Morgunblaðið - 15.06.2019, Page 34

Morgunblaðið - 15.06.2019, Page 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019 Hún amma mín var einstaklega hlý og góð manneskja sem ég vildi eyða öllum mínum helgum með. Frá því ég var lítill polli gat ég ekki hugsað mér annað en að gista hjá ömmu og afa um hverja helgi enda bara í göngufæri yfir í Vesturberg 56. Þar dekraði Gréta Óskarsdóttir ✝ Gréta Ósk-arsdóttir fædd- ist 19. nóvember 1936. Hún lést 24. maí 2019. Útför hennar fór fram frá Kópavogs- kirkju 5. júní 2019. amma við mig alla helgina og hélt því svo lengi áfram þrátt fyrir að ég ætti nú að vera kominn með aldur til að geta flesta hluti sjálfur. Það var alltaf svo hlýtt og gott að koma til ömmu og hún var yfirleitt búin að baka eitthvað gott þegar ég kom. Ég var mikill ömmustrákur og minningar mínar um hana eru fullar af ást og hlýju. Við amma áttum yndislega kvöldstund saman núna í lok apríl þar sem við ræddum sam- an eins og svo oft áður um hennar æsku og uppeldisár. Þetta var yndisleg kvöldstund sem ég mun ávallt geyma. Hún var mikill Hríseyingur og gat t.d. aldrei hugsað sér að borða rjúpur sem ég hafði veitt þar sem þær voru næstum því gælu- dýrin hennar þegar hún bjó í Hrísey. Amma gat ekki verið lengi án afa og Kidda og var hjarta hennar brostið eftir skyndilegt fráfall Kidda. En nú er hún sameinuð þeim og getur haldið áfram að siða hann afa til og hlegið að Kidda. Kæra amma, takk fyrir allar yndislegu minningarnar, upp- eldið, kærleikann og ástina. Þinn Grétar. Ein af allra bestu vinkonum okkar hefur verið lögð til hinstu hvílu. Vináttan svo einlæg og hrein að nálgaðist upplifun þess að eiga allt saman. Líklega hef- ur Grétu okkar verið þannig innanbrjósts er hún lét eitt sinn grafa á verðlaunapeninga „mað- urinn okkar“ og lagði til að við sæmdum eiginmenn okkar fyrir sérstaka þolinmæði og hjálp við matargerð að ógleymdum keyrslum út og suður. Upphafið að kynnum okkar var jú samvinna í fyrstu kjörbúð Íslands, SÍS í Austurstræti. Við sem eftir lifum af hópn- um, Kiddý Birgis, Hekla Þor- kels og Helga Kr., vottum dætr- um Grétu vinkonu og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Helga Kristjánsdóttir. ✝ Sólrún Elías-dóttir fæddist á Siglufirði 9. maí 1960. Hún lést á heimili sínu 20. maí 2019. Sóla var dóttir hjónanna Elíasar Bjarna Ísfjörð, f. 30.8. 1927, d. 12.9. 1988, og Aðalheið- ar Sólveigar Þor- steinsdóttur, f. 26.3. 1925, d. 13.1. 2000. Hún var næstyngst átta alsystkina og átti að auki þrjú hálfsyst- kini. Sólrún giftist eftirlifandi manni sínum, Óm- ari Geirssyni, 30.12. 1979 og eignuðust þau þrjú börn, Lísu Dögg, f. 1982, sonur hennar er Ómar Geir Ís- fjörð, f. 2004, Arn- þór Helgi, f. 1985, og Steinunn Helga, f. 1991, maki Sig- urður Karl, f. 1985. Þeirra börn eru Guðni Sigurður, f. 2018, og Sólrún Edda, f. 2019. Útförin fór fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu, 1. júní 2019. Elsku litla systir mín, Sólrún Elíasdóttir eða Sóla eins og við kölluðum hana, er fallin frá svo alltof ung, aðeins 59 ára, eftir harða baráttu við krabbamein. Hún stóð sig eins og hetja og kvartaði aldrei. Hún var ein- staklega þrautseig enda dugleg að eðlisfari. Það var gaman að heyra þegar Sóla svaraði í síma, það var eins og að heyra í mömmu, með hásu röddina sína; „Hææ“, og ég sagði „hvað segirðu?“ og hún svaraði „ég segi það“. Það var alltaf gaman hjá Sólu og Ómari á síldarævintýrinu heima á Sigló. Við Dóri minn og fjölskylda fórum nokkur sumur þangað og við skemmtum okkur vel. Á daginn grilluðum við og fórum svo á ball um kvöldið þar sem systir mín var í miklu stuði; það voru frábærir dagar. Sóla mín var stolt af fjöl- skyldunni sinni og var í skýj- unum með nöfnu sína og bróður hennar, að ég tali ekki um eðal prinsinn hann Ómar Geir sem hún elskaði mikið og aðstoðaði við uppeldið á. Hún var ekki mikið fyrir flakk en átti það til að skella sér aftan á mótorhjólið hjá Ómari sínum sem hún treysti best. Elsku litla systir mín var al- gjör perla og gott að eiga hana og Ómar að. Takk fyrir allt elsku Sóla mín, fyrir að vera alltaf þú. Hvíl í friði elsku systir. Jóna, Grindavík. Sólrún Elíasdóttir ✝ Kristján Aðal-steinn Sigurðs- son fæddist á Akur- eyri 27. október 1959. Hann and- aðist á Sjúkrahús- inu á Akureyri 23. febrúar 2019. Foreldrar hans eru hjónin Sig- urður Eggerz Jón- asson bóndi á Efstalandi í Öxna- dal, f. 11. maí 1923, d. 20. júní 2009, og Jónína Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 7. febrúar 1929. Systkini Kristjáns eru: 1) Elín, f. 6. júlí 1949. 2) Ásgrímur, f. 5. febrúar 1953, d. 4. desember 2002. 3) Bjarni Rósberg, f. 27. ágúst 1966. Kristján ól allan sinn aldur á Efsta- landi. Auk þess að vinna að búi for- eldra sinna fékkst hann við smíðar, enda mjög handlag- inn. Um tíma sá hann um hirðingu á kirkjugörðunum á Bægisá og Myrká í Hörgárdal. Útför Kristjáns var gerð í kyrrþey frá Höfðakapellu á Akureyri 8. mars 2019. Við andlát vinar míns, Krist- jáns, fannst mér bresta strengur í minni lífshörpu eins og hendir þegar góður persónuleiki kveður. Það hefur þetta líf oft sýnt manni. Það er sagt að maður komi í manns stað en fráfall sýnir okk- ur hversu mikið öfugmæli þetta er, því aldrei mun neinn koma í hans stað. Ég kveð þig, vinur kær, með sálmi séra Valdimars Briem. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Jón Kr. Ólafsson söngvari, Reynimel, Bíldudal. Kristján A. Sigurðsson 15 ára gamall komst þú inn í líf mitt, ég og þú urð- um eitt. Enginn og ekkert komst á milli okkar og á meðan við höfðum hvort annað vorum við hamingju- söm. Í þér fann ég minn besta vin, minn sálufélaga. Ég fann mann- inn sem ég elskaði svo heitt og innilega að ég vildi ekkert heitara en að eignast börn sem voru hluti af þér, manninum mínum, ástinni minni. Þeirri tilfinningu mun ég aldrei gleyma. Frjósemin fylgdi okkur og við Jón Reynir Hilmarsson ✝ Jón Reynir(Jónsi) Hilm- arsson fæddist 24. júní 1982. Hann lést 10. maí 2019. Útför- in fór fram 29. maí 2019. urðum rík, moldrík, með fjögur fullkom- in börn sem fæddust okkur á jafn mörg- um árum. Við reyndum okkar allra besta þegar róðurinn þyngdist í sambandi okkar en erfiðleikarnir urðu okkur ofviða og eftir 18 ár lágu leiðir okk- ar í sundur. Þú lifðir fyrir börnin okkar elsku Jónsi minn og ég heiti þér því að ég mun ávallt heiðra minn- ingu þína sem þess ofurpabba sem þú varst og ég mun elska börnin okkar og leiða þau í gegn- um lífið eins og ég veit að þú hefð- ir gert. Þú verður ávallt mín fyrsta ást og í hjarta mínu mun ég alltaf elska þig. Þín krútta, Sunna Ella Róbertsdóttir. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Guðmundur Baldvinsson, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ESTHER H. SKAFTADÓTTIR, lést sunnudaginn 2. júní á hjúkrunarheimilinu Hlíð, Akureyri. Þökkum samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Víðihlíðar fyrir góða umönnun. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón Steinbjörnsson Julia Steinbjörnsson Skapti Steinbjörnsson Hildur Claessen Björn Steinbjörnsson Wiebke Nessen Sigríður Steinbjörnsdóttur Jón Hlynur Sigurðsson og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn og vinur, ÓLAFUR JENS SIGURÐSSON, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 11. júní. Útför hans fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 19. júní klukkan 15. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Valdemarsdóttir Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, EMMU SIGURJÓNU RAFNSDÓTTUR, Urðarvegi 35, Ísafirði. Útför hennar fór fram frá Ísafjarðarkirkju 1. júní. Páll Helgi Sturlaugsson Rafn Pálsson Þórunn Pálsdóttir Hermann Jón Halldórsson Fanney Pálsdóttir Ingvar Jakobsson Arnar Pálsson Halla Björk Þorláksdóttir Birna Pálsdóttir Rögnvaldur Magnússon og barnabörn Elskuleg eiginkona mín og systir, GRÉTA SIGRÍÐUR HARALDSDÓTTIR, lést fimmtudaginn 6. júní. Jarðarförin fer fram frá Lindakirkju miðvikudaginn 26. júní klukkan 13. Hrafnkell Þorvaldsson Sigrún J. Haraldsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæru ELÍNAR METHÚSALEMSDÓTTUR, Öngulsstöðum 4, Eyjafirði, fyrrum húsfreyju á Bustarfelli í Vopnafirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Baldur Kristinsson Methúsalem Einarsson Arndís Á. Hólmgrímsdóttir Björg Einarsdóttir Bragi Vagnsson Birna H. Einarsdóttir Gunnar B. Tryggvason Gunnlaugur Einarsson Erla Sveinsdóttir Jóhann L. Einarsson Sigríður E. Konráðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.