Morgunblaðið - 15.06.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Níu þingmenn úr átta þingflokkum hafa lagt
fram á Alþingi beiðni um skýrslu frá heil-
brigðisráðherra um dánaraðstoð. Í beiðninni er
þess óskað að upplýsinga verði aflað um stöðu
dánaraðstoðar í öðrum löndum og að gerð
verði viðhorfskönnun meðal heilbrigðisstarfs-
manna um afstöðu þeirra til dánaraðstoðar.
Horfir til Hollands
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og fyrsti flutningsmaður
skýrslubeiðninnar, segir mikilvægt að þessi
viðkvæmi málaflokkur fái umræðu í samfélag-
inu.
„Fyrir mér er þetta
mikilvægt frelsismál ein-
staklingsins. Ég hef fylgst
með þróuninni í þessum
málum í Hollandi í svolítinn
tíma og horft til þeirra,“
segir Bryndís í samtali við
Morgunblaðið og bætir við
að auk þess telji hún mikil-
vægt að skýr og góð lög-
gjöf sé til staðar utan um
dánaraðstoð og tengd málefni.
Dánaraðstoð samfélagsmál
„Margir hafa bent á að í kringum líknandi
meðferð þurfi frekari löggjöf eða reglusetn-
ingu. Hún hefur þróast á síðustu árum og
kann að vera með einhverjum hætti breytileg
milli stofnana.“ Bryndís tekur fram að hún
telji dánaraðstoð vera samfélagsmál sem eigi
erindi við almenning og þurfi að fá að þrosk-
ast í samfélaginu. Hún segist finna fyrir vax-
andi stuðningi við aukna umræðu um dánar-
aðstoð, bæði innan þings og í samfélaginu og
bætir við að fæstir séu á móti öflun gagna um
málefnið þó að fólk kunni að hafa mismun-
andi skoðanir á því.
Þarfnast stuðnings lækna
Bryndís segist vonast til þess að fá
skýrslubeiðnina samþykkta og að fengin verði
umbeðin gögn sem hægt verði að nota ef
ákveðið verður að halda áfram með málið. Í
greinargerð skýrslubeiðninnar er m.a. vitnað
í rannsóknir háskólanema á afstöðu
heilbrigðisstarfsfólks til dánaraðstoðar og
líknardráps, annars vegar frá árinu 1997 og
hins vegar 2010. Í fyrri rannsókninni voru
aðeins 5% lækna og 9% hjúkrunarfræðinga
sem töldu líknardráp réttlætanlegt og ein-
ungis 2% gátu hugsað sér framkvæma það
en í seinni rannsókninni sögðust 18% lækna
og 20% hjúkrunarfræðinga vera hlynnt líkn-
ardrápi en aðeins 3% vildu verða við slíkri
ósk.
„Auðvitað er það bara þannig að ef engir
læknar eru hlynntir þessu þá fer ég væntan-
lega ekki mikið lengra með málið að svo
stöddu því sú hugmyndafræði sem hugnast
mér er hollenska leiðin og þar eru læknar
þátttakendur í þessu ferli.“
Dánaraðstoð mikilvægt frelsismál
Óska eftir viðhorfskönnun um afstöðu til dánaraðstoðar Málefnið eigi erindi við almenning
Bryndís
Haraldsdóttir
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Alþingi samþykkti í vikunni breyt-
ingu á lögum um veitingastaði, gisti-
staði og skemmtanahald sem eykur
eftirlit sýslumanns með heimagist-
ingum. Í lögunum eru gerðar tvenns
konar breytingar á starfssviði sýslu-
manns í tengslum við heimagistingu.
Annars vegar varðandi samræmingu
á málsmeðferð og ákvörðun sekta
milli skráningarskyldra og rekstrar-
leyfisskyldra aðila vegna leyfis-
skyldrar gististarfsemi og hins veg-
ar skráningarskyldrar heimagist-
ingar. Í öðru lagi er lögð til breyting
varðandi eftirlit með skilum á
nýtingaryfirlitum einstaklinga sem
leigja út húsnæði sitt og skrá undir
heimagistingu.
Kristófer Oliversson, formaður
Fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu
(FHG), segir félagið fagna nýju lög-
unum.
„Við fögnum þessum lögum því
sýslumaður hafði í raun engin vopn í
þessari baráttu. Nú er möguleiki á
að sekta fyrir brot og möguleiki á að
sekta menn fyrir að skila ekki upp-
lýsingum og það er mjög jákvætt
fyrir samfélagið í heild. Því enginn
vill þessa svörtu starfsemi,“ segir
Kristófer sem telur breytinguna
geta haft jákvæð áhrif á hótelstarf-
semi. „Við erum að vona það að þetta
bakslag sem við erum að verða fyrir
verði í raun og veru sársaukaminna
og menn komi böndum á þessa
leyfislausu starfsemi,“ segir hann.
Þá telur Kristófer að lagabreyt-
ingin muni færa starfsemina nær
heilbrigðu rekstrarumhverfi og von-
ar að nú verði þessu fylgt eftir svo
allir sitji við sama borð. Hann bendir
einnig á að núna sé hægt að tilkynna
leyfislausar gistingar eða leggja
fram fyrirspurnir á heimasíðu sýslu-
manns.
Klappað fyrir ráðherra
„Við höfum unnið að þessu máli
lengi í stjórnkerfinu og menn voru
mjög glaðir og klöppuðu fyrir ráð-
herra þegar hún tilkynnti okkur
þetta í gær á félagsfundi hjá okkur,“
segir Kristófer og á þar við Þórdísi
Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar-
ráðherra. Hann segir einnig
ánægjulegt að frumvarpið sem varð
að lögum hafi verið afgreitt sam-
hljóða án ágreinings milli stjórn-
málaflokka.
Eftirlit með
heimagistingu hert
FHG fagnar lagabreytingunni
Morgunblaðið/Hari
Miðbær Margar íbúðir í Reykjavík
eru notaðar undir heimagistingu.
32.600.000,-
Gnoðarvogur 26, 104 Reykjavík
Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja
Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja endaíbúð - seljandi greiðir
yfirstandandi framkvæmdir á húsinu. Íbúðin skiptist í rúmgott
endurnýjað eldhús, svefnherbergi, stofu með útgengi á svalir,
baðherbergi. Geymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara.
✆ 585 8800
Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum
Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800
Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515
Melabraut 14, 170 Seltjarnarnes
Falleg og vel skipulögð
Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja efri hæð við Melabraut á
Seltjarnarnesi. Eignin skiptist í samliggjandi stofur með útgengi á svalir
með fallegu útsýni, eldhús með hvítri innréttingu, baðherbergi, tvö
svefnherbergi og þvottahús innan íbúðar.
49.800.000,-
53.500.000,-
Falleg og rúmgóð 4ra herb.
Falleg og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og af-
girtri verönd við Maríubaug í Grafarholti. Íbúðin skiptist í eldhús, stofu með
útgengi á afgirta verönd, þrjú svefnherbergi, baðherbergi. Þvottahús og
geymsla eru innan íbúðar. Vel staðsett íbúð á fjölskylduvænum og rólegum
stað. Golfklúbbur Reykjavíkur í Grafarholti í göngufæri.
Maríubaugur 119, 113 Reykjavík
54.900.000,-
Mikið endurnýjuð
Falleg og mikið endurnýjuð 3ja-4ra herbergja hæð í þríbýlishúsi við
Grenimel. Stór og björt stofa. Tvö stór svefnherbergi. Þvottahús innan
íbúðar. Baðherbergi nýlega endurnýjað. Eldhús með nýlegri innréttingu.
Góð hæð á frábærum stað.
Grenimelur 29, 107 Reykjavík
Opið hús
miðvikud. 19. júní
17:00 til 17:30
Opið hús
þriðjud. 18. júní
17:15 til 17:45
Formaður byggingarsamvinnu-
félags Samtaka aldraðra segir að
dómar sem féllu í Landsrétti í síð-
ustu viku um að erfingjum eigenda
íbúða sé heimilt að selja þær á
markaðsverði eigi við um 10-15
íbúðir af um 500 sem félagið hafi
selt.
Magnús Björn Brynjólfsson, for-
maður félagsins, segir að Hæsti-
réttur og Landsréttur hafi staðfest
að allir þeir sem hafa undirritað
umsóknir um félagsaðild í bygging-
arsamvinnufélaginu séu bundnir við
matsverð félagsins. Það byggist að
höfuðreglu á því að seljendur fái
eign sína metna út frá kostnaðar-
verði hennar að viðbættri verð-
hækkun samkvæmt byggingar-
vísitölu og með hliðsjón af ástandi
og viðskeytingu íbúðarinnar.
Í nokkrum tilvikum hafi skrif-
legar umsóknir félagsmanna farið
forgörðum og dómstólar hafi dæmt,
að samþykktir félagsins um mats-
verð íbúðanna gildi ekki í þeim til-
fellum. Ekki sé hins vegar um að
ræða að regla um almennt mark-
aðsverð gildi um alla félagsmenn.
Magnús segir að nýir kaupendur
íbúða sem byggingarsamvinnu-
félagið selur þurfi að vera orðnir 63
ára og vera félagsmenn. Það liggi
því í augum uppi að félagsmenn
geti ekki selt á hvaða verði sem er,
þar sem enginn geti keypt nema
vera félagsmaður og dómstólar hafi
metið það svo að skilmálar þess að
ganga í félagið séu lögmætir, skýrir
og sanngjarnir.
Markaðsverð á við
um 10-15 íbúðir
Skriflegar umsóknir fóru forgörðum
Skráð atvinnuleysi í maí mældist
3,6% og minnkaði um 0,1 prósentustig
frá því í apríl. Að því er fram kemur í
yfirliti Vinnumálastofnunar voru
2.677 fleiri á atvinnuleysisskrá í maí á
þessu ári en í maí á síðasta ári. 6.767
voru að jafnaði á atvinnuleysisskrá í
mánuðinum. Mest atvinnuleysi var á
Suðurnesjum, 6,6%, en það er eina at-
vinnusvæðið þar sem atvinnuleysi
jókst milli mánaða, eða um 0,2 pró-
sentustig. Á Austurlandi dró mest úr
atvinnuleysi, fór úr 2,7% í apríl í 2,1%
í maí.
Ungmennum fjölgað um 259
786 einstaklingar á aldrinum 18-24
ára voru atvinnulausir í maí sem sam-
svarar 2,6% atvinnuleysi. Hefur at-
vinnulausum ungmennum fjölgað um
259 frá maí 2018. Fækkun atvinnu-
lausra frá apríl var aðallega í aldurs-
hópnum 25-29 ára, -2,5%. 3.697 karlar
voru að jafnaði atvinnulausir í maí og
2.070 konur. Atvinnuleysi meðal karla
var 3,5% og 3,7% meðal kvenna og
minnkaði um 0,1 prósentustig milli
mánaða hjá bæði körlum og konum.
36% allra atvinnulausra í lok maí voru
erlendir ríkisborgarar, alls 2.565.
Þetta samsvarar 7,3% atvinnuleysi
meðal erlendra ríkisborgara. Alls
höfðu 1.259 verið án atvinnu í meira
en 12 mánuði í lok maí, en þeir voru
913 í maílok árið 2018.
Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir
því að skráð atvinnuleysi minnki í júní
vegna áhrifa árstíðasveiflu og verði á
bilinu 3,3% til 3,5%. jbe@mbl.is
2.677 fleiri á atvinnuleysis-
skrá í maí nú en í fyrra
Atvinnulausum ungmennum hefur fjölgað milli ára
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vinnumarkaður Skráð atvinnuleysi í maí mældist 3,6% og minnkaði um 0,1
prósentustig frá því í apríl, samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun.