Morgunblaðið - 20.07.2019, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 20.07.2019, Qupperneq 5
Reykjavíkurborg býður byggingarrétt á 32 lóðum og 102 íbúðum í Úlfarsárdal í opnu útboði. Tilboðsfrestur er til kl. 12.00 fimmtudaginn 29. ágúst. Lausar lóðir eru merktar á meðfylgjandi korti. Þær eru bæði í grónari hluta hverfisins og á nýju svæði við Leirtjörn. Úlfarsárdalur býður gott aðgengi að fjölbreyttum útivistar- og náttúrusvæðum með einstöku samspili fjallsins, dalsins og árinnar. Gróður við Leirtjörn mun taka mið af aðstæðum en við bakka tjarnarinnar verður leitast við að endurheimta náttúrlegt gróðurlendi. Við Leirtjörn verður útivistarstígur sem tengist stígakerfi Úlfarsfells. Mikil uppbygging á sér stað í Úlfarsárdal. Neðst í dalnum rís nú glæsilegt mannvirki sem hýsa mun skóla, leikskóla, menningarmiðstöð, bókasafn, sundlaug og íþróttamannvirki. Nú þegar hefur hluti byggingarinnar verið tekinn í notkun og uppbygging á íþróttasvæði er vel á veg komin. Lóðir í Úlfarsárdal Nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/lodir Skilafrestur tilboða er til kl. 12.00 fimmtudaginn 29. ágúst 2019. Lausar lóðir eru merktar inn á meðfylgjandi korti Júlí 2019 Fjölbýli Raðhús Einbýlishús Tvíbýlishús/einbýlishús Skýringar við byggingareiti Einstök náttúra og mikil uppbygging Blómleg byggð í Úlfarsárdal  Skemmtilegar gönguleiðir á Úlfarsfell  Öflugt hjóla- og göngustígakerfi  Fjölbreytt menningarhús með skóla, leikskóla og bókasafni  Sundlaugar, bæði innan- og utanhúss, sem og heitir pottar  Mikil uppbygging íþróttamannvirkja og aðstöðu fyrir Fram  Úlfarsá er silungs- og laxveiðiá sem rennur í gegnum dalinn  Í dalnum er fjölbreytt fuglalíf  Einstakt útsýni yfir borgina  Sólríkar suðurhlíðar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.