Morgunblaðið - 20.07.2019, Page 6

Morgunblaðið - 20.07.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019 D-vítamínbætt nýmjólk frá MS fæst nú einnig án laktósa NÝTT Sigtryggur Sigtryggsson Árni Sæberg Það var eftirvænting í loftinu snemma í gærmorgun þegar skemmtiferðaskipið Queen Mary 2 kom til hafnar í Sundahöfn. Drottn- ingin er lengsta skip sem lagst hefur að Skarfabakka, 345 metra langt. Vegna þess hve skipið er langt gat það ekki snúið á Viðeyjarsundi og því þurfti það að snúa út á Sund- unum og bakka upp að bryggju. Það verður því greið leið út Sundin þeg- ar skipið leggur úr höfn síðdegis í dag. Um borð í drottningunni eru sam- tals 3.922, þar af eru farþegar 2.620 og í áhöfn eru 1.292. Allt þetta starfsfólk sér um að farþegana skorti ekkert í ferðinni. Langflestir farþeganna fóru í gær í margvís- legar skoðunarferðir sem boðið var upp á um Ísland. Morgunblaðsmenn fylgdu hópi starfsmanna Faxaflóahafna í skoð- unarferð um skipið í gærmorgun. Skipstjórinn, Chris Wells, ávarpaði hópinn. Hann er margreyndur skip- stjóri eins og nærri má geta og hef- ur áður siglt skipum til Íslands. Hann sagði að það væri alltaf jafn gaman að koma hingað og nefndi sérstaklega hve veðráttan gæti ver- ið óútreiknanleg. Logn væri eina stund en hálftíma síðar væri komið hávaðarok. Mikill vindur getur vald- ið vandræðum enda skipið risastórt og tekur á sig mikinn vind. Erna Kristjánsdóttir, markaðsstjóri Faxaflóahafna, afhenti Wells skip- stjóra granítskjöld til minningar um fyrstu heimsókn skipsins til Reykja- víkur. Queen Mary 2 er risastór, tæp- lega 150 þúsund brúttótonn. Skipið er smíðað í Frakklandi árið 2003 og ekkert hefur verið til sparað til að gera vistarverur glæsilegar. Salarkynnin sem farþegum er boðið upp á eru stórglæsileg eins og nærri má geta. Fjölmargir matsalir og barir, næturklúbbar, diskótek, spilasalir, heilsurækt o.s.fv. Á kvöld- in er lifandi hljómlist á fimm stöð- um. Um borð eru tveir hljómleika- og bíósalir, sem taka samtals 1.600 manns í sæti. Tvær söng- og dans- sýningar eru á hverju kvöldi. Og allt er þetta innifalið í fargjaldinu. Káetur, veislusalir og annað til- heyrandi farþegunum er á 13 hæð- um í skipinu. Sem sagt, lúxuslíf á 13 hæðum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lúxuslíf á 13 hæðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.