Morgunblaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019
✝ Herdís Tege-der fæddist í
Vestmannaeyjum
26. september 1940.
Hún lést 8. júní
2019 á Heilbrigð-
isstofnun Suður-
lands, Vestmanna-
eyjum.
Foreldrar henn-
ar voru Hans Tege-
der, f. 17. október
1911 í Þýskalandi,
d. 21 desember 1976, og Sigurást
Þóranna Guðmundsdóttir, f. 12.
nóvember 1915 í Vestmanna-
eyjum, d. 18. maí 1991. Systkini
hennar eru Edda Tegeder, f. 7.
apríl 1939, Guðmundur Tegeder,
f. 15. júlí 1949, d. 12. apríl 2011,
María Tegeder, f. 5. nóvember
1952.
Herdís giftist 18. september
1965 Adólfi Sigurjónssyni, f. 2.
apríl 1934, d. 3. janúar 1987.
Börn þeirra eru: 1) Sigurjón Hin-
rik Adólfsson, f. 3. ágúst 1958,
maki Kristín Elfa Elíasdóttir, f.
25. júní 1960. Börn þeirra eru
eru Íris Eir Jónsdóttir, f. 12. apr-
íl 1996, Friðrik Hólm Jónsson, f.
3. desember 1998, Kristján Logi
Jónsson, f. 17. janúar 2007.
13. júlí 1991 giftist Herdís
Hermanni Kristjáni Jónssyni, f.
10. júní 1945.
Herdís ól allan sinn aldur í
Vestmannaeyjum fyrir utan
nokkra mánuði 1973 vegna eld-
gossins á Heimaey en þá dvaldi
fjölskyldan í Hveragerði. Herdís
og Adólf voru með þeim allra
fyrstu sem fluttu aftur heim til
Eyja eftir gosið. Hún stundaði
íþróttir á sínum yngri árum með
Tý og fór ung að vinna hin ýmsu
störf. Hún vann mörg ár við
póstútburð og síðar við af-
greiðslustörf á Pósthúsinu í Eyj-
um. Síðast starfaði hún við þrif í
Hamarsskóla og í eldhúsi Hraun-
búða. Hún var félagi í Slysa-
varnadeildinni Eykyndli og sat
þar í stjórn um tíma. Þá tók hún
þátt í að endurlífga félagið
Krabbavörn í Vestmannaeyjum
og var gjaldkeri þess félags í
nokkur ár.
Útför Herdísar fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
í dag, 15. júní 2019, og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Adólf Sigurjónsson,
f. 18. apríl 1985,
maki Sara Björg
Ágústsdóttir, f. 11.
maí 1984, börn
þeirra eru Aþena
Ýr og Kamilla Ýr.
Ingunn Ýr Sigur-
jónsdóttir, f. 21.
mars 1991, maki
Njáll Aron Haf-
steinsson, f. 16.
mars 1991, sonur
þeirra er Hinrik Nóel. 2) Gunnar
Darri Adólfsson, f. 19. septem-
ber 1961, maki Svava Bjarna-
dóttir, f. 17. janúar 1964. Börn
þeirra eru Sæþór Gunnarsson, f.
3. október 1983, maki Bjartey
Gylfadóttir, f. 8. ágúst 1983,
börn þeirra eru Bjartey Ósk og
Eyþór Addi. Herdís Gunnars-
dóttir, f. 4. september 1991. Jó-
hanna Svava Gunnarsdóttir, f. 5.
ágúst 1994, Darri Gunnarsson, f.
8. apríl 1997. 3) Jón Steinar
Adólfsson, f. 17. október 1967,
maki Júlía Elsa Friðriksdóttir, f.
23. febrúar 1975. Börn þeirra
Elsku Herdís amma.
Ég var svo heppinn að fá að
alast upp nokkrum húsum frá þér
og afa. Í ófá skipti skokkaði mað-
ur út götuna þegar mann vantaði
smá spjall eða óskipta athygli í
smá stund.
Þegar ég var ung ferðuðust þú
og Hermann afi mikið og alltaf
vorum við stórfjölskyldan mætt á
Hrauntún 13 við heimkomu og
oftar en ekki fengum við pakka
frá útlöndum.
Nú í seinni tíð mætti fjölskyld-
an í heimsókn um flestar helgar
og þar mynduðust oft fjörugar
umræður og ósjaldan var búið að
æsa þig upp í hundrað, svo glott-
irðu bara út í annað þegar þú átt-
aðir þig á því að við værum bara
að grínast í þér. Það er komið
stórt skarð í fjölskylduna.
Þú varst þrjóskasta kona sem
ég þekki og ég fæ ósjaldan að
heyra það að ég líkist þér að því
leyti og það finnst mér gott.
Ég sakna þín ótrúlega mikið,
elsku amma mín, það var oft svo
gott að spjalla við þig og fá lífs-
leiðbeiningar í gegnum árin.
Sofðu rótt amma, ég elska þig.
Íris Eir Jónsdóttir.
Mín fyrsta minning á Hraun-
túninu hjá ömmu og afa er sykur-
fjall á eldhúsgólfinu þar sem ég
lék með vörubílana mína, í minn-
ingunni fannst afa það mun betri
hugmynd en ömmu.
Addi afi kvaddi þennan heim
þegar ég var þriggja ára en
seinna kynntist amma Hermanni
sem hefur alla tíð staðið sig af-
skaplega vel í afahlutverkinu.
Reglurnar voru oft sveigðar
þegar ég var í næturgistingu hjá
þeim hjónum, ömmu fannst ekk-
ert tiltökumál að ég fengi að
horfa á bannaðar myndir, bara ef
ég myndi halda fyrir augun þegar
ljótu atriðin kæmu. Amma hafði
fjölbreyttan tónlistarsmekk en
fátt af því sem hún hlustaði á
höfðaði til mín. Í eitt skiptið þeg-
ar ég var á Hrauntúninu fórum
við yfir geisladiskana hennar
með það markmið að finna disk
sem ég gæti hlustað á, það gekk
ekki vel framan af og eftir nokk-
urn tíma var Tom Jones það
skásta sem við fundum. En þá
kom að hljómsveitinni Queen, ég
heillaðist af þeirri tónlist og er
Queen mín uppáhaldssveit enn í
dag.
Ekki veit ég mikið um gróður
en það sem ég veit í þeim málum
er að mestu leyti þekking frá
ömmu. Maríustakkur og blóðrót
eru t.d. plöntutegundir sem ég
tek eftir og kann að meta, þökk
sé spjalli og fróðleik frá henni.
Amma breyttist í harðan
stuðningsmann þegar Þjóðverjar
kepptu í hand- eða fótbolta, stolt-
ið af því að vera Tegeder skein í
gegn hjá henni og hef ég sjálfur
reyndar alltaf verið stoltur af
þýska blóðinu.
Ömmur eiga það til að vera
ofurstoltar af sínum afkomend-
um og var amma mín engin
undantekning. Hún fylgdist vel
með sínum barnabörnum og
barnabarnabörnum og var alltaf
með það á hreinu hvað hver var
að gera hverju sinni.
Það eru t.d. mörg facebook-
kommentin sem mér þykir vænt
um og helst varð hún að skrifa at-
hugasemd undir hverja mynd
sem sett var inn af hennar fólki.
Maður fann það líka vel hvað
heimsóknirnar okkar á Hraun-
túnið gáfu henni mikið og var hún
stundum hálfvonsvikin ef ekki
allir úr fjölskyldunni mættu, þar
með talin Týra. En amma var
dugleg að læða aukabita að hund-
inum, Týra fór svo oftar en ekki
södd heim.
Ef ég datt í gömlu myndaal-
búmin hennar fylgdu oft góðar
sögur með, sögur af æsku hennar
og hvað hún og Edda brölluðu
sem litlar stelpur. Sögur af lang-
afa þegar hann kom fyrst til eyja,
af stríðsárunum og þegar hann
kom aftur heim eftir stríð. Einnig
óteljandi grallarasögur af æsku-
árum sonanna þriggja.
Bjartey Ósk átti gott samband
við langömmu sína, hún kíkti af
og til í heimsókn á Hrauntúnið
eftir skóla þar sem þær deildu
sameiginlegum áhugamálum sín-
um, appinu orðasnakki og kross-
gátum ásamt öðru ömmu- og afa-
spjalli og íspinnaáti.
Amma var pólitísk með ansi
sterkar skoðanir, stuttan þráð og
skemmtilegan húmor. Það var
ekki mikið mál að ná henni upp á
snúning með lítilli bombu um heit
mál, en þegar hún áttaði sig á að
tilgangurinn með umræðunni
væri að æsa hana upp, róaði hún
sig fljótt og brosið fallega og
hennar smitandi hlátur skinu í
gegn
Elsku amma, þín verður sárt
saknað en minningin lifir um
ókomna tíð.
Sæþór Gunnarsson.
Herdís langamma mín var góð
kona. Ég vildi að hún hefði lifað
lengur eins og allir aðrir í fjöl-
skyldunni. Dýrmætustu minn-
ingarnar með henni eru þegar
amma var að segja mér allskonar
sögur af frændfólki okkar. Mér
fannst mjög skemmtilegt í heim-
sókn hjá henni. Ég fór oft í heim-
sókn til hennar á frídögum eða
eftir skóla eða æfingar. Síðasti
mánuðurinn í lífi hennar var erf-
iður fyrir alla fjölskylduna vegna
þess að þá lá hún lömuð uppi á
spítala. Ég fór í heimsókn til
hennar upp á spítala tvisvar sinn-
um áður en hún dó. Í seinna
skiptið var ég viss um að hún
heyrði í mér og fyndi fyrir mér.
Þá leið mér mjög vel í hjartanu.
Mér finnst mjög erfitt að hún sé
dáin eins og öllum öðrum í fjöl-
skyldunni en ég vona að hún hafi
það gott uppi í himnaríki.
Þín langömmustelpa
Bjartey Ósk
Sæþórsdóttir.
Herdís Tegeder
✝ Jóhann Haf-berg Óskars-
son fæddist í Ólafs-
vík 22. janúar 1952.
Hann lést 8. júní
2019.
Foreldrar hans
eru Óskar Hafberg
Þorgilsson, f. 25.
febrúar 1928, og
Ingibjörg Elísabet
Þorgilsson Regen-
berg, f. 3.apríl 1931
í Þýskalandi, d. 3. nóvember
1986. Systkini hans eru Róbert
Regenberg Óskarsson, f. 10.
ágúst 1950, Helena Gerða Ósk-
arsdóttir, f. 7. júlí 1956, d. 16.
október 2010, og Georg Ósk-
arsson, f. 17. maí 1962.
Jóhann, eða Jói eins og hann
var yfirleitt kallaður, giftist eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Gísl-
nýju Guðbjörnsdóttur, 29.
september 1973. Dætur þeirra
eru: 1) Ingibjörg Elísabet Jó-
hannsdóttir, gift Hannesi Inga
Guðmundssyni, börn þeirra eru:
Jóhann Snær, Héðinn Már og
Telma Sif en fyrir átti Hannes
dótturina Andreu Björk. 2) Jó-
hanna Ósk Jóhannsdóttir, var
gift Héðni Magnússyni en hann
lést 7. desember
2001, dætur þeirra
eru Krista Hrönn
og Alma Ósk. Jó-
hanna á synina
Adam Loga, Haf-
berg Örn og Nóa
Hrafn með Arnari
Geir Sverrissyni en
fyrir átti Arnar
börnin Óla Gunnar
og Sól Dögg. 3)
Hansína Metta Jó-
hannsdóttir, sambýlismaður
hennar er Kristján Ingi Sigurðs-
son, dætur þeirra eru: Inda
Marý, Petra Metta og Tara
Dögg en fyrir átti Hansína
dótturina Gíslnýju Birtu. 4)
Halldóra Sif Jóhannsdóttir,
sambýlismaður hennar er Sæv-
ar Þór Gíslason, börn þeirra
eru: Anika Líf, Jakob Dan og
Kara Eik en fyrir átti Sævar
soninn Bjarka Þór.
Jói ólst upp í Ólafsvík og
starfaði hann aðallega við sjó-
mennsku, fyrst sem háseti, síðar
vélstjóri, og seinni árin gerði
hann út trilluna Ingu Ósk.
Útför Jóa fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, 15. júní
2019, klukkan 13.
Elsku pabbi okkar.
Með þessu ljóði viljum við
senda þér okkar hinstu kveðju.
Í hinsta sinn að heiman lágu spor mín,
því ég hamingjuna fann ei lengur þar,
og hratt ég gekk í fyrstu uns ég heyrði
fótatak,
og háum rómi kallað til mín var.
Kallað: „Bíddu pabbi, bíddu mín
bíddu því ég kem til þín.
Æ, ég hljóp svo hratt
að ég hrasaði og datt.
Bíddu pabbi, bíddu mín.“
Ég staðar nam og starði á dóttur mína
er þar stautaði til mín svo hýr á brá,
og mig skorti kjark að segja henni að
bíllinn biði mín
að bera mig um langveg henni frá.
(Iðunn Steinsdóttir)
Við getum ei breytt því
sem frelsarinn hefur að segja.
Um hver fær að lifa,
og hver á svo næstur að deyja.
Þau örlög sem við höfum hlotið,
það verður að skilja.
Svo auðmjúk og hljóð,
við lútum að frelsarans vilja.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért,
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís Halldóra Jónsdóttir)
Nú er baráttu þinni lokið og
allar þínar þjáningar á enda, það
hjálpar okkur að takast á við
sorgina að vita að þér líður betur.
Minning þín lifir í hjörtum
okkar.
Þínar dætur,
Ingibjörg Elísabet, Jóhanna
Ósk, Hansína Metta og
Halldóra Sif.
Jóhann Hafberg Óskarsson
Sálm. 86.5
biblian.is
Þú, Drottinn,
ert góður og fús
til að fyrirgefa,
gæskuríkur öllum
sem ákalla þig.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MARY KRISTÍN COINER,
lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum 4. júní.
Útför hennar fer fram frá Landakirkju
29. júní klukkan 14.
Okkar innilegustu þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir góða
umönnun og hlýju. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Alzheimerfélag Vestmannaeyja.
Stein Ingolf Henriksen
Ágúst V. Steinsson Arna Ágústsdóttir
E. Ómar Steinsson Arndís M. Kjartansdóttir
Óðinn Steinsson Steinunn Jónatansdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BÁRA R. SIGURJÓNSDÓTTIR
sjúkraliði,
Kársnesbraut 65,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
föstudaginn 14. júní.
Útför verður auglýst síðar.
Jón Rúnar Hartmannsson
Unnsteinn Gísli Oddsson
Linda Kristín Oddsdóttir
Sigdís Hrund Oddsdóttir
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
✝
Elsku fjölskyldan okkar,
ÆGIR-IB WESSMAN
flugmaður
ELLEN DAHL WESSMAN
sjúkraþjálfari
og
JON EMIL WESSMAN
flugmaður
lést af slysförum sunnudaginn 9. júní.
Útför þeirra fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 21. júní
klukkan 13.
Ekki gráta yfir þvi að ég er dáinn en gleðstu yfir minningu lífs
míns. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast
þeirra láti Bugl njóta þess.
Reikningur nr. 513 26 222 41, kt. 640394 4479.
Fjölskyldan
Ástkær systir og mágkona,
LINDA ANNA RAGNARSDÓTTIR,
Hjallaseli 55, Reykjavík,
lést 12. júní á eyjunni Sifnos í Grikklandi.
Útförin verður auglýst síðar.
Dennis Davíð Jóhannesson Hjördís Sigurgísladóttir