Morgunblaðið - 20.07.2019, Síða 1

Morgunblaðið - 20.07.2019, Síða 1
Hjartað erá Íslandi Amma einhelsta fyrir-myndin Indverjinn Rahul Bharti á að baki litríkt líf. Í æsku bjó hann meðal frumbyggja og lærði óhefðbundnar lækningaaðferðir sem hann notar í dag til þess að hjálpa fólki. Hann segir auð engu skiptaþegar kemur að heilsu og vill hjálpa Íslendingum. Hann eflir fólk til dáða og tekur ekkert fyrir en lofar engum kraftaverkum. 10 21. JÚLÍ 2019SUNNUDAGUR fir 600 gundir Kristín Péturs-dóttir er meðafslappaðanstíl, en gerirsér far um aðbæta við ein-hverju semkemur áóvart.18 Y te Nær helgurtilgangur Ari Matthíasson Þjóðleik- hússtjóri segir að leikhúsiðhafi nær helgan tilgangí opinskáu viðtali. 14 Hjónin Sigrún Andrésdóttirog Sigurður Þórðarson hafaræktað garðinn sinn í 50 ár. 20L A U G A R D A G U R 2 0. J Ú L Í 2 0 1 9 Stofnað 1913  169. tölublað  107. árgangur  LANDSLIÐIÐ ER TILBÚIÐ FYRIR HEIMSLEIKA VÍÐA SJÁST ENDUR MEÐ UNGA FUGLALÍF NÚ Í BLÓMA, 13HALDIÐ Í BERLÍN Í ÁGÚST 12 Natan Dagur Berndsen, 10 ára ís- lenskur strákur, hitti hálfbróður sinn, Isak Ahlgren, í fyrsta sinn í Svíþjóð í fyrradag. Natan Dagur, Isak og 10 ára drengur í Danmörku eru allir getnir með gjafasæði sama manns. Mæður Natans, Katrín Þóra Víðisdóttir Berndsen og Erla Björk Berndsen Pálmadóttir, fundu bræð- ur hans eftir að þær fengu númer sæðisgjafans og settu í gagnabanka. Móðir drengsins í Danmörku vildi ekki koma á tengslum þar sem sonur hennar veit ekki að hann var getinn með hjálp sæðisgjafa. Natan og Ísak fengu alfarið að ráða hvort þeir hitt- ust og hvernig þeir skilgreina sig. „Þeir smullu saman og Isak, sem er einbirni, var mjög spenntur að sjá bróður sinn,“ segir Katrín Þóra en bræðurnir þykja mjög líkir þrátt fyrir að Isak sé talinn mjög líkur móður sinni, Lottu, og Natan líkur Katrínu. »4 Bræður sem vissu ekki hvor af öðrum Bræðurnir Natan Dagur og Isak. Baldur Arnarson Pétur Hreinsson Hjörtur J. Guðmundsson Hér um bil 60 jarðir á Íslandi eru komnar í eigu erlendra fjárfesta og viðskiptafélaga þeirra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri fréttaskýringu um jarðakaup í Morgunblaðinu í dag. Talningin byggist á fasteignaskrá og fréttum og gæti talan verið hærri. Með kaupunum hafa fjárfestarnir eignast stór svæði í nokkrum lands- hlutum og tilheyrandi veiðiréttindi. Fjárfestirinn James Arthur Rat- cliffe, sem talinn er ríkasti maður Bretlands, er sagður að baki upp- kaupum á tugum jarða. Kaupin eru gerð í gegnum fjölda félaga. Eignir Ratcliffes eru metnar á tæpa 1.500 milljarða króna, eða sem svarar hálfri landsframleiðslu Íslands. Tengist félagi í Bretlandi Breska félagið Halicilla Limited er skráð fyrir hlut í nokkrum félaganna sem eiga jarðir. Samkvæmt bresku fyrirtækjaskránni er Ratcliffe eini hluthafinn í Halicilla Limited. Ratcliffe er jafnframt sagður að baki jarðakaupum fjölda félaga sem eru í eigu félagsins Dylan Holding S.A. í Lúxemborg. Eins og rakið er í Morgunblaðinu í dag virðist eignar- hald félagsins í Lúxemborg hins veg- ar hvergi skráð og virðist því ekki vera hægt að fullyrða um það. Margar stórar jarðir eru til sölu. Má þar nefna jörðina Þingvelli sem er 316 hektarar og nærri Stykkis- hólmi. Útsýni er yfir Breiðafjörð. Aðgerðir fylgja ekki orðum Fjölmargir forystumenn í íslensk- um stjórnmálum hafa lýst þeirri skoðun sinni opinberlega á undan- förnum árum að nauðsynlegt sé að taka umfangsmikil jarðakaup hér á landi til skoðunar með það fyrir aug- um að setja þeim ákveðnar skorður. Þá ekki síst forystumenn núverandi ríkisstjórnarflokka. Þrátt fyrir það verður ekki séð að mikið hafi verið gert í þeim efnum. Strangari reglur en hér Jarðakaupum erlendra aðila eru settar strangari skorður í Danmörku og Noregi en á Íslandi. Þannig kemur fram í Morgun- blaðinu í dag að litlar kröfur séu gerðar um eignarhald bújarða hér á landi. Samkvæmt meginreglu 1. greinar laga um eignarrétt og afnota- rétt fasteigna, sem gilda m.a. um land á Íslandi, er áskilið að menn megi ekki öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir fasteignum nema þeir séu ís- lenskir ríkisborgarar eða með lög- heimili á Íslandi. EES-borgarar njóta samt sem áð- ur þess sama réttar hér á landi á grundvelli EES-samningsins og þá eru einnig hliðstæðar kröfur gerðar um þá sem koma að eignarhaldi fast- eigna í gegnum félög, ýmist alla hlut- hafana eða meirihluta þeirra. Um 60 jarðir í eigu erlendra fjárfesta  Eignarhald á tugum jarða virðist ekki vera formlega skráð Morgunblaðið/Einar Falur Selá Ratcliffe við veiðiskap í sumar. MJarðakaup auðmanna »14-17 Það fjölgaði mjög í höfuðborginni í gær- morgun þegar farþegar skemmtiferðaskips- ins Queen Mary 2 stigu frá borði og lögðu af stað í skoðunarferðir. Farþegarnir eru alls 2.630 og fóru þeir flestir í skipulagðar ferðir. Það var eftirvænting í loftinu þegar Drottningin lagðist að og margir að fylgjast með. Queen Mary 2 er lengsta skip sem hingað hefur komið, heilir 345 metrar. Enda þurfti það að bakka inn að Skarfa- bakka því Viðeyjarsundið er ekki nógu breitt til að hægt sé að snúa skipinu þar. Drottningin var smíðuð í Frakklandi árið 2003 og er flaggskip Cunard-skipafélagsins. Vistarverur allar eru stórglæsilegar. »6 Morgunblaðið/Árni Sæberg Drottningin langa bakkaði að bryggjunni Byltingarverðirnir, úrvalssveitir klerkastjórnarinnar í Íran, fóru í gær um borð í tvö bresk olíuskip við Hormuz-sund. Er um að ræða skip- in Stena Impero og MV Mesdar, en þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi stefndi Stena Impero í átt að Íran. Um borð eru 23 sjó- menn, samkvæmt BBC. MV Mes- dar fékk að halda sína leið. Engir breskir ríkisborgarar eru í áhöfnum skipanna. Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, segir þessar aðgerðir „algerlega óásættanlegar“ og að nauðsynlegt sé að tryggja för skipa um alþjóðleg hafsvæði. „Það er al- gerlega skýrt að ef þetta leysist ekki fljótt mun það hafa alvarlega afleiðingar.“ Bandaríkjaher segir aðgerðir Ír- ana hafa verið vel skipulagðar og samræmdar, en hraðskreiðir bátar og þyrla voru m.a. nýtt til að taka yfir stjórn Stena Impero. Um 30 mínútur voru á milli aðgerða. Þá efldi Bandaríkjaher eftirlit sitt með bandarískum skipum á þessu svæði og voru, samkvæmt CNN, orrustuþotur notaðar til að fylgjast með siglingum þeirra. »8 Mun hafa „alvarlegar afleiðingar“  Byltingarverðir tóku yfir breskt skip

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.