Skessuhorn - 14.01.2015, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015
Bræður og vinur þeirra að leika
sér saman í fótbolta í Nauthóls-
vík í Reykjavík þótti besta mynd-
in í ljósmyndakeppni sem Knatt-
spyrnusamband Íslands stóð að í
samstarfi við bakjarla sína. Um er
að ræða leik þar sem fólk merkti
myndir með merkinu #fotboltavin-
ir á Instagram en myndirnar áttu að
sýna einhver skemmtileg augnablik
sem tengjast fótbolta. 1134 myndir
voru merktar #fotboltavinir og fékk
ljósmyndarinn Baldur Kristjánsson
það vandasama verkefni að velja
þrjár myndir og sigurmyndina. Eft-
ir mikla yfirlegu og skoðun var nið-
urstaðan sú að mynd af tveimur
bræðrum ásamt vini þeirra var valin
sem sú mynd sem sýndi á skemmti-
legan og lifandi hátt fótbolta í sinni
tærustu mynd. Ljósmyndarinn er
pabbi bræðranna sem prýða mynd-
ina en hann heitir Gauti Einarsson
og býr á Akureyri.
Verðlaunin er ekki af verri end-
anum en Gauti fær ferð fyrir tvo
á útileik með íslenska landslið-
inu sem verður annað hvort leik-
ur gegn Hollandi eða Tyrklandi.
Hugtakið Fótboltavinir nær yfir
samstarf KSÍ við bakhjarla sína sem
eru Landsbankinn, N1, Icelandair,
Borgun og Íslensk getspá. Það var
að frumkvæði þeirra að vinna þetta
skemmtilega verkefni í sameiningu
sem öflug liðsheild.
mm
Bresi tók á móti liði Grundarfjarð-
ar í 1. deild í blaki kvenna síðasta
sunndag í íþróttahúsinu að Jaðars-
bökkum á Akranesi. Þessi leikur
átti upphaflega að vera fyrir ára-
mót en honum varð að fresta vegna
óveðurs sem þá geisaði. Leikmenn
beggja liða ætluðu að selja sig dýrt
og jafnræði var með liðunum í byrj-
un fyrstu hrinu en þegar leið á náðu
gestirnir að sigla fram úr og sigr-
uðu hrinuna 16:25 og komust þar
með í 0:1 forystu. Í annarri hrinu
var það sama upp á teningnum.
Jafnræði var með liðunum en svo
sigu gestirnir fram úr og kláruðu
hrinuna 19:25 og komust þar með
í 0:2. Sama sagan var í þriðju hrinu
en henni lyktaði með sigri gestanna
16:25 sem tryggðu sér með því 0:3
sigur og skutust á toppinn í deild-
inni. UMFG situr því í fyrsta sæti
með 16 stig líkt og Afturelding en
með fleiri hrinur unnar. Bresi er
sem fyrr á botni deildarinnar með 3
stig þrem stigum minna en Stjarn-
an sem er í því næstneðsta.
tfk
Knattspyrnudeild Skalla-
gríms og Sigurður Þórir
Þorsteinsson hafa komist að
samkomulagi um að hann
taki að sér þjálfun meist-
araflokks karla hjá félaginu.
Sigurður er öllum hnútum
kunnur í knattspyrnunni en
þjálfaraferill hans spannar
rúmlega þrjá áratug. hann
hefur starfað sem meistara-
flokksþjálfari hjá ÍR, Breiða-
blik og Aftureldingu, yfirþjálfari hjá
Fylki og undanfarin ár hefur hann
verið formaður knattspyrnuþjálf-
arafélags Íslands. „Knatt-
spyrnudeild Skallagríms lít-
ur á ráðningu Sigurðar sem
metnaðarfullt skref fyrir
knattspyrnuna hér í Borg-
arnesi og eru miklar vonir
bundnar við hann. Knatt-
spyrnudeild Skallagríms
býður Sigurð velkominn
til starfa,“ segir Ívar Örn
Reynisson formaður deild-
arinnar.
mm
Síðbúnar þrettándaskemmtanir
Borgnesingar kvöddu jólin síðdegis á laugardaginn. Borgarbyggð og björgunarsveitin Brák stóðu saman að fallegri stund í
Englendingavíkinni en sprengt var í Litlu-Brákarey. Ljósm. gj.
Á laugardaginn var kveikt í þrettándabrennu í Grundarfirði, en líkt og á öðrum stöðum varð að fresta því 6. janúar vegna
veðurs. Bálkösturinn var myndarlegur og bauð foreldrafélagið upp á heitt kakó fyrir alla. Þá mættu álfar og aðrar kynjaverur
eins og venjan er. Loks var björgunarsveitin Klakkur með flugeldasýningu. Ljósm. sk.
Á Akranesi var gengið fylktu liði frá miðbænum að Þyrlupallinum við Jaðarsbakka
þar sem myndarlegur bálköstur var brenndur, sungið og leikið sér. Samkoman fór
fram á föstudagskvöldið enda var að fresta dagskrá þrettándans vegna veðurs.
Veður var ágætt en fremur kalt. Eftir dagskrána á bökkunum var farið í íþrótta-
húsið á Jaðarsbökkum þar sem kjöri íþróttamanns Akraness var lýst, eins og lesa
má um á öðrum stað í blaðinu. Ljósm. mm.
Síðasta laugardag voru jólin kvödd í Snæfellsbæ. Þá blésu Lionsklúbbarnir í Ólafsvík til brennu, skrúðgöngu og flugeldasýn-
ingar í fallegu veðri. Alls kyns furðuverur mættu í skrúðgönguna en fyrir henni fóru álfadrottning og kóngur. Fjöldi fólks var
bæði í göngunni og á brennunni enda veðrið fallegt. Brennunni lauk svo með glæsilegri flugeldasýningu. Ljósm. þa
Í Ólafsvík er hefð fyrir því að furðuverur og púkar fari á stjá um götur Ólafsvíkur
eins og tíðkast hefur um árabil, og biðja um gott í gogginn. Börnin skemmta sér
hið besta. Ljósm. þa.
Barátta við netið í leik Bresa og Grundfirðinga í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum.
Ljósm. jho.
Grundfirskar lögðu Bresa
Bræður og vinur í leik valin
besta stemningsmyndin
Sigurður Þórir ásamt Ívari Erni formanni og nokkrum leik-
mönnum Skallagríms.
Sigurður Þórir ráðinn þjálfari
meistaraflokks Skallagríms