Morgunblaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 39
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019
ROKK-æði
FOSSBERG
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600
Yfir 20 mismunandi
slípirokkar á tilboði
út júní
Karlalandsliðið í handbolta
er komið með níu fingur á far-
seðilinn í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins sem fram fer í Austur-
ríki, Svíþjóð og Noregi 10.-26.
janúar á næsta ári.
Ísland má tapa lokaleik sín-
um í undankeppninni á móti
Tyrkjum í Laugardalshöllinni á
morgun með tíu marka mun en
kæmist samt áfram.
Ég set þá kröfu á íslenska
liðið að það hristi af sér slyðru-
orðið, ljúki undankeppninni á
góðu nótunum og tryggi sig inn á
EM með glans. Frammistaðan á
móti Grikkjum í vikunni var væg-
ast sagt slök þar sem leikmenn
liðsins gerðu sig seka um ótrú-
lega mörg mistök og vanmat
þrátt fyrir aðvörunarorð frá Guð-
mundi þjálfara eftir að hafa unn-
ið fyrri leikinn með 14 marka
mun.
Leikurinn í Grikklandi rifj-
aði upp minningar frá því ég fór
með landsliðinu til Aþenu 1996
þegar þjóðirnar áttust við í
undankeppni HM. Þá eins og nú
varð jafntefli niðurstaðan og
greinilegt vanmat í gangi.
Rétt eins og karlalandsliðið í
fótbolta vonast ég til að hand-
boltalandsliðið sýni Tyrkjum
enga gestrisni þegar út á völlinn
er komið. Ísland vann fyrri leik-
inn gegn Tyrklandi með 11 marka
mun og ef íslenska liðið leikur af
eðlilegri getu ættum við að sjá
jafnvel stærri tölur á morgun.
Nema eitthvert stórslys
gerist tekur íslenska liðið þátt í
úrslitakeppni EM í 11 sinn en það
hefur verið fastagestur á EM all-
ar götur frá því það lék fyrst í úr-
slitakeppninni í Króatíu árið
2000. Koma svo strákar. Sýnið
hvað í ykkur býr og gefið ís-
lensku þjóðinni góða þjóð-
hátíðargjöf með flottum leik!
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Gísli Þorgeir Kristjánsson, lands-
liðsmaður í handknattleik hjá THW
Kiel, er bjartsýnn á að hann verði
jafngóður og áður í öxlinni. Gísli hef-
ur glímt við meiðsli í öxlinni meira
eða minna í rúmlega ár eða frá því að
brotið var á honum í úrslitaleik ÍBV
og FH á Íslandsmótinu í fyrra. Um
tíma var ekki vitað hvers eðlis
meiðslin væru en þegar Gísli fór í að-
gerð sáu læknarnir að skaðinn var
meiri en þeir höfðu talið. Eftir góða
meðhöndlun og mikla vinnu í end-
urhæfingu segist Gísli nú vera farinn
að sjá til lands.
„Ég er mjög bjartsýnn. Auðvitað
hefur þetta verið erfitt ferli. Frá at-
vikinu í Eyjum, í gegnum tímabil þar
sem ég gat ekki skotið á markið og
yfir í endurhæfinguna. Eftir erfið-
leikana kemur eitthvað jákvætt og
það kemur í ljós núna. Ég hef lagt
mikið á mig til þess að koma öxlinni í
fyrra horf og er mjög spenntur fyrir
næsta tímabili. Þá gefst til dæmis
tækifæri til að spila í Meistaradeild-
inni,“ sagði Gísli en THW Kiel fær
keppnisrétt þar á nýjan leik eftir að
hafa hafnað í 2. sæti í þýsku deildinni
á nýafstöðnu tímabili.
Heppinn að fara ekki úr lið
Vefur í öxlinni rifnaði og eftir að
gert var við hefur Gísli getað unnið
að því að ná heilsu á nýjan leik. Fyrir
vikið var hann á sjúkralistanum síð-
ari hluta tímabilsins. „Þetta var
meira mál en talið var og ég var víst
heppinn að fara ekki úr axlarlið sem
hefði verið enn alvarlegra. Aðgerðin
gekk að óskum og Binni (Brynjólfur
Jónsson) og Örnólfur (Valdimars-
son) unnu mjög gott starf. Ég fór í
endurhæfingu í fimm tíma á dag á
hverjum einasta degi hjá sjúkra-
þjálfarateyminu hjá Kiel. Þar er
mikil fagmennska og ég gæti ekki
beðið um meira,“ sagði Gísli. Axlar-
meiðsli geta verið þrálát og fyrir
handknattleiksmann sem lendir í
slíku er ekki sjálfgefið að geta skotið
jafn vel á markið og áður. Var Gísli
farinn að halda að meiðslin myndu
hafa varanleg áhrif á hans feril í
íþróttinni?
„Ég ætla ekki að ljúga neinu og
um tíma var þetta mjög erfitt. Sér-
staklega vegna þess að ekki var vitað
hvað væri að. Myndatökurnar sýndu
ekki almennilega hvað var að og það
kom í raun í ljós í aðgerðinni. Eftir
HM í janúar var ljóst að ég gæti ekki
haldið áfram því ég gat ekki skotið á
markið og það breytti mér sem leik-
manni. Ég á frábært fólk að og núna
er ég mjög jákvæður,“ útskýrði Gísli.
Nú rofar til
Hafnfirðingurinn vonast eftir því
að þegar undirbúningstímabilið
hefst fyrir næsta tímabil geti hann
æft á fullu með liðinu eins og aðrir
leikmenn sem eru heilir.
„Það hefur verið markmiðið en við
sjáum hvernig þetta þróast í sumar.
Ég mun alla vega gera allt sem ég
get til að komast sem fyrst á parket-
ið. Ég gerði þriggja ára samning og
er mjög spenntur fyrir því að sýna
mitt rétta andlit næsta vetur.
Meiðslin settu mikinn svip á mitt
fyrsta tímabil í Kiel og ég gat aldrei
beitt mér eins og ég hafði getað gert
heima á Íslandi. Þetta fyrsta tímabil
var samt sem áður mikil reynsla fyr-
ir mig varðandi það að kynnast
þessu félagi og þessu liði. Ég er of-
boðslega stoltur af því að tilheyra
þessu liði,“ sagði Gísli sem hefur ver-
ið heimsklassa leikmaður í sínum
aldursflokki í gegnum yngri lands-
liðin. Ef til vill má segja að þegar
hann kom til Kiel hafi hann kynnst
því hvað heimsklassi er í meistara-
flokki.
„Já, einmitt. Eins og pabbi minn
sagði er mikill munur á því að vera
efnilegur eða góður. Ég hef nýtt
hverja einustu æfingu sem ég hef
fengið með þessum leikmönnum.
Hef einnig reynt að nýta til hins ýtr-
asta það sem ég hef lært af þeim æf-
ingum sem ég hef þurft að fylgjast
með frá hliðarlínunni,“ sagði Gísli
Þorgeir Kristjánsson í samtali við
Morgunblaðið.
Opna þurfti Gísla til að
greina meiðslin í öxlinni
Gísli Þorgeir er bjartsýnn á að endurheimta fyrri hreyfigetu í öxlinni
Ljósmynd/Sascha Klahn
Endurhæfing Gísli Þorgeir Kristjánsson þurfti að gera sér að góðu að horfa á marga leiki THW Kiel í vetur.
Aðeins með einbeittum vilja er
hægt að teikna upp þá sviðsmynd
að íslenska karlalandsliðið í hand-
bolta komist ekki á EM í janúar.
Liðið mætir Tyrklandi í Laugar-
dalshöll á morgun í lokaumferð
undankeppninnar og þyrfti að tapa
með að minnsta kosti 11 marka
mun til að missa Tyrki upp fyrir sig
í riðlinum.
Jafnvel þó að 11 marka tap gegn
Tyrklandi, langverstu úrslit í sögu
lands og þjóðar, yrði raunin þá
kæmist Ísland pottþétt (nema að
Kósóvó vinni Þýskaland með 10-20
marka mun og fjöldi annarra úr-
slita yrðu Íslandi í óhag) á EM sem
eitt fjögurra liða með bestan árang-
ur í 3. sæti í undanriðlunum átta.
Tyrkir hafa hins vegar að miklu
að keppa en með sigri á Íslandi,
minni en11 marka, eiga þeir mögu-
leika á að fara á EM vegna árang-
urs í 3. sæti. Tyrkir töpuðu naum-
lega fyrir efsta liði riðilsins,
Norður-Makedóníu, 26:25 á mið-
vikudag. Ísland hefur svo þá auka-
gulrót að liðið getur enn náð efsta
sæti riðilsins með sigri á Tyrklandi
ef N-Makedónía tapar á heimavelli
gegn Grikklandi, sem er ólíklegt.
Íslenska liðið getur hjálpað Er-
lingi Richardssyni og hans læri-
sveinum í hollenska liðinu á EM,
með því að vinna Tyrki. Holland
mætir Lettlandi á heimavelli á
morgun og gæti komist á EM ef úr-
slit í öðrum riðlum verða hagstæð,
hvort sem liðið vinnur eða ekki,
þrátt fyrir að Holland hafi ekki náð
í nein stig gegn liðum í 1. og 2. sæti
síns riðils. Fjögur önnur lið eru í
sömu stöðu í sínum riðlum en stig
gegn liðum úr 4. sæti telja ekki í
þessari baráttu. sindris@mbl.is
Geta fagnað EM-sæti
og hjálpað Erlingi
Morgunblaðið/Eggert
Lokaumferð Arnór Gunnarsson og
félagar geta brátt fagnað EM-sæti.