami Guðjónsson til varnar og
komst fyrir sendinguna og forðar
því að Skagamenn fengju á sig
mark. A fimmtándu mínútu verður
markvörður Víkingsmanna, Bjarni
Þórður Halldórsson að fara af leik-
velh með skurð á höfði og fer þá
heldur að síga á ógæfuhliðina hjá
heimamönnum. A 26. mínútu
dregur til tíðinda þegar Króatinn
Svadumovic skoraði fyrir Skaga-
merrn með skotd af stuttu færi eftir
aukaspyrnu Bjarna Guðjónssonar.
A hinni margffægu markamínútu,
þ.e. 45. mínútu bættu Skagamenn
við öðm marki og aftnr var það
Svadumovic sem skorar effir að
hafa fengið sendingu frá Páli Gísla
Jónssyni, markverði IA, sem skaut
langt frá marki án þess að vamar-
menn Víkings fengju við neitt ráð-
ið. Það var síðan Jón Vilhelm Aka-
son sem innsiglaði sigur Akurnes-
inga þegar hann skallaði boltann í
markið eftir sendingu frá Andra
Júlíussyni, sem var nýlega kominn
inn sem varamaður fyrir Þórð Guð-
jónsson.
Næsti leikur IA verður í kvöld,
miðvikudag, á heimavelli gegn
Keflavík. Efrir þann leik fer Lands-
bankadeildin í frí til 15. júlí en þá
halda Skagamenn til Hafharfjarðar
og leika við topplið FH-inga í
deildinni. Það em því hörkuleikir
ffamundan og ástæða til að hvetja
fólk til að mæta á vellina.
mm
Héraðsmót HSH í Gnmdarfirði
Héraðsmót HSH í ffjálsum
íþróttum í flokki 7-10 ára var haldið
í blíðskaparveðri í Grundarfirði nú á
dögunum. Keppendur vora á þriðja
tuginn og skemmtu sér vel £ keppni í
60 metra hlaupi, boltakasti, hástökki,
langstökki og loks í 600 metra
hlaupi. Margir vora býsna lúnir í
lokin. Að loknum keppnisgreinum
var keppendum veitt verðlaun fyrir
góðan árangur. Hvöttu foreldrar
böm sín vel áffam og mátti sjá góð
tilþrif hjá keppendum og víst er að
Snæfellingar eiga góða ffamtíðar-
íþróttamenn. af
Það mátti ýá góð tilþrif hjá keppendum í hástökki.
600 metra hlaupið tók vel á enda margir orðnir lúnir að þvt
loknu.
Hluti keppenda með verðlaun sín að lokinni keppni.
s
Vfkingur O. vinnur sinn fyrsta leik
Ellert Hreinsson að skora annað mark Víkings eftir mistök markvarðar Fjarðarbyggðar.
1. Fjarðab.- Fjölnir
2. ÍBV-FH
3. Haukar - Fram
4. Þróttur - Keflavík
5. Þór Ak. - Fylldr
6. ÍA - Víkingur Rvk
7. KR - Valur
8. Breiðablik - HK
kóp
Varamarkmaður
Víkings Ó
til Snæfells
Snæfell hefur samið við Víking
Olafsvík um að fá varamarkvörð
Víkings, Snæbjöm Aðalsteinsson,
að láni. Snæbjörn hefur verið
varamarkvörður Víkinga undan-
farin ár, en hann verður tvítugur í
ár. Snæfellingum veitir ekki af
liðsstyrknum þar sem þeir era í
neðsta sæti B riðils þriðju deildar
án stiga effir fimm leiki. Reiknað
er með að Snæbjörn verði þegar
löglegur með Snæfelli.
kóp
Það var sól og blíða í Ólafevík
þegar Víkingar unnu sanngjaman
sigur á liði Fjarðabyggðar á mánu-
dagskvöld, en lokatölur leiksins
inðu 3-0. Bæði lið mættu ákveðin
til leiks og vora heimamenn mikið í
því að brjóta af sér á upphafsmínút-
unum og uppskára tvenn gul spjöld
á fyrstu 20 mínútunum. Hvoragt
liðið átti ffásagnarleg færi í upphafi
enda var þetta baráttuleikur. Það
var svo á fertugustu mínútu að Aljaz
Horvat skoraði fyrsta mark leiksins
með föstu skoti hægra megin úr
teignum í hornið fjær effir fyrirgjöf
Ragnars Mars Sigrúnarsonar.
Þannig stóð í hálfleik.
Fjarðabyggð átti fyrsta færi
seinni hálfleiks og sitt besta færi í
leiknum á 57. mínútu, Jóhann
Benediktsson tók hornspyrnu beint
á skallann á Halldóri Jónssyni en
Einar Hjörleifsson varði vel. A 70.
mínútu skoraði Ellert Hreinsson,
ffamherjinn knái úr Kópavoginum
annað mark Víkinga og sitt fyrsta í
sumar þegar hann pressaði stíft
varnarmann og markmann Fjarðar-
byggðar og komst einn á móti
markinu og lagði boltann beint í
markið. Fannar Hilmarsson skor-
aði síðan þriðja og síðasta mark
Víkinga með föstu skoti eftír send-
ingu Brynjars Guðjónssonar sem er
aðeins 15 ára. 3-0 sigur heima-
manna var því staðreynd og Vík-
ingar komnir með sinn fyrsta
heimasigur, hinsvegar er þetta að-
eins annar leikurinn sem Fjarða-
byggð fær á sig mark í sumar, öf-
undsverður árangur hjá liði sem er
nýkomið upp um deild.
Jónas Gestur aðstoðarþjálfari
Víkings sagði í samtali við Skessu-
horn að tími hefði verið kominn á
sigur hjá liðinu. „Við eram búnir að
spila vel í undanförnum leikjum og
þetta hlaut að fara að detta með
okkur. Fg óska bara strákvmum til
hamingju, þeir eiga þetta skilið.“
Þorvaldur Örlygsson þjálfari Fjarð-
arbyggðar sagði hins vegar að liðið
hefði spilað mikið undanfarið og
það sæti þreyta í liðinu. „Víkingar
era samt búnir að spila jafnmarga
leiki og við og þetta er jafn erfitt
fyrir þá en þeir spiluðu bara betur í
kvöld.“
HRAÐFRYSTIHUS
lhellissandshf
áv/Ljósm. af