Morgunblaðið - 20.07.2019, Side 26

Morgunblaðið - 20.07.2019, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019 ✝ Atli ÖrnSnorrason fæddist 15. nóv- ember 1985 í Reykjavík. Hann lést 6. júlí 2019 á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísa- firði. Foreldrar Atla eru Jóna Kristín Kristinsdóttir, f. 7. janúar 1961, og Snorri Sturluson, f. 20. sept- ember 1950. Stjúpmóðir Atla er Erla Eðvarðsdóttir, f. 15. apríl 1963. Systkini Atla eru 1) Kristinn Júlíus Smárason, f. 13. desem- ber 1976, börn hans eru Mikael Sigurður, f. 6. desember 1999, og Lilja Jóna, f. 14. júní 2005, 2) Pálína Björg Snorradóttir, f. 10. júlí 1980, sambýlismaður henn- ar er Óli Kristinn Vilmundar- son, f. 10. febrúar 1973, og börn Guðný Björk, f. 27. september 1988, Karítas Lind, f. 1. janúar 1992, Aron Björn, f. 10. nóv- ember 1996, Elvar Örn, f. 21. mars 2001, og Helgi Páll, f. 29. nóvember 2005. Börn Atla og Hrafnhildar eru Álfheiður Björg, f. 16. ágúst 2010, Óðinn Örn, f. 24. apríl 2012, og Hilmir Örn, f. 2. mars 2018. Atli ólst upp á Suðureyri við Súgandafjörð. Hann flutti til Ísafjarðar 2003 og stundaði nám við Menntaskólann á Ísafirði. Atli æfði fótbolta á yngri árum, hann hafði mikinn áhuga á tón- list og spilaði á gítar. Atli flutti til Reykjavíkur 2005 þar sem hann hóf grunnnám í smíðum. Hann lauk stúdentsprófi frá Keili árið 2013. Atli og Hrafn- hildur bjuggu í Reykjavík, Mos- fellsbæ og á Ísafirði þar sem þau eiga hús við Tangagötu. Atli starfaði við smíðar, var á grá- sleppuveiðum og starfaði sem vaktstjóri í Lágafellslaug og var vallarstjóri í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ. Atli Örn verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju í dag, 20. júlí 2019, klukkan 14. hennar eru Dag- björt Lilja, f. 1. febrúar 1998, Tryggvi Fannberg, f. 17. desember 2007, og Kristín Kolbrún, f. 17. júní 2010. 3) Sturla Snorrason, f. 5. febrúar 1997. Stjúpsystur Atla eru Adda Bjarna- dóttir, f. 26. mars 1987, Hulda Bjarnadóttir, f. 3. ágúst 1988, og Kristey Bjarna- dóttir, f. 15. janúar 1992. Atli hóf sambúð með Hrafn- hildi Hrönn Óðinsdóttur, f. 25. apríl 1985, árið 2008 og þau giftu sig 6. febrúar 2018. Foreldrar Hrafnhildar eru Hildur Margrét Guðmunds- dóttur, f. 20. júlí 1965, og Óðinn Baldursson, f. 28. ágúst 1960. Systkini Hrafnhildar eru Haf- steinn Þór, f. 10. apríl 1987, Í dag kveðjum við góðan vin og fjölskyldumeðlim, Atla Örn Snorrason, sem lést þann 6. júlí eftir erfiða baráttu við krabba- mein. Á svona tímum getum við ekki annað en hugsað hvað lífið getur verið ósanngjarnt og hverfult. Að ungur maður sé tekinn frá fjölskyldu sinni og vinum svona snemma er erfitt að samþykkja og sættast við. En um leið áminning um hverf- ulleika lífsins og vægi þess að njóta þess og góðra stunda sem það gefur með fólkinu sem maður umgengst. Þannig stundir veitti Atli okkur. Þegar við systkinin hittum Atla fyrst vissum við ekki við hverju mætti búast. Síðhærður rokkari var ekki beint það sem við áttum von á. En um leið og við kynntumst honum sáum við að Hrafnhildur frænka hafði valið vel. Hann náði okkur öll- um með því hvernig hann var. Það var alltaf þægilegt að vera í kringum hann, auðvelt að tala við hann og alltaf tilbúinn til þess að hjálpa. En það sem stóð upp úr var jákvæðnin sem skein frá honum. Hann tókst á við allt með jákvæðni og lífs- gleði. Hann leit á alla sem jafn- ingja sína og hafði aldrei slæmt orð að segja um neinn, nema kannski Manchester United og þeirra aðdáendur. Atli var fljót- ur að verða stór partur af fjöl- skyldunni og það þótti öllum mjög vænt um hann. Það skipti ekki máli hvort við vorum úti í Hvalseyjum eða í matarboði hjá Hildi, hann smellpassaði inn í þennan hóp og gerði alla hitt- inga betri. Þessir frábæru eiginleikar hans skinu síðan enn betur í gegn eftir að hann eignaðist Álfheiði og Óðin. Jafnvel þó hann hafi verið að glíma við erfið veikindi þá gerði hann allt fyrir þau og það var ekkert nema gleði sem kom frá honum þegar hann frétti að það væri von á Hilmi. Hann var algjör- lega frábær með börnum, elsk- aði að vera með börnunum sín- um og gera eitthvað með þeim. Hann var sá sem mætti í alla hittinga með börnin sín og hafði gaman af, sérstaklega ef það voru kökur í boði. Atli hafði svo marga kosti og það sem einkenndi hann var hlátur hans. Hann smitaði allt út frá sér með því að hlæja eins og honum einum var lagið. Já- kvæðnin og gleðin smitaði út frá sér, sem hafði góð áhrif á alla. Meira að segja í gegnum þessi erfiðu veikindi. Hann tæklaði þau á ótrúlegan hátt með jákvæðni, baráttuanda og lífsgleði. Hann ætlaði að sigrast á þeim og það var hans hug- arfar fram á lokastund. Að fylgjast með honum tækla þennan tíma kenndi okkur mik- ið. Að gefast aldrei upp, halda í vonina og njóta þess að vera til. Við munum halda í þetta og all- ar þær góðu minningar sem við eigum um Atla og ekki hika við að halda þeim á lofti. Fyrir börnin hans, Hrafnhildi, okkur og alla í kringum okkur. Það mun gera líf allra betra að fá að heyra hversu einstök mann- eskja hann var. Við viljum votta fjölskyldu og nánustu ættingjum Atla okkar dýpstu samúð. Hrafn- hildur, Álfheiður, Óðinn og Hilmir, við erum hérna til stað- ar fyrir ykkur og þið megið alltaf leita til okkar ef eitthvað bjátar á. Systkinin, Guðmundur (Gummi), Vésteinn, Ingibjörg og Vigdís. Það er ótrúlega sárt að þurfa að sitja og skrifa minningar- grein um elsku Atla. Það er ósanngjarnt að svona ungur maður með lítil börn og allt lífið framundan þurfi að kveðja. Atli var einstakur, fyrir okk- ur litlu óargadýrin sem vorum hálfgerðir heimalningar hjá Jónu var ekkert skemmtilegra en að fá að vera með Atla. Hann hafði einstaka þolinmæði fyrir því þegar við lágum hálfar undir rúminu hans að reyna að ná í köttinn Sigga, sem vildi ekki sjá neinn nema Atla. Við reyndum samt grimmt. Við gát- um líka setið endalaust að fikta í gíturunum hans og aldrei kvartaði Atli. Það var merkilegt hversu mikla þolinmæði hann sýndi okkur þar sem iðulega var önn- ur okkar heima hjá honum og Jónu eftir skóla, með kveikt á Disney Channel að borða Rice Krispies-kökur sem við nennt- um samt ekki að búa til kökur úr, borðuðum bara beint úr skál. Það eru ansi margir Hannah Montana-þættir sem hann horfði með okkur á, á meðan hann stal af okkur Rice Krispies. Fyrir okkur var Atli rokk- stjarna með síða hárið sitt, sem við þreyttumst samt ekkert á að spyrja hvort við mættum greiða, bara til að pirra hann. Hann bað ekki um þessar tvær auka-„systur“ sem hann fékk þegar við hálfpartinn réðumst inn á heimilið, en engu að síður passaði hann alltaf vel upp á okkur. Elsku Atli okkar, við munum sakna þín mikið. Við munum halda fast utan um mömmu þína og passa upp á hana, þar sem við vitum að hún mun sjá um að passa alla hina. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Elsku Jóna okkar, Hrafn- hildur, Álfheiður, Óðinn og Hilmir, Diddi, Pálína og allir aðstandendur. Við vottum ykk- ur innilega samúð á þessum erfiðu tímum. Sara Rós og Erla Rut. Það er skrítið að hugsa til þess að hinn eini sanni Atli Rokk hafi kvatt þessa jarðvist. Þegar við Gemlingar rifjum upp minningar um okkar mann er ekki annað hægt en að brosa í gegnum tárin og skella reglu- lega upp úr. Stóísk ró hans í ótrúlegustu aðstæðum og hinn óborganlegi hlátur voru hans björtustu litir, en hlátur hans var svo smitandi að heilt sam- kvæmi gat legið máttvana þeg- ar Atli var kominn á gott skrið. Flestir í okkar vinahóp kynntust Atla í Menntaskólan- um á Ísafirði. Klæðnaður hans og útlit sóttu innblástur sinn í tíðaranda sjöunda áratugarins; síðhærður, oft með skegg, stundum yfirvaraskegg, í rifn- um gallabuxum og hljómsveit- arbol. Jafnaðargeð Atla var aðdáunarvert og féll einstak- lega vel að blómlegu útlitinu. Hann var svo afslappaður og glaðvær, talaði aldrei illa um nokkurn mann eða setti sig upp á móti neinum. Hann var bara með og til í allt. Hvað sem menn báru undir hann, þá svar- aði Atli yfirleitt með sínum ein- kennisorðum: „Já, maður!“ eða „You know it!“ Þó árin hafi liðið héldum við Gemlingarnir hópinn og vörð- um miklum tíma saman. En um haustið 2017 kom skellurinn. Atli og Kolbeinn, tveir skær- ustu gimsteinar hópsins, greindust báðir með krabba- mein. Þó róðurinn hafi oft verið þungur var ótrúlegt að sjá hve æðrulausir þeir félagar voru, tóku þessu sem hverju öðru verkefni og studdu hvor annan í baráttunni. Í skugga aðstæðna voru síð- ustu páskar dýrmætir; þegar við hittumst allir og áttum góð- an dag. Það var ónotaleg til- finning að sjá þessa listamenn augnabliksins bundna við hjóla- stól og fara snemma heim vegna þrekleysis, menn sem oftar en ekki héldu partíinu gangandi fram á nótt. Þetta var síðasta skiptið sem við vorum allir saman. Skömmu síðar dreymdi Kolbein að hann væri að róa kayak á spegilsléttu Djúpinu. Framan við kayakinn birtist hvalur sem synti í átt að sólarupprásinni og Kolbeinn réri á eftir honum. Eftir nokkra stund leit hann til baka og sá að hann var kominn langt frá landi. Hann hugsaði hvort hann ætti að snúa við eða elta hvalinn lengra. Hann fann að eitthvað togaði í sig en smám saman fjaraði undan draumn- um og hann vaknaði. Kolbeinn sagði Írisi, konunni sinni, frá draumnum og að hann hefði fundið svo sterkt fyrir því að hvalurinn hefði verið Atli. Nokkrum dögum síðar hrakaði Kolbeini hratt og hann lést 7. maí. Tveimur mánuðum síðar fylgdi Atli svo Kolbeini inn í sólarupprásina. Nokkrum dögum fyrir and- látið spurðum við Atla hvort hann væri eitthvað kvalinn. Hann sagðist þá eiginlega ekk- ert hafa fundið til í líkamanum mestallt sjúkdómsferlið og spyrði sjálfan sig oft hvers vegna hann væri svo heppinn. Svona var Atli Rokk í hnot- skurn; maður sem sá ljósu punktana í tilverunni sama hvernig vindar blésu. Við eigum eftir að sakna þín, elsku vinur. Síðustu mánuðir hafa verið þungir en við erum þakklátir fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Við mun- um ylja okkur yfir minning- unum um þig svo lengi sem við lifum og þinn himneski hlátur á eftir að hljóma innra með okk- ur, þangað til við sjáumst næst. F.h. Gemlinga, Snævar Sölvason. Atli Örn Snorrason Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Elsku besta eiginkona mín, mamma, tengdamamma og amma, GUÐLAUG ERLA PÉTURSDÓTTIR Lauga á Símstöðinni, Fagurhólstúni 3, Grundarfirði, lést á Landspítalanum 18. júlí. Útför hennar verður gerð frá Grundarfjarðarkirkju fimmtudaginn 25. júlí klukkan 13. Innilegt þakklæti til starfsfólks 11G á Landspítala fyrir umönnun, samfylgd og stuðning. Þau sem vilja minnast Laugu eru hvött til að sýna náttúruvernd í verki. Ólafur Guðmundsson Brynhildur Ólafsdóttir Róbert Marshall Þórhildur Ólafsdóttir Sveinn H. Guðmarsson Þorgerður, Lára, Ólafur, Sigurþór og Eyvindur Ástkær móðir, tengdamóðir, amma, dóttir, systir og frænka, GUÐRÚN HLÍN JÓNSDÓTTIR, Stigahlíð 34, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 14. júlí. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju mánudaginn 22. júlí klukkan 15. Steinunn Anna Haraldsdóttir Hallur Árnason Áróra, Árni Hrafn, Ársól Ella Elín Heiðdal Jón Baldvinsson Signý Jóhannsdóttir Helena Jónsdóttir, Baldvin Jónsson Gerður Jónsdóttir, Gísli Jónsson Katrín Guðmundsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, LEIF ØSTERBY CHRISTENSEN rakari, lést á Ljósheimum 16. júlí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju þriðjudaginn 23. júlí klukkan 11. Svandís Jónsdóttir Hermann Østerby Carolyn Østerby Ævar Østerby Guðbjörg Friðriksdóttir Sesselja Østerby Freyr Bragason Haraldur Ingi Magnússon Guðfinna Rósantsdóttir Helga Björg Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, AUÐUR SKÚLADÓTTIR, Norðurbakka 17a, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 12. júlí. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði miðvikudaginn 24. júlí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð blóð- og krabbameinslækninga Landspítala. Gunnar Ámundason Þuríður Edda Gunnarsdóttir Gunnar Beinteinsson Auður Erla Gunnarsdóttir Jón R. Björnsson Ásta Björk, Auður Ýr, Andrea Helga, Rebekka og Helga Sif Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐBJÖRG VIGNISDÓTTIR, Lautasmára 1, Kópavogi, áður til heimilis á Akureyri og Kópaskeri, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði mánudaginn 15. júlí. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 26. júlí klukkan 15. Þeir sem vilja minnast Guðbjargar vinsamlegast láti Alzheimersamtökin njóta þess. Kristján Ármannsson Sigrún Kristjánsdóttir Valdimar Hafsteinsson Eva Kristjánsdóttir Anna Pála Kristjánsdóttir Hafsteinn, Kristján, Guðbjörg, Árni og Kristján Freyr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.