Morgunblaðið - 24.05.2019, Page 20

Morgunblaðið - 24.05.2019, Page 20
G arðurinn minn er ómissandi hluti af tilverunni og hefur skap- að ómetanlegar samverustundir með fjölskyldu og vinum. Við hjónin höfum gert allt sjálf í garðinum og hann hefur kennt okkur það sem við kunnum í garðrækt. Við vorum búin að eiga húsið í nokkur ár þegar við létum setja svalir og stiga niður í garð og þá varð notkunin á honum miklu meiri og okkur fannst húsið stækka um helming,“ segir Kolbrún aðspurð um garðinn sinn. Hún segir að áhugi hennar á garðrækt hafi aukist við þessar fram- kvæmdir og síðan þá hafi þau prófað að rækta grænmeti, jarðarber og krydd. „Við höfum prófað ýmislegt, með misgóðum árangri þó. Garðrækt er þolinmæðisvinna og ef eitthvað gengur ekki þetta árið þá reynir maður aftur það næsta og næsta,“ segir hún. Garðhúsið breytti stemningunni „Þar sem garðurinn er lítill tókum við þá ákvörðun, þegar við byggðum lítið garðhús, að ræktunin yrði bara í pottum og kerum, en nú er mig farið að langa að rækta svolítið meira. Markmið sumarsins að þessu sinni er að gera pínulitlu grasflötina fallega og berjast við mosann.“ Kolbrún Kristleifsdóttir kennari býr ásamt fjölskyldu sinni í 105 Reykjavík. Hún hefur unun af því að hugsa vel um garðinn sinn. Fyrir nokkru settu þau hjónin garðhús í garðinn sem var smíðað úr afgangstimbri og þar á fjöl- skyldan ævintýralegar stundir en garðhúsið er notað allan ársins hring. Marta María | mm@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg  SJÁ SÍÐU 22 Fær útrás fyrir að fegra umhverfið í garðinum Kolbrún segir að þolin- mæði sé það eina sem þurfi í garðræktina. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2019 Heiðmörk 38 810 Hveragerði Sími 483 4800 Fax 483 4005 floragardyrkjustod.is flora@floragardyrkjustod.is GRÓÐURINN Í GARÐINN Fáið þið hjá okkur: Sumarblóm Tré og runnar Matjurtarplöntur Rósir Fjölær blóm Skógarplöntur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.