Morgunblaðið - 15.06.2019, Qupperneq 44
Morgunblaðið/Eggert
TÓNLIST
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Einn af fyrstu röppurum Íslendinga
var kona. Það er í raun í mótsögn
við þá staðhæfingu að rapp sé, og
hafi sérstaklega á árum áður verið,
karlabransi. Þessi rappari er Cell7,
réttu nafni Ragna Kjartansdóttir,
sem hóf sinn rappferil með hljóm-
sveitinni Subterranean árið 1997, þá
16 ára gömul. Hún hvarf um tíma
og skaut svo aftur upp kollinum árið
2013 þegar hún gaf út sólóplötuna
CELLF. Nú er hún nýbúin að gefa
út nýja plötu, Is Anybody Listen-
ing?, og segist vona að Cell7 sé
komin til að vera í íslenskri rapp-
senu.
Ragna sækir titil plötunnar í
pressuna sem felst í nútímatækni.
„Nú liggur svo mikið magn talna
fyrir sem varða streymi, hlustun, li-
kes og fleira og maður veit í raun
ekkert hvað maður á að lesa úr
þessum tölum. Það er alltaf einhver
svona samanburður í gangi. Ég hitti
oft fólk sem finnst gaman að hlusta
á tónlistina mína en maður getur
hengt sig svo mikið á einhverjar
svona tölur svo maður veit í raun
ekki hver áhorfendahópurinn er,
hvort hann sé til staðar, hvort hann
sé nægur, hvort hann sé einhver
fyrir utan þessar tölur og hvað það
segi um mig sem tónlistarmann og
hvort það skipti mig máli,“ segir
Ragna.
Áður eins og trúarbrögð
Hún hefur langa reynslu af
rappsenunni og samsinnir því að
senan sé búin að breytast mikið.
„Rapp var nánast eins og
trúarbrögð og það var miklu meiri
menning í kringum rappið. Það var
ekki á færi hvers sem var og rapp
var ekki orðið svona mikið popp
eins og það er í dag. Þetta er ekki
þannig núna að þú þurfir að eiga
einhverjar rætur í rappinu, hver
sem er getur tekið upp hljóðnema
og byrjað að rappa,“ segir Ragna
sem bendir á að bæði kostir og
ókostir fylgi því að fleiri hafi tök á
að skapa tónlist.
„Það er bara svo rosalega mik-
ið framboð og það er kannski það
erfiða við bransann núna. Það er
engin sía eða neitt svoleiðis og eng-
inn þarf að vinna sig upp í neinu.
Það geta allir verið með, sem er
bæði gott og slæmt.“
Ragna hefur sjálf engan áhuga
á því að hún sé tekin út fyrir sviga
vegna kyns.
„Fyrir mér er góð tónlist bara
góð tónlist. Alveg sama undir hvaða
formerkjum það er. Ég kæri mig
fyrst og fremst um að vera þekkt
fyrir tónlistina.“
Hún segir þó augljóst að kven-
kyns rapparar mæti fleiri hindr-
unum en karlkyns.
„Það er vitað mál að af þeim
sem fá almennt inni á tónlistar-
hátíðum eru konur bara um tíu pró-
sent. Það er bara skömmustulegt
hvað það er lítið af konum sem fá
þar inn. Ég vil samt alls ekki að
maður sé sérstaklega tekinn inn
bara af því að maður er kona en það
er augljóslega eitthvert ójafnrétti í
gangi sem þarf að leiðrétta. Það
hallar á konur, staðreyndir sýna
fram á að það er þannig og það er
alveg ömurlegt.“
Ragna mun meðal annars spila
á Rokk í Hafnarfirði í ágúst og í
Kanada seinna á árinu. Hún safnar
nú fyrir því að gefa Is Anybody
Listening? út á vínylplötu.
Nýtt efni frá RVKDTR
Önnur íslensk rappplata er á
leiðinni en rappsveitin Reykjavíkur-
dætur mun á allra næstu dögum
gefa slíka út.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við
semjum plötu sem er samin sem
heil plata, við höfum oftast verið að
semja lög sem hafa svo endað á
plötu. Svo pródúsar Salka Vals-
dóttir sem er í hljómsveitinni næst-
um alla plötuna en það hefur ekki
gerst áður,“ segir Reykjavíkurdótt-
irin Þura Stína.
Sjö tónleikar erlendis eru fram-
undan hjá Reykjavíkurdætrum.
Þura segir að það sé minna en
venjulega vegna vinnunnar í kring-
um nýju plötuna sem var tekin upp í
Berlín.
Reykjavíkurdætur mættu mik-
illi mótstöðu þegar þær komu fyrst
fram á sjónarsviðið árið 2013 og
gerðu eins konar árás á feðraveldi
rappheimsins. Spurð hvort Íslend-
ingar séu loksins búnir að taka
Reykjavíkurdætur í sátt segir Þura:
„Við erum voðalega lítið að
pæla í því enda spilum við lítið á Ís-
landi. Við erum aðallega að spila í
Evrópu og erum að fara að spila í
Kanada núna í ágúst svo okkar
markhópur er svolítið þar. Okkar
umboðsmenn eru líka erlendis svo
við erum voðalega lítið að pæla í ís-
lenska markhópnum.“
Reykjavíkurdætur unnu til
tvennra alþjóðlegra tónlistarverð-
launa Music Moves Europe Talent
Awards í byrjun árs.
Ásamt Reykjavíkurdætrum og
Cell7 hefur rapparinn Countess
Malaise, réttu nafni Dýrfinna Ben-
ita, verið sú afkastamesta þetta ár-
ið. Hún kom fram á sjónarsviðið
fyrir um þremur árum síðan en hún
sendi nýverið frá sér tvö ný lög,
„Bugz Bunny“ og „Kash“. Rapp
Dýrfinnu hefur yfir sér hrollvekj-
andi blæ og hún tæklar gjarnan nei-
kvæðar og dökkar hliðar lífsins í
sínum textum.
Nýtt myndband frá Cyber
Síðastliðin þrjú ár hefur rapp-
og hljómsveitin Cyber gefið út plötu
árlega. Engin plata hefur þó komið
frá Cyber þetta árið svo aðdáendur
sveitarinnar halda niðri í sér and-
anum. Nýtt myndband frá sveitinni
er þó væntanlegt á næstu dögum
við lagið „Hold“ sem kom út á plöt-
unni Bizness í fyrra. Cyber hefur
vakið mikla athygli fyrir ferska tón-
list sem er afar ólík því sem hefur
áður komið fram hérlendis. Sveitin
mun túra um Mið-Evrópu í sumar.
Nýstirnið á rapphimninum er
Ragga Holm. Hún hefur spilað með
Reykjavíkurdætrum um tíma en gaf
fyrstu sólóplötuna sína, Bipolar, út í
fyrra. Í lok maí sendi hún svo frá
sér lagið „Stund eða staður“. Ragga
er með nokkuð klassískt, örlítið
aggressívt, yfirvegað flæði og leikur
sér með mótíf og minni rappheims-
ins.
Lítið hefur heyrst frá rappdív-
unni Alviu Islandiu undanfarið. Hún
var einn af stærstu röppurunum hér
áður fyrr og er því auðvelt að segja
með vissu að ýmsir eru óþreyjufullir
eftir nýjum smellum frá Alviu. Hún
hefur þó gefið í skyn á Fésbókar-
síðu sinni að nýtt efni sé á leiðinni.
Hindranir og sigrar kvenkyns rappara
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Cell7 Ragna Kjartansdóttir hefur farið inn og út úr íslensku rappsenunni síðan senan varð til rétt fyrir aldamót.
» Cell7, Reykja-víkurdætur og Coun-
tess Malaise hafa verið
afkastamestar á þessu
ári. Aðdáendur Cyber
og Alviu Islandiu bíða
með óþreyju eftir nýju
efni.
Öflugar Reykjavíkurdætur á Iceland Airwaves í fyrra. Önnur plata er væntanleg frá dætrunum á næstunni.
Gróskan í rappi ís-
lensku kvenþjóðar-
innar hefur verið mikil
undanfarið. Hér verður
því farið yfir það helsta
sem er að frétta af
kvenhetjum íslensks
rapps.
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2019