Skessuhorn - 14.01.2015, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015
Í jólablaði Skessuhorns var viðtal
við Elsu Fanneyju Grétarsdóttur
lista- og víkingakonu úr Grundar-
firði. Þar var meðal annars sagt frá
því að Elsa Fanney og fjölskylda
hennar ætti von á öðruvísi jólum en
alla jafnan en Elsa og eiginmaður
hennar, Markús Ingi Karlsson, áttu
von á sínu fjórða barni 30. desemb-
er síðastliðinn. Drengurinn litli lét
bíða aðeins eftir sér og fæddist ekki
fyrr en á þrettándanum. „Hann beið
eftir álfunum,“ sagði Markús Ingi
brosandi þegar blaðamaður Skessu-
horns kíkti í heimsókn til hjónanna
þar sem þau voru í góðu yfirlæti á
fjölskylduherbergi kvennadeildar
HVE á Akranesi stuttu eftir fæð-
inguna.
Sprengdu tertu á
bryggjunni
Að sögn Elsu Fanneyjar gekk fæð-
ingin mjög vel. „Þetta gekk rosa-
lega vel þegar það fór loksins eitt-
hvað að gerast. Við vorum búin að
vera hérna á Skaganum frá settum
degi,“ sagði hún. Elsa Fanney fór í
mæðraskoðun þann dag og þótti þá
líkleg til að eiga barnið stuttu síð-
ar. „Þær vildu því ekki hleypa okkur
heim. Enda er veðrið búið að vera
leiðinlegt og maður nennir kannski
ekki að taka sénsinn á að vera að
keyra á milli í vondu veðri þeg-
ar maður er alveg að fara af stað,“
útskýrði hún. En biðin varð lengri
en verðandi foreldrarnir áttu von á,
enda fæddist drengurinn ekki fyrr
en viku eftir settan dag. Það voru
því ekki bara jólin sem urðu öðru-
vísi en vanalega hjá fjölskyldunni
við Hrannarstíg 4, heldur áramótin
einnig. Foreldrarnir voru með her-
bergi í læknabústað HVE á með-
an á biðinni stóð en eldri börnin
biðu hjá ömmu og afa í Grundar-
firði á meðan „Það var góð aðstaða
í læknabústaðnum og fínt að geta
hlaupið hingað yfir, beint á deild-
ina,“ útskýrir Elsa Fanney. „Ára-
mótin voru allt öðruvísi en maður
er vanur. Við keyptum þó eina tertu
og sprengdum hana á bryggjunni.
Við kíktum þangað, meðal ann-
ars til að sjá áramótin í Reykjavík.
Svo fengum við okkur Júmbó sam-
loku,“ segja þau. „Við höldum okk-
ar áramót þegar við komum heim.
Steikin bíður í ísskápnum heima,“
bætir Markús við.
Síminn hringdi mikið
Elsa Fanney segir að biðin eftir
barninu hafi reynt aðeins á þolin-
mæðina. „Við sáum konur koma í
læknabústaðinn. Svo kviknaði stuttu
síðar ljós á fæðingastofunni,“ seg-
ir Elsa Fanney og hlær. Reynt var
að flýta fæðingunni hjá Elsu Fann-
eyju með því að hreyfa við belgnum
en án árangurs. Það var ekki fyrr en
6. janúar kl. 18:23, eftir að belgur-
inn var sprengdur, að litli drengur-
inn kom í heiminn 3.860 grömm að
þyngd og 54 sentímetra langur. Það
voru þó ekki bara foreldrarnir og
systkini sem biðu spennt eftir fæð-
ingu barnsins. Mikil spenna mynd-
aðist í Grundarfirði og víðar um
landshlutann. „Það voru allir farn-
ir að bíða eftir barninu. Síminn er
búinn að hringja mikið undanfarna
daga, sérstaklega eftir að komið var
fram yfir settan dag,“ segir Markús.
Sagt var frá því nýverið að Grund-
firðingum hefði fjölgað um liðlega
3% frá upphafi árs í fyrra. Þegar sú
frétt var skrifuð voru Grundfirð-
ingar akkúrat 900 talsins, það má
því kannski segja að litli víkingur-
inn hafi verið númer 901. Þá er von
á öðru litlu víkingabarni í Grund-
arfirði fljótlega. „Vinur okkar úr
víkingafélaginu Glæsi á von á sér í
febrúar. Það verður því örugglega
svakalega gaman í sumar,“ segja
foreldrarnir nýbökuðu að endingu.
grþ
Á bæjarstjórnarfundum í Grundar-
firði hefur verið komið á vinalegri
hefð. Þar hefst hver fundur á því að
allir nýir Grundfirðingar eru boðnir
velkomnir í heiminn og þeirra sem
hafa látist er minnst. Sigurborgu
Kr. Hannesdóttur fyrrum forseta
bæjarstjórnar datt í hug að koma
þessari hefð á þegar hún tók við
embættinu á síðasta kjörtímabili.
Hún tók upp þá venju að nýburar
yrðu boðn-
ir velkomn-
ir með lófa-
taki og að ris-
ið yrði úr sæt-
um fyrir þeim
sem hafa látist
og þeim vott-
uð virðing.
Þá voru einn-
ig höfð nokk-
ur orð um
þá látnu, um
hverju fólk
hafði helst
sinnt í lífinu. „Styrkur lítilla samfé-
laga er að hver einstaklingur vegur
mun þyngra en í þeim stærri. Mér
finnst mikilvægt að fólk sé meðvit-
að um það. Ég kynntist starfi í Wa-
les, þar sem unnið er með meðvit-
aðri hætti að því hvernig við byggj-
um upp samfélög. Þar er sterk vit-
und um að fagna hverjum nýjum
og kveðja þá sem hafa kvatt okkur.
Ég hef mestan hluta ævinnar búið í
litlum samfélögum og mér er hug-
leikið hvað allir skipta miklu máli,“
segir Sigurborg aðspurð um hvern-
ig það kom til að henni datt þessi
gjörningur í hug.
Feimin fyrst
Hún segist þó hafa verið örlít-
ið feimin þegar hún gerði þetta í
fyrsta sinn í þáverandi bæjarstjórn.
„Ég vissi í raun ekki hvernig fólk
myndi taka í þetta. En ég ákvað að
kýla bara á þetta. Fólk var aðeins
feimið við þetta fyrst en það bráði
mjög fljótt af. Mér fannst þetta
rosalega gott þegar fólk var orðið
vant þessu.“ Hún bætir því við að
á síðasta bæjarstjórnarfundi henn-
ar hafi henni þótt vænt um þegar
einn af bæjarfulltrúunum reis úr
sæti og til-
kynnti að
hann vildi
að þess-
ari hefð
yrði hald-
ið áfram,
með góð-
um und-
i r t e k t u m
annarra á
fundinum.
„Mannlegi
vinkillinn í
pólitíkinni
má ekki gleymast,“ segir hún.
Gefa sængurgjafir
Þá má geta þess að nýburar í
Grundarfirði eru einnig boðn-
ir velkomnir með öðrum hætti.
Grundarfjarðarbær færir ný-
fæddum börnum í Grundarfirði
sængurgjöf í nafni samfélagsins.
„Það er gert í samræmi við fjöl-
skyldustefnuna sem samþykkt var
árið 2006. Það er gert í samstarfi
við starfsmenn heilsugæslunnar.
Þannig að einu sinni á ári koma
öll börn sem fæddust á árinu og
foreldrar þeirra saman og þar er
gjöfin afhent og þeir boðnir vel-
komnir,“ segir Sigurborg að lok-
um.
grþ
Þriðjudaginn 6. janúar, á þrett-
ándanum, kom upp eldur í húsakynn-
um vélsmiðju Jötunstáls á Breiðinni á
Akranesi. Starfsmenn fyrirtækisins
kölluðu Slökkvilið Akraness og Hval-
fjarðarsveitar til strax og eldsins varð
vart. Greiðlega gekk að slökkva. All-
nokkrar hita- og sótskemmdir urðu
á húsnæðinu. Allar rafmagnslagnir
eyðilögðust sem og flest rafmagns-
tæki. Starfsmenn Jötunstáls vinna nú
að því að hreinsa húsakynni vélsmiðj-
unnar, mála og koma öllu í gott horf
svo starfsemin geti hafist að nýju.
Eldsupptök eru ókunn en það
kviknaði í ruslafötu. „Báðir starfs-
menn okkar voru í kaffi þegar eld-
urinn kviknaði. Kaffistofan er yfir
verkstæðinu og þeir fundu einhverja
skrítna lykt. Þegar þeir komu nið-
ur logaði þar eldur. Það var ekk-
ert annað fyrir þá að gera en koma
sér út og kalla á slökkvilið enda voru
einir níu gaskútar hérna. Þeir gerðu
rétt í því. Eignatjón er eitt en ann-
að ef menn hefðu slasast. Sem bet-
ur fer gerðist það ekki og slíkt er fyr-
ir öllu,“ sögðu eigendur Jötunstáls
þeir Birgir Fannar Snæland og Stur-
laugur Agnar Gunnarsson við blaða-
mann Skessuhorns daginn eftir brun-
ann. Tjónið hjá Jötunstáli er töluvert
bæði vegna sóts og hita og meira en
virtist við fyrstu sýn. Af ummerkjum
má sjá að það varð greinilega mik-
il hitamyndun í húsnæðinu þótt eld-
urinn yrði aldrei mikill. „Sennilega
hafa orðið skemmdir á rafmagnstækj-
um og þau jafnvel ónýt. Allt rafmagn
í húsnæðinu er ónýtt og þarf að end-
urnýja,“ sögðu þeir félagar og bættu
við að þeir hefðu brunatryggt.
Lá við stórbruna
Það mátti ekki miklu muna að færi
miklu verr. Tréverk innanhúss sviðn-
aði og lá við íkveikju í því. Augljóst
var á sumum gaskúta vélsmiðjunnar
að þeir lentu í verulegum hita sem
myndaðist í húsinu áður en slökkvi-
liðið réði niðurlögum eldsins. „Við
vissum nákvæmlega hvar allir gas-
kútarnir stóðu og gátum leiðbeint
slökkviliðinu. Hér voru líka allar
merkingar í góðu lagi. Slökkvilið-
ið kom fljótt og liðsmenn þess gátu
gengið að skiltum sem sögðu að hér
væru gaskútar og hvernig efni væri í
þeim. Það að ekki fór verr má með-
al annars þakka því að menn voru
hér þegar eldurinn kom upp og
kallað var strax á slökkviliðið sem
brást fljótt við. Við vitum ekki hvað
kveikti eldinn en hann kom upp í
rusli. Þeir höfðu náttúrulega verið
að vinna þarna við rafsuðu og slíkt
og það gæti hafa hlaupið neisti í eitt-
hvað.“
Aftur í rekstur sem fyrst
Enn var unnið að hreinsun í húsa-
kynnum Jötunstáls í byrjun þessar-
ar viku. Eigendurnir segjast hvergi
af baki dottnir þrátt fyrir þetta áfall.
Þeir stefna á að koma rekstrinum aft-
ur af stað í lok þessarar viku. „Verk-
efnastaðan hjá okkur hefur verið
góð, okkur gekk vel á síðasta ári. Við
höfum starfað fjórir hér í vetur en í
fyrrasumar þegar mest var að gera
við að útbúa bátaflotann til markíl-
veiða vorum við tólf talsins. Nú vor-
um að vinna í innréttingum fyrir
nýtt hesthús. Þetta er áfall en við lát-
um ekki bugast af þessu. Við ætlum
okkur að ná rekstrinum á skrið aftur
sem allra fyrst. Byrjað verður í þeim
helmingi húsnæðisins sem slapp bet-
ur frá brunanum og síðan hinum
megin,“ sögðu þeir Birgir og Stur-
laugur þegar Skessuhorn leit við hjá
þeim á mánudagsmorgun. mþh
Nýjum Grundfirðing-
um fagnað með lófataki
Litli víkingurinn í
Grundarfirði fæddur
Foreldrarnir Markús Ingi Karlsson og Elsa Fanney Grétarsdóttir með yngsta
soninn.
Verulegt brunatjón hjá Jötunstáli á Akranesi
Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kom fljótt á vettvang með öflugt lið og
bíla. Til öryggis voru sjúkrabílar einnig kallaðir út.
Húsnæðið fylltist af þykkum svörtum reyk og greinilegt að mikil hitamyndun
hefði orðið innandyra. Það skapaði hættuástand því fjölmargir gaskútar voru í
vélsmiðjunni.
Illt var umhorfs í húsnæði Jötunstáls
eftir brunann.
Starfsmenn Jötunstáls við hreinsunarstörf á mánudaginn. Frá vinstri: Grzegorz
Palinski, Birgir Fannar Snæland, Sturlaugur Agnar Gunnarsson og Stefán Örn
Guðmundsson.