Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019 Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033 30-50% afsláttur ÚTSALA karlmenn Flottir í fötum Heimildarmyndin Af jörðu ertu kominn verður frumsýnd í kvöld kl. 19.45. Frumsýningin fer fram samtímis á RÚV og í Bíó Paradís í Reykja- vík, en myndin fer síðan til sýninga og á kvik- myndahátíðir erlendis út árið. „Myndin heitir á ensku Cosmic Birth og segir frá hinni mannlegu hlið ferðanna til tunglsins, en alls gengu 12 menn á tunglinu frá 1969 til 1972. Myndir tunglfaranna af jörðinni höfðu djúpstæð áhrif á skynjun mann- kyns á heimili sínu í geimnum og stuðluðu að mikilli umhverfisvakningu um allan heim næstu áratugi. Í myndinni er m.a. rætt við fimm Apollo- geimfara, auk sonar Neil Armstrong sem fyrstur steig fæti á tunglið. Þar segja geimfararnir frá upplifun sinni,“ segir í tilkynningu. Leikstjóri myndarinnar er Rafnar Orri Gunnarsson, handritshöfundur er Örlygur Hnefill Örlygsson og tónlist er eftir Framfara og Ósa á Borg. Mynd- in er framleidd af Colorwaves fyrir Könnunarsafnið á Húsavík. Könnunar- safnið og sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi standa saman að dagskrá fyrir frumsýninguna í Bíó Paradís sem hefst kl. 19 og verður meðal annars hluti safnsins til sýnis í anddyri kvikmyndahússins. Aðgangur er ókeypis, en áhugasamir eru beðnir að panta miða með því að senda póst á netfangið: info@explorationmuseum.com. Örlygur Hnefill Örlygsson 50 ár frá tungllendingu – fagnað í mynd Sér grefur gröf eftir Yrsu Sigurð- ardóttur, Snjóblinda eftir Ragnar Jónasson og Grafarþögn eftir Arn- ald Indriðason eru á meðal 100 bestu glæpasagna sem skrifaðar hafa verið, samkvæmt lista bresku bókabúðakeðjunnar Blackwell‘s Auk íslensku glæpasagnanna þriggja eru á lista Blackwell‘s- keðjunnar bækur eftir höfunda á borð við Arthur Conan Doyle, Umberto Eco, Sjöwall og Wahlö, Ian Rankin, Jo Nesbö, Stieg Lars- son og Aghöthu Christie. „Á dögunum birti Sunday Times lista yfir 100 bestu glæpasögur sem komið hafa út frá stríðslokum og þar áttu íslensku höfundarnir þrír líka bækur en þó ekki þær sömu heldur voru það Brakið eftir Yrsu, Dimma eftir Ragnar og Furðu- strandir eftir Arnald. Það er Rich- ard Reynolds sem tók saman listann fyrir Blackwell‘s en hann er þekktur sérfræðingur í glæpasög- um í Bretlandi, hefur setið í dóm- nefndinni um Gullrýtinginn, auk þess að vera gagnrýnandi, ritstjóri og bóksali,“ segir í tilkynningu frá Bjarti & Veröld. Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson. Aftur meðal hundrað bestu glæpasagna» Ingibjörg Ólafsdóttir fatahönnuður sýnir málverk unnin á árunum 2016-19í Kirsuberjatrénu við Vesturgötu. Um er að ræða fyrstu einkasýningu hennar. Hún lauk námi frá Københavns mode og design skole 1984 og hefur stundað myndlistarnám sl. fimm ár. Segir hún myndirnar vera leið sína til að tjá hugsanir sínar og tilfinningar. Á morgun er síðasti sýningardagurinn. Ingibjörg Ólafsdóttir hefur opnað fyrstu einkasýningu sína Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.