Morgunblaðið - 10.08.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. ÁGÚST 2019
Alls bárust sjö tilboð í lengingu
norðurgarðs hafnarinnar í Ólafs-
vík, en til stendur að lengja hann
um 80 metra.
Vegagerðin, fyrir hönd hafnar-
stjórnar Snæfellsbæjar, auglýsti
verkið í vor. Tilboð voru opnuð 4.
júní. Aðeins barst eitt tilboð, frá
Suðurverki í Kópavogi, 226 millj-
ónir. Það var 80% yfir áætluðum
verktakakostnaði. Þessu tilboði var
hafnað og verkið auglýst á ný. Til-
boð í seinna skiptið voru opnuð 30.
júlí og bárust þá sjö umslög með til-
boðum. Grjótverk ehf. á Hnífsdal
bauð lægst, 147 milljónir. Er það
15% yfir áætluðum verktakakostn-
aði, sem er 128 milljónir.
Verkið felur í sér útlögn grjóts
og kjarna, samtals 36 þúsund rúm-
metra, og upptekt og endurröðun
um tvö þúsund rúmmetra efnis. Til
stóð að verkinu yrði lokið fyrir 1.
desember nk. en verklokum hefur
verið seinkað til 1. september 2020.
sisi@mbl.is
Mörg tilboð fengust í annarri tilraun
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
LAXDAL SUMARSALAN
ÚTSÖLULOK
VERÐHRUN
60-70% afsláttur
+ Ýmsir aukaglaðningar
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
ÚTSALA - VERÐHRUN
60-80% afsláttur
Ísafjörður,
mánudaginn 12. ágúst.
Stjórnsýsluhúsið á Ísafirði,
klukkan 20:00.
Fundarstjóri: Einar Kristinn
Guðfinnsson, fyrrverandi
ráðherra og forseti Alþingis.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri kynnir þróun, stöðu
og áskoranir í peninga- og efnahagsmálum við lok 10 ára
skipunartíma hans á opnum fundum:
Markmið, árangur og áskoranir
Fundir með Má Guðmundssyni seðlabankastjóra
Akureyri,
þriðjudaginn 13. ágúst.
Hof, klukkan 17:00
Fundarstjóri: Valgerður
Sverrisdóttir, fyrrverandi
þingmaður og ráðherra.
Neskaupstaður,
miðvikudaginn 14. ágúst.
Egilsbúð, klukkan 20:00
Fundarstjóri: Smári Geirsson
kennari og fyrrum formaður
Sambands sveitarfélaga á
Austurlandi.
Árborg,
mánudaginn 19. ágúst.
Hótel Selfoss, klukkan 12:00
Fundarstjóri: Guðni
Ágústsson, fyrrverandi
þingmaður og ráðherra.
Skúli Mogensen og félög tengd hon-
um gera 3,8 milljarða króna kröfur í
þrotabú WOW air. Þetta kemur fram
í kröfuskrá þrotabúsins, sem mbl.is
hefur undir höndum. Sjálfur gerir
Skúli tvær kröfur, sem hljóða sam-
anlagt upp á 797 milljónir króna, en
þar að auki gera félög hans, Títan
fjárfestingarfélag ehf. og TF KEF
ehf., milljarðakröfur í búið.
Tæplega sex þúsund einstaklingar
og lögaðilar gera kröfur í þrotabúið
og nema þær rúmum 138 milljörðum
króna. Forgangskröfur í búið eru um
fimm milljarðar króna en undir þær
falla vangreidd laun og iðgjald í líf-
eyrissjóði. Talið er að virði eigna
þrotabúsins dugi ekki upp í forgangs-
kröfurnar, hvað þá aðrar.
Stærstu kröfuhafar eru flugvéla-
leigusalar. CIT Aerospace gerir 53
milljarða króna kröfu í búið, ALC, fé-
lagið sem stóð í deilum við Isavia um
kyrrsetningu vélar á Keflavíkurflug-
velli á dögunum, gerir 9 milljarða og
tveir aðrir leigusalar, Sog Aviation og
Tungnaa Aviation, gera kröfur upp á
um þrjá milljarða hvor. Þá hljóðar
krafa flugvélahreyflaframleiðandans
Rolls Royce upp á 22 milljarða króna-
.Meðal annarra stórra kröfuhafa má
nefna ríkisskattstjóra með 3,8 millj-
arða króna kröfu, Umhverfisstofnun
með 850 milljóna kröfu, Höfðavík
ehf., leigusala fyrirtækisins í Katrín-
artúni, með kröfur upp á tæpar 470
milljónir króna, og Isavia með kröfur
upp á 2,2 milljarða.Ýmissa grasa
kennir í kröfuskránni. Þannig gerir
þýska sambandslögreglan 69 milljóna
króna kröfu í búið og Foreldrafélag
Lauganesskóla gerir 636 þúsund
króna kröfu.
Nær sex þúsund gera
kröfu í þrotabú WOW
Wow air Stærstu kröfuhafar í þrotabúið eru flugvélaleigusalar. CIT Aero-
space gerir 53 milljarða króna kröfu og ALC gerir 9 milljarða kröfu.
Skúli Mogensen fyrrverandi forstjóri gerir 3,8 milljarða kröfu
Löngu dauðan grindhval rak á
fjörur í Seltjörn yst á Seltjarn-
arnesi á fimmtudaginn. Sérfræð-
ingar frá Hafrannsóknastofnun
fóru, skáru kjötbita úr hræinu til
erfðasýnis og mældu hræið. Það
var mjög úldið og ekki þótti ástæða
til að aðhafast meira.
Að sögn Þorvalds Gunnlaugs-
sonar, annars sérfræðinganna, leit
hræið út fyrir að hafa rekið annars
staðar á land, ratað aftur út á haf
og síðan rekið á land við Seltjörn.
Svo illa farið var það.
Frá Löngufjörum
Þorvaldur taldi ekki útilokað að
þessi grindhvalur hafi verið einn af
þeim sem rak á land við Löngu-
fjörur fyrir nokkrum vikum. Þá
hafi hræ hans velkst um í hafinu um
smá tíma nú og hafði að endingu
ratað á Seltjarnarnes. Þetta er þó
bara getgáta.
Einnig við Garðabæ
Annan hval rak upp í fjöru í
Garðabæ í gær, trúlega hval úr
sama hópi. Enn á þó eftir að kanna
hvernig straumarnir hafa legið, svo
vita megi hvaðan þeir eru að koma.
Vestan af Seltjörn á Seltjarn-
arnesi er nokkur umferð af hvala-
skoðunarskipum og gúmmíbátum,
enda skjóta reglulega þar upp koll-
inum hvalavöður og höfrungar.
Höfrung rak á land á sama stað á
Seltjarnarnesi í fyrra.
Hvalrekar á Seltjarnarnesi og í Garðabæ
Þrátt fyrir að framkvæmdum við
eina af þremur álmum Fossvogs-
skóla ljúki ekki fyrr en í lok nóv-
ember munu allir nemendur skól-
ans hefja þar nám í lok ágúst. Næst
það meðal annars með breytingum
á bókasafni sem skapar betri nýt-
ingu á skólahúsnæðinu. Þetta kem-
ur fram í pósti Aðalbjargar Inga-
dóttur, skólastjóra Fossvogsskóla,
til foreldra nemenda við skólann.
Á síðasta skólaári var greint frá
mygluskemmdum á skólahúsnæð-
inu og þurfti að fara í víðtækar lag-
færingar á öllum þremur álmum
skólans.Vegna þeirrar vinnu var á
fjórða hundrað nemendum skólans
fundin aðstaða í höfuðstöðvum KSÍ
og í Þróttaraheimilinu í Laugardal.
Voru nemendur fluttir með rútum.
Allir nemendurnir verða í Fossvogsskóla