Morgunblaðið - 20.08.2019, Síða 13

Morgunblaðið - 20.08.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2019 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Þorp voru rýmd vegna nýrra gróðurelda á Gran Canaria á Kan- aríeyjum í gær og eldtungurnar voru sums staðar svo háar að slökkviflugvélar gátu ekki flogið yfir þær. Íbúar þorpanna sem ákveðið hef- ur verið að rýma eru alls um 9.000, að sögn almannavarnayfirvalda. Ekki er vitað til þess að eldarnir hafi valdið dauðsföllum. Um 100 manns hafa ekki komist frá þorpinu Arten- ara vegna þess að of hættulegt er að aka vegi sem liggja frá því. Ferðamannabæir ekki í hættu Eldarnir hafa geisað í fjöllum í miðhluta Gran Canaria, á svæðum sem njóta mikilla vinsælda meðal fjallgöngumanna vegna náttúrufeg- urðar. Langflestir ferðamenn eyj- unnar dvelja hins vegar í bæjum við ströndina. Yfirvöld á eyjunni sögðu að eldarnir ógnuðu ekki ferða- mannabæjum og flugsamgöngur hefðu ekki raskast. Yfirvöld á Spáni hafa sent her- menn á eyjuna til að aðstoða við slökkvistarfið. Um 1.000 slökkviliðs- menn og 14 slökkviflugvélar og þyrl- ur hafa barist við eldana. Fleiri þyrl- ur verða sendar þangað í dag. Eldtungurnar voru allt að 50 metra háar í gær og slökkviflugvélar gátu því ekki flogið yfir þær. Slökkviliðs- menn komust ekki heldur að þeim, að sögn fréttaveitunnar AFP. Eldarnir kviknuðu í miðhluta Gran Canaria fyrir tíu dögum og síð- an þá hafa alls um 6.000 hektarar gróðurlendis brunnið, meðal annars á friðlandi sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Nýjasti eldurinn hefur borist inn í furuskóg í Tamadaba- þjóðgarðinum sem er þekktur fyrir líffræðilegan fjölbreytileika. Eldur- inn er einnig talinn ógna Inagua- friðlandinu. Talið er að það taki nokkra daga að slökkva hann. Gran Canaria er næstfjölmennust Kanaríeyja á eftir Tenerife, með um 850.000 íbúa. Þorp rýmd vegna elda  Þúsundir íbúa á Gran Canaria hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda AFP Skógareldur Um 9.000 íbúum þorpa í miðhluta Gran Canaria á Kanaríeyjum hefur verið sagt að forða sér þaðan vegna gróðurelda sem hafa geisað þar síðustu tíu daga. Um 6.000 hektarar gróðurlendis hafa orðið þeim að bráð. Frönsk hjón sem voru staðin að því að stela 40 kílóum af sandi á strönd Sardiníu hafa verið ákærð og eiga allt að sex ára fangelsisdóm yfir höfði sér. Hjónin sögðust hafa ætl- að að taka sandinn heim með sér „til minja“ og ekki hafa vitað að bannað væri að fjarlægja sand af ströndum eyjunnar. Sardinía er þekkt fyrir hvítar strendur og bannað hefur verið að fjarlægja sand af þeim, þar sem hann er álitinn almannaeign. Sam- kvæmt lögum frá árinu 2017 eiga þeir sem brjóta bannið yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi. Að sögn yfirvalda á eyjunni hverfa nokkur tonn af sandinum á ári hverju, eink- um vegna ágangs sjávar og hækk- andi sjávarborðs en einnig vegna þess að algengt er að ferðamenn setji sand í flöskur til minja eða til að selja hann á netinu. SARDINÍA Dæmd í fangelsi fyrir sandstuld? Tyrkir sökuðu í gær Sýrlendinga og Rússa um að hafa brotið skilmála vopnahléssamnings frá síðasta ári með því að gera loftárás til að stöðva lest tyrkneskra skriðdreka og brynvarinna bifreiða sem var á leið til Idlib-héraðs í Sýrlandi. Tyrkir sögðu að þrír óbreyttir borg- arar hefðu beðið bana og tólf særst í loftárásinni. Recep Tayyip Erdogan Tyrk- landsforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti samþykktu í september sl. að mynda hlutlaust svæði í Idlib-héraði. Markmiðið með samningnum var að koma í veg fyrir átök á milli sýrlenska stjórnarhers- ins og uppreisnarmanna því að ótt- ast var að Bashar al-Assad Sýr- landsforseti hygðist láta til skarar skríða gegn uppreisnarmönnum í Idlib, einu af síðustu vígjum þeirra í Sýrlandi. Erdogan vonaði að með því að leyfa stuðningsmönnum upp- reisnarmanna að dveljast á hlut- lausa svæðinu yrði hægt að koma í veg fyrir að mikill fjöldi flóttamanna streymdi til Tyrklands. Tyrkneski herinn átti að halda uppi eftirliti á hlutlausa svæðinu en samningnum var aldrei komið í framkvæmd að fullu vegna þess að liðsmenn víga- sveita íslamista neituðu að fara þaðan. Her Sýrlands og rússneskar herflugvélar hafa gert árásir sem hafa kostað hundruð manna lífið í Idlib síðustu fimm mánuði. Um þrjár milljónir manna eru í Idlib, þ. á m. um milljón barna, og óttast er um örlög þeirra ef árás- irnar á héraðið verða hertar. Einnig er óttast að átök blossi upp milli tyrkneskra hersveita og Sýrlands- hers sem nýtur stuðnings Rússa. Emmanuel Macron Frakklands- forseti ræddi málið á fundi með Pút- ín í Brégançon-virkinu í Frakklandi í gær og kvaðst hafa þungar áhyggj- ur af íbúum Idlib vegna hættunnar á miklum blóðsúthellingum í hér- aðinu. Pútín áréttaði stuðning sinn við Sýrlandsstjórn og sagði hernað hennar nauðsynlegan til að sigrast á „hryðjuverkamönnum“ í Idlib. Jan Egeland, framkvæmdastjóri Norska flóttamannaráðsins, segir að „mjög slæmir vígamenn“ séu á með- al vopnuðu hópanna í Idlib en það réttlæti ekki allsherjarárás sem myndi stefna lífi milljónar barna í hættu, að því er fréttavefur BBC hefur eftir honum. bogi@mbl.is Óttast blóðsúthellingar í Idlib  Tyrkir saka Sýrlendinga og Rússa um brot á vopnahléssamningi  Óttast er um örlög þriggja milljóna manna í héraðinu, einu síðasta vígi uppreisnarmanna AFP Loftárás Reykjarmökkur rís upp frá byggingum eftir loftárás sem gerð var í grennd við bæinn Hish í Idlib-héraði í norðvestanverðu Sýrlandi í gær. Danski auðkýf- ingurinn Lars Larsen lést á heimili sínu í Silkeborg í gær, 71 árs að aldri, tveimur mán- uðum eftir að hann lét af stjórnarfor- mennsku í versl- unarkeðjunni Jysk vegna veikinda. Larsen var á meðal auðugustu manna Danmerkur. Hann stofnaði Jysk árið 1979 og fyrirtækið færði hratt út kvíarnar. Það rekur nú rúmlega 2.800 verslanir í 52 löndum í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Asíu, m.a. verslanir Rúmfatalagers- ins á Íslandi. Tekjur keðjunnar nema um 26 milljörðum danskra króna á ári, jafnvirði 480 milljarða íslenskra, skv. ársskýrslu fyrir- tækisins. Skýrt var frá því fyrir tveimur mánuðum að Larsen hefði greinst með lifrarkrabbamein og sonur hans, Jacob Brunsborg, tók þá við stjórnarformennsku í Jysk. Lars Lar- sen látinn Lars Larsen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.