Skessuhorn - 14.01.2015, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015
Einar hættir
hjá MS
LANDIÐ: Einar Sigurðsson,
forstjóri Mjólkursamsölunn-
ar og Auðhumlu, hefur ákveðið
að láta af störfum 30. júní næst-
komandi. Einar greindi stjórn
Mjólkursamsölunnar frá þessu
í síðustu viku, en hann hef-
ur verið forstjóri félagsins frá
2009. Egill Sigurðsson bóndi
á Berustöðum er stjórnarfor-
maður MS. Hann segir að fé-
lagið sé nú mun betur í stakk
búið, en áður en Einar Sigurðs-
son tók við starfi forstjóra, að
takast á við verkefni næstu ára.
„Allur tækjabúnaður hefur ver-
ið endurnýjaður. Eftirspurn eft-
ir framleiðslu kúabænda hefur
aldrei verið meiri og vex stöð-
ugt hér heima. Þriggja milljarða
króna hagræðing í rekstrinum
hefur skilað sér í lægra vöru-
verði og útflutningur og sala
á þjónustu og þekkingu á sviði
skyrframleiðslu skila veruleg-
um ábata til framtíðar. Fram-
undan er endurskoðun búvöru-
laga og gerð nýs búvörusamn-
ings, sem móta rekstrarum-
gjörð bændanna og mjólkur-
iðnaðarins sem þeir eiga.“ Eg-
ill segir að MS muni fljótlega
hefja undirbúning að ráðningu
nýs forstjóra.
–mm
Skoðun og trygg-
ingar bifreiða
LÖGREGLA: Áhersla var lögð
á það í upphafi árs hjá Lögregl-
unni á Vesturlandi að kanna
ástand ökutækja hvað varð-
ar tryggingar sem og hvort að
búið væri að færa þær til skoð-
unar á réttum tíma. Í vikuyfir-
liti Lögreglunnar á Vesturlandi
kemur fram að það sem af er
ári hafi þetta eftirlit gengið vel
og hafi margir fengið tiltal og
frest til að koma sínum málum í
lag. Skráningarnúmer voru tek-
in af um 30 ökutækjum í liðinni
viku og mun þetta eftirlit halda
áfram hjá lögreglunni. Alls urðu
níu umferðaróhöpp í umdæmi
LVL í vikunni. Flest án telj-
andi meiðsla. Umferðaróhapp
varð á Holtavörðuheiði þar sem
minniháttar meiðsl voru á far-
þega. Í því tilfelli lentu erlend-
ir ferðamenn í snjódrift á vegin-
um og hafnaði bifreiðin á vegr-
iðinu í Biskupsbeygjunni. Út-
afkeyrsla á Seleyri á mánudag
og myndavélastuldur í Ólafs-
vík komu einnig á málaská lög-
reglu, en frá þeim er greint í
öðrum fréttum hér í blaðinu.
–mm
Veður eru válynd þessa dagana og
vert að minna fólk á varúð, sérstak-
lega þá sem hyggjast verða á ferð-
inni milli byggðarlaga og lands-
hluta. Akstursskilyrði eru mjög
misjöfn þessa dagana og eink-
um er það hálka, frosin hjólför,
krapi og snjódrift sem vegfarend-
ur þurfa að varast. Umfram allt að
haga akstri miðað við aðstæður.
Næstu dagana er spáð allhvassri
norðan- og norðvestanátt og frost
á bilinu eitt til átta stig. Víða snjó-
koma eða él en úrkomulítið fyrir
sunnan. Á laugardag er útlit fyrir
hægt minnkandi norðanátt. Bjart-
viðri sunnan- og vestanlands, dá-
lítil él norðan- og austanlands fram
eftir degi, en léttir síðan til. Heldur
kólnandi. Á sunnudag og mánu-
dag er svo spáð vaxandi suðaust-
an átt með snjókomu eða slyddu,
einkum um landið sunnanvert og
hlýnar heldur í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Ætlar þú að fylgj-
ast með HM í handbolta?“ Flest-
ir ætla að gera það. „Já öllum leikj-
um“ sögðu 21,61%, „já kíki á eitt-
hvað“ var svar 41,15%, 10,34%
höfðu ekki myndað sér skoðun á
því. „Nei, hef ekki áhuga“ var hins
vegar svar 26,9% þeirra 690 sem
svöruðu spurningunni.
Í þessari viku er spurt:
Gefur þú blóð?
Lögreglumenn á Vesturlandi eru
Vestlendingar vikunnar. Meðal
annars vegna þess að þeir í sam-
einuðu embætti leystu snarlega
þjófnaðarmál í Ólafsvík.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar-
innar sem lagt var fram í september
síðastliðnum kom fram að stytta
ætti rétt atvinnuleitenda til at-
vinnuleysistrygginga um sex mán-
uði. Lagabreytingin átti sér stað um
áramótin og er nú einungis heim-
ilt að greiða atvinnuleysistrygging-
ar samtals í 30 mánuði í stað 36.
Bótatímabilinu hefur verið breytt
nokkrum sinnum á undanförnum
árum. Það var þrjú ár, lengt í fjög-
ur ár 2011 og svo stytt aftur í þrjú
ár 2013. Nú hefur það verið stytt
um hálft ár til viðbótar. Breyting-
in átti við um alla atvinnuleitend-
ur sem tryggðir eru innan atvinnu-
leysistryggingakerfisins. Á landinu
öllu misstu tæplega fimmhundr-
uð manns bætur vegna þessa. Þeir
sem ekki geta framfleytt sér án at-
vinnuleysistryggingarinnar þurfa
Gleðilegt heilsuræktarár 2015
Morguntrimm • spinning • hádegispúl • átakstímar sundleikfimi • leiðsögn í þreksal
Opið alla virka daga kl. 6.00 – 22.00 • Laugardaga og sunnudaga kl. 9.00 – 18.00
Verið velkomin
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi - www.borgarbyggd.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar hefur samþykkt fyrir sitt leyti
staðsetningu hraðhleðslustöðvar við Dalbraut 1.
Samþykkja staðsetningu
hraðhleðslustöðvar á Akranesi
Skipulags- og umhverfisráð Akra-
neskaupstaðar samþykkti á fundi
sínum síðastliðinn fimmtudag fyr-
ir sitt leyti hugmyndir að staðsetn-
ingu hraðhleðslustöðvar fyrir raf-
bíla. Sá staður er á bílastæði við
verslunarmiðstöðina á Dalbraut
1. Orka Náttúrunnar (ON) hefur
stefnt að uppsetningu hraðhleðslu-
stöðvar á Akranesi að því gefnu að
finnist áhugasamur samstarfsaðili á
svæðinu. Fyrirtækið fór í verkefnið
að beiðni bæjaryfirvalda á Akra-
nesi. Fyrsta hraðhleðslustöðin við
þjóðveginn var opnuð í Borgar-
nesi síðasta sumar, en áætlað var að
ON myndi opna tíu stöðvar á síð-
asta ári, flestar á höfuðborgarsvæð-
inu. Akranes þykir henta vel út frá
markmiðum verkefnisins og með
tilliti til vegalengdar frá öðrum
hraðhleðslustöðvum ON. Nú þeg-
ar eru t.d. nokkrir rafbílaeigend-
ur á Akranesi sem nota bíla sína til
ferða til og frá vinnu á höfuðborg-
arsvæðinu. Allar áætlanir gera ráð
fyrir að rafbílum muni fjölga mik-
ið hlutfallslega á næstu misserum,
einkum þar sem hleðslur þeirra
duga til aksturs lengri vegalengda
en áður. þá
Fáir Vestlendingar misstu bótarétt
því nú að sækja um fjárhagsaðstoð
frá sveitarfélögum.
Ekki mikil áhrif
á Akranesi
Atvinnuleysi hefur sveiflast mjög á
undanförnum árum. Fyrir hrun var
það undir einu prósenti en fór upp
undir tíu prósent í hámarki krepp-
unnar. Undanfarið hefur dreg-
ið hratt úr því og í nóvember var
skráð atvinnuleysi á öllu landinu
komið niður í rúm þrjú prósent
eða 5.430 atvinnulausra. Minnsta
atvinnuleysið hér á landi mæld-
ist á Vesturlandi, einungis 1,9%
eða 145 atvinnulausir. Þar af voru
95 atvinnulausir á Akranesi, sem
jafnframt er fjölmennasta sveitar-
félagið í landshlutanum. Níu at-
vinnuleitendur misstu rétt sinn til
atvinnuleysisbóta um áramótin á
öllu Vesturlandi. Þar af voru sex á
Akranesi. Að sögn Regínu Ásvalds-
dóttur bæjarstjóra á Akranesi hefur
lagabreytingin takmörkuð áhrif á
Akraneskaupstað. „Þetta er að sjálf-
sögðu mjög erfitt fyrir þá einstak-
linga sem eiga hlut að máli, en sam-
kvæmt reglunum okkar þá er það
ekki þannig að allir eigi sjálfkrafa
rétt á fjárhagsaðstoð. Hún ákvarð-
ast einnig af tekjum maka,“ segir
Regína. Þá hefur breytingin einnig
áhrif á þá sem eiga rétt á fjárhags-
aðstoð, enda lækka ráðstöfunar-
tekjur heimilisins við breytinguna.
Atvinnuleysisbætur eru 184.188 kr.
á mánuði miðað við 100% bótarétt
en fjárhagsaðstoð til einstaklinga
18 ára og eldri getur numið allt að
139.917 kr.
Vinnumarkaðsúrræði
í gangi
Regína bendir jafnframt á að Akra-
neskaupstaður sé með vinnumark-
aðsúrræði í gangi. „Við réðum iðju-
þjálfa í tímabundið verkefni í eitt
ár sem er jöfnum höndum að stýra
Skagastöðum. Það er vinnumark-
aðsúrræði fyrir fólk undir þrítugu,
sem unnið er í samvinnu við Vinnu-
málastofnun. Hann sinnir einn-
ig einstaklingum sem eru með fjár-
hagsaðstoð frá Akraneskaupstað og
aðstoðar þá meðal annars í atvinnu-
leitinni,“ segir Regína.
Hjá Vinnumálastofnun á Vest-
urlandi fengust þær upplýsingar að
verið sé að þróa áfram úrræði fyr-
ir hópinn sem samanstendur af eldri
en þrjátíu ára fólki. Að Skagastað-
ir séu nú nýttir fyrir alla aldurs-
hópa og veittur sé markviss stuðn-
ingur í atvinnuleit. Eins kom fram
að gott samstarf er á milli stofn-
unarinnar og Akraneskaupstað-
ar. Fundað sé með félagsráðgjöf-
um mánaðarlega og meðal annars
reynt að finna úrræði áður en ein-
staklingar ljúka bótarétti sínum.
Eins er reynt að finna störf fyrir þá
sem klárað hafa bótarétt sinn en eru
með fjárhagsaðstoð og vinnufær-
ir. Þá hafði Vinnumálastofnun sam-
band við alla þá sem lagabreytingin
hafði áhrif á, um leið og frumvarpið
kom fram. Farið var yfir stöðu mála
og fólk upplýst um áhrif breyting-
anna, veitt aukin aðstoð og ráðgjöf.
Öllum var boðið í viðtal til starfs- og
námsráðgjafa þar sem farið var yfir
stöðu mála með hverjum og einum,
boðin aukin aðstoð við atvinnuleit
og farið yfir hvaða vinnumarkaðs-
úrræði sem stofnunin hefur upp á að
bjóða og gæti helst komið viðkom-
andi að gagni. Frá þeim tíma hefur
verið unnið markvisst að því að að-
stoða þennan hóp. Fólki hefur ver-
ið boðin vinna ef störf hafa boðist en
færri störf eru jafnan í boði í janúar
og febrúar en á öðrum tíma ársins
og er von á því að vinnumarkaður-
inn glæðist í mars eða apríl.
grþ
Breyting á bótatímabili hefur takmörkuð áhrif á Akraneskaupstað.