Morgunblaðið - 20.07.2019, Síða 39
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019
Með því allra skemmtileg-
asta við að vera íþrótta-
blaðamaður er að tala við fólk í
miðri sigurvímu. Íþróttafólk sem
er nýbúið að vinna titil eða ein-
staklega sætan sigur. Maður fær
aðeins að taka þátt í gleðinni,
sem er ósvikin.
Viðtal sem ég tók í vikunni
við Rúnar Pál Sigmundsson,
þjálfara karlaliðs Stjörnunnar í
fótbolta, er eitt af mínum uppá-
halds. Pólitíkin er lögð til hliðar
og Rúnar sagði mér í geðshrær-
ingu hversu stórkostlegt það
hefði verið að tryggja sig áfram í
Evrópukeppni með marki í upp-
bótartíma í framlengingu.
Nú er ég enginn Stjörnu-
maður en ég naut þess mjög að
smitast af sigurgleðinni með
Rúnari. Svona augnablik eru
ástæða þess að íþróttamenn eru
í íþróttum og fólk hefur gaman
af því að fylgjast með þeim utan
frá.
Annað minnisstætt viðtal
er við ónefndan landsliðsmann í
handbolta sem var nýbúinn að
vinna titil. Var hann kominn á
þriðja bjór og rétt að byrja. Hann
útskýrði fyrir mér að það væri
allt í lagi að fá sér fleiri en þrjá
þar sem það væri meira en þrír
dagar í næsta leik.
Ég gerði honum þann
greiða að skrifa ekki upp allt við-
talið, enda einhver möguleiki að
hann hefði séð eftir því daginn
eftir.
Svo er það hin hliðin á þessu.
Að tala við íþróttamenn sem eru
nýbúnir að tapa á ótrúlega
svekkjandi hátt. Íþróttamenn
sem vilja alls ekkert tala um
hvernig það hafi verið að tapa
naumlega, fimm mínútum eftir
leikinn. Ég finn stundum til með
þeim. Viðtöl eru hluti af þessu,
hvort sem þú vinnur eða tapar.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
EM U20 karla
B-deild í Portúgal:
Átta liða úrslit:
Tékkland – Ísland................................. 77:67
Holland – Belgía ................................... 70:75
Rússland – Búlgaría........................... 105:66
Portúgal – Georgía ............................... 96:85
Ísland mætir Hollandi í dag í keppni um
5.-8. sæti mótsins og síðan annaðhvort
Búlgaríu eða Georgíu í leik um 5. eða 7.
sætið á morgun.
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar kvenna, undanúrslit:
Meistaravellir: KR – Þór/KA ................ L14
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Würth-völlur: Fylkir – ÍBV ................... S16
Greifavöllur: KA – ÍA ............................. S17
Víkingsvöllur: Víkingur R. – Valur... S19.15
Meistaravellir: KR – Stjarnan.......... S19.15
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Ásvellir: Haukar – Fjölnir ..................... L14
Rafholtsvöllur: Njarðvík – Þróttur R... L14
Vivaldi-völlur: Grótta – Víkingur Ó ...... L14
Grenivíkurvöllur: Magni – Leiknir R ... L16
Varmárvöllur: Afturelding – Þór .......... L16
Framvöllur: Fram – Keflavík ........... S19.15
2. deild karla:
Nesfiskvöllur: Víðir – Leiknir F....... L13.30
Olísvöllur: Vestri – Völsungur............... L14
Hertz-völlur: ÍR – Tindastóll................. L14
Eskjuvöllur: Fjarðabyggð – Selfoss ..... L14
3. deild karla:
Vilhjálmsv.: Hött/Hug. – Kórdrengir ... L14
Sindravellir: Sindri – Reynir S.............. L14
Vopnafjörður: Einherji – Skallagrímur L14
Ólafsfjarðarvöllur: KF – Álftanes......... L16
2. deild kvenna:
Boginn: Hamrarnir – Álftanes .............. L16
Vilhjálmsvöllur: FHL – Grótta ........ L16.30
Sindravellir: Sindri – Grótta .................. S16
UM HELGINA!
DÓMARAMÁL
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Mikill vilji er til þess innan Knatt-
spyrnusambands Íslands að fjölga
konum í dómgæslu hér á landi.
Ekki einungis til þess að dæma hjá
konum, enda hafa kvendómarar
sannarlega sannað sig í karlabolt-
anum, heldur til þess að jafna
kynjahlutfallið í hópi dómara og fá
fleiri til starfa. Markvissar aðgerðir
sambandsins til þess að fá fleiri
konur í greinina hafa hins vegar
skilað litlum árangri.
Evrópska knattspyrnusam-
bandið, UEFA, hefur reynt að
hvetja landssambönd sín til þess að
fjölga konum í dómgæslu og vill
hafa þá ásýnd að konur dæmi hjá
konum í efstu deildum Evrópu. Það
er ekkert sem stefnir í að slíkt
verði hægt hér á landi á næstu ár-
um. Það sé ekkert því til fyrirstöðu
að áhugasamar konur geti náð
langt í dómgæslu, stígi þær fram.
Morgunblaðið ræddi þessi mál,
og dómgæslu hér á landi almennt,
við þá Guðna Bergsson, formann
KSÍ, og Magnús Má Jónsson, dóm-
arastjóra KSÍ, í vikunni.
„Við erum alltaf að velta því fyrir
okkur hvernig við getum fengið
fleiri konur til starfa, bæði í dóm-
gæslu og þjálfun. Við erum að
reyna að koma með úrræði til þess
að fá betra kynjahlutfall í þeim efn-
um. Það hefur ekki alveg gengið
sem skyldi, en við erum alltaf að
reyna og það er stefna okkar og
verður áfram. Vonandi fjölgar kon-
um í dómgæslu, í iðkendafjölda, í
stjórnum félaga og sem þing-
fulltrúar. Það er markmið okkar,“
segir Guðni.
Konur fengju betri þjónustu
Dæmi um þær markvissu að-
gerðir sem KSÍ hefur ráðist í er að
halda dómaranámskeið fyrir konur,
auk þess sem leitað var til nokk-
urra félaga og þau virkjuð til þess
að finna konur sem væru tilbúnar
til þess að dæma.
„Það komu nokkrar og við
reyndum að styðja þær á allan
hátt, en það skilaði í raun engu. Við
höldum áfram að reyna og ef það
er einhver þarna úti sem hefur
áhuga, þá bara endilega hafa sam-
band. Ekki bara til þess að dæma
hjá konum, heldur dæma eins og
viðkomandi treystir sér til. Sem
byrjandi fengi viðkomandi í raun
miklu betri þjónustu en karlarnir.
Við reynum að hjálpa þeim að ná
fótfestu í þessu eins og kostur er,“
segir Magnús.
Á heimasíðu KSÍ eru tilgreindir
sex milliríkjadómarar og átta milli-
ríkjaaðstoðardómarar. Ein kona er
í hvorum hópi; Bríet Bragadóttir
sem dómari og Rúna Kristín Stef-
ánsdóttir sem aðstoðardómari. Þá
er Eydís Ragna Einarsdóttir á
lista sambandsins yfir landsdómara
og er eina konan af 47 dómurum á
þeim lista. Magnús tekur Rúnu
Kristínu sem dæmi; hún hafi unnið
sig upp í efstu deild karla og verið
einn besti aðstoðardómari deild-
arinnar. Það væri óskandi að fleiri
fetuðu í hennar spor.
Deildum raðað
eftir styrkleika
Fyrr í sumar var nokkur um-
ræða um muninn á dómgæslu í
efstu deildum karla og kvenna,
meðal annars á síðum þessa blaðs,
þar sem það var gagnrýnt að bestu
dómarar landsins dæma sárasjald-
an í efstu deild kvenna. Magnús út-
skýrir að það sé nokkurs konar
styrkleikaröðun sem þekkist í öðr-
um löndum sem ráði för. Þar er
meðal annars tekið tillit til hraða
leikja, fjölda brota og fleira. Þar er
efsta deild kvenna á pari við 2.
deild karla og oftast sömu dómarar
þar á milli. Það sé hins vegar fjarri
því að slíkt komi niður á dómgæsl-
unni í kvennaboltanum.
„Alls ekki. Við erum með 55
manna dómaraelítu og dómarinn í
efstu deild kvenna er aldrei sóttur
út fyrir þann hóp. Þeir sem hafa
farið á leiki til dæmis í 2. deildinni
sjá það að tempóið er alveg frá-
bært. Maður er oft hissa á leikjum
þar, C-deild á Íslandi, þar sem eru
menn í toppstandi og þokkalega
tæknilega góðir. Þú þarft að vera
góður dómari til þess að ráða við
þessa leiki,“ segir Magnús.
Hvergi í nágrannalöndum þekk-
ist að sömu dómarar dæmi jafnt í
karla- og kvennadeildum. Sums
staðar eru dómarar sem dæma
bara á öðrum hvorum staðnum.
Magnús segir að ef það sé vilji til
þess að breyta þessu fyrirkomulagi
og hafa sömu dómara í efstu deild-
um karla og kvenna geti félögin
tekið það fyrir á ársþingi sam-
bandsins þar sem það þarf að sam-
þykkja. Það sé því hægt að breyta
málunum og styrkleikaröðunin er
opin fyrir endurskoðun, en núver-
andi fyrirkomulag hafi aldrei kom-
ið niður á gæðum dómgæslunnar á
milli karla og kvenna.
Fyrirkomulagið þekkist ekki
En stefnan að fjölga konum í
dómgæslu hér á landi er ekki til
þess að standa undir einhverri
hvatningu frá UEFA. Það sé ein-
faldlega varanlegt verkefni KSÍ og
félaganna að manna öll þau dóm-
araverkefni sem falla til á hverju
ári. Þau skipti þúsundum.
„Ég veit ekki hvort fólk gerir sér
grein fyrir umfanginu. Um helgar
stöndum við stundum frammi fyrir
því að raða 150 mönnum á störf úti
um allt land. Þetta er gríðarlegt
verkefni að halda þessu gangandi
og það er hvergi í nágrannalönd-
unum gert svona. Þar raða sam-
böndin yfirleitt á 2-3 deildir og svo
sjá dómarafélög um annað. Hér
röðum við á alla meistaraflokks-
leiki, og A- og B-deild í 2. flokki.
Við erum með miklu, miklu meira
umfang en sambönd í öðrum lönd-
um Evrópu. Við höfum líka verið
mjög dugleg að búa til dómara og
kollegar mínir á Norðurlöndum
spyrja mig oft hvernig við förum
eiginlega að því. En því miður hafa
þeir ekki skilað sér kvennamegin,“
segir Magnús Már Jónsson, dóm-
arastjóri KSÍ.
Aðspurður segist Guðni ekki
endilega hafa áhyggjur af end-
urnýjun dómarastéttarinnar, en oft
þurfi að hafa mikið fyrir því að
manna öll störf sem eru í boði. Það
er því alveg ljóst að frekar þarf að
fjölga í stéttinni en hitt og hefur
KSÍ meðal annars verið að auglýsa
eftir dómurum í flestum lands-
hlutum. Það sé samspil félaganna
og KSÍ að þetta gangi allt saman
upp.
„KSÍ er ekkert nema aðildar-
félögin sem mynda sambandið. Síð-
an reynum við að skipuleggja hlut-
ina, reynum alltaf að fjölga
dómurum og fá fleiri í dómgæsluna.
Við reynum að manna öll þessi
dómaraverk sem skipta þúsundum
úti um allt land. Það hefst yfirleitt
alltaf en það þarf að hafa mikið fyr-
ir því og við mættum vel hafa fleiri
dómara,“ segir Guðni Bergsson,
formaður KSÍ.
Markvissar aðgerðir
KSÍ hafa litlu skilað
Erfitt reynist að fá konur til þess að sinna dómgæslu í knattspyrnu hér á landi
Ekki slæmt fyrir efstu deild kvenna að vera í öðrum styrkleikaflokki en karlar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vökul augu Bríet Bragadóttir er eina konan í hópi milliríkjadómara hér á
landi. KSÍ hefur lengi reynt að greiða götu kvenna í dómgæslu.
KR tekur í dag á móti Þór/KA í síð-
ari undanúrslitaleik bikarkeppni
kvenna í knattspyrnu á Meistara-
völlum klukkan 14. Þór/KA hefur
aldrei unnið bikarkeppnina en spil-
aði til úrslita árið 2013. KR hefur
unnið keppnina fjórum sinnum, síð-
ast árið 2008, og lék síðast til úr-
slita árið 2011.
Liðin mættust í Pepsi Max-
deildinni fyrir norðan í síðasta
mánuði og endaði sá leikur með 2:2
jafntefli. Þór/KA er í þriðja sætinu
en KR í því sjötta. Bikarúrslitaleik-
urinn fer fram 17. ágúst.
KR eða Þór/KA í
úrslitaleikinn?
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Bikar KR og Þór/KA mætast í und-
anúrslitum í Vesturbænum í dag.
Cloé Lacasse, knattspyrnukona frá
Vestmannaeyjum, er á förum frá ÍBV
en hún hefur samið við portúgalska fé-
lagið Benfica frá Lissabon sem hafnaði
í þriðja sæti deildarinnar þar í landi á
síðasta tímabili. Cloé, sem er orðin ís-
lenskur ríkisborgari og gæti spilað
sína fyrstu landsleiki í lok ágúst, hefur
leikið með ÍBV frá 2015 og skorað 51
mark í 76 leikjum í efstu deild. Í ár er
hún langmarkahæsti leikmaður liðsins
með 8 mörk í 9 leikjum. Til að fylla
skarð hennar hefur ÍBV fengið Brennu
Lovera, 22 ára bandarískan framherja,
í sínar raðir. vs@mbl.is
Cloé farin til Ben-
fica í Portúgal
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Benfica Cloé Lacasse spilar í
Portúgal í vetur.