Skessuhorn


Skessuhorn - 14.01.2015, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 14.01.2015, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015 Fjölmenni á opnun sýningar Michelle Bird í Borgarnesi Bandaríska listakonan Michelle Bird opnaði sína fyrstu málverkasýningu hér á landi í Safnahúsinu í Borg- arnesi á laugardaginn. Fjöldi fólks kom á opnunardaginn. Á sýning- unni eru aðallega verk sem Michelle Bird hefur málað af fólki sem hún hefur kynnst í Borgarnesi eftir að hún flutti þangað. Verkin geisla af litadýrð og fegurð. Michelle flutti til Íslands síðastliðið sumar og settist að í Borgarnesi þar sem hún býr og starfar í dag. Skessuhorn birti heil- síðuviðtal við Michelle Bird í síð- asta tölublaði ársins 2014. Sýningin í Safnahúsi Borgarness verður opin virka daga frá kl. 13.00 – 18.00. Hún stendur til 25. febrúar. mþh Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar heilsar upp á Michelle Bird. Á milli þeirra er Guðrún Jónsdóttir sem veitir Safnahúsi Borgarfjarðar forstöðu. Gestir skoða verk Michelle Bird á sýningunni. Seldist upp á rúmum klukkutíma Löng biðröð myndaðist við Íslands- banka á Akranesi síðastliðinn föstu- dagsmorgun, löngu áður en bank- inn var opnaður. Ástæðan var ekki skyndileg þörf íbúa fyrir hefðbund- in bankaviðskipti, heldur hófst við opnun bankans sala aðgöngumiða á Þorrablót Skagamanna sem fram fer 24. janúar næstkomandi í Íþrótta- húsinu við Vesturgötu. Í fyrra seld- ist upp á blótið á tveimur tímum og var eftirspurnin enn meiri að þessu sinni. Nú seldust allir 650 miðarn- ir sem í boði voru á 74 mínútum. Enn er þó hægt að kaupa miða á ballið. Það er Club71, öflugur ár- gangur Skagamanna, sem stendur fyrir blótinu nú sem undanfarin ár. Létt stemning var í bankanum um morguninn og tilhlökkun lá í loft- inu. Þrír þjónustufulltrúar í bank- anum afgreiddu þetta frá tveimur og upp í tuttugu miða til hvers við- skiptavinar. mm Biðröð var byrjuð að myndast eftir klukkan átta um morguninn. Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri er hér að tryggja sér miða. Mögnuð kórskemmtun í Logalandi Karlakórinn Söngbræður stóð fyrir árlegri matar- og söngveislu í Loga- landi síðastliðið laugardagskvöld. Gestakórar Söngbræðra að þessu sinni voru Grundartangakórinn og kór hestamannafélagsins Spretts í Kópavogi og Garðabæ, en báðir kórarnir hafa Atla Guðlaugsson sem söngstjóra. Kórarnir sungu saman og í sitthvoru lagi undir stjórn þeirra Atla og Viðars Guðmundssonar. Boðið var upp á einsöng, tvísöng og oktett. Hljómsveit Söngbræðra spilaði undir en hana skipa Heim- ir Klemenzson, Bjarni Guðmunds- son og Guðbjartur A Björgvinsson. Þá fór Ármann Bjarnason á Kjal- vararstöðum með gamankvæði eft- ir Guðmund Böðvarsson frá Kirkju- bóli í tilefni þess að á síðasta ári hlutu Söngbræður menningarverð- laun sem kennd eru við Guðmund og Ingibjörgu konu hans frá Kirkju- bóli. Stutt var í gamanmál af ýmsu tagi og svo var maturinn ekki af verri endanum fyrir þá sem kunna þjóð- legt að meta. Saltað hrossakjöt og svið var í boði ásamt meðlæti. Að- sókn á þessa skemmtun var gríðar- leg. Þrátt fyrir að um þrjú hundruð manns hafi verið í húsinu þurfti að neita að minnsta kosti fimmtíu um miða. Viðstaddir skemmtu sér kon- unglega og skein ánægju úr hverju andliti þegar haldið var heim á leið inn í kalda vetrarnóttina. mm Heimildamyndin um Þórð á Dagverðará sýnd í sjónvarpi Á haustdögum lauk Kári G. Schram leikstjóri við gerð heimildakvik- myndar um Þórð Halldórsson á Dagverðará. Myndin heitir Jökl- arinn og er um ævintýralegt lífs- hlaup Þórðar. Hún var frumsýnd í Bíó Paradís 21. nóvember síðastlið- inn og hlaut lofsamlega umfjöllun í fjölmiðlum en miðvikudaginn 21. janúar nk. gefst landsmönnum kost- ur á að sjá myndina í Ríkissjónvarp- inu. Þá vikuna stendur yfir heim- ildamyndavika á sjónvarpsstöðinni í undanfara Eddunnar. Í myndinni er fjallað um fjölskrúðugt lífshlaup Þórðar á Dagverðará sem var oft lyginni líkast, enda stundum kallað- ur mesti lygari landsins. Þórður lenti í ótrúlegum mannraunum og ævin- týrum á langri og strangri ævi og var allt í senn; sægarpur, refaskytta, list- málari, rithöfundur og skáld, mann- vinur, náttúruverndarsinni, húmor- isti og sagnaþulur. Hann varð því að þjóðsagnapersónu í lifanda lífi og alþýðuhetja sem ekki má gleymast. Minningin um Þórð varðveitist nú með heimildamyndinni Jöklarinn en við gerð myndarinnar naut hann liðsinnis Hollvinasamtaka Þórð- ar á Dagverðará sem stofnuð voru árið 2005 á 100 ára lífstíð Þórðar en hann lést tveimur árum áður, 2003 þá 98 ára gamall. Einstaklega frjór andi á ferð Kári G. Schram kvikmyndaleikstjóri hefur nokkra reynslu af gerð heim- ildamynda. Hann gerði m.a. Blikkið um sögu Melavallarins í Reykjavík en að þeirri vönduðu mynd vann hann í fimm ár. Við gerð Jöklarans leit- aði Kári uppi ómetanleg myndbrot af Þórði á Dagverðaá í gegnum árin. Fjöldi fólks segir frá kynnum sínum af Þórði og hann sjálfur birtist ljós- lifandi eins og maður með þúsund andlit. Eitt árið prýddi hann reynd- ar heimsalmanak Kodak. Í mynd- inni er flakkað yfir mörg tímaskeið úr lífi Þórðar og við sjáum og kynn- umst mörgum af helstu uppátækjum og lífhlaupi hans á einstaklega fal- legan og sjónrænan hátt. Þar greinir frá ótrúlegustu ævintýrum sem hann rataði í á langri og fjölskrúðugri ævi. Kári leikstjóri segir að Þórður hafi umfram allt verið þjóðsagnapersóna og þjóðhetja sem vert er að minn- ast. „Fólk þyrfti endilega að kynn- ast heimspeki hans sem ætti vel við í dag. Þórður kom víða við en var alls staðar manns gaman. Hann skapaði þó hálfpartinn uppþot hjá listasamfé- laginu í borginni þegar honum tókst að komast með myndlistasýningu sína í Bogasalinn um miðjan níunda áratuginn. Hann var heimsborgari ef því var að skipta, þekkti bæði Kjar- val og Dieter Roth. Kristnihald und- ir Jökli hefði ekki orðið til hjá Nób- elsskáldinu nema í gegnum sögurnar sem hann hafði frá Þórði. Hann var spunameistari og skáld. Hér var ein- staklega frjór andi á ferð sem miðl- aði og gaf óspart af öllum auðæfum sínum til að öðrum liði betur,“ segir Kári en heimildakvikmyndin Jöklar- inn er 50 mínútur að lengd. Boðið hlutverk í Brekku- kotsannál Frænka Þórðar á Dagverðará Ólína Gunnlaugsdóttir frá Hellnum sem nú starfrækir Samkomuhúsið á Arn- arstapa, sagði frá því í viðtali við Magnús Þór Hafsteinsson í síðasta jólablaði Skessuhorn að hún hefði símskeyti um á það að Þórði hafi á sínum tíma verið boðið hlutverk af- ans í Brekkukotsannál. Ólína seg- ir frá fundum Kiljan og Þórðar á Hótel Búðum áður en hann skrifaði Kristnihald undir Jökli. Ólína seg- ir líka í þessu viðtali að hún sé búin að sjá heimildamyndina um Þórð frænda sinn og sér finnist myndin einstaklega fallega gerð. þá Þórður skapar enn sinn sess á heimaslóðum í Samkomuhúsinu á Arnarstapa. Ljósm. mþh. Þórður hafði mikla trú á ölkelduvatinu.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.