Morgunblaðið - 20.07.2019, Side 45

Morgunblaðið - 20.07.2019, Side 45
Dîner en Blanc eða Kvöldverður í hvítu nefnist viðburður sem hóf göngu sína í París fyrir rúmum þrjá- tíu árum og hefur síðan verið hald- inn í sex heimsálfum. Þátttakendur mæta uppáklæddir í hvítt frá toppi til táar með eigin veitingar, borð og stóla í fyrirfram ákveðið almenn- ingsrými og njóta þess að borða saman. Í vikunni var viðburðurinn haldinn í New York í níunda sinn og tóku um fimm þúsund gestir þátt, en yfir sextíu þúsund manns voru á bið- lista. Ekki er hægt að kaupa miða heldur skrá áhugasamir sig til þátt- töku upp á von og óvon um að vera valdir til leiks. Skemmtunin varði þó heldur stutt þetta árið því skýfall með tilheyrandi þrumum, eldingum og hvassviðri neyddi gesti til að pakka öllu saman nokkrum klukku- stundum fyrr en áætlað hafði verið. Fjölmenni Um fimm þúsund manns snæddu saman í Nelson Rockefeller-garðinum í New York. Blautur kvöldverður í hvítu AFP Hvassviðri Viðburðurinn fór vel af stað, en þegar á kvöldið leið hvessti samhliða mikilli úrkomu sem neyddi kvöldverðargesti til að flýja inn í skjól. MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 2019 » Tómas R. Einarsson kontra-bassaleikari lék með tríói sínu, Kóngasveiflu, á Múlanum fyrr í vikunni. Í dag, laugardag, kl. 15 kemur hann fram með Latínbandi sínu á Jómfrúnni við Lækjargötu. Auk Tómasar eru Ómar Guðjónsson gítarleikari og Sigtyggur Baldursson söngv- ari og slagverksleikari í báðum sveitum, en í Latínbandinu bæt- ast við Snorri Sigurðarson á trompet og Samúel Jón Sam- úelsson á básúnu og slagverk. Tómas R. Einarsson og félagar með tónleika víðs vegar um borgina í sumarsólinni Morgunblaði/Arnþór Birkisson Mynd Sumir áheyrendur vildu festa augnablikið á filmu. Innlifun Ómar Guðjónsson gítarleikari í miklum ham. Birta Sólin var hátt á lofti og skein á áheyrendur sem nutu tónlistarinnar. Tríó Tómas R. Einarsson, Sigtyggur Baldursson og Ómar Guðjónsson fóru á kostum í Hörpu. Eigandi tyrknesku bókaútgáfunnnar Can hefur ákveðið að innkalla þýðinguna á Ellefu mínútum eftir Paulo Coelho eftir að lesandi vakti athygli á óná- kvæmu orðalagi á einum stað sem breytir uppruna- legri merkingu textans. Í frétt The Guardian kemur fram að þýðingin hafi verið endurprentuð 38 sinnum frá því hún var fyrst gefin út 2004, áður en villan upp- götvaðist. Í frumtextanum er því lýst þegar kona gengur inn á kaffihús og uppgötvar að „Kúrdarnir komi frá Kúrdístan, landi sem ekki er lengur til heldur skiptist milli Tyrklands og Íraks“. Í tyrknesku þýðingunni hefur „Kúrdístan“ verið skipt út fyrir „Mið-Austurlönd nær“. Can Öz, eigandi Can, harmar mistökin og heitir því að þetta verði leiðrétt fyrir næstu prentun. „Ég veit ekki hver ber ábyrgðina á þessu. Þýðing okkar er frekar gömul, en útgefendur hafa engan rétt til að breyta textum með þessum hætti,“ segir hann. Saadet Özen, þýðandi bókarinnar, segist ekki hafa hugmynd um hvernig villan er tilkomin. Hún er sannfærð um að villan sé ekki hennar verk, enda hafi hún í öðrum þýðingum sínum ekki hikað við að nota orðið Kúrdístan. Segist hún aldrei myndu ritskoða bækur sem hún þýðir. Á fyrri hluta síðustu aldar var bannað að nota orð á borð við Kúrda og Kúrdístan í Tyrklandi, en Kúrdar eru stærsti minnihlutahópur þar í landi. Bók eftir Coelho ritskoðuð í Tyrklandi Paulo Coelho T ÍBRÁ Ef keyptir eru miðar á alla 10tónleika raðarinnar fæst 50%afsláttur af miðaverði. Salurinn.is 2019–20 ÁSKRIFTARSALA HAFIN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.