Morgunblaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019
Fyrir 50 árum, nánar tiltekiðþann 17. júní árið 1969,rættist spádómurinn umBoris Spasskí – að hann
myndi einn daginn verða heims-
meistari í skák. Þjóðhátíðardagur
Íslendinga var einnig 40 ára afmæl-
isdagur Tigrans Vartan Petrosjan
sem hafði borið skákkrúnuna í sex
ár. Tveim vinningum undir og með
tapaða biðstöðu í 23. skák bauð
Armeninn jafntefli sem Spasskí þáði
með sigurbros á vör. Lokaniður-
staðan varð 12½ : 10½.
Örlögin höguðu því svo að Spasskí
kom til Íslands þrem árum síðar til
að verja titilinn. Má geta þess að
Guðmundur G. Þórarinsson, sem þá
var forseti SÍ, er að skrifa bók um
einvígið 1972, en hann var í Moskvu
á dögunum og reyndi að ná fundi
Spasskís, sem ekki tókst því að þessi
ágæti vinur okkar hefur lengi átt við
vanheilsu að stríða.
Af einhverjum ástæðum hefur
Spasskí verið vanmetinn heims-
meistari en ástæður þess eru senni-
lega þær að eftir að hafa tapað titl-
inum tefldi hann ekki af sama þrótti
og áður, jafntefli voru of mörg,
metnaðurinn virtist horfinn og ljóm-
inn í kringum nafn hans dofnaði.
Hann taldi sjálfur að besta tímabil
sitt hefði verið árin 1964-1970 og þar
var allt annar maður á ferð, slyngari
en nokkur annar í miðtöflum. Hann
vann áskorunarrétinn með yfir-
burðasigri í kandídataeinvígjum árið
1968 við Geller, Larsen og Kortsnoj.
Við í skáklandsliði Íslands vorum
með honum rúma viku í æfingabúð-
um við Selvatn haustið 1988 og það
var gaman að hlusta á frásagnir frá
baráttunni við Petrosjan. Eitt af því
sem hann kvaðst hafa gert með
þjálfara sínum, Igor Bondarevskí,
var að skoða ljósmyndir af Petrosjan
við taflið. Gátu þeir lesið eitt og ann-
að út úr svipbrigðum og atferli, t.d.
að þegar hann var áberandi tauga-
óstyrkur var hann í raun hættuleg-
astur. Í 24 skáka einvíginu þeirra 6́9
komst Petrosjan strax yfir, en
Spasskí jafnaði fljótlega og náði
tveggja vinninga forskoti. Petrosjan
vann þá tvær skákir og eftir 16
viðureignir var staðan jöfn. Í næstu
skák komst Spasskí yfir, jók síðan
forskot sitt í þeirri nítjándu og vann
öruggan sigur. Bestu sigurskákir
Spasskís voru frábærlega tefldar af
hans hálfu:
17. einvígisskák:
Boris Spasskí – Tigran Petrosjan
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 Rbd7 7.
Bc4 Da5
Petrosjan tefldi nokkrum sinnum
svona gegn Bg5-leið Najdorf-
afbrigðisins. En hann stefndi yfir-
leitt að langri hrókun.
8. Dd2 h6?!
Þessi leikur lætur lítið yfir sér en
það mat Spasskís að best sé að láta
biskupinn strax af hendi reyndist
hárrétt. Síðar á ferlinum lék Pet-
rosjan 8. ... e6 og síðan –b5, Bb7
o.s.frv.
9. Bxf6! Rxf6 10. O-O-O e6 11.
Hhe1 Be7 12. f4 O-O 13. Bb3 He8
14. Kb1 Bf8 15. g4!
Opnar línur á kóngsvængnum.
Svartur gerir best í að taka peðið.
15. ... Rxg4 16. Dg2 Rf6 17. Hg1
Bd7 18. f5 Kh8
18. ... e5 er einfaldlega svarað með
19. Rf3! sem hótar 20. Dg6. Svartur
á enga haldgóða vörn við þeirri hót-
un.
19. Hdf1 Dd8 20. fxe6 fxe6
21. e5!
Þetta gegnumbrot ræður úrslit-
um.
21. ... dxe5 22. Re4! Rh5
Um annað var ekki að ræða, 22. ...
Rxe4 er svarað með 23. Hxf8+!
Hxf8 24. Dxg7 mát.
23. Dg6! exd4
24. Rg5!
Gerir út um taflið, 24. .. hxg5 er
svarað með 25. Dxh5+ Kg8 26.
Df7+ Kh7 27. Hf3 og mátar.
Petrosjan gafst upp.
Boris Spasskí
varð heimsmeist-
ari fyrir 50 árum
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Þorsteinn Guðmundsson
fæddist 15. júní 1817. For-
eldrar hans voru hjónin Guð-
mundur Þorsteinsson, bóndi í
Skarfanesi í Landsveit, Rang.
og Hlíð í Gnúpverjahreppi,
Árn., og Guðlaug Gunnars-
dóttir.
Þorsteinn nam bókband en
var snemma drátthagur. Hann
fór til Kaupmannahafnar 1844 í
málaranám með mannamynda-
gerð í huga, eins og segir í
bréfi: „…allur hans hugur og
eftirlaungun er til að verða
málari, sérílagi portrait-
maler“. Hann var í listaháskól-
anum þar til 1848, en átti síðan
heima á Íslandi.
Fjórir Íslendingar komu
heim úr myndlistarnámi frá
1800 til 1850 en engum tókst að
hafa myndlist að aðalstarfi.
Þorsteinn gerðist vinnumaður
hjá föður sínum í Hlíð en sinnti
síðan söðlasmíðum og húsa-
málun. Eftir hann eru nokkrar
altaristöflur, til dæmis í Ólafs-
vallakirkju á Skeiðum,en varð-
veittar mannamyndir eru innan
við tíu.
Eiginkona Þorsteins var
Elísabet Björnsdóttir, dóttir
Björns Jónssonar, prests á
Stokkseyri. Þau skildu, en son-
ur þeirra var Þórarinn gull-
smiður á Ísafirði.
Þorsteinn lést 26. maí 1864.
Merkir Íslendingar
Teikning eftir Þorstein Guðmundsson.
Þorsteinn
Guðmundsson
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Borís Spasskí.
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is
14-18. júní
skoðið úrvalið á facebook
ÞJÓÐHÁTÍÐAR TILBOÐ
Þú getur pantað í gegnum Facebook síðu
okkar og fengið sent hvert á land sem er.
OPIÐ
17. JÚNÍKL.11-17
40%
afsláttur
af völdum skóm*
Opið: laugardag frá 10-18 – sunnudag frá 11-17
SixMix 17766 black
Stærðir: 36-42
Verð: 19.990.-
Nú: 11.994.-
SixMix 16935 wine
Stærðir: 36-42
Verð: 14.990.-
Nú: 8.994.-
Piano 17760 rose
Stærðir: 36-42
Verð: 16.990.-
Nú: 10.194.-
Piano 177665 zinco
Stærðir: 36-42
Verð: 15.990.-
Nú: 9.594.-
SixMix 2403 white
Stærðir: 36-41
Verð: 13.990.-
Nú: 8.349.-
SixMix 2423 zinco
Stærðir: 36-41
Verð: 13.990.-
Nú: 8.349.-
SixMix 1058 red
Stærðir: 36-42
Verð: 14.995.-
Nú: 8.997.-
SixMix 1776 red
Stærðir: 37-40
Verð: 19.995.-
Nú: 11.997-
SixMix 1996 grey
Stærðir: 36-41
Verð: 16.995.-
Nú: 10.197.-
SixMix 17837 black
Stærðir: 36-41
Verð: 19.995.-
Nú: 11.997.-
*Fleiri tegundir af skóm á afslætti má
sjá á Facebook og í búðinni.
Fyrir nokkru síðan
gerðist atburður sem
fékk mig til að hugsa
um björgunargetu
Landhelgisgæslunnar.
Það var þegar stórt
skemmtiferðaskip varð
vélarvana undan strönd
Noregs, sem kallaði á
mikla björgunaraðgerð
af hálfu norskra björg-
unaraðila. Viðbrögð
þeirra voru að flytja
fólk af skipinu með þyrlum. Á rúmum
sólarhring tókst sjö þyrlum að flytja
um fimm hundruð manns af skipinu
af 1500 sem voru um borð. Þá voru
Norðmenn tilbúnir að nota björg-
unarskip til að ná í fólk ef þess hefði
þurft. Sem betur fer náðist að koma
vélum skipsins aftur í gang og gat
það siglt fyrir eigin vélarafli í höfn.
Þetta atvik fór vel og í kjölfarið fór
umræða í gang um getu íslenskra
björgunaraðila til að bregðast við
svipuðu atviki.
Nú vill svo til að í ár og undanfarin
ár hefur fjöldi skemmtiferðaskipa
sem sigla við Íslandsstrendur aukist
mjög. Landhelgisgæslan hefur yfir
að ráða tveimur varðskipum og
þremur þyrlum. Auk þess eru björg-
unarsveitir víða um land með björg-
unarskip. Að takast á við að bjarga
stóru skemmtiferðaskipi í hafsnauð
er risaáskorun fyrir íslenska björg-
unaraðila. Í raun höfum við einungis
varðskipið Þór til að bregðast við.
Varðskipið Þór er gífurlega öflugt
björgunarskip, margfalt öflugra skip
en hitt varðskipið, Týr, m.a. hvað
varðar dráttargetu. Þessi staðreynd
fær mig að draga þá ályktun að við
þurfum að hafa annað varðskip álíka
öflugt og Þór.
Það er hægt að auka björgunar- og
viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar
með einföldum aðgerðum. Í fyrsta
lagi væri hægt að auka úthald Þórs
þannig að skipið væri á sjó allt tíma-
bilið (maí til október) sem skemmti-
ferðaskipin eru hér við land og tilbúið
að bregðast skjótt við ef aðstæður
krefðust þess.. Þetta
myndi kalla á aukinn
rekstrarkostnað skips-
ins um 200-300 milljónir
á ári. Í öðru lagi væri
hægt að auka enn á
björgunar- og við-
bragðsgetu Land-
helgisgæslunnar með
því að auka úthald Týs
á móti Þór og búa þann-
ig um hnútana að þegar
annað skipið er á sjó
væri hitt í höfn með
áhöfn tilbúna til brott-
farar innan tveggja
tíma. Þetta myndi auka rekstrar-
kostnað Týs um 100 milljónir á ári.
Með því að auka rekstrafé til varð-
skipanna um allt að 400 milljónum
væri hægt að stórauka úthald þeirra
og björgunar- og viðbragsgetu til að
auka öryggi allra sjófarenda kring-
um landið.
Til viðbótar þessu þyrfti að auka
þyrluflota Landhelgisgæslunnar á
þann hátt að stofnunin hefði alltaf
tvær þyrlur til reiðu, sem þýðir að
stofnunin þyrfti að hafa allt að fimm
þyrlur í rekstri. Ég mun skrifa sér-
staka grein um björgunar- og sjúkra-
flug Landhelgisgæslunnar í kjölfar
þessarar greinar.
Í lokin vil ég horfa til framtíðar og
skora á stjórnvöld að setja í gang
hönnun og smíði á nýju varðskipi sem
yrði álíka öflugt og Þór, þannig að hið
nýja varðskip verði komið til gæslu-
og björgunarstarfa við Íslands-
strendur eftir sex til átta ár. Þangað
til verður hið trausta varðskip Týr að
standa vaktina með Þór, en Týr er að
verða 45 ára gamalt skip.
Styrkjum og aukum
björgunarþrótt
Landhelgisgæslunnar
Eftir Gunnar Alex-
ander Ólafsson
» Að takast á við að
bjarga stóru
skemmtiferðaskipi í
hafsnauð er risaáskorun
fyrir íslenska björg-
unaraðila.
Gunnar Alexander
Ólafsson
Höfundur er heilsuhagfræðingur.
gunnaralexander1212@gmail.com