Morgunblaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019
HOLTAGARÐAR
RISA
LAGERSALA
60-80%
AFSLÁTTUR
HERRA- OG DÖMUFATNAÐUR
GALLABUXUR - KJÓLAR - JAKKAFÖT
TOPPAR - ÚLPUR - SKÓR - SKYRTUR
YFIR 100 VINSÆL VÖRUMERKI
LOKA HELGI
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
12-18
13-18
15. júní 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.25 125.85 125.55
Sterlingspund 158.75 159.53 159.14
Kanadadalur 94.08 94.64 94.36
Dönsk króna 18.919 19.029 18.974
Norsk króna 14.459 14.545 14.502
Sænsk króna 13.203 13.281 13.242
Svissn. franki 126.03 126.73 126.38
Japanskt jen 1.154 1.1608 1.1574
SDR 173.32 174.36 173.84
Evra 141.3 142.1 141.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.8231
Hrávöruverð
Gull 1335.8 ($/únsa)
Ál 1753.0 ($/tonn) LME
Hráolía 59.94 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Áætluð tekju-
afkoma hins opin-
bera er neikvæð
um 8,7 milljarða
króna á fyrsta árs-
fjórðungi, sem
nemur 1,3% af
vergri landsfram-
leiðslu ársfjórð-
ungsins, sam-
kvæmt tölum
Hagstofunnar.
Skýrist samdrátturinn að mestu af
lægri arðgreiðslum fjármálafyrirtækja.
Á fyrsta ársfjórðungi 2018 var tekju-
færður arður upp á 21,5 millljarða
króna samanborið við tæpar 400 millj-
ónir fyrir sama tímabil í ár. Sé litið
framhjá þeim arðgreiðslum er áætlað
að heildartekjur hins opinbera aukist
um 3,2% á tímabilinu. Áætluð útgjöld
aukast um 8,1% á fyrsta ársfjórðungi í
ár miðað við sama tíma í fyrra. Launa-
kostnaður vegur þar þungt, en hann er
um 34,4% af heildarútgjöldum ríkisins.
Samdrátturinn skýrist
af lægri arðgreiðslum
Arðgreiðslur Sam-
dráttur á milli ára.
STUTT
BAKSVIÐ
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Metsala hefur verið í útvörum hjá
Flügger litum það sem af er ári og
nemur söluaukningin um 60-70%
milli ára. Þetta segir Vigfús G. Gísla-
son, framkvæmdastjóri Flügger lita,
í samtali við Morgunblaðið.
Útivörur eru tæplega helmingur
allrar veltu hjá fyrirtækinu og því
hefur veðurblíðan síðustu vikur verið
afar kærkomin fyrir fyrirtækið.
„Það hefur gengið frábærlega hjá
okkur á þessum tíma og hefur ein-
stakt veðurfar á suðvesturhorninu
þar mikið að segja. Einungis fjórð-
ungur landsmanna býr utan höfuð-
borgarsvæðisins og því hefur gott
veður suðvestanlands svona mikil
áhrif. Sumarið í fyrra var auðvitað
ekki gott veðurfarslega séð þannig
að það er gríðarlega jákvætt að fá
þessa blíðu sem verið hefur undan-
farið,“ segir Vigfús og bætir við að
metsala sumarsins kunni að vera
sökum uppsafnaðs vanda. Þar spili
inn í mikil rigning síðasta sumar sem
olli því að illa gekk að klára verk.
„Þetta var auðvitað með miklum
ólikindum. Málarar sem ætluðu sér
að klára verk í maí voru fyrst að
komast í þau í ágúst. Þetta gerði það
að verkum að afköst málara voru
minni sem þýðir minni sala hjá máln-
ingarfyrirtækjum. Ég áætla að við
séum búin að selja jafnmikið núna og
við vorum búin að gera um
verslunarmannahelgina í fyrra,“
segir Vigfús.
Samkvæmt upplýsingum á vef
CreditInfo nam heildarvelta Flügg-
er lita á tímabilinu maí 2017 til maí
2018 tæpum 1,2 milljörðum króna.
Þá nam rekstrarhagnaður félagsins
á sama tímabili rétt tæplega 140
milljónum króna.
Veðrið verið alveg einstakt
Spurður hvort gera megi ráð fyrir
aukinni veltu á þessu ári kveðst Vig-
fús eiga erfitt með að spá um fram-
haldið, sérstaklega í ljósi eilífrar
veðuróvissu hér á landi. Það sem af
er ári hafi hins vegar gengið mjög vel
og vonast hann til að áframhald verði
á því. „Eins og ég sagði áður þá er
örugglega hægt að rekja eitthvað af
þessari miklu söluaukningu í útivör-
um til uppsafnaðrar þarfar. Okkur
hefur gengið alveg frábærlega á
þessum tíma enda veðrið verið með
eindæmum. Í fyrra var auðvitað
mjög erfitt að eiga við ýmis útiverk
og því nýtir fólk tækifærið nú þegar
veðrið er svona gott,“ segir Vigfús og
bætir við að sala á útivörum geti
sveiflast mikið. Þá sé mjög misjafnt
hvaða sumarmánuður reynist sölu-
hæstur ár hvert.
„Það er misjafnt hvaða mánuður
er stærstur, stundum er það júní en
svo er það kannski júlí ári síðar. Það
er veðurfarið sem stýrir því og við
getum ekki leyft okkur þá bjartsýni
að halda að sumarið verði allt eins og
þessar fyrstu sex vikur. Þetta hefur
verið alveg einstakt og auðvitað von-
ar maður bara að þetta haldi eitt-
hvað áfram,“ segir Vigfús.
Útivörur hafa rokið út hjá
Flügger litum í sumar
Morgunblaðið/Ernir
Útimálun Illa gekk að komast í útiverk í fyrra sökum veðurs. Annað hefur verið uppi á teningnum það sem af er ári.
Sumarvörur
» Fyrirtækið hefur nú þegar
selt jafnmikið og um versl-
unarmannahelgi í fyrra.
» Fyrstu sex vikur sumarsins
hafa verið einstakar hvað
veðurblíðu varðar.
» Framkvæmdastjóri Flügger
lita telur að rekja megi met-
sölu sumarsins að hluta til
uppsafnaðrar þarfar frá fyrra
ári þar sem rigndi nær stans-
laust.
60-70% söluaukning það sem af er ári Veðurblíðan hefur mjög jákvæð áhrif
„Við erum að fá einhvern allt annan
markhóp inn í tjöldin. Sem eru bara
Íslendingarnir,“ segir Arnór Gísla-
son, rekstrarstjóri Ellingsen, þar
sem salan hefur tekið gríðarlegan
kipp að undanförnu. Segir hann
birgðastöðu búðarinnar í dag, um
miðjan júní, vera á svipuðum stað og
hún var þegar vel var komið inn í júlí í
fyrra og að fyrirtækið sé nú þegar
búið að leggja inn aukapantanir.
„Undanfarin ár höfum við selt ágæt-
lega til erlendra ferðmanna og til Ís-
lendinga í bland, en aldrei nokkurn
tímann í þessum mæli,“ segir Arnór.
Minnir á sumrin eftir hrun
Í gær hafði Ellingsen selt meira af
útileguvörum í júní í heldur en allan
júní í fyrra. Í maí og júní nemur svo
söluaukningin á tjöldum og svefnpok-
um 50% miðað við sama tíma í fyrra.
Að sögn Arnórs hefur raunar sala á
útileguvörum síðustu vikuna verið
áþekk og í miðjum júlí og aðdraganda
verslunarmannahelgarinnar.
„Við erum nokkuð viss um að fram
undan sé eitt stærsta útilegusumar
Ellingsen í langan tíma. Við sáum
þetta síðast sumrin eftir hrun, árin
2009 og 2010. Þá virtust Íslendingar
líka ætla að ferðast innanlands,“
segir Arnór.
Miðað við horfur í efnahagsmálum,
þar sem greiningardeild Arion banka
spáir m.a. neikvæðum hagvexti í ár
upp á 1,9% og Landsbankinn sam-
drætti í landsframleiðslu upp á 0,5% í
ár, virðist sama þróun vera í spilun-
um núna. „Það er nokkuð líklegt.
Þetta er auðvitað hagstæð leið fyrir
ferðalög. Nú er hárrétt tímabil til
þess. “ segir Arnór. peturh@mbl.is
Sumar Kælibox og tjöld standa á
palletum í anddyri Ellingsen.
Sala á tjöldum
hefur tekið kipp
Íslendingar
virðast ætla að
ferðast innanlands