Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019 Er stærsti framleiðandi sportveiðarfæra til lax- silungs- og sjóveiða. Flugustangir og fluguhjól í úrvali. Gott úrval af fylgihlutum til veiða stólar, töskur, pilkar til sjóveiða, spúnabox margar stærðir, veiðihnífar og flattningshnífar. Abulon nylon línur. Gott úrval af kaststanga- settum, fyrir veiðimenn á öllum aldri, og úrval af „Combo“ stöng og hjól til silungsveiða, lax veiða og strandveiða. Flugustanga sett stöng hjól og lína uppsett. Kaststangir, flugustangir, kast- hjól, fluguhjól, gott úrval á slóðum til sjóveiða. Lokuð kasthjól. Úrval af flugustöngum, tvíhendur og hjól. Balance Lippa, mjög góður til silungsveiða „Original“ Fireline ofurlína, gerfi- maðkur sem hefur reynst sérstaklega vel, fjölbreitt gerfibeita fyrir sjóveiði og vatnaveiða, Berkley flattnings- hnífar í úrvali og úrval fylgihluta fyrir veiðimenn. Flugnanet, regnslár, tjaldhælar, og úrval af ferðavörum Helstu Útsölustaðir eru: Veiðivon Mörkinni Vesturröst Laugavegi Veiðiportið Granda Veiðiflugur Langholtsvegi Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi Kassinn Ólafsvík Söluskáli ÓK Ólafsvík Skipavík Stykkishólmi Smáalind Patreksfirði Vélvikinn Bolungarvík Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki SR-Bygginavöruverslun Siglufirði Útivist og Veiði Hornið Akureyri Veiðiríkið Akureyri Hlað Húsavík Ollasjoppa Vopnafirði Veiðiflugan Reyðarfirði Krían Eskifirði Þjónustustöðvar N1 um allt land.Dreifing: I. Guðmundsson ehf. Nethyl 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com. Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum „Betri sportvöruverslunum landsins“ Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Forsætisráðuneytið hefur lagt inn í samráðsgátt stjórnvalda tillögu að lagafrumvarpi um breytingar á upp- lýsingalögum sem miða að því að bæta réttarstöðu þriðja aðila, þ.e. þess sem á hagsmuna að gæta af af- hendingu upplýs- inga frá stjórn- völdum. Lagt er til að stjórnvöld- um verði skylt að leita afstöðu þriðja aðila til af- hendingar upp- lýsinga sem varða hann sjálfan áður en ákvörðun er tekin um afhend- ingu gagna nema það sé bersýnilega óþarft. Þá verði úrskurðarnefnd um upplýsingamál skylt að birta úrskurð þeim aðila sem upplýsingar um einkahagsmuni varða ef fallist er á rétt kæranda til aðgangs að upplýsingunum. Í þriðja lagi er lagt til að þriðja aðila verði veittur réttur til að krefjast frest- unar réttaráhrifa úrskurðar úr- skurðarnefndar um upplýsingamál í því skyni að bera ágreining um gildi úrskurðarins undir dómstóla. Óþarft og ekki til bóta Undir lok þings, nú í júní, var sam- þykkt frumvarp um heildarendur- skoðun upplýsingalaga í kjölfar starfs nefndar um umbætur á lög- gjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla- og upplýsingafrelsis undir formennsku Eiríks Jónssonar, prófessors við lagadeild Háskóla Íslands. Nýjar til- lögur ráðuneytisins eru byggðar á hluta athugasemda Samtaka at- vinnulífsins (SA) sem sendar voru stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þegar málið var til þingmeðferðar. Í tillögu forsætisráðuneytisins á sam- ráðsgáttinni segir að það sé mat ráðuneytisins að umsögn SA fjalli ekki um frumvarpið sem lagt var fram á þinginu, heldur sé um að ræða tillögur að öðrum breytingum á upplýsingalögum. „Forsætisráðu- neytið tók tillögurnar til skoðunar og er það mat ráðuneytisins að hluti þeirra sé til nokkurra bóta miðað við gildandi rétt,“ segir þar. Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélagsins, var meðlimur í fyrrgreindri nefnd. Honum líst illa á tilvonandi frumvarp. „Ég þarf að kynna mér þetta betur þegar ég fæ tækifæri til, en mér sýnist að þetta sé ekki til bóta og sé í raun óþarfi. Þetta flækir aðgengi almennings og fjölmiðla að upplýsingum,“ segir hann. „Við erum nýbúin að gera breytingar á upplýsingalögum sem voru til framfara og ég sé ekki þörf- ina á þessu,“ segir hann og kveðst aðspurður ekki minnast þess að réttarstaða þriðja aðila hafi komið til álita í starfi nefndarinnar. Spurður hvernig hugmyndir SA og forsætisráðuneytisins muni tefja fyrir segir hann að þær auki á flækjustigið. „Mér sýnist að það sé verið að flækja ferlið. Bæði með því að þriðji aðili geti lagt stein í götu þess að upplýsingar séu birtar og mögulega farið með það fyrir dóm- stóla. Það tefur fyrir og mér finnst að það þurfi að vera ríkar ástæður til þess að svo sé.“ Sem fyrr sagði lögðu SA athuga- semdirnar fram við þinglega með- ferð frumvarps um breytingu á upp- lýsingalögum á liðnu þingi. „Ég sé ekki annað en að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi átt að taka afstöðu til þessa á þeim tímapunkti. Það er nýbúið að breyta lögunum og fara yf- ir þetta. Ég átta mig ekki á þörfinni á þessu,“ segir hann. Afstaða þingnefndarinnar Spurður út í það mat forsætis- ráðuneytisins að umsögn SA hafi ekki fjallað um frumvarpið sem lagt var fram á liðnu þingi segir hann að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi átt að taka afstöðu til hennar á þeim tímapunkti. „Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd getur sett hvaða breyt- ingar sem er inn ef hún telur ástæðu til. Það er bara hin þinglega með- ferð. Það er ekki framkvæmdavaldið sem stýrir því hvaða breytingar eru gerðar, heldur þingræðið. Mér finnst þetta ekki vera rök í málinu,“ segir Hjálmar en áréttar að hann hafi ekki kynnt sér málið ofan í kjölinn. Hann segir Blaðamannafélagið munu gera athugasemdir við málið á samráðs- gáttinni, en frestur til þess er til 31. júlí. SA eru skrifuð fyrir einu umsögn- inni sem borist hefur inn á gáttina um málið, en þar eru ítrekuð önnur sjónarmið sem fram komu í umsögn þeirra til stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar. Meðal annars um að tíma- frest stjórnvalda til að veita upplýs- inga beri að lengja úr einni viku í tvær og að heimildir stjórnvalda til að hafna beiðni um upplýsingar séu sterkar vísbendingar um að hún sé sett fram í ólögmætum tilgangi. Vilja breyta lögunum á nýjan leik  Forsætisráðuneytið leggur til breytingu upplýsingalaga  Varðar afstöðu og hagsmuni þriðja aðila  Heildarendurskoðun laganna nýlokið  Tillagan sögð flækja aðgengi almennings að upplýsingum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjórnarráðið Forsætisráðuneytið leggur til breytingar á upplýsingalögum sem miða að því að bæta stöðu þriðja manns þegar upplýsinga er óskað frá stjórnvöldum; m.a. er lagt til að leitað verði eftir afstöðu þessara aðila. Hjálmar Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.