Morgunblaðið - 15.06.2019, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 15.06.2019, Qupperneq 28
Tíminn stöðugt tifar áfram líkt og tíma- sprengja sem komið hefur verið fyrir í til- veru okkar og far- angri, líkama, náttúru og andrúmslofti. Hann nartar sig smám sam- an inn að beini og tærir okkur upp svo við megum okkur lít- ils. Til að nýta tímann sem best í okkar allra þágu hver sem við erum og hvar sem við bú- um held ég að það sé því afar mik- ilvægt að verja honum vel og láta eitthvað gott af okkur leiða og eftir okkur liggja svo að okkur farnist vel sem manneskjum hér á jörð. Til dæmis með sameiginlegri hugsjón og sameiginlegu átaki í náttúruvernd og í loftslagsmálum. Þar sem náttúran og andrúmsloftið fá að njóta vafans með skynsamlegri nýtingu fyrir mannkynið. Að ég tali nú ekki um með því að rækta okk- ur sjálf andlega dag frá degi, kvölds og morgna, þannig að við komumst nær tilgangi okkar og kjarna lífs- ins. Og með því að koma upp kærleiks- ríkri og lífvænlegri stefnu í að hlúa að börnum þessa heims svo við sem mannkyn náum að fóta okkur betur á þeim lífsins torfæra velli sem ævi allt of margra er. Eitt það mikilvægasta sem við getum gert er klárlega það að vanda okkur í samskiptum og leggja áherslu á að rækta sam- skipti með samtali og virkri hlustun, heilbrigðum, jákvæð og Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Tíminn tifar áfram og tærir okkur smám saman upp líkt og tímasprengja sem kom- ið hefur verið fyrir í til- veru okkar og farangri, líkama og náttúru. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Tíminn og eilífðin uppörvandi skoðanaskiptum. Þvívið getum gert svo miklu betur íþeim efnum. Auka þannig skilning á stöðu hvert annars, uppruna, skoðunum og trú. Í þeim augljósa tilgangi að leggja okkar sameig- inlega af mörkum til að gera jörð- ina lífvænlegri og byggilegri, enn um sinn, á meðan við höfum eitt- hvað um það að segja. Hægja þannig ef til vill örlítið á tímanum ef svo má segja sem getur meðal annars falist í því að breyta um orkugjafa og endurskoða neyslu- venjur. Við þurfum nefnilega að huga vel að því hvernig við eyðum tímanum svo hann eyði okkur ekki fyrr en við vildum. Horfum til himins Svo er alltaf gott að horfa bara til himins og finna friðinn streyma í hjartað. Það er nefnilega svo gott að vita til þess að við erum ekki ein í þessari veröld og að við munum ekki lokast hérna inni, brenna upp, drukkna eða kafna sem mannkyn. Við eigum nefnilega eilífan frels- ara að. Höfund og fullkmnara lífs- ins, gleymum því ekki. Skaparann sjálfan, Guð almáttugan sem andaði í okkur lífi og vill okkur vel. Frels- ara alls sem lifir, sem elskar okkur út af lífinu. Frelsara sem vill fá að umvefja okkur sínum lífsins anda og englum sem styðja okkur og styrkja á ævinnar holóttu götu til góðra verka. Til að gera heiminn lífvænlegri og betri fyrir okkur öll. Frelsara sem býðst svo til að bera okkur inn til ljóssins og lífsins eilífa þegar að því kemur og við getum ekki meir. Felum okkur honum á vald, því þá verður allt eitthvað svo ekki bara heldur skárra heldur miklu betra. Jesús sagði: „Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.“ Höfum það hugfast. Ég á mér draum Ég á mér draum um betra líf. Ég á mér draum um betri heim. Þar sem allir eru virtir, hver á sín- um stað, í sinni stétt og stöðu. Þar sem allir eru mettir gæðum sann- leikans. Þar sem allir fá að lifa í réttlæti og friði. Þar sem sjúkdóm- ar, áhyggjur, vonbrigði, vonleysi og sorgir eru ekki til. Og dauðinn að- eins upphaf að betri tíð. Þó við eigum aðeins eitt líf þá heldur það áfram hvernig sem allt fer. Því er mikilvægt að við látum ekki fylla okkur af neikvæðni og vonleysi. Höldum áfram að leitast við að leggja okkur fram og gera okkar besta. Lifa í trú, von og kær- leika. Því kærleikurinn, vonin og trúin bera okkur alla leiðina heim að lokum. Með kærleiks-, samstöðu- og friðarkveðju. Lifi lífið! Þagnarskylda eða þöggun? Ég er hjúkrunar- fræðingur og starfa í öldrunarþjónustu. Það hefur valdið mér undrun og áhyggjum hve miklir fordómar fyrirfinnast í garð aldraðra með langvinna sjúkdóma og færniskerðingu. Nú er það svo að æ fleiri ná háum aldri í samfélagi okkar. Þar með fjölgar óhjákvæmilega þeim sem eru með sjúkdóma og færn- iskerðingu, því „ellin hallar öllum leik“. Þjónusta við þessa langveiku einstaklinga verður einnig æ dýr- ari og mannfrekari. Öldrunarþjónustan þykir engan veginn fín atvinnugrein. Launin eru lág, störfin erfið og unnin í vaktavinnu og álit manna á störf- unum ekki mikið. Af sjálfu leiðir að erfitt er að manna þessi störf. Reglubundið kemur upp óánægja með þjónustuna. Stundum kemst hún í fjölmiðla, einkum þeg- ar viðkomandi gamalmenni hefur kvatt heiminn, því fyrr þorir fólk ekki að segja hug sinn opinberlega. Viðbrögð ábyrgra aðila eru ým- ist þögn, eða þá að menn bera fyrir sig þagnarskyldu, þ.e. að ekki er heimilt að tjá sig um mál ein- staklinga. Það er rétt og þagnar- skyldan er mikilvæg. Hún felur þó ekki í sér bann við viðbrögðum á borð við: „Við lítum þessa óánægju alvarlegum augum. Við viljum læra af þessu til að geta gert betur.“ Tilefni þessara skrifa minna er nýlegt dauðsfall 68 ára gam- allar konu á hjúkrun- arheimili sem lést vegna þess að matur stóð í henni. Konan var ein, en þurfti að- stoð við að matast. Þegar svona illa hefur tekist til er afar ankannalegt að segj- ast ekki geta tjáð sig vegna þagn- arskyldu en geta samt sagt að „starfsfólkinu líði illa“. Er það meira brot gegn þagnarskyldu að segja t.d.: „Okkur þykir þetta afar leitt. Við munum reyna að koma í veg fyrir að atvik af þessu tagi eigi sér stað í þjónustu okkar fram- vegis“? Öll umræða í þessu máli er frá- brugðin því sem tíðkast þegar um yngra fólk er að ræða. – Raunar var þessi kona „ung“ öldruð, en það virðist litlu breyta: hún var Eftir Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur » Gamalt veikt fólk er afgangsstærð og olnbogabörn í samfélagi okkar. Samt getur hvert og eitt okkar átt eftir að lenda í þessum hópi eða að eiga ástvini þar. Sigrún Huld Þorgrímsdóttir 28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019 Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari Íslenskir höfðingjar hafa sjaldnast haft hag alþýðunnar í huga við mat á ákvarðana- töku um þarfir og gæfu lands og lýðs. Þegar árið 1262 ját- uðumst við, eða öllu heldur höfðingjarnir, undir Hákon gamla Noregskonung. Og vorum við undir er- lendu konungsvaldi í tæp 700 ár. Innlendir höfðingjar gerðu hosur sínar grænar fyrir hin- um erlendu konungum með eigin ábata í huga og því miður virðast margir búa við sama hugafar ennþá. Á Þjóðhátíðinni á Þingvöllum 1907, nánar tiltekið hinn 2. ágúst, gengust sex ungir menn með Jó- hannes Þ. Jósefsson í fararbroddi fyrir stofnun Ungmennafélags Ís- lands, sem varð mikil lyftistöng fyrir allan landslýð. Vakning varð um uppbyggilegt líferni og hvatningarorðin : „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ og „Íslandi allt“ ómuðu um landið. Því miður virðast þessi góðu hvatningarorð hafa fallið í gleymsku, en þau eru í fullu gildi enn í dag og ekki vanþörf á því að láta þau hljóma enn á ný. Við erum fámenn þjóð í stóru landi, fullu af náttúrugæðum, sem margir líta girndaraugum. Okkur veitir ekki af því að vera vel á verði, því ekki eru allir viðhlæj- endur vinir. Erlendir aðilar sækjast eftir því að eignast fasteignir og jarðir hér og þykir mér sú þró- un varhugaverð. Fyrir nokkrum ár- um datt mér í hug að kaupa sumarbústað í Danmörku og fór til fasteignasala og bar upp erindið. Hann svaraði að bragði: „Útlendingar geta ekki keypt fasteignir hér, nema vera bú- settir.“ Ég sagðist vera fæddur þegn dansks konungs, en það dugði ekki til. Af hverju erum við svona grandalaus- ir? Trúum við því í alvöru að þessir góðu útlendinga séu að kaupa lax- veiðiárnar okkar til þess eins að varðveita þær til frambúðar fyrir okkur? Hollusta við land og þjóð hefur lengstum verið aðalsmerki góðra þjóðfélagsþegna. Að vísu komst óorð á svonefnda þjóðernishyggju á þriðja áratug 20. aldarinnar, en þar var hún framkvæmd á ómanneskju- legan og glæpsamlegan hátt, sem enginn átti von á og menn trúðu tæpast að satt væri. En það er ekki glæpur, heldur siðferðilegur réttur og skylda okkar að vernda og styrkja menningu okkar, trú og tungu, eins og kostur er. Nú þegar eru um 16% lands- manna af erlendu bergi brotin og verður maður þess vel var á hverj- um degi. Við förum í ýmiss þjón- ustufyrirtæki og margir starfs- mannanna eru ekki mælandi á íslenska tungu. Ég óttast að þeirri þróun verði ekki snúið við og að áður en við er litið erum við orðin tvítyngd (enska) þjóð. Ég var svo lánsamur að faðir minn kom sem innflytjandi frá Danmörku snemma á fyrri hluta 20. aldarinnar. Hann kvæntist ís- lenskri konu, móður minni. Ég fæddist og ólst upp hér og fæ aldrei fullþakkað þau forréttindi. Hér hef ég átt góða ævidaga. Margir gjalda varhug við sam- þykki þriðja orkupakkans og að hætta sé á því að við missum for- ræði á raforkunni okkar. Í Bænda- blaðinu hinn 29. maí sl. er frétta- grein þess efnis, að átta Evrópusambandsríkjum sé nú skylt að einkavæða vatnsaflsvirkjanir sínar. Í greininni kemur fram að Frakkland sé eitt þeirra ríkja og það leiti nú allra leiða til þess að komast hjá þeirri einkavæðingu. Ef Frakkar verða kúgaðir til hlýðni, hvað verður þá um okkur? Ekki er laust við að hugurinn hverfi til Icesave-málsins. Ekki reyndist meiri hluti Alþingis góður ráðgjafi þá og því skyldum við treysta Alþingi núna, í þriðja orku- pakkanum, sem meirihlutinn segir að sé fullræddur og kannaður, án þess, að því er virðist, hafa kíkt í í fjórða pakkann, sem nú er kominn fram? Góðir Alþingismenn og aðrir Ís- lendingar! Munum: Íslandi allt. Íslandi allt Eftir Werner Ívan Rasmusson » Því skyldum við treysta Alþingi núna, í þriðja orkupakk- anum, sem meirihlutinn segir að sé fullræddur og kannaður? Werner Ívan Rasmusson Höfundur er eftirlaunaþegi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.