Morgunblaðið - 20.08.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
ALLTAF KLÁRT
Í ÞRIFINAJAX
NÚ FÆRÐU
AJAX með
matarsóda og sítrónu
og AJAX
með ediki og eplum
Hjálpar þérað gera heimiliðskínandi
hreint
Óli Björn Kárason alþingismaðurfékk í liðinni viku langt svar frá
utanríkisráðherra við fyrirspurn í
fjórtán liðum um orkupakka og
tengd mál. Síðasta svarið vekur at-
hygli, ekki síst vegna þess að svarið
sárvantaði. Óli Björn spurði: „Hafa
EFTA-löndin komið
að undirbúningi
fjórða orkupakka
ESB sem nú er unnið
að? Hvaða sjónar-
miðum hafa íslensk
stjórnvöld komið þar
á framfæri? Hvaða
meginbreytingar
kunna að verða á
regluverki orku-
markaðarins þegar
og ef fjórði orku-
pakkinn verður inn-
leiddur?“
Utanríkisráð-herra svaraði þessu ekki en
rakti eitthvað um gerðir sem birtar
hafa verið og aðrar sem ekki hafa
verið samþykktar og birtar. Þá
sagði hann íslensk stjórnvöld „fylgj-
ast náið með þróun framangreindra
mála“ og að náið samstarf sé við
„norsk stjórnvöld þegar kemur að
orkumálum almennt“ sem óhætt er
að segja að sé ekki mjög gæfulegt,
auk þess sem það svarar í engu því
sem spurt var um.
Það hlýtur að vera mikið umhugs-unarefni fyrir þingmenn sem
nú hafa sett sig í stellingar að ana út
í ógöngur þriðja orkupakkans þegar
utanríkisráðherra getur engin svör
gefið við því hvað komi í fjórða orku-
pakkanum. Ef við erum skyldug til
að samþykkja þriðja pakkann – eins
og sumir halda fram en við erum
ekki – þá hljótum við með sama
hætti að verða að kyngja þeim
fjórða.
Hafi fyrirspurnin verið til ein-hvers þá hlýtur svona ekki-
svar að skipta máli.
Óli Björn Kárason
Skiptir ekki-svarið
ekki máli?
STAKSTEINAR
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Steinar Farestveit,
fyrrverandi yfirverk-
fræðingur Stokk-
hólmsborgar, andaðist
í Stokkhólmi 6. ágúst,
84 ára að aldri.
Hann fæddist á
Hvammstanga 5. maí
1935. Foreldrar hans
voru hjónin Einar
Farestveit (1911-
1994), forstjóri í
Reykjavík, ættaður
frá Modalen í Hörða-
landi í Noregi, og Guð-
rún Sigurðardóttir
(1915-1996) frá
Hvammstanga. Guðrún var dóttir
Sigurðar Pálmasonar, kaupmanns á
Hvammstanga, frá Æsustöðum í
Langadal, og Steinvarar Benónýs-
dóttur frá Breiðabólstað í Vestur-
hópi.
Steinar fluttist með fjölskyldu
sinni til Reykjavíkur 1943. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1955 sem dúx í stærð-
fræðideild, hóf síðan nám við Nordisk
Teknisk Högskola í Þrándheimi í
Noregi og lauk þaðan prófi 1959 sem
byggingaverkfræðingur (MSc) með
vega- og mannvirkjahönnun sem sér-
svið. Að lokinni útskrift réðst hann
sem sérfræðingur til gatna- og vega-
máladeildar Stokkhólmsborgar og
veitti forstöðu þeirri deild sem ann-
aðist uppbyggingu á jarð-
lestakerfi borgarinnar.
Árið 1964 fór Steinar
til starfa hjá verk-
fræðistofunni AB Samu-
elsson og Bonnier við
undirbúning flókinna
vegamannvirkja sem
byggð voru í Stokkhólmi.
Árið 1967 réð hann sig
svo aftur til gatna- og
vegamáladeildar Stokk-
hólms til að hafa yfir-
umsjón með fram-
kvæmdum við jarðlesta-
kerfi borgarinnar. Árið
1990 var Steinar svo
skipaður yfirverkfræðingur allra
mannvirkja sem unnið var að á vegum
borgarinnar ásamt uppbyggingu
jarðlestakerfisins.
Árið 1992 var verkfræðiskrifstofu
Stokkhólmsborgar breytt í einka-
fyrirtækið Stockholms Konsult AB.
Steinar tók þá við sem yfirmaður
mannvirkjahönnunar þar.
Steinar kvæntist Karen Bersås (f.
1938) árið 1959 í Þrándheimi. Þau
skildu. Börn þeirra eru Stefan, f.
1962, Tomas, f. 1966, Jessica, f. 1971,
og Hanna, f. 1976. Sambýliskona
Steinars til þrjátíu ára er Cecilia
Wenner.
Útför Steinars verður gerð frá
Ekerö-kirkju í Stokkhólmi 5.
september.
Andlát
Steinar Farestveit
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Rafmagn til að kveikja á sex ljósa-
perum í rúmlega 20 fm sameiginlegu
geymsluhúsnæði kostar eigendur
fjögurra húsa sem tengjast saman
samtals 40 kr. á ári eða 10 kr. á eign.
Til viðbótar greiða eigendur sam-
eiginlega 12.976 kr. í mælagjald á
ári.
Þetta kemur fram á reikningi sem
Morgunblaðið fékk frá íbúa í einu
húsinu. Samkvæmt upplýsingum frá
Veitum, sem selja rafmagnið, er
viðskiptavinum í sjálfsvald sett
hvernig uppbygging rafmagnstaflna
er í hverju húsi. En hver tenging til
almennrar notkunar kostar 35,65
krónur með virðisaukaskatti á dag.
Þessari fjárhæð er ætlað að standa
undir kostnaði við mæli, almenna
umsjón með tengingunni og reikn-
ingagerð.
Í svari Veitna kemur fram að hús-
ráðendur geti losnað við mæla með
því að tengja inn á aðra mæla eins og
henti hverjum og einum. Löggiltan
rafvirkja þurfi til þess að gera breyt-
ingar á töflu og skila mæli til Veitna.
Að sögn Veitna skiptist verðskrá
hennar í marga ólíka taxta en fast
gjald nemur um 15 til 18% af heild-
artekjum rafveitu. Misjöfn notkun
rafmagns milli mánaða getur breytt
hlutfallinu.
Fast gjald 324% hærra en notkunin
Notkun á sex ljósaperum kostar 40 kr. á ári en kostnaður við mæli 12.976 kr.
Morgunblaðið/Einar Falur
Rafmagn Þægindi kosta heimili sitt.