Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.07.2019, Blaðsíða 38
velja á milli en að sama skapi keppti ég nokkra leiki í fótbolt- anum, eftir að ég hætti að æfa, en á endanum valdi ég frjálsar fram yfir fótboltann. Ég var aldrei alveg viss í minni sök og svo lenti ég í meiðslum þarna á ákveðnum tíma- punkti sem héldu mér frá fótbolt- anum og þá datt þetta hinum meg- in.“ Álagið misjafnt eftir árstíðum María viðurkennir að æfinga- álagið sé þó nokkurt þegar lögð er áhersla á margar greinar í einu en álagið sé þó misjafnt eftir árstíð- um. „Skipulagið er öðruvísi og maður getur ekki farið alveg jafn djúpt í tæknina í öllum greinunum. Það þarf að púsla öllu saman þannig að þetta smelli og ég reyni oft að skipta æfingunum upp hjá mér yf- ir daginn. Mesta æfingaálagið er á uppbyggingartímabilinu og þá tek ég morgnana kannski í að lyfta en fer í tækniatriði seinni partinn. Það er mjög mismunandi hversu mikill tími fer í þetta hverju sinni því ein æfing getur verið allt frá einni klukkustund upp í þrjár klukkustundir. Þegar ég næ að skipta þessu upp nýti ég tímann betur en venjulega en þetta eru svona kannski tveir til fjórir tímar á dag þegar mest á lætur en minna þegar keppnistímabilið er í fullum gangi.“ Fjölþrautarkonan ítrekar að þrátt fyrir að álagið geti verið mikið snýst þetta fyrst og fremst um gott skipulag, en hún útskrif- aðist úr Háskóla Íslands í vor. „Það fer mikill tími í þetta og frjálsíþróttirnar eru mjög stór hluti af lífi mínu. Ég er einhvern veginn orðin vön því að æfa svona mikið en þetta krefst skipulags FRJÁLSAR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Fremsta fjölþrautarkona landsins, María Rún Gunnlaugsdóttir, hefur alla tíð þurft að skipuleggja tíma sinn vel enda fer stór hluti af deg- inum hjá henni í æfingar. María, sem er fædd árið 1993 og keppir fyrir hönd FH, vann til verðlauna í öllum sex greinunum sem hún keppti í á Meistaramóti Íslands á Laugardalsvelli um síðustu helgi. Hún fékk gull í 100 metra grindahlaupi og spjótkasti, silfur í hástökki, langstökki og 4x400 metra boðhlaupi og brons í kúlu- varpi, en hún byrjaði að leggja áherslu á fjölþraut árið 2011. „Frá því að ég byrjaði í frjálsum íþróttum hef ég í raun alltaf verið í öllum greinum og þannig þróaðist ég hægt og rólega út í fjölþraut- ina. Ég hef alltaf verið ágætlega sterk í nokkrum greinum þannig að þetta hentaði mér eiginlega bet- ur en að einblína á einhverja eina grein. Ég byrjaði að æfa frjálsar þegar ég var sjö til átta ára gömul. Ég var kannski meira að leika mér í þessu en æfa þegar ég var yngri en ég var líka mikið í fótbolta á þessum árum og æfði með Víkingi í nokkur ár. 2011 byrjaði ég svo að einbeita mér alfarið að sjöþraut- inni og ég hef í raun æft hana skipulega síðan.“ María á fimm leiki að baki með meistaraflokki HK/Víkings árið 2009; fjóra í 1. deild og einn í bik- ar, en að lokum valdi hún frjálsar íþróttir fram yfir fótboltann. „Þegar ég var sextán ára gömul fóru íþróttirnar aðeins að skarast og það var mikið æfingaálag í báð- um greinum. Þá þurfti maður að sem hefur gengið mjög vel hingað til. Ég var að út- skrifast úr lyfjafræði úr HÍ þannig að ég hef alltaf verið í ein- hvers konar námi með íþróttunum en í dag starfa ég í Urðarapóteki og það verður ágætis til- breyting að prófa að vera í fullri vinnu samhliða frjálsu íþróttunum. Vissulega hefur þetta verið ákveðið púsluspil í gegnum tíðina en um leið og þetta kemst inn í daglegu rútínuna er þetta lítið mál.“ Leyfir sér ýmislegt María fékk bronsverðlaun í fjölþraut í Evrópubikarnum á Madeira á Spáni fyrr í mán- uðinum og mætti svo beint á Meistaramót Íslands helgina eftir, en hún lagði áherslu á góða næringu og hvíld í að- draganda Meistaramótsins. „Þegar það er stórt mót í vændum þar sem ég er að fara að keppa í mörgum greinum tek ég því mjög rólega á æfingum viku fyrir mótið. Ég tók þátt í fjölþraut í Evrópubik- arnum viku fyrir Meistaramótið þannig að ég æfði mjög lítið í síðustu viku og þetta snerist meira um það að reyna halda mér ferskri en að æfa eitthvað sérstaklega mik- ið. Ég hef alltaf hugsað mjög vel um sjálfa mig, svefninn og mat- aræðið án þess að það fari út í ein- hverjar öfgar. Ég leyfi mér ým- islegt en passa mig samt sem áður og það er gott jafnvægi á þessu hjá mér en þegar í keppni er kom- ið gef ég mig alla í hverja einustu grein, hverju sinni, og það er ekki slakað neitt á.“ Það er nóg fram undan hjá þessari öflugu fjölþrautarkonu sem er á leið á Evrópubikarkeppni landsliða sem fram fer í Skopje í Norður-Makedóníu dagana 9.-11. ágúst og síðan tekur við Meist- aramót Íslands í fjölþrautum um miðjan ágúst. „Markmiðið er alltaf að halda áfram að bæta sig og ná bætingu í fjölþrautinni. Það er erfitt að láta alltaf allt smella á sama tíma þar og maður þarf að beita ákveðinni taktík í sumum greinum, sér- staklega í kastgreinunum þar sem maður fær bara ákveðið margar tilraunir. Draumurinn er svo auð- vitað að taka þátt í stórmóti einn daginn,“ sagði María í samtali við Morgunblaðið.  María Rún Gunnlaugsdóttir fékk verðlaun í sex greinum  Engar öfgar í lífsstílnum en gott jafnvægi Fjölþraut María Rún Gunnlaugs- dóttir var frá byrjun sterk í mörgum greinum. Púsluspil sem krefst skipulags Morgunblaðið/Árni Sæberg 38 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019 Eitt ogannað  Jón Dagur Þorsteinsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir AGF í dönsku úr- valsdeildinni í knattspyrnu í 2:1-tapi fyrir FC Köbenhavn á Parken í gær- kvöld. Jón Dagur kom til félagsins í sumar frá Fulham á Englandi, en lék sem lánsmaður í Danmörku í fyrra með liði Vendsyssel. AGF er með eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í deildinni.  U20 ára landslið Íslands í körfu- knattleik komst ekki í undanúrslit B- deildar Evrópumótsins sem fram fer í Portúgal. Ísland tapaði fyrir Tékklandi í átta liða úrslitum í gær, 77:67, þar sem Bjarni Jónsson var stigahæstur með 20 stig. Hilmar Smári Henningsson var í lykilhlutverki með 19 stig, 11 frá- köst og 6 stoðsendingar. Ísland leikur því um 5.-8. sætið og mætir Hollandi í dag.  Viðar Örn Kjartansson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur hafið æfingar með rússneska liðinu Rubin Kazan þó hann sé ekki búinn að skrifa undir samning við félag- ið. Hann er enn leikmaður Rostov þar í landi, en Rubin Kazan er að kaupa hann þaðan og hefur þegar fengið hann til æfinga þó ekki sé búið að ganga formlega frá félagaskiptunum.  KA samdi í gær við spænska knatt- spyrnumanninn Iosu Villar um að leika með Akureyrarliðinu út þetta keppn- istímabil. Hann á að fylla skarð Daní- els Hafsteinssonar sem er farinn til Helsingborg í Svíþjóð. Villar er 32 ára miðjumaður og lék síðast með Ibiza í spænsku D-deildinni en var fyrstu ár ferilsins með varaliði Real Sociedad.  Danijel Dejan Djuric, sextán ára leikmaður danska knattspyrnufélags- ins Midtjylland, tryggði Íslandi sigur á Lettlandi, 2:1, í vináttulandsleik U18 ára landsliða sem fram fór í Lettlandi í gær. Danijel skoraði bæði mörk Ís- lands en liðin mætast aftur á morgun.  Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í enska úrvalsdeildarliðinu Everton unnu sinn fyrsta sigur á undirbúnings- tímabilinu í gær. Everton vann þá 1:0- sigur á Mónakó þegar liðin mættust í Sviss en það var Seamus Coleman sem skoraði sigurmarkið. Gylfi var í byrjunarliðinu og lék í 78 mínútur.  Tindastóll vann ótrúlegan 2:1-sigur á ÍA í 1. deild kvenna í knattspyrnu á Akranesi í gærkvöld. Erla Karitas Jó- hannesdóttir kom ÍA yfir þegar um tíu mínútur voru eftir en Tindastóll, sem hafði misst Maríu Dögg Jóhann- esdóttur af velli með rautt spjald, jafnaði með marki Murielle Tiernan eftir hornspyrnu rétt fyrir leikslok. Tiernan skoraði svo sig- urmark Sauðkræk- inga í uppbótartíma, einnig eftir hornspyrnu, og 2:1-sigur Tindastóls staðreynd. Liðið er í þriðja sæti með 18 stig en ÍA í því sjö- unda með 11 stig. Strákarnir í 21-árs landsliðinu í handknattleik fengu í gær skell gegn Noregi, 19:29, í þriðja leik sín- um á heimsmeistaramótinu á Spáni. Norðmenn voru með gott forskot í hléi, 17:11, og juku það í seinni hálf- leik. Danir unnu Argentínu 31:23 og eru efstir með 6 stig eftir þrjár umferðir og Þjóðverjar sem fóru létt með Síle, 39:22, eru með 4 stig eins og Noregur og Ísland. Orri Freyr Þorkelsson skoraði 4 mörk, Bjarni Ófeigur Valdimarsson og El- liði Snær Vignisson 3 hvor. Ísland mætir Danmörku í dag. Tíu marka tap gegn Noregi Morgunblaðið/Ómar Fjögur Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur gegn Noregi. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir fór auð- veldlega áfram úr 1. umferð 200 m hlaupsins á Evrópumóti U20 ára í frjálsíþróttum í Borås í Svíþjóð í gær. Hún varð önnur í sínum riðli á 24,06 sekúndum, meira en hálfri sekúndu frá Íslandsmeti sínu, en var með tí- unda besta tímann af þeim 16 sem fóru áfram. Hún hleypur í undan- úrslitum snemma í dag og mögulega í úrslitum síðdegis. Valdimar Hjalti Erlendsson komst í úrslit í kringlu- kasti, en hann varð í 9. sæti af 27 keppendum með 56,04 metra kast. Tólf bestu keppa til úrslita á morgun. Guðbjörg og Valdimar áfram Morgunblaðið/Árni Sæberg Frjálsar Guðbjörg Jóna Bjarna- dóttir hleypur aftur í Borås í dag. Eftir að hafa spilað hreint afleitlega á fyrsta hring The Open-meistara- mótsins í golfi á fimmtudag verður að teljast grátlegt að kylfingurinn Rory McIlroy hafi ekki komist í gegnum niðurskurðinn eftir ótrúlegan við- snúning á öðrum hring í gær. McIlroy, sem er á heimavelli í ár þar sem leikið er á Royal Portrush- vellinum á Norður-Írlandi, bætti sig nefnilega um 14 högg á milli hringja. Eftir að hafa verið á átta höggum yfir pari á fyrsta hring lék enginn betur en hann, og nokkrir aðrir, í gær eða á sex höggum undir pari. Eftir að hafa verið afskrifaður af öllum munaði að lokum aðeins einu höggi að McIlroy kæmist áfram. Skorið var niður við eitt högg yfir pari, en McIlroy var á tveimur yfir og var skiljanlega svekktur við sjálfan sig eftir byrj- unina á mótinu. „Þetta mun verða sárt í einhvern tíma. Ég var búinn að hlakka mikið til mótsins í langan tíma og stuðning- urinn sem ég fékk úti á vellinum var ótrúlegur. Ég náði ekki að standa undir væntingum en fólkið á Norður- Írlandi gerði það svo sannarlega,“ sagði McIlroy, en fleiri stórlaxar sem komust ekki áfram eru til að mynda Tiger Woods, Phil Mickelson og Padraig Harrington. Holmes og Lowry efstir og jafnir Það eru hins vegar þeir JB Holmes og Shane Lowry sem eru í forystu fyrir þriðja hringinn í dag, samanlagt á átta höggum undir pari og héldu sannarlega dampi frá því á fimmtu- dag. Tommy Fleetwood og Lee Westwood koma næstir, höggi á eftir. Eftsti maður heimslistans, Brooks Koepka, er svo á fimm höggum undir pari. yrkill@mbl.is Fjórtán högga viðsnúningur McIlroy Úr leik Rory McIlroy var grátlega nálægt þrátt fyrir skelfilega byrjun. AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.