Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 14
14 Kaup auðmanna á jörðum á Íslandi
fjallað í rammagrein á næstu síðu.
Áhuginn beinist að ýmsum svæðum.
Réttindi við laxveiðiár
Með kaupum sínum á jörðum á
Austurlandi hafa dótturfélög Dylan
Holding tryggt sér veiðiréttindi við
margar ár. Má þar nefna Hafralónsá,
Selá, Vesturá, Hofsá, Sunnudalsá,
Svalbarðsá, Garðsá og Hölkná.
En hverjir eiga Dylan Holding, fé-
lagið sem er að kaupa jarðirnar í
gegnum íslensk dótturfélög?
Þegar leitað var í fyrirtækjaskrá
Creditinfo fundust hvorki upplýs-
ingar um hluthafa né eignatengsl
Dylan Holding á Íslandi. Hins vegar
kom gömul skráning félagsins á Ís-
landi í leitirnar. Sendandi var Eggert
J. Hilmarsson, fulltrúi Kaupthing
Bank Luxembourg S.A., sem sendi
Hagstofu Íslands staðfestingu á
skráningu félagsins á Íslandi hinn 16.
janúar 2001.
„Ástæðan fyrir beiðninni eru fjár-
festingar á Íslandi og við þurfum að
hafa kennitölu þegar við höfum við-
skipti við bankastofnanir á Íslandi,“
skrifaði Eggert í umsókninni.
Með fylgdu stofnskjöl í Lúxem-
borg. Kom þar fram að Eggert væri
fulltrúi félaganna Waverton Group
Limited og Starbrook International
Limited í stjórn Dylan Holding.
Bæði félögin voru skráð á Tortóla á
Bresku jómfrúaeyjum. Þau komu
víðar við sögu í útrás Kaupþings.
Trúnaður um hluthafa
Athugun á 35 skjölum Dylan Hold-
ing í fyrirtækjaskrá Lúxemborgar
bendir til að hvergi sé getið um hlut-
hafa og þar með eigendur.
Síðasta sumar heimsótti Morgun-
blaðið fyrirtækjaskrá Lúxemborgar.
Spurt var hvort mögulegt væri fyrir
blaðið að fá upplýsingar um hluthafa
í Dylan Holding S.A. Fyrirspurnin
vakti sýnilega undran starfsmanns
fyrirtækjaskrárinnar. Svarið var
stutt: Upplýsingar um hluthafa í
S.A.-félögum eru aldrei veittar.
Það er því á huldu hverjir eiga fé-
lag sem orðið er umsvifamikið í ís-
lenskum laxveiðiám. Ratcliffe er
sagður að baki fjárfestingunni en það
virðist hvergi formlega skráð.
Reist á grunni Kaupþings
Morgunblaðið leit næst inn í
höfuðstöðvar Banque Havilland í
Lúxemborg. Þær eru við Rue de
Kennedy 35a í nýja fjármálahverfinu
í Lúxemborg. Havilland var reistur á
grunni Kaupþings eftir fall bankans
haustið 2008. Ástæðan fyrir heim-
sókninni er að félagið Dylan Holding
var skráð hjá Kaupþingi og síðar hjá
Banque Havilland. Það virðist ekki
hafa verið skráð hjá öðrum banka.
Heimilisfang félagsins er nú 22 Rue
Marie-Adélaïde í Lúxemborg. At-
hygli vekur að það er sama heim-
ilisfang og Moon Capital, félag tengt
Baugsveldinu, hefur. Bæði félög voru
áður á 8 Boulevard Royal.
Stórt málverk eftir Tolla í anddyri
Banque Havilland minnir á Ísland.
Bankinn hefur jafnframt skrifstofur í
Mónakó, Lundúnum, Liechtenstein,
Dúbaí og Sviss. Í Mónakó er að finna
aðila sem einnig eru áhugasamir um
íslenska náttúru, eins og rakið er á
næstu síðu.
Fyrirmenni við opnunina
Banque Havilland var opnaður að
viðstöddum fyrirmennum mánudag-
inn 28. september 2009. Meðal ann-
ars var Luc Frieden, fjármálaráð-
herra Lúxemborgar, viðstaddur.
Fram kom í tilkynningu frá bank-
anum að David Rowland væri skráð-
ur hluthafi í bankanum. Hann hefði
boðið gesti velkomna áður en hann
gaf Magnúsi Guðmundssyni, for-
stjóra nýja bankans, orðið.
Fjallað er um stofnun Banque Ha-
villand í bókinni Kaupthinking eftir
Þórð Snæ Júlíusson blaðamann.
Hann skrifar að annars vegar hafi
verið stofnaður „góður“ banki úr
Kaupþingi í Lúxemborg og hins
vegar „slæmur“ banki með lakari
eignum. Banque Havilland hafi verið
góði bankinn.
Þórður Snær vitnar jafnframt í þá
kenningu athafnamannsins Kevins
Stanfords að helstu stjórnendur
Kaupþings hafi „ráðist í verkefni sem
snerist um að halda Kaupþingi í Lúx-
emborg lífvænlegum eftir að Kaup-
þing á Íslandi var fallinn“. Þeir hafi
séð óveðursský á lofti.
Þórður Snær vitnar svo í skýrslu
fyrrverandi starfsmanns fjármálaeft-
irlitsins í Lúxemborg sem unnin var
fyrir aðila sem tengdust kröfuhöfum
Kaupþings. Þar komi fram að eftir
efnahagshrunið hafi verið leitað til
fjárfestingasjóðs í eigu Líbíustjórnar
um möguleg kaup á Kaupþingi. Eftir
annan fund hafi þær hugmyndir svo
runnið út í sandinn.
Meðgjöf frá stjórnvöldum
Það hafi svo gerst í mars 2009 að
Sigurður Einarsson kynnti „þann
möguleika að kaupa starfsemi dótt-
urbankans í Lúxemborg fyrir manni
sem heitir Michael Wright og starfaði
Eignarhaldið virðist vera á huldu
Eignarhald á Dylan Holding, sem á fjölda jarða á Íslandi, virðist hvergi vera formlega skráð
Félagið var í upphafi skráð hjá Kaupþingi en síðan hjá banka sem reistur var á grunni þess
Morgunblaðið/Baldur
Horft frá gamla bænum Fjármálahverfið í Lúxemborg er í uppbyggingu.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Dylan Holding S.A. í Lúxemborg er
skráð fyrir fjölda jarða sem sagðar
eru í eigu breska auðjöfursins James
Arthurs Ratcliffes. Dylan Holding er
þannig móðurfélag tæplega 20 ís-
lenskra félaga sem skráð eru sem
eigendur jarða. Eignarhluturinn er
breytilegur en yfirleitt er um 100%
eignarhlut að ræða.
Á grafinu hér fyrir ofan er að finna
dæmi um jarðir sem sagðar eru í eigu
Ratcliffes og viðskiptafélaga á Ís-
landi. Grafið byggist að hluta á upp-
lýsingum sem aflað var í fyrrasumar.
Athugun á eignarhaldi um 70 jarða á
Austurlandi í gær benti til að jörðin
Brúarland væri sú eina sem bæst
hefði í eignasafnið.
Samkvæmt afsali sem var fært inn
hjá sýslumanninum á Norðurlandi
eystra síðastliðinn miðvikudag fylgdi
með 100% eignarhlutur í jörðinni
Brúarlandi, Svalbarðshreppi, ásamt
öllu sem jörðinni fylgir og fylgja ber,
og 25% eignarhluti í jörðinni Gunn-
arsstöðum I, ásamt öllu sem eignar-
hlutnum fylgir. Með Brúarlandi
fylgdu 2/6 af veiðirétti Gunnarsstaða
í Hafralónsá. Þá var vísað í upp-
haflegt heimildarskjal jarðarhlutans
úr Gunnarsstöðum þar sem meðal
annars væri lýst ½ veiðirétti jarð-
arinnar í Hafralónsá.
Ásamt þessum kaupum hafa
bandarískir fjárfestar bætt við sig
jörð austur af Fljótunum. Um þau
kaup og fleiri viðskipti með jarðir er
F
L
Ó
K
A
D
A
L
U
R
F
L
JÓ
T
M
iklavatn
Fljótavík
Stífluvatn
Fljótaá
Nefstaðir
Steinavellir
Deplar
Hraun
HreppsendaáLundur (land 1)
Knappsstaðir
Stóra-Brekka
Siglufjörður
Efra-Haganes 1,
lóð 2 og 3
Atlastaðir
Heildarstærð jarða í Fljótum í eigu
Fljótabakka er 4.737 hektarar. Fljóta bakki hefur nýverið
fest kaup á jörðinni Atla-
stöðum í Svarfaðar dal.
Seyðisfjörður
Héðinsfjörður
Seyðisfjörður
Skálanes
Jörðin Skálanes
er 1.263 hektarar
Ho
fsá
Breiðamýri
Áslaugarstaðir
Leifsstaðir
Hámundarstaðir
Ljótsstaðir
Skógar
Rjúpnafell
Deildarfell
Hvammsgerði
Sunnudalur
Hraunfell
Borgir
Háteigur
Guðmundarstaðir
Síreksstaðir
Gnýsstaðir
Hamar
Hauksstaðir
Krossavík
Lýtingsstaðir
Fagurhóll
Þorvaldsstaðir
Einarsstaðir
Ytri-Hlíð
● Selsárvellir
● Mælifell
Vopnafjörður
VopnafjörðurSE
LÁ
RD
AL
UR
HO
FS
ÁR
DA
LU
R
VE
ST
UR
ÁR
-
DA
LU
R
Se
lá
Se
lá
Ve
st
ur
á
Fremri-Nýpur
Su
nn
u-
da
lsá
10 stærstu jarðirnar
eru samtals rúmir
45.000 hektarar.
Þistilfjörður
Bakkafl ói
Þórshöfn
Bakkafjörður
Hvammur
Miðfjarðarnessel
Hallgilsstaðir
Svalbarðssel
Sv
al
-
ba
rð
sá
Ga
rð
á
Veðramót
Gunnarsstaðir
Brúarland
Ísafjarðardjúp
Ísafjörður
Vigur
Tunga
Neðri-Bakki
Brekka
Kirkjuból
Jarðirnar Tunga, Neðri-
Bakki, Brekka og Kirkjuból
ásamt veiðiréttindum í
Langadalsá og Hvanna-
dalsá eru í eigu Varplands
hf. sem er í eigu Johns Har-
alds Örnebergs. Jarðirnar
eru alls 17.000 hektarar.
Eyjan Vigur í Ísafjarðardjúpi er
mögulega seld út lend ing i, bú-
sett um í Evr ópu. Vigur hefur
síðasta árið verið á sölu skrá.
1
Heiðarvatn
Vatnsá
Kerlingadalsá
Jarðirnar Engigarður, Stóra-Heiði
og Litla-Heiði við Heiðarvatn
ásamt 54,2% hlutar í Veiðifélagi
Kerlingadalsár og Vatnsár eru í
eigu Rudolfs Walters Lamprechts.
Hjörleifshöfði og um
11.500 hektarar lands
sem honum fylgja eru til
sölu. Mögulegt söluverð
er 250-500 milljónir kr.
Stóra-Heiði
Engigarður
Hjörleifshöfði
Vík
Höfða-
brekka
Hótel Katla
Hótel Katla og jörðin Höfðabrekka
sem er um 4.700 hektarar eru í eigu
félagsins K Acquisition sem er í 75%
eigu erlendra fjárfesta. Jörðin nær yfi r
hluta Mýrdalssands og með jörðinni
fylgja veiðiréttindi og fl ugvöllur.
Litla-Heiði
Heyklif
Breiðdalsvík
Stöðvar-
fjörður
Heyklif er í eigu City lab ehf. í Mónakó,
fyrirtækis Alexanders Efanovs.
1
Grímsstaðir
Grímstunga
Jökulsá á
Fjöllum
Land Grímsstaða er
um 22.800 hektarar
Bæir og jarðir á Austurlandi í eigu Ratcliffes og viðskiptafélaga
Grímsstaðir á Fjöllum Skálanes við
Seyðisfjörð
Heyklif á Kambanesi við Stöðvarfjörð
27 eignir við Vopnafjörð, í Selárdal, Vesturárdal,
Hofsárdal og Sunnudal
Á kortið eru merktar
59 jarðir og aðrar fasteignir í eigu erlendra aðila.
Það er aðeins hluti þeirra
jarðeigna sem eru að hluta eða
að öllu leyti í erlendri eigu.
7 eignir í Þistilfi rði og við Bakkafl óa
11 eignir í Fljótum og Svarfaðar dal
5 eignir í Mýrdal
5 eignir við Ísafjarðardjúp
Fasteignir í Fljótum og Svarfaðar dal í eigu Fljótabakka Eyjan Vigur og jarðir við Ísafjarðardjúp
Jarðir og veiðiréttindi við Heiðarvatn og aðrar fasteignir í Mýrdal og Mýrdalssandi
Fljótabakki er dótturfélag
Eleven Experience sem
rek ur m.a. ferðaþjón-
ust una Depl ar Farm í
Fljót un um
1
3
4
5
8
7
6
2
1 3
4
57
8
6
2
Heimildir: Fasteignaskrá, Creditinfo,
Nytjaland (RALA) og greinasafn Morgunblaðsins.
Kortagrunnur: OpenStreetMap.
Dæmi um jarðir á
Íslandi sem eru í eigu
erlendra fjárfesta og
viðskiptafélaga þeirra
SJÁ SÍÐU 16