Skessuhorn


Skessuhorn - 14.01.2015, Qupperneq 6

Skessuhorn - 14.01.2015, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015 Ríflega sala á dag að jafnaði VESTURLAND: Á Vestur- landi var þinglýst 33 kaupsamn- ingum um fasteignir í desemb- er. Þar af voru 17 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samning- ar um eignir í sérbýli og fjór- ir samningar um annars konar eignir. Heildarveltan í þessum viðskiptum var 729 milljónir króna og meðalupphæð á samn- ing 22,1 milljón króna. Af þess- um 33 samningum voru 19 um eignir á Akranesi. Þar af voru 12 samningar um eignir í fjöl- býli, sex samningar um eignir í sérbýli og einn samningur um annars konar eign. Heildarvelt- an var 423 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,3 milljónir króna. –mm Erum farin að eyða meiru LANDIÐ: Í nóvembermán- uði síðastliðnum voru fluttar út vörur fyrir 50,2 milljarða króna og inn fyrir 44,9 milljarða króna fob (48 milljarða króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reikn- uð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 5,3 milljarða króna. Í nóvember 2013 voru vöru- skiptin hagstæð um 11,4 millj- arða króna á gengi hvors árs. Bráðabirgðatölur fyrir desemb- er benda til að fluttar hafi ver- ið inn vörur fyrir 42 milljarða en út fyrir 49,3. Fyrstu ellefu mánuði ársins 2014 voru flutt- ar út vörur fyrir 538,1 milljarð króna en inn fyrir 539,9 millj- arða króna fob (577,3 milljarða króna cif). Vöruskiptin við út- lönd voru því óhagstæð um 1,8 milljarða króna, reiknað á fob verðmæti, en desember bætir það upp þannig að vöruskiptin verða hagstæð um örfáa millj- arða þegar upp verður stað- ið. Engu að síður erum við að eyða hlutfallslega meiru en áður í hlutfalli við hvað við öfl- um. Fyrstu ellefu mánuði árs- ins 2013 voru vöruskipti við út- lönd hagstæð um 43 milljarða á gengi hvors árs. Vöruskipta- jöfnuðurinn verða því tæpum 40 milljörðum króna lakari nú en árið 2013. –mm Landsskipulags- stefna og skipu- lagsgerð sveitar- félaga BORGARNES: „Skipulags- stofnun kynnir auglýsta til- lögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 á opnum fundi í Landnámssetrinu Borgarnesi mánudaginn 19. janúar n.k. kl. 15-17. Á fundinum verður til- lagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun að- alskipulags. Jafnframt verður bein útsending frá kynningu í Reykjavík 29. janúar kl. 15-17 og má sjá hana á heimasíðu Skipulagsstofnunar. Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgi- skjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyr- irliggjandi áætlanir, má nálgast á www.landsskipulag.is og www. skipulagsstofnun.is, en frest- ur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015,“ segir í til- kynningu frá Skipulagsstofnun. –mm Skipakom- um fækkar en brúttótonn- afjöldi eykst FAXAFLÓI: Í samantekt um skipakomur hjá Faxaflóa- höfnum á síðasta ári kemur fram að heildarfjöldi skipa yfir 100 brúttótonn sem komu til hafna á árinu 2014 var 1.406 og er það fækkun um 66 skip frá árinu 2013. Hins vegar eykst brúttótonnafjöldinn um 408.000 tonn og var árið 2014 samtals 9.117.949 tonn. Í til- kynningu á heimasíðu Faxa- flóahafna segir að athyglisverð þróun hafi verið í skipakom- um undanfarin ár. Helst beri að nefna að eftir hrun fækk- aði komum flutningaskipa en þeim hefur fjölgað aftur og fiskiskipum hefur fækkað, þó svo að brúttótonnafjöldi þeirra hafi aukist verulega. Þá hefur orðið fjölgun í komum skemmtiferðaskipa og stærð þeirra aukist verulega síðustu ár. Þróun í komum fiskiskipa er athyglisverð að því leyti að komum þeirra hefur fækkað en stærð þeirra vaxið. Þann- ig hefur frá árinu 2010 fækk- að komum fiskiskipa um 18% eða um 129 komur á meðan brúttótonn þeirra hefur auk- ist um 7% eða um tæp 56.000 tonn. –þá Íbúum fjölgar á ný GRUNDARFJ: Grundfirð- ingum hefur fjölgað um lið- lega 3% frá upphafi árs- ins 2014. Þann 1. desember 2013 voru þeir 872 talsins og höfðu ekki verið færri í 21 ár, frá 1992. Frá því ári hafa íbú- ar í Grundarfirði verið um og yfir 900 talsins, flestir árið 2006 þegar 975 manns bjuggu í sveitarfélaginu. Nú hefur aft- ur á móti fjölgað á nýjan leik og í upphafi árs voru Grund- firðingar aftur orðnir 900 tals- ins. –grþ Veggjaldið hækkar ekki þrátt fyrir hærri virðisaukaskatt Veggjald í Hvalfjarðargöngum breytist ekki í byrjun árs 2015 þrátt fyrir að virðisaukaskattur á veggjöld hafi verið hækkaður úr 7% í 11% á nýársdag. Viðskiptavinir Spal- ar njóta þess á þann hátt að um- ferðin hefur aukist, segir í tilkynn- ingu á heimasíðu fyrirtækisins. Bú- ast hefði mátt við hækkun veggja- lds núna í ársbyrjun í samræmi við aukna gjaldheimtu ríkisins en stjórn Spalar ákvað í desember að láta félagið taka virðisaukaskatts- hækkunina á sig í stað þess að velta henni yfir á viðskiptavini sína. Um- ferðin í göngunum var nokkru meiri á árinu 2014 en reiknað var með og tekjurnar að sama skapi umfram áætlun. Viðskiptavinirn- ir njóta þessarar stöðu mála með því að greiða óbreytt veggjald. Í tilkynningu Spalar segir einnig að ætla megi að ríkissjóður innheimti um 45 milljónir króna til viðbótar af ársumferð í Hvalfjarðargöngum með því að hækka virðisaukaskatt úr 7% í 11%. þá Hreinsað verður upp úr hættulegum vegarskurðum við Akrafjallsveg Í sífelldum leysingum að undan- förnu hafa vegarskurðir við Akra- fjallsveg, í flóanum norðan Akra- fjalls, verið fullir af vatni. Glöggur lesandi Skessuhorns hafði samband við ritstjórn og benti á að barma- fullir skurðir af þessu tagi væru mikil slysagildra. Ef bíll lenti útaf veginum og hafnaði t.d. á hvolfi í skurðum sem þessum þyrfti ekki að spyrja að leikslokum. Þarna væri eðja og vatn og afar erfitt að komast upp úr dýi af þessu tagi. Magnús Valur Jóhannsson um- dæmisstjóri Vegagerðarinnar á Norðvestursvæði segir aðspurð- ur að fullir vegaskurðir hafi ver- ið talsvert til umræðu innanhúss hjá Vegagerðinni ásamt reynd- ar allmörgum sambærilegum mál- um. „Þessir vegaskurðir eru víða til vandræða og mínir menn hafa tölu- verðar áhyggjur vegna viðhalds- leysis, þ.e. hreinsunar þeirra. Við höfum mjög lítið fjármagn til að sinna verkefnum sem þessum, en ætlum hins vegar að láta hreinsa upp úr skurðinum við Akrafjalls- veginn eins fljótt og kostur er,“ seg- ir Magnús Valur. Hann bætir við að nú sé komið nýtt fjárhagsár og þá skapist svigrúm til þess. „Þetta er töluverð aðgerð að hreinsa upp úr þessum skurðum þar sem aka verð- ur með allt efni í burtu vegna hita- veituleiðslunnar sem er á skurð- bakkanum.“ mm Festu þakplötur á Sjóbúðum Björgunarsveitin Lífsbjörg var í há- deginu síðastliðinn fimmtudag köll- uð út vegna þess að þakplötur voru farnar að losna af Sjóbúðum við Ólafsbraut. Fenginn var skotbónu- lyftari til að komast upp á þak. Bál- hvasst var meðan verkið var unn- ið en á myndinni má sjá Viðar Haf- steinsson formann Lífsbjargar og fé- laga hans að störfum. þa Svona leit skurðurinn út við veginn á móts við Herdísarholt í síðustu viku. Verkið er afar kostnaðarsamt þar sem heitavatnsleiðslan er á skurðbakkanum og því þarf að aka öllu efni burtu.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.