Skessuhorn - 14.01.2015, Síða 7
7MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015
Nám í svæða- og
viðbragðsskóla Þórgunnu
Vorönn hefst þriðjudaginn 3. febrúar kl. 18.00 – 21.00
Kennsla eitt kvöld í viku
Tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga
á að starfa sjálfstætt
Námið er viðurkennt af S.M.F.Í. og
B.Í.G. og er niðurgreitt af stéttarfélögum.
Nánari upplýsingar á heilsusetur.is og í síma 896 9653
Kennslustaður er Ástu-Sólliljugata 7, Mosfellsbæ
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
H E I L S U S E T U R
Þ Ó R G U N N U
Skagfirskur vélstjóri hund-
óánægður með Akraneshöfn
„Þetta er lélegasta höfn á landinu.
Það er bara þannig. Sogið hér í
höfninni er þvílíkt að það er ekki
hægt að binda skip hér ef eitthvað
er að veðri. Við erum búnir að vera
hér margar nætur og daga í end-
um síðan við komum með skipið
hingað inn. Legan hér er búin að
kosta okkur mörg hundruð þús-
und í landfestatógum. Skipið hef-
ur hreinlega slitið spottana af sér,“
segir Óli Sigurjón Pétursson vél-
stjóri á togaranum Málmey SK.
Eins og sjá má er þessi reyndi vél-
stjóri langþreyttur á því sem hann
telur afleit hafnarskilyrði á Akra-
nesi og hann tjáir sig um það á
ósviknu sjómannamáli.
Telur aðstöðuna
alveg hroðalega
Málmey SK hefur legið yst við
stóra hafnargarðinn svokallaða í
Akraneshöfn frá því skipið kom úr
miklum endurbótum í Póllandi nú
laust fyrir jól. Á Akranesi er verið
að setja um borð búnað frá Skag-
anum og 3X-Technology sem á
gerbylta meðhöndlun fiskjar um
borð í fiskiskipum. Tíðir umhleyp-
ingar með stormum hafa hins veg-
ar leikið Málmeyna grátt þar sem
skipið liggur við bryggjuna. Það
kom nýmálað og fínt frá Póllandi
en nú sér verulega á málningunni
á stjórnborðssíðu þess sem ligg-
ur upp að hafnargarðinum. Tveir
landgangar skipsins hafa orðið fyr-
ir skemmdum. Sjómenn í áhöfn
Málmeyjar hafa á orði að ókyrrðin
sé mikil þarna í höfninni þar sem
sjórinn sogast inn og út um hafn-
arkjaftinn. „Fyrstu nóttina eftir að
við komum hingað í desember þá
stóð til að við færum hreinlega í
burtu héðan. Sogið í höfninni var
svo mikið. Skipstjórinn var tilbú-
inn að setja í gang og keyra í burt.
Að bjóða mönnum upp á þetta
er alveg hroðalegt. Koma hing-
að með skip og ætla að stoppa hér
í nokkrar vikur til endurbóta og
þurfa svo að gera við skipið þegar
maður kemur heim. Faxaflóahafnir
ættu að vera skaðabótaskyldar fyr-
ir að bjóða mönnum upp á svona
hafnaraðstöðu,“ segir Óli Sigurjón
Pétursson vélstjóri á Málmey. „Ég
er búinn að vera hér í þrjár vik-
ur og hef verið hér flestar nætur í
spottum. Ég er ekki ánægður.“
Suðvestanáttin vanda-
mál í Akraneshöfn
Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa-
flóahafna segir að það sé ekk-
ert nýtt að ókyrrð sé í Akranes-
höfn þegar stífar suðvestanáttir
hafa geisað í Faxaflóa. „Þetta hef-
ur í sjálfu sér verið þekkt um ára-
tugaskeið. Því er þó ekki að neita
að við höfum heyrt menn sem hafa
ekki eða lítt komið til hafnarinn-
ar kvarta yfir ókyrrð við þessar að-
stæður. Þeir sem þekkja til eru hins
vegar vanir að gera viðeigandi ráð-
stafanir með skip sín varðandi það
að binda þau betur og þess háttar,“
segir Gísli.
Hafnarstjórinn bendir á að
Faxaflóahafnir hafi reyndar ný-
lega unnið í því að reyna að draga
úr sogi og ókyrrð í Akraneshöfn.
„Á síðasta ári var farið í verulegar
dýpkunarframkvæmdir í höfninni.
Hafnarkjafturinn var til að mynda
dýpkaður einmitt til að fara að
ráðum um að slíkt myndi draga úr
ókyrrð inni í sjálfri höfninni. Mið-
að við það sem þeir segja á Málm-
ey þá er nokkuð ljóst að þetta hef-
ur ekki dugað alfarið til að þessi
vandamál væru úr sögunni. Suð-
vestanáttin er Akkilesarhæll Akra-
neshafnar,“ segir Gísli Gíslason
hafnarstjóri. mþh
Óli Sigurjón Pétursson vélstjóri á
Málmey SK segir Akraneshöfn þá
lélegustu á landinu og hann hefur
heimsótt þær margar.
Málmey SK við bryggju á Akranesi.
Skipið hefur legið fremst við stóra
hafnargarðinn, meðal annars vegna
þess að önnur bryggjupláss voru upp-
tekin á meðan uppsjávarskip lágu í
höfn í nóvember og desember.
Framtíð háskóla í Borgarbyggð
Ráðstefna föstudaginn 30. janúar frá kl. 9:30 – 14:30 í Hjálmakletti
Ráðstefna um framtíð háskóla í Borgarbyggð verður haldin í Hjálmakletti í Borgarnesi, föstudaginn
30. janúar næstkomandi. Ráðstefnan er haldin í samstarfi Borgarbyggðar, Háskólans á Bifröst,
Landbúnaðarháskóla Íslands, Snorrastofu og Framfarafélags Borgfirðinga.
Á ráðstefnunni verður fjallað um framtíð háskóla í Borgarbyggð og hvernig styrkja megi starfsemi
þeirra. Meðal gesta verður Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra.
Dagskrá auglýst nánar síðar.
Framfarafélag
Borgfirðinga
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið við Vesturgötu
1. deild karla
Fimmtudaginn 15. janúar kl. 19:15
ÍA – HAMAR
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!