Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019
Kaup auðmanna á jörðum á Íslandi
fyrir breska fjárfestingasjóðinn
Blackfish Capital. Sá sjóður var í
eigu Rowland-fjölskyldunanr og
honum var stýrt af feðgunum David
og Jonathan Rowland“. Sigurður og
Magnús hafi síðan fundað með
Wright og Rowland-feðgum í Lund-
únum. Á fundinum hafi Magnús út-
skýrt að kaupa mætti bankann á
lága upphæð, 50 milljónir evra, og að
stjórnvöld í Lúxemborg myndu
styðja slík kaup með því að leggja
fram ígildi eigin fjár upp á 54 millj-
ónir evra, „sem yrði síðan endur-
greiðanlegt með hagnaði af rekstri“.
Til að gera langa sögu stutta sam-
þykktu 97,8% kröfuhafa að selja
bankastarfsemi Kaupþings í Lúx-
emborg til Blackfish Capital, og þar
með til Rowland-fjölskyldunnar, í at-
kvæðagreiðslu 5. júní 2009. Virðist
fjölskyldan enn vera eigandinn.
Þegar litið var inn í bankann í
fyrrasumar voru fjárfestingafélögin
BlackRock og Aberdeen Standard á
fyrstu og annarri hæð. Fyrrnefnda
félagið er einn stærsti fjárfestir í
heimi en fyrr í sumar var greint frá
kaupum þess í Marel.
Rowland-fjölskyldan hefur tekið
þátt í íslensku viðskiptalífi. Þegar
greint var frá samningi á sölu á
starfsemi MP banka á Íslandi og í
Litháen 11. apríl 2011 kom fram að
Rowland-fjölskyldan ætti 9,6% hlut.
Kynni við Skúla Mogensen
Stærsti hluthafinn var Títan fjár-
festingafélag, félag Skúla Mogen-
sen, síðar stofnanda WOW air.
Haft var eftir Skúla í Viðskipta-
blaðinu tveimur dögum síðar að
Rowland-fjölskyldan kæmi að bank-
anum vegna tengsla við hann. „Ég
var viðskiptavinur Kaupþings, og
síðar Banque Havilland. Þegar þeir
tóku við bankanum kynntist ég þeim
í kjölfarið,“ sagði Skúli meðal annars
í viðtalinu. Þræðirnir milli Banque
Havilland og Íslands liggja því víða.
Þess má geta í þessu samhengi að
nokkrir af helstu stjórnendum
Kaupþings og makar þeirra eru enn
skráð með lögheimili í Lúxemborg.
Þeir áttu félög í Banque Havilland.
Gamla Kaupþing í Lúxemborg Höfuðstöðvar Banque Havilland við Rue de Kennedy í fjármálahverfinu í Lúxemborg. Umsvifamikið jarðafélag á Íslandi var skráð í viðskiptum við bankann.
Morgunblaðið/Baldur
Ástríða Ratcliffe við veiðar í Fosshyl í Selá fyrr í þessum mánuði. Hann tók fyrsta fiskinn í ár, 76 cm hrygnu.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ísland og náttúran Þetta málverk eftir Tolla er í anddyri bankans ytra.
Morgunblaðið/Baldur
Fjallað var um kaup bandarískra fjárfesta á
jörðum í Fljótunum í Morgunblaðinu í
fyrrasumar. Þar kom fram að félagið Mos
Eisley Cantina, skráð í Delaware í Banda-
ríkjunum, ætti félagið Sun Ray Shawow,
skráð í Hollandi, sem aftur ætti íslenska
hlutafélagið Blue Elver hf. Það ætti svo ís-
lensku félögin Fljótabakka ehf., Black
Sheep ehf., Green Highlander ehf. og 60% í
Hölkna ehf.
Lesa má úr ársreikningum félaganna að
þau skulduðu mörgum tengdum félögum fé.
Mörg virtust skráð í Hollandi og Bretlandi.
Jarðirnar í Fljótunum eru sýndar á grafi
á blaðsíðu 14 í Morgunblaðinu í dag.
Þess má geta að Delaware er lágskatta-
ríki í Bandaríkjunum og hafa ýmsir
íslenskir athafnamenn skráð þar félög í
gegnum tíðina.
Greint var frá kaupum Fljótabakka ehf. á
Atlastöðum fyrir helgi.
Félagið Green Highlander sér um rekstur
lúxushótelsins Deplar Farm í Fljótum í sam-
vinnu við alþjóðlega ferðaþjónustufyrir-
tækið Eleven Experience í Colorado.
Verndun villtra laxastofna
Haft hefur verið eftir Hauki B. Sigmars-
syni, framkvæmdastjóra Green Highlander,
að móðurfélagið í Hollandi, Sun Ray Shad-
ow, væri í eigu Chads R. Pikes. Pike hefur
setið í stjórn verndarsjóðs villtra laxastofna
sem Orri heitinn Vigfússon setti á laggirnar.
Samkvæmt vefsíðu fjárfestingafélagsins
Blackstone er Pike þar meðal stjórnenda.
Sem áður segir er félagið Hölkni ehf. í
60% eigu Blue Elver hf. Félagið Varpland á
40% hlut í Hölkna en það er aftur skráð í
100% eigu athafnamannsins Johns Haralds
Örnebergs.
Örneberg hefur haft fjórar jarðir á Vest-
fjörðum til sölu, eins og sýnt er á grafinu á
blaðsíðu 14 í dag. Jörðunum fylgja réttindi
í Langadalsá og Hvannadalsá.
Af öðrum dæmum um áhuga erlendra
aðila á íslenskum jörðum má nefna að fjár-
festingafélagið TP Investments í Mónakó
hyggst reisa hágæðadvalarstað fyrir ferða-
menn á Heyklifi við Stöðvarfjörð.
Haft var eftir Jerome Bottari, fram-
kvæmdastjóra hjá fjárfestingafélaginu TP
Investments, í Morgunblaðinu í vor að fjöl-
þjóðlegur hópur frá Íslandi, Sviss, Frakk-
landi og Mónakó kæmi að verkefninu.
Eins og rakið er í greininni hér til hliðar
er Banque Havilland með skrifstofur í
Mónakó. baldura@mbl.is
Fjárfestarnir eru skráðir í mörgum löndum
Kaupa m.a. jarðir á Vestfjörðum, í Fljótunum og við Stöðvarfjörð Þræðir til lágskattasvæða
Teikning/Salab.org/Birt með leyfi
Heyklif Drög að gistiskálum við Stöðvarfjörð.