Morgunblaðið - 20.07.2019, Qupperneq 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019
Miklar sveiflur á
gjaldmiðlum hafa
mikil áhrif á rekstur
fyrirtækja og almenn-
ings á Íslandi og í
öðrum löndum. Fjár-
magn er ekki leið-
arljós efnahagskerfa
heldur frekar eins og
stýrishjól á bifreið.
Öll misnotkun hefur
áhrif á efnahags-
framfarir. Þjóðríki
með stöðugan og traustan gjald-
miðil munu alltaf gera betur en
þjóðríki með veikan gjaldmiðil.
Prentun fjármagns, lágir vextir og
aukið peningamagn í umferð eykur
umsvif til skemmri tíma, en stað-
reyndin er sú að þjóðríki geta ekki
gengislækkað sig til velmegunar og
framfara. Gjaldmiðill sem er óstöð-
ugur hefur áhrif á framleiðni, fram-
leiðslu og stýrir fjármagni í rangan
farveg. Það sem olli húsnæðis-
kreppu í Bandaríkjunum var m.a.
ódýr dollar. Mikill óróleiki á fjár-
málamörkuðum í Evrópu og Bret-
landi vegna minni útflutnings
Þýskalands og útgöngu Breta úr
ESB hefur ýkt sveiflur gjaldmiðla á
undanförnum miss-
erum. Á þessu ári eru
tuttugu ár síðan evran
var kynnt til leiks sem
gjaldmiðill, en undan-
farin 20 ár hefur evran
sveiflast mikið eða frá
0,85 á móti dollar á
árinu 2001 og náði
toppi á árinu 2008 í
kringum 1,58 á móti
dollar en er núna í
kringum 1,12. Þegar
horft er á þetta 20 ára
tímabil hafa miklar
sveiflur verið á evrunni
og engu minni en á íslensku krón-
unni sem er smæsta mynt heims.
Margir Evrópubúar skilja undir-
stöðu peningamálastjórnunar þann-
ig að evran gæti gert það sama fyr-
ir þátttökuþjóðir í
Evrópusambandinu og dollarinn
hefur gert fyrir Bandaríkin. Doll-
arinn hefur haft jákvæð áhrif á
efnahagslíf Bandaríkjanna með því
að auka fjárfestingar og viðskipti.
Miklar sveiflur á evrunni hafa haft
víðtækar afleiðingar en það er
þekkt að gengislækkun hefur oft á
tíðum verið nýtt sem efnahagsgerð
til keyra efnahagskerfi í gang sem
eru í vandræðum. Útflutningur
verður þannig ódýrari sem eykur
útflutningstekjur. Reyndir hag-
fræðingar telja að til að hafa stöð-
ugan og traustan gjaldmiðil verði
að festa gjaldmiðilinn við ákveðinn
fasta af gulli. Gullfótur hefur virkað
betur en annað.
Upptöku á öðrum gjaldmiðli á Ís-
landi væri hægt að líkja við mið-
aldra karl, sem reyndi að fara í
fermingarjakkann sinn. Með öðrum
orðum skiptir sveigjanleiki auð-
lindahagkerfis eins og hins íslenska
miklu máli þó mörg rök mæli með
upptöku annars gjaldmiðils. Óhag-
stæð gengisþróun getur haft mikil
áhrif á rekstrarafkomu fyrirtækja
og hafa fyrirtæki í sjávarútvegi og
ferðaþjónustu orðið fyrir töluverðu
höggi á undanförnum misserum
vegna styrkingar íslensku krón-
unnar. Á fjármálamarkaði eru
mörg tæki og fjármálaafurðir í boði
til að stýra vaxta- og gjald-
miðlaáhættu sem flest alþjóðleg
fyrirtæki nýta sér við stýringu á
sínum fjármálum og áhættu. Nú
reynir meira á fyrirtæki og fjár-
festa að stýra áhættu sinni með
fjármálaafurðum sem eru í boði á
fjármálamarkaði með svipuðum
hætti og alþjóðleg stórfyrirtæki
hafa tileinkað sér á alþjóðlegum
fjármálamörkuðum.
Fjármálastjórn í dag
tekur mið af sveiflum
vaxta og gjaldmiðla
Miklar hreyfingar á gjaldmiðlum
og vöxtum geta haft mikil áhrif á
tekjustreymi og skuldir fyrirtækja
sé ekki brugðist við. Fjár-
málastjórn fyrirtækja tekur mið af
þessari breytingu með því að sífellt
fleiri fyrirtæki leitast við að tak-
marka áhættu sína með því að
beita verkfærum sem eru þekkt
erlendis. Helstu hlutverk fjár-
málastjóra hafa þannig orðið fleiri
og flóknari eftir því sem fleiri tæki
til að minnka áhættu hafa komið á
markaðinn. Hlutverk fjár-
málastjóra fyrirtækis eru marg-
þætt og felast m.a. í að halda lán-
tökukostnaði og áhrifum vaxta- og
gjaldmiðlabreytinga í lágmarki og
að hámarka arðsemi fjárfestinga.
Við mat á áhættu er nauðsynlegt
að skoða samsetningu efnahags-
reiknings, en markmið hvers fyrir-
tækis er væntanlega að skila hlut-
höfum sem mestum arði. Dæmi um
mikilvæga þætti eru lausafjárstýr-
ing sem felst m.a. í stýringu á
lausafé fyrirtækisins, eigna- og
skuldastýring sem felst meðal ann-
ars í eftirliti með kostnaði við fjár-
mögnun, vöxtum, ávöxtun á mark-
aði, tækifærum til breytinga milli
fastra eða fljótandi vaxta, gæðum
útistandandi viðskiptakrafna og
upplausnarmöguleikum þeirra.
Stefna í stýringu á áhættu vegna
vaxta, gjaldmiðlaþróunar og tekju-
streymis getur ýmist verið með
þeim hætti að gera ekki neitt eða
beita virkri stýringu. Á undan-
förnum árum hefur rökræða um
gjaldmiðlamál og hagfræðileg úr-
lausnarefni verið á veikum grunni.
Mikilvægt er hagsmunir Íslands og
Íslendinga séu hafðir að leiðarljósi
við stefnumarkandi ákvarðanir í
gjaldmiðlamálum og sterkur rök-
stuðningur sé við lausn hag-
fræðilegra úrlausnarefna.
Eftir Albert Þór
Jónsson » Þegar horft er á
þetta 20 ára tímabil
hafa miklar sveiflur ver-
ið á evrunni og engu
minni en á íslensku
krónunni sem er
smæsta mynt heims.
Albert Þór
Jónsson
Höfundur er viðskiptafræðingur,
MCF í fjármálum fyrirtækja og með
30 ára starfsreynslu á fjármálamark-
aði. albertj@simnet.is
Peningaprentun og sveiflur gjaldmiðla
Lýðræði hefur skilað
Vesturlöndum mesta
framfaraskeiði mann-
kynssögunnar. Nú á
lýðræði hins vegar í
vök að verjast gagn-
vart síauknu kerf-
isræði og hinni nýju
ímyndarpólitík sem
einnig mætti kalla
sýndarstjórnmál. Það
sem er sagt og gert er
þar fyrst og fremst metið út frá því
hver á í hlut og hver ásýndin er
fremur en að líta til innihalds og
staðreynda.
Því sýnilegri sem mál eru þeim
mun meiri er sýndarmennskan. Af
því leiðir að þeim mun meiri athygli
sem mál vekja þeim mun meiri eru
áhrif ímyndarstjórnmálanna.
Fyrir vikið nálgast menn ekki
stærstu viðfangsefni samtímans út
frá raunveruleikanum og leitinni að
skynsamlegustu lausnunum. Þess í
stað ganga viðbrögðin fyrst og
fremst út á að sýnast vera að bregð-
ast við. Með því er farið gegn því
sem hefur reynst meginforsenda ár-
angurs og framfara um aldir, jafnvel
árþúsund.
Til að skýra hina miklu skaðsemi
ímyndarstjórnmálanna ætla ég að
styðjast við dæmi. Í tveimur grein-
um mun ég fjalla um tvö af stærstu
viðfangsefnum samtímans. Mál sem
vekja meiri athygli en flest önnur og
hafa fyrir vikið orðið fórnarlömb
ímyndarstjórnmálanna. Þessi mál
eru annars vegar umhverfismál
(einkum löftslagsbreytingar) og í
næstu grein innflytjendamál. Hvort
tveggja mál sem varða líf og framtíð
milljarða manna.
Umbúðir, ekki innihald
Aðferðirnar sem stuðst er við í
umhverfismálum eru ekki til þess
fallnar að skila tilætluðum árangri,
eins og ég hef talsvert fjallað um áð-
ur. Parísarsamkomulagið frá 2015
(sem ég skrifaði undir) var kynnt
sem síðasta tækifærið til að bjarga
heiminum frá áhrifum loftslags-
breytinga.
Nú ætlast ímyndarmenn reyndar
til að við köllum þetta „hamfarahlýn-
un“. Það að gefa hlutum ný heiti að
hætti Orwells er einmitt eitt af
helstu verkfærum sýndarstjórnmál-
anna. Allt er þetta spurning um
hvaða stimpil tekst að setja á fólk og
þá ásýnd eða umbúðir
sem málefnum er
pakkað inn í, fremur en
innihaldið.
Dýrt árangursleysi
Jafnvel þótt Par-
ísarsamkomulagið til
að bjarga heiminum
verði virt af öllum, en
slíkt hefur aldrei gerst,
sýna líkön Sameinuðu
þjóðanna sjálfra (sömu
líkön og samkomulagið
er byggt á) að lofts-
lagsáhrifin yrðu nánast
engin. Það er vegna þess að sam-
komulagið býður ekki upp á lausnir
sem virka. Í viðbrögðum við lofts-
lagsbreytingum er ekki tekið tillit til
staðreynda og alls ekki tekið tillit til
heildaráhrifa. Sýndarmennska ræð-
ur för. Kostnaðurinn við þennan
smávægilega árangur er hins vegar
gríðarlegur.
Sum lönd fara sínar eigin leiðir en
á sömu forsendum. Nýverið sam-
þykkti breska þingið stefnu ríkis-
stjórnarinnar um að Bretland ætti
að ná því markmiði að nettólosun
gróðurhúsalofttegunda yrði engin
fyrir árið 2050. Fjármálaráðherr-
ann, sem þó er ekki þekktur fyrir að
synda gegn straumnum, benti á að
stefna eigin stjórnar gæti kostað um
1.000.000.000.000 pund eða 160 þús-
und milljarða króna. Það myndi
óhjákvæmilega leiða til niður-
skurðar í heilbrigðismálum, mennta-
málum og löggæslu.
Undarleg sjálfsupphafning
Ekki skortir þó talsmenn. For-
ystumenn úr alþjóðakerfinu mættu
til Davos á 1.600 einkaþotum til að
tala niður til fólks sem ferðast á fjöl-
skyldubíl og leyfir sér stöku sinnum
að fara í frí til Kanarí. Í viðtölum
flytja þeir svo allir sömu frasana
sem teknir eru upp úr trúarritningu
ímyndarpólitíkurinnar.
Samtök sem kalla sig Climate Re-
bellion efna reglulega til mótmæla
og stundum óeirða. Aðgerðirnar
ganga oftast út á að gera fólki lífið
leitt með því að stöðva umferð og
krefjast þess að hætt verði að nota
jarðefnaeldsneyti.
Sænsk stúlka efnir til vikulegra
verkfalla skólabarna (nema í sum-
arfríinu) og krefst þess að nettólos-
un gróðurhúsalofttegunda verði
engin fyrir 2025. Stjórnmálamenn
leitast við að upphefja sjálfa sig með
því að vísa í að „börnin vísi okkur
veginn“ og hamra á því að við eigum
að hlusta á þau. Þó gera þeir það
ekki í raun. Yfirlýsingarnar eru
nefnilega byggðar á sýndar-
mennsku, því að segjast hlusta á
börnin, fremur en staðreyndum eða
raunverulegum vilja til að „láta
börnin vísa veginn“. Enda eru kröf-
urnar fullkomlega óraunhæfar. Það
þora bara fáir að segja það. Það er
auðveldara að lofa börnin fyrir fram-
takið og það að skrópa í skóla.
Þegar aktívistar beita börnum í
áróðursskyni virðast fáir þora að
vera fullorðnir. Ætti hlutverk full-
orðinna ekki að vera að kenna börn-
um nám og rökhyggju og bera lof á
leitina að staðreyndum og lausnum?
Það hefur jú verið grunnstef vest-
rænnar siðmenningar (með hléum
sums staðar) í á þriðja þúsund ára og
lykillinn að einstakri framfarasögu.
Ranveruleg áhrif
Hver yrðu áhrif þess að hætta
nettólosun gróðurhúsalofttegunda
innan 5 ára? Það er auðvitað ekki
hægt. Fyrir fáeinum árum losaði
Kína minna af gróðurhúsaloftteg-
undum en Evrópa. Aðeins 15 árum
seinna hefur losun Kína þrefaldast
og er nú meiri en allra Evrópuríkja
og Bandaríkjanna samanlagt. En
hvað ef við litum fram hjá þróun-
arlöndunum og stjórnvöld gerðu
ráðstafanir svo að nettólosun á Vest-
urlöndum yrði engin innan fimm
ára?
Afleiðingarnar yrðu versta mann-
gerða kreppa sögunnar. Fjölda-
gjaldþrot fyrirtækja, flugfélaga,
ferðaþjónustu, framleiðslufyrir-
tækja, flutningsfyrirtækja og stórs
hluta verslunar og þjónustu. Fjölda-
atvinnuleysi, hrun í tekjum ríkja,
niðurskurður í heilbrigðisþjónustu
og öðrum velferðarmálum og auðvit-
að menntamálum. Slíkar væru raun-
verulegar afleiðingar krafnanna sem
stjórnmálamenn skreyta sig með því
að lofa.
Það má svo fylgja sögunni að
lækkað orkuverð myndi skapa Kína
og öðrum þróunarlöndum stórkost-
legt forskot. Gallinn væri bara sá að
Vesturlönd hefðu ekki lengur efni á
að kaupa vörurnar sem þessi lönd
framleiða. Þau myndu því þurfa að
verða sjálfbær og alþjóðaviðskipti
yrðu ekki svipur hjá sjón (eru ekki
alþjóðasinnarnir duglegastir við að
taka undir kröfur aktívistanna?).
Það að stöðva nettólosun gróður-
húsalofttegunda innan fimm ára,
þótt það væri bara á Vesturlöndum,
myndi kalla á víðtækustu ríkisinn-
grip í sögu lýðræðis og þau inngrip
væru til þess fallin að auka stórkost-
lega á misskiptingu. Fjölskyldubílar
yrðu aðeins fyrir þá efnameiri og
flugferðir, ef þær yrðu heimilaðar,
aðeins á færi hinna alefnuðustu. Í
raun væri farið 70-100 ár aftur í tím-
ann varðandi aðgang að ýmsum lífs-
gæðum.
Vindmyllur
Vindmyllur eru líklega helsta
táknmynd umhverfisverndar. Evr-
ópuríki hafa varið gríðarlegu fjár-
magni skattgreiðenda í að stuðla að
fjölgun vindmylla. Enda birta
stærstu olíuframleiðendur heims
auglýsingar með myndum af vind-
myllum með yfirlýsingum um að
þeir vilji vera leiðandi í umhverfis-
vernd.
Þessi óhemjustjóru mannvirki
gnæfa nú yfir héruð Norður-
Evrópu. Meðalvindmylla er tvöfalt
hærri en Hallgrímskirkja. Turninn
er úr stáli sem er yfirleitt framleitt
með stórkostlegum kolabruna í Kína
og svo flutt þaðan með svartolíu-
brennandi skipum. Spaðarnir eru
hver og einn breiðari en breiðþota
og framleiddir úr gerviefnum fram-
leiddum úr olíu. Hinar gríðarstóru
undirstöður eru úr járnbentri stein-
steypu sem losar mikið af gróður-
húsalofttegundum við framleiðsl-
una. Seglarnir í túrbínunum eru svo
framleiddir úr fágætum málmum
sem unnir eru í námum í Kína þar
sem vinnslan skapar óheyrilega
mengun geislavirkra efna og ann-
arra eiturefna sem hafa eyðilagt
heilu héruðin og stórskaðað menn
og dýr.
Vindmyllur eru þó mjög sýnilegar
og falla þannig vel að ímyndar-
stjórnmálum samtímans. Heildar-
áhrifin eru þó ekki eins sýnileg.
Íslenska leiðin
Hér á landi virðist lausnin í lofts-
lagsmálunum einkum eiga að felast í
því að moka ofan í skurði. Það er
sýnileg aðgerð og hægt að telja
metrana. Aðgerðirnar eru mynd-
rænar og það er jú ein af frum-
forsendum ímyndarstjórnmálanna.
Þó liggja ekki fyrir rannsóknir sem
staðfesta að slíkt skili tilætluðum ár-
angri og talsverðar líkur eru á að
áhrifin geti í mörgum tilvikum verið
öfug við það sem að er stefnt.
Það er hægt að ná árangri í bar-
áttunni við loftslagsbreytingar eins
og ég hef fjallað um og mun gera
aftur. En til að ná árangri þarf að
skoða heildarmyndina, lang-
tímaáhrif og hætta sér út í að skoða
staðreyndir. Ekkert af þessu fellur
hins vegar að ímyndarstjórnmálum
samtímans.
Eftir Sigmund
Davíð
Gunnlaugsson
» Það er hægt að ná
árangri í baráttunni
við loftslagsbreytingar
... En til að ná árangri
þarf að skoða heildar-
myndina, langtímaáhrif
og hætta sér út í að
skoða staðreyndir.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Höfundur er formaður Miðflokksins.
Banvæn sýndarmennska – Umhverfismál
Táknmynd umhverfisverndar? Meðalvindmylla er tvöfalt hærri en
Hallgrímskirkja. Myndin sýnir vindmyllur á Jótlandi í Danmörku.