Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Skoðið LAXDAL.is Opið laugardag 10-15 STÓRÚTSALA Skipholti 29b • S. 551 4422 Sumaryfirhafnir - Gæðafatnaður 40-70% AFSLÁTTUR Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Leki kom upp á tveimur stöðum á hjúkrunarheimilinu Seltjörn á Sel- tjarnarnesi sem vígt var í febrúar. Kristján Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Vigdísarholts, félags á vegum ríkisins sem rekur Seltjörn, segir að aðeins sé um smit að ræða sem sé óverulegt og trufli ekki starfsemina. „Þetta er nú nánast ekki neitt. Það smitar aðeins niður á tveimur stöð- um. Verktakinn er kominn í málið og þetta verður lagað,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið. „Við höf- um þurft að stilla af húsið eins og ég kalla það og það hefur bara verið gert. Það er ekkert sniðugt að nýtt hús leki, en þetta er óverulegt og verður lagað á kostnað verktakans. Þetta truflar ekki starfsemina eða neitt,“ segir hann. „Ég myndi nú aldrei tala um leka. Þetta er bara smá smit. Það dropaði hvergi niður, en það kom smá litur á vegg þarna uppi. Þetta er á heimili sem heitir Norðurtún og hitt heitir Nýi bær,“ sagði hann. Ekkert óeðlilegt Ýmislegt annað smálegt hefur komið upp á Seltjörn að sögn Krist- jáns. „Við og verktakinn höfum bara unnið það saman. Það er ekki óeðli- legt þegar verið er að taka nýtt hús í notkun. Þegar starfsemin fer af stað kemur alltaf eitthvað upp sem þarf að laga,“ sagði Kristján. Hann nefnir t.d. að lista hafi vantað á gólfdúk á einum stað og laga hafi þurft sí- rennsli í salerni. Þá hafi loftræsting slegið út. „Það hefði alveg liðið yfir mig hefði ekkert komið upp,“ sagði hann. Á hjúkrunarheimilinu, sem er við Safnatröð 1, eru 40 pláss og eru þau öll full að sögn Kristjáns. Fyrsta skóflustungan var tekin í júní 2014, en fyrr á árinu voru fregnir fluttar af því að illa gengi að manna stöður hjúkrunarfræðinga á Seltjörn. Allar stöður eru nú mannaðar og starf- semin gengur vel. Morgunblaðið/Hari Seltjörn Kristján Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vigdísarholts, segir að um óverulegt smit sé að ræða. Gert verði við á kostnað verktakans, en sú vinna er þegar hafin. Hjúkrunarheimilið var vígt í febrúar síðastliðnum. Leki á tveimur stöðum á hjúkrunarheimilinu Seltjörn  Óverulegt að sögn framkvæmdastjóra og verktaki lagfærir Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Marta Guðjónsdóttir og Örn Þórð- arson, fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skóla- og frístundaráði Reykjavík- ur, hafa óskað eftir aukafundi í ráðinu sem fyrst vegna málefna Norðlingaskóla og annarra skóla þar sem stefnir í að skólastarf verði í uppnámi við skólabyrjun í haust. Marta Guðjónsdóttir borgar- fulltrúi segir að bréf skólastjórn- enda Norðlingaskóla frá 18. júlí, þar sem þeir óskuðu eftir fundi með borgaryfirvöldum til að fara yfir stöðu húsnæðismála skólans, hefði eitt og sér verið næg ástæða til þess að skóla- og frístundaráð kæmi saman til aukafundar. Skóla- stjórnendur sendu bréfið eftir að borgarráð samþykkti að fresta byggingu gangs sem nauðsynlegur er til þess að hægt sé að nýta við- bótarhúsnæði sem skólinn hefur á leigu við Norðlingabraut 4. Áhyggjur af fimm skólum „Norðlingaskóli er byggður fyrir 450 börn en í haust er gert ráð fyrir 625 nemendum. Þegar við bætast áhyggjur vegna húsnæðis Fossvogsskóla, Breiðholtsskóla, Seljaskóla og Hagaskóla og næsti fundur skóla- og frístundaráðs er ekki boðaður fyrr en 13. ágúst er full ástæða til þess að óska eftir aukafundi,“ segir Marta og bendir á að málefnalegar ástæður þurfi til svo boðað sé til aukafundar. Það leiki sér enginn að því að óska eftir aukafundi. Marta segir skólahald byrja 22. ágúst og hún trúi ekki öðru en formaður skóla- og frí- stundaráðs Reykjavíkur boði skjótt til fundar í ráðinu. Það sé ekki langur tími sem borgin hafi til þess að leysa úr húsnæðismálum í þeim skólum þar sem þau eru í ólestri. Sif Vígþórsdóttir, skólastjóri Norðlingaskóla, segir að það eina sem hún geti sagt á þessu stigi sé að málið snúist um vöntun á hús- næði fyrir skólahald og verið sé að vinna í málunum. 625 nemendur í skóla fyrir 450  Óskað eftir aukafundi í skóla- og frístundaráði vegna Norðlingaskóla Morgunblaðið/Ómar Skóli Börn í Norðlingaskóla við setningu hans fyrir nokkrum árum. Þyrlu þyrfti til að koma vísinda- mönnum á Gömlueyri í Löngu- fjörum, þar sem tugi grindhvala rak á land. Er útlitið því ekki gott með sýnatöku, að sögn Gísla Arnórs Vík- ingssonar, hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknastofnun. Sagði hann í samtali við mbl.is í gær að spáð hefði verið í að fara á staðinn en þegar legið hefði fyrir hversu óaðgengileg- ur staðurinn væri hefðu slíkar hug- myndir verið metnar illframkvæm- anlegar. Hafrannsóknastofnun hefði hvorki aðgang að þyrlu né fjármuni til að leigja hana. Þó hefur ekki verið útilokað að starfsmenn Hafrann- sóknastofnunar fari á staðinn. „Landeigandi segir þetta ekki að- gengilegt nema í þyrlu og þá jafnvel bara stuttan síma í senn,“ sagði Gísli og bætti við: „Það væri hugsanlega hægt að fara þetta á hesti, en það er ekki neitt sem við höfum yfir að ráða.“ Mesti fjöldi frá 1986 Ekki þykir endilega þörf á því að fjarlægja og urða hræ hvalanna sök- um þess hversu afskekktur stað- urinn sem um ræðir er. Þetta sagði Gunnar Alexander Ólafsson, sér- fræðingur hjá Umhverfisstofnun, sem sagði landið þar sem hræin liggja í einkaeigu og því væri það landeiganda að grípa til aðgerða ef hann teldi þess þörf. Spurður hvort slæmt væri fyrir vistkerfi staðarins að tugur dýra lægi þar rotnandi á sama tíma svaraði Gísli á þá leið að náttúran gengi tiltölulega fljótt frá hræjunum. „Mun stærri hvalir hverfa fljótt,“ sagði hann og sagðist ekki telja umhverfsivá stafa af rotn- un hræjanna. Líkt og Edda Elísabet Magnús- dóttir, sjávarlíffræðingur og hvala- sérfræðingur, lýsti í Morgunblaðinu í gær nefndi Gísli að búsvæði grind- hvala væri í djúphafinu og þess vegna lentu þeir í vandræðum þegar þeir færua upp á grynningar. „Þetta er auðvitað bara náttúrulegt fyrir- bæri sem hefur gerst með reglulegu millibili. Þessi tegund er fræg fyrir þetta og að því leyti er þetta nátt- úrulegt fyrirbrigði þó að auðvitað sé þetta afbrigðilegt.“ Bætti Gísli við að fjöldi hvalanna sem drápust nú væri líklega sá mesti frá 1986, þegar 148 hvalir gengu á land í nágrenni Þor- lákshafnar. Ekki þörf á að fjar- lægja hvalahræin  Þyrlu þarf til að hægt sé að taka sýni Ljósmynd/David Schwarzhans Dauðir Rotnandi hvalahræ eru nú áberandi á Löngufjörum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.