Morgunblaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 24
FRÉTTASKÝRING Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Frétt Morgunblaðsins í gærum að breikkun Vestur-landsvegar þyrfti að fara íumhverfismat kom mörg- um í opna skjöldu. Flestir hafa ef- laust talið að slíkt mat væri óþarft því vegurinn hafi verið lagður fyrir ára- tugum með tilheyrandi raski. Aðeins væri verið að bæta við akreinum sitt hvorum megin við þær sem fyrir eru. En ekki er allt sem sýnist. Framkvæmdinni fylgja nefnilega ýmis aukaverk, svo sem gerð hlið- arvega beggja vegna Vesturlands- vegar. Austan Vesturlandsvegar verður gerður nýr vegur frá Gili að Arnarhamri. Vestan Vesturlands- vegar verði gerður nýr vegur frá Dalsmynni að Bakka. Þá verður lagð- ur vegur sunnan Ártúnsár sem mun tengjast eldri vegi og þvera Ártúnsá á ræsi. Heildarlengd hliðarvega er áætluð rúmlega 11 km og gert er ráð fyrir að vegirnir verði 9 metra breiðir án fláa. Nýir stígar og undirgöng Þá ráðgerir Vegagerðin að leggja 2,2 km af nýjum hjóla- og göngustígum og 6,9 km af reið- stígum. Einnig fern ný undirgöng við Móaberg, Esjuberg, Saltvíkurveg og vestan Arnarhamars. Jafnframt er gert ráð fyrir að stækka og betr- umbæta áningarstaði á leiðinni. Það var skilningur Vegagerð- arinnar að þessar framkvæmdir þyrftu ekki að fara í umhverfismat. Skipulagsstofnun er þessu ósam- mála. Í úrskurði sínum vísar hún m.a. í tilskipun Evrópusambandsins um mat á umhverfisáhrifum þess efnis að nýframkvæmdir við „construction of express roads“ séu ávallt háðar mati á umhverfisáhrifum. Þessi til- skipun gildir hér á landi vegna samn- inga okkar við ESB. Þá bendir Skipulagsstofnun ennfremur á að í leiðbeiningariti framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins sé vís- að til dóms Evrópudómstólsins þess efnis að framkvæmdir við breytingar á vegi geti jafngilt lagningu nýs veg- ar, út frá umfangi og hvernig staðið er að framkvæmdinni. Skipulagsstofnun hefur því tekið ákvörðun um að breikkun Vestur- landsvegar á níu kílómetra kafla á Kjalarnesi skuli háð mati á um- hverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000. Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auð- lindamála og er kærufrestur til 15. júlí 2019. Ákvörðunina má lesa í heild á vef Skipulagsstofnunar. Öllum er heimilt að senda inn kæru. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær er Vegagerðin að fara yfir úrskurð Skipulagsstofnunar og jafnframt að meta fordæmisgildi hans. Ljóst er að töf verður á því að breikkun Vesturlandsvegar á Kjalar- nesi hefjist, en mjög hefur verið þrýst á það verk til að auka umferð- aröryggi. Miklar líkur eru á að ákvörðun Skipulagsstofnunar verði kærð. Ef niðurstaðan verður sú að hún standi hefst umfangsmikið mats- ferli. Óvíst er hve langan tíma það tekur. Málsmeðferð vegna mats- skyldra framkvæmda er þannig lýst í 8. grein laga um umhverfismat nr. 106 frá 2000: „Nú er fyrirhuguð framkvæmd háð mati á umhverfis- áhrifum samkvæmt lögum þessum og skal framkvæmdaraðili (Vega- gerðin) þá gera tillögu að matsáætl- un til Skipulagsstofnunar eins snemma á undirbúningsstigi fram- kvæmdar og kostur er. Í tillögu framkvæmdaraðila skal lýsa fram- kvæmdinni, framkvæmdasvæði og öðrum möguleikum sem til greina koma og gefa upplýsingar um skipu- lag á framkvæmdasvæði og hvernig framkvæmd samræmist skipulags- áætlunum.“ Umhverfismat vegna reglna frá Evrópu Morgunblaðið/Ómar Vesturlandsvegur Gríðarleg umferð er þar á álagstímum og bíll við bíl. 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýrri heil-brigðis-stefnu er ýmislegt áfátt þótt hún hafi flogið í gegnum þingið. Læknar hafa kvartað undan samráðsleysi og segja að ekki hafi verið hlustað á viðhorf þeirra og ábendingar. Reynir Arngrímsson, for- maður Læknafélags Íslands, lýsir því í viðtali í Sunnudags- blaði Morgunblaðsins hvernig læknar hafi tekið óskir heil- brigðisráðuneytisins um at- hugasemdir mjög alvarlega, sest niður í stórum vinnuhóp- um og bent á ýmislegt sem betur mætti fara. „Það var eins og allt það starfsfólk sem vinnur sjálf- stætt hefði gleymst,“ segir Reynir. „Ég get nefnt SÁÁ. Hver er heilbrigðisstefnan varðandi samskipti við SÁÁ og meðferð á fíkniefnasjúkdóm- um til dæmis? Reykjalundur er annað dæmi, einnig heilsu- stofnun Náttúrulækninga- félagsins, sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfarar, sjálfstætt starfandi sálfræðingar og sjálfstætt starfandi læknar. Það var bara eins og allt þetta fólk væri ekki til.“ Ágúst Kárason sér- fræðilæknir gagnrýnir nýju stefnuna einnig í blaðinu. Hann segir að þar skorti skiln- ing á flæði sjúklinga milli sjúkrahúsa og einkastofa og óttast afleiðing- arnar. „Það er kaldhæðnislegt ef Vinstrigrænir verða til þess að búa til alvöru tvö- falt kerfi í heilbrigðismálum á Íslandi,“ segir hann. Reynir bendir á annan hóp, sem einnig fari lítið fyrir í skýrslunni. Sjúklinga. „Það er ekkert um réttindi sjúklinga í stefnunni. Það er ekkert um sjúkratryggingaréttinn. Við höfum séð að það er deilt um hann núna vegna langra bið- lista. Ætti ekki fé að fylgja sjúklingi frekar en stofnunum? Í dag er hægt að fá fé til að fara til einkarekinnar stofn- unar erlendis en ekki einka- rekinna stofnana hér heima. Það vantar allt um sjúklinga- réttinn,“ segir Reynir og bætir við að ekkert hafi verið hlustað á óskir um að til kæmi umboðs- maður sjúklinga. Sjúklingum á biðlistum veitti ekki af slíkum bakhjarli. Sjúklingum sem frekar vildu fá bót meina sinna hjá einka- stofum á Íslandi en að fara í margfalt dýrari aðgerðir er- lendis gætu ekki síður notið góðs af því. Þess misskilnings gætir stundum að tilvist borg- aranna sé til að þjónusta stofnanirnar, ekki öfugt. Réttur sjúklingsins og þar með hans hagur á að vera mið- depill heilbrigðisstefnu en ekki afgangsstærð. Hagur sjúklinga á að vera miðdepill heil- brigðisstefnu} Réttindi sjúklinga Það hefur kom-ið mörgum í koll að láta ginn- ast af smálánum. Það getur virst þægilegt að taka lán fyrir- hafnarlaust til að fleyta sér í gegnum peningavandræði. Smálánin bera hins vegar háa vexti og frekar en að leysast getur vandinn verið fljótur að vinda upp á sig. Umfang þessa vanda kem- ur fram í samtali við Breka Karlsson, formann Neytenda- samtakanna, Morgunblaðinu í gær. Breki gagnrýnir mark- aðssetningu smálánafyrir- tækjanna og hefur hörð orð um hvernig þau reyni að nýta sér reynsluleysi ungs fólks í peningamálum. Furðar hann sig á því að þessi fyrirtæki virðist án nokkurrar heim- ildar geta gengið inn á banka- reikninga einstaklinga og tæmt þá þannig að þeir lendi á götunni vegna þess að þeir geta ekki borgað leigu og eiga ekki fyrir nauðþurftum. Breki nefnir einnig dæmi um yfirgengilega háa vexti á smá- lánum. Hann viti til þess að ein- staklingar greiði á bilinu 1.500 til 3.500 prósenta vexti. Frásögn hans af 18 ára pilti, sem á skömmum tíma kom sér í 1,9 milljóna króna skuld með því að taka aftur og aftur nýtt lán til að borga gamla lánið er sláandi og það er ekki hægt annað en að taka undir með Breka þegar hann segir að fólk með litlar sem engar tekjur eigi ekki að geta tekið svona hátt lán. Það er með ólíkindum hvernig smálánafyrirtæki geta lagt fjárhag einstaklinga í rúst. Þessi fyrirtæki hafa allt of frjálsar hendur og ættu að lúta sambærilegu eftirliti og fjármálafyrirtæki gera al- mennt. Þá hlýtur einfaldlega að vera hægt að stöðva starf- semi smálánafyrirtækja, sem ekki virða lög og voga sér að innheimta mörg þúsund pró- senta vexti. Margir hafa farið illa á að taka smálán}Skaðsemi smálána Í slendingum finnst alltaf áhugavert að tala um veðrið. Þegar ættingar eða vinir hringja á milli landsvæða er al- gengt að spurt sé um veðrið í upphafi eða um mitt símtal. Við deilum mynd- um á samfélagsmiðlum þegar fjallshlíðarnar verða gráar, þegar bílastæðin fyllast af snjó og þegar úfinn sjórinn æðir yfir brimgarðana í mesta rokinu – og svo auðvitað þegar sólin skín og hitinn nær tveggja stafa tölu. Þrátt fyrir að við þekkjum íslenska veðrið eins og lófann á okkur kemur það okkur stöðugt á óvart. Við höfum flest fengið að njóta einstakrar blíðu síðustu vikur. Það lifnar yfir öllu. Náttúran skartar sínu og flestir verða glað- legri og léttari á fæti. Við fyllumst jákvæðni og bjartsýni og njótum samveru hvert við annað. Líkt og með veðrið skiptast á skin og skúrir í lífi þjóðar. Oftast er meðvindur en á stundum blæs á móti en alltaf komumst við í gegnum storminn. Með baráttuanda, smá vott af kæruleysi í bland við ákveðna þrjósku höfum við sem þjóð náð miklum árangri á svo mörgum sviðum – og við höldum áfram að sækja fram. Þó svo að stjórnmálaumræðan endurspegli ekki alltaf þann árangur sem við höfum náð, þá er stað- reyndin sú að efnahagur landsins hefur aldrei verið sterkari, skuldir heimilanna ekki verið lægri í 20 ár, lífs- gæði hér á landi eru með þeim mestu í heimi og þannig mætti áfram telja. Og Ísland er friðsamasta land í heiminum. Lífsins gæði verða ekki öll mæld í efnis- legum þáttum. Það eru ómetanleg gæði sem felast í hamingju þjóðarinnar þegar við náum góðum árangri í íþróttum. Það er óhætt að segja að landsliðið okkar í knattspyrnu hafi fært okkur meiri gleði í þessari viku en stjórnmálin gerðu svo tekið sé dæmi. Og það er fleira sem endurspeglar þau verðmæti sem við búum yfir sem þjóð. Nær öll kvöld ársins eru leikhúsin full af fólki þar sem okkar frábæru listamenn flytja hvert stórverkið á fætur öðru. Við eigum, að því er stundum virðist óþrjótandi uppsprettu tón- listarmanna sem glæða sálir með tónlist sinni, við eigum heimsklassa rithöfunda, færa vísindamenn og þannig mætti lengi áfram telja. Við erum rík þjóð á efnislegan mælikvarða en hlut- fallslega erum við líklega ríkust allra þjóða mælt í óefn- islegum gæðum. Líkt og með góða veðrið er það eitthvað sem eigum að vera þakklát fyrir. Við vitum að veðrið breytist en listir og menning hjálpa okkur að komast í gegnum mestu stormana – og munu gera áfram. Íþróttir, listir og menning er ómissandi krydd í tilveru okkar Ís- lendinga. Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Við erum ríkust allra þjóða formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðis- flokksins. aslaugs@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Markmið laga um mat á um- hverfisáhrifum eru:  Að tryggja að áður en leyfi er veitt fyrir framkvæmd, sem kann vegna staðsetningar, starfsemi sem henni fylgir, eðl- is eða umfangs, að hafa í för með sér umtalsverð umhverfis- áhrif, hafi farið fram mat á um- hverfisáhrifum framkvæmdar.  Að draga eins og kostur er úr neikvæðum umhverfisáhrif- um framkvæmdar.  Að stuðla að samvinnu þeirra aðila sem hafa hags- muna að gæta eða láta sig mál- ið varða vegna framkvæmda sem falla undir ákvæði laga þessara.  Að kynna fyrir almenningi umhverfisáhrif framkvæmda sem falla undir ákvæði laga þessara og mótvægisaðgerðir vegna þeirra.  Að gefa almenningi kost á að koma að athugasemdum og upplýsingum áður en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum fram- kvæmdar liggur fyrir. Dregið verði úr áhrifum LÖG UM UMHVERFISMAT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.