Morgunblaðið - 15.06.2019, Qupperneq 1
Tvítugurtölvu-
skálkur
16. JÚNÍ 2019SUNNUDAGUR
ynngimögnuðambódía
Tuttugu ár eruliðin frá því aðmyndin Fylkiðvar frumsýnd.Myndin slórækilega ígegn og mávíða sjá áhrifhennar. 28
K
K
Þáttur þjóðkirkjunnar
Me
tvíburabróðursínum semaldrei fæddist
Snertifletir þjóðkirkjunnar eru margir. Hvernig hefur
hlutur hennar þróast og hver er staða hennar nú?14
Tyler Hamiltoneftir að hann féll
á blóðprófi
Minnisvarðar um stórfengleg
afrek og innstu myrkur. 20
Að málaút í (út-sts)hornAfreksíþróttamenn rekur sjaldan ívörðurnar þegar kemur að því aðkýra hvers vegna þeir lutu í lægrahaldi, varð á í messunni eða félluOg frumleikinnm með nokkrumndum, alltént fráokkar hinna. 10
ðu formiympíuleikunum í Ríó árið 2016
ð úr
g
a
úts
gó
tir á Ól
si
k
Í of
Ásdís Hjálmsdót
Sá ekki DavidBeckham
Ryan Giggs í Manchester Unitedgegn Southampton 1996
prófi.
tíðu
ólíki
arhóli
á lyfja
er oft og
sjón
Afturganga Nelsonsflotaforingjablandaði sér óvæntí knattspyrnuleik
Tap Blackpool fyrir Bradfordí ensku knattspyrnunniárið 1996
L A U G A R D A G U R 1 5. J Ú N Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 139. tölublað 107. árgangur
RÓFNABÓND-
INN FESTUR
Á FILMU
AFSTEYPA
AF AFREKS-
HUG NÍNU
ALÞEKKT STYTTA 14GUÐMUNDUR Á SANDI 12
Sveitarfélög
» 192 sveitarfélög voru á Ís-
landi á árinu 1992. Þeim hafði
fækkað niður í 78 árið 2008 og
eru nú 72. Þeim gæti fækkað
um fjögur til viðbótar með
frjálsum sameiningum.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sveitarfélögum landsins fækkar um
fjögur fyrir eða um næstu kosningar
ef viðræður á Austurlandi og í Þing-
eyjarsýslum leiða til sameiningar.
Fækkun og stækkun sveitarfélaga
er nú aftur komin á dagskrá vegna
stefnu stjórnvalda um hækkun lág-
marksfjölda íbúa.
Lítil þróun hefur verið í skipulagi
sveitarfélagastigsins síðustu ár þrátt
fyrir að aukin verkefni hafi verið
flutt til sveitarstjórna. Verði sú
stefna lögfest sem unnið er eftir um
að lágmarksfjöldi íbúa verði 1.000
manns mun sveitarfélögum landsins
fækka um meira en helming á næstu
árum, úr 72 í 33. Í þeim 39 sveitar-
félögum sem sameinast öðrum búa
aðeins 4,7% íbúa landsins.
Eftir því sem best er vitað er nú
aðeins unnið að tveimur sameining-
um, það er samruna fjögurra sveitar-
félaga á Austurlandi, Fljótsdalshér-
aðs, Borgarfjarðarhrepps, Seyðis-
fjarðarkaupstaðar og Djúpavogs-
hrepps, og hafnar eru viðræður um
sameiningu Þingeyjarsveitar og
Skútustaðahrepps í Þingeyjarsýslu.
Fækkar um 4 sveitarfélög
Sameiningarviðræður á Austurlandi og í Þingeyjarsýslum Gerjun vegna
stefnu stjórnvalda um lágmarksfjölda íbúa Þvingun leiðir til helmingsfækkunar
MStefnir í meira en ... »16
Systur Systurnar fjórar eru allar
mjög efnilegir hljóðfæraleikarar.
Fjórar systur á aldrinum 9-14 ára
hafa undanfarin ár gert garðinn
frægan í Þýskalandi fyrir klassískan
hljóðfæraleik. Elsta systirin, Hanna
Rósa Árnadóttir, hafnaði á dögunum
í fyrsta sæti í flokki dúetts píanós og
þverflautu í landskeppni Þjóðverja í
klassískum hljóðfæraleik, alls unnu
eldri systurnar þrjár til sex verð-
launa í keppninni.
Allar leika þær á píanó og þar að
auki á strengjahljóðfæri, eitt eða
tvö. Þá hafa þær ferðast víða um
Þýskaland og um allan heim til þess
að leika tónlist, þrátt fyrir ungan
aldur. Árni Emilsson, faðir stúlkn-
anna, kveðst stoltur af dætrum sín-
um, þær hafi lagt hart að sér í tón-
listinni. „Þær eru duglegar og þessir
titlar hjálpa þeim áfram. Þetta er
hörkukeppni og ég er stoltur af
þeim.“
Systurnar fjórar koma úr mikilli
tónlistarfjölskyldu, en bæði faðir
þeirra og móðir, Regina Soergel, eru
mikið tónlistarfólk. Þá eru báðir afar
þeirra einnig tónlistarmenn. „Þetta
liggur nú eitthvað í genunum, en það
er auðvitað mjög mikil vinna á bak
við þetta eins og allt,“ segir Árni. »4
Slógu í gegn í Þýskalandi
Sex verðlaun í landskeppni í klassískum hljóðfæraleik
Nýr og glæsilegur Herjólfur kom til Vestmannaeyja undir
kvöld í gær eftir siglingu frá borginni Gdynia í Póllandi.
Áætlað er að ferjan hefji siglingar milli lands og Eyja í kring-
um næstu mánaðamót. Mun áhöfnin þá hafa reynt skipið og
undirbúið það fyrir almennar siglingar með farþega. Nýr
Herjólfur ristir grynnra en sá gamli.
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Nýr Herjólfur kom til
Vestmannaeyja undir kvöld
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, er væntanleg til Íslands í
ágúst næstkomandi. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum Morgun-
blaðsins stendur til að Merkel
verði viðstödd fund forsætisráð-
herra Norðurlandanna, sem fram
fer hér á landi dagana 19. til 21.
ágúst.
Á fundinum verður meðal ann-
ars rætt um málefni norðurslóða
og hefur Merkel
sýnt þeim mála-
flokki áhuga að
undanförnu.
Katrín Jakobs-
dóttir forsætis-
ráðherra átti
fund með
Merkel í Berlín í
nóvember.
Angela Merkel
hefur ekki áður komið til Íslands í
kanslaratíð sinni. Hún hefur setið í
embætti Þýskalandskanslara frá
árinu 2005.
Merkel Þýskalands-
kanslari til Íslands
Tilefnið er
fundarhöld í ágúst
Angela Merkel
„Það hefur gengið frábærlega
hjá okkur á þessum tíma og hefur
einstakt veðurfar á suðvesturhorn-
inu þar mikið að segja,“ segir Vig-
fús G. Gíslason, framkvæmdastjóri
Flügger lita, við Morgunblaðið.
Vísar hann í máli sínu til þess að
metsala hefur verið í útivörum hjá
Flügger litum það sem af er ári og
nemur söluaukningin um 60-70%
milli ára. Tæplega helmingur allrar
veltu hjá fyrirtækinu er útivörur og
er það veðurblíðan undanfarnar
vikur sem á sinn þátt í sölunni.
„Sumarið í fyrra var auðvitað
ekki gott veðurfarslega séð þannig
að það er gríðarlega jákvætt“. »18
Söluaukning nemur
60-70% í sólinni