Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is VELKOMIN Á NÝJU VEFSÍÐUNA OKKAR Uppgötvaðu vörurnar okkar og kosti þess að versla á netinu Guðni Einarsson gudni@mbl.is Náttúran skartar sínu fegursta þessa dagana og þar er fuglalífið engin undantekning. Víða eru komn- ir ungar og þeir sem fyrst komust á legg í vor eru löngu orðnir fleygir. Samantekt um fuglalífið í Reykja- víkurborg birtist nýlega á heimasíðu borgarinnar. Þar kemur m.a. fram að kríuvarpið hafi farið seint af stað víða um land og þar sé kríuvarpið í Vatnsmýri og hólmanum í Þorfinns- tjörn í Hljómskálagarðinum engin undantekning. „Töluverður fjöldi fugla hefur ver- ið í varpinu á báðum stöðum en vel yfir 50 hreiður eru í Vatnsmýri og um 20 í Þorfinnshólma. Fyrstu ung- arnir hafa verið að líta dagsins ljós á síðustu vikum. Kríurnar verja ung- ana af krafti og vegfarendur eiga oft fótum sínum fjör að launa.“ Margir andfuglar með unga Á Reykjavíkurtjörn, í Laugardal, við Elliðaár og við sjávarsíðuna má sjá andfugla, endur, gæsir og jafnvel álftir með unga. Flestar andateg- undir eru búnar að leiða út úr hreiðrum sínum en misjafnt er hve- nær varp hinna ýmsu tegunda nær hámarki. Grágæsaungar eru orðnir vel stálpaðir og fylgja fjölskyldum sínum þar sem þær keppast við að bíta gras og aðrar gómsætar jurtir. Æðarkollur með unga synda með ströndum borgarlandsins og kafa eftir kræklingi og öðru góðgæti sem þær finna á grunnsævinu. „Á vötnum og tjörnum t.d. á Reykjavíkurtjörn, á Rauðavatni, Elliðavatni og víðar má sjá skúf- endur, duggendur og toppendur með unga en júlí er aðalútungunar- tími kaf- og fiskianda. Buslendur eins og stokkönd, gargönd og urtönd unga alla jafna út fyrr á sumrin og eru því víða með stálpaða unga en stokkendur geta þó orpið á ólíkum tímum og sjá má nýklakta hnoðra frá lok maí alveg fram í ágúst t.d. á Reykjavíkurtjörn,“ segir í saman- tektinni. Flórgoðar á Rauðavatni Mikið sást af flórgoða við Rauða- vatn í byrjun sumars, eða átta pör, en þar hafa þeir orpið undanfarin ár. Þurrkarnir í sumar ollu því að yfir- borð vatnsins varð mjög lágt. Það gerði flórgoðunum erfitt að gera flothreiður við bakkagróðurinn. Þegar síðast var gáð sáust aðeins tvö flórgoðapör og höfðu þau gert flot- hreiður úti í vatninu þar sem síkja- mari stendur upp úr. Ekki hafa sést ungar og þykir sennilegt að fugl- arnir hafi reynt varp í annað sinn. Langt er síðan fyrstu skógar- og svartþrastaungarnir sáust í görðum borgarbúa. Í samantektinni segir að undanfarið hafi mest borið á ungum maríuerlu og þúfutittlings á opnum svæðum. Þessar tegundir eru far- fuglar og tímasetja varpið nákvæm- ar en þrestirnir, sem eru að mestu staðfuglar í borginni. Lundavarp í Akurey, sem var frið- lýst fyrr á þessu ári, virðist hafa far- ið vel af stað. Ábúð er 79% en var 74% í fyrra, varpárangur nú er 0,85 og viðkoma 0,66 sem þykir ágætt. Lundar hafa sést bera sandsíli í tölu- verðum mæli. Fuglalífið blómstrar í borginni í sumar  Kríuungar komnir í miðborginni  Víða sjást endur og gæsir með unga Morgunblaðið/Bogi Þór Arason Kjói Þessi seyðfirski kjói reyndi að stugga ljósmyndaranum burtu með því að slá vængendunum í höfuð hans. Morgunblaðið/Bogi Þór Arason Æður Æðarkollan skýlir unga undir væng sínum. Æðarfuglarnir synda með ströndinni og tína upp kræklinga og annað æti á grunnsævinu. Loftrýmisgæsla Atlantshafs- bandalagsins við Ísland er að hefj- ast að nýju með komu flugsveitar bandaríska flug- hersins. Allt að 110 liðsmenn bandaríska flug- hersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórn- stöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með fimm F-16-orrustuþotur. Verkefn- inu mun ljúka fyrir lok ágúst. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 29. til 31. júlí, segir í frétt á vef Landhelgis- gæslunnar. Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmis- gæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á ör- yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Landhelgisgæsla Íslands, í sam- vinnu við Isavia, sér um fram- kvæmd verkefnisins . sisi@mbl.s Loftrýmisgæsla NATO hefst á ný NATO F-16-orrustu- þota á flugi. Sex aðilar hyggjast hefja byggingu á ódýrari íbúðum fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur á næstunni, ef áform og fjármögnun ganga eftir. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá Reykjavíkurborg. Til stendur að byggja þessar íbúðir á lóðum sem hafa verið tekn- ar frá fyrir hagkvæmar íbúðir. Borgarráð hefur samþykkt slík lóðavilyrði á níu reitum. Þrír hópar hafa skilað gögnum um fjármögnun og fengið fullgild lóðavilyrði. Þeir eru Frambúð sem þróar byggð í Skerjafirði, Vaxtarhús sem vinnur að verkefni á reit Sjómannaskólans og Urðarsel í Úlfarsárdal. Auk þess samþykkti borgarráð fimm vilyrði þar sem aðilar fengu átta vikna frest til að tryggja fjármögnun eig- infjár sem nemur 20% af áætluðum byggingarkostnaði. Nú hillir undir bygg- ingu ódýrari íbúða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.