Morgunblaðið - 20.08.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Brautarholti 24 • 105 Reykjavík • S.: 562 6464 • henson@henson.is
SENNILEGA FJÖLHÆFASTA FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI ÍSLANDS
OG ÞÓ AÐ VÍÐAR VÆRI LEITAÐ!
• FLOTTUSTU BÚNINGARNIR.
• ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA
FRAMLEIÐSLU EÐA MERKINGAR.
• 846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS
TIL MERKINGA EÐA EKKI.
SÍÐAN 1969
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Líklega voru litlir sem engir jöklar
hér á landi snemma á yfirstandandi
hlýskeiði, fyrir um 5.000-8.000 árum.
Svo uxu jöklarnir fram þegar kólnaði
og hafa verið mjög breytilegir að
stærð síðan land byggðist, að sögn
Tómasar Jóhannessonar, fagstjóra á
sviði jöklafræði hjá Veðurstofu Ís-
lands.
Sem kunnugt er var jökullinn Ok
kvaddur formlega um síðustu helgi.
Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur
sem fylgst hefur með íslenskum jökl-
um áratugum saman, sagði í janúar
2014 í samtali við Morgunblaðið að
Ok væri þá líklega úr sögunni sem
jökull.
Tómas sagði að þegar landið var
numið hefðu jöklarnir verið miklu
minni en þeir urðu síðar með kóln-
andi loftslagi. Þeir hafa bæði hopað
og stækkað í aldanna rás í takti við
ríkjandi hita á hverjum tíma.
Svonefnd jafnvægislína er neðri
mörk þess svæðis þar sem snjór situr
eftir að hausti. Neðan við hana
bráðnar yfirleitt allur snjór að sumri.
Línan liggur nú á 1.100 til 1.400 m
y.s. bili á jöklum í grenndinni við Ok í
flestum árum og er því rétt um efsta
punkt Oks sem er um 1.200 metrar
að hæð. Eiríksjökull nær hins vegar
upp í 1.675 metra hæð, Snæfells-
jökull í 1.446 metra, Langjökull í um
1.400 metra og Þórisjökull í um 1.330
metra hæð.
Þegar hlýnar færist jafnvægis-
línan ofar og bráðnunin nær hærra á
sumrin. Fyrir hverja einnar gráðu
hlýnun færist jafnvægislínan upp um
rúmlega 100 metra. Milli 1980 og
1990 var fremur kalt hér á landi, eða
um tveimur gráðum kaldara en nú,
og þá var jafnvægislínan langt neðan
við það sem nú er.
„Hlýindin 1930-1940, þegar var
ámóta hlýtt hér og er nú, voru fyrst
og fremst bundin við Norður-
Atlantshafssvæðið. Ekkert benti til
þess að þau væru varanleg og ekki
voru sambærileg hlýindi annars
staðar á jörðinni,“ sagði Tómas. „Við
teljum okkur vita að skýringin á hlý-
indunum núna, sem ná til allrar
jarðarinnar, sé fyrst og fremst upp-
söfnun á koltvísýringi (CO2) í and-
rúmsloftinu. Hún gengur ekki til
baka nema hafin verði gríðarleg
vinnsla og förgun á koltvísýringi úr
andrúmsloftinu, eins og rætt er um
að gera á Hellisheiði. Það er nokkurn
veginn ljóst að koltvísýringur í and-
rúmslofti mun halda áfram að aukast
á næstu áratugum. Því eru horfur á
áframhaldandi hlýnun.“
Tómas sagði að ef hlýnaði um aðr-
ar tvær gráður á yfirstandandi öld,
eins og margar spár gera ráð fyrir,
myndi jafnvægislínan færast enn
hærra eða um meira en 200 metra.
„Þá verður hún komin upp fyrir efsta
punkt á Langjökli og Þórisjökli.
Snæfellsjökull mun þá missa stóran
hluta af sínu ákomusvæði,“ sagði
Tómas. Hann sagði að hlýnun á okk-
ar slóðum síðasta aldarfjórðung hefði
verið mun hraðari en nokkrar spár
um loftslagsbreytingar gerðu ráð
fyrir. Líklega hefði náttúruleg hlýn-
un og hlýnun af mannavöldum lagst
saman og valdið þessari hröðu hlýn-
un. Mögulega gæti hægt tímabundið
á hlýnuninni en gert væri ráð fyrir að
næstu áratugi myndi hlýna enn
meira bæði hjá okkur og annars stað-
ar á jörðinni. Þá yrði framtíð enn
fleiri íslenskra jökla í hættu.
Morgunblaðið/RAX
Jöklar Fremst er Ok, sem var jökull en er það ekki lengur. Í baksýn er horft til Þórisjökuls, sem gæti einnig horfið líkt og fleiri íslenskir jöklar ef loftslag heldur áfram að hlýna eins og spáð er.
Hlýrra loftslag ógnar framtíð jökla
Gert er ráð fyrir aukinni hlýnun næstu áratugi Við það ná sumarleysingar hærra upp á jöklana
Marglytturnar, í samstarfi við Bláa
herinn, ætla að hreinsa fjörur í Mel-
vík við Grindavík á morgun, mið-
vikudag, frá kl. 18-20. Forseti Ís-
lands, Guðni Th. Jóhannesson, mun
taka þátt í fjöruhreinsuninni en all-
ir eru boðnir velkomnir sem vett-
lingi geta valdið.
Marglytturnar munu synda boð-
sund yfir Ermarsund í byrjun
september til að vekja athygli á
plastmengun í hafi og safna um leið
áheitum fyrir Bláa herinn, sem hef-
ur staðið að strandhreinsunum,
hvatningu og vitundarvakningu í
24 ár, segir í tilkynningu. Áður en
út er haldið munu þær leggja sitt af
mörkunum og bjóða landsmönnum
með sér í strandhreinsun.
Mölvík er þörungafjara stutt frá
Grindavík. Ekið er vestur Nesveg
nr. 425 í átt að Mölvík, farið
framhjá afleggjara að Brimkatli og
ekið niður næsta afleggjara.
Marglyttur hreinsa fjörur við Grindavík
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjósund Marglytturnar að koma úr sundi
með Guðna forseta á dögunum.