Skessuhorn


Skessuhorn - 14.01.2015, Side 28

Skessuhorn - 14.01.2015, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015 Vörur og þjónusta PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Pennagrein Við áramót í Stykkishólmi Við Íslendingar erum svo vel sett að búa við rótgróið lýðræðisskipu- lag og eiga þess kost að hafa áhrif á stjórnarfar okkar í kosningum. Árið 2014 var ár sveitarstjórnakosninga og geymir minningar um kosningu til bæjarstjórnar í Stykkishólmi. Í kjölfar þeirra tók nýr meirihluti við í bæjarstjórn og undirritaður var ráð- inn til starfa sem bæjarstjóri. Það fellur því í minn hlut að skrifa þess- ar línur í upphafi ársins. Mun ég í þessum pistli gera grein fyrir helstu málum sem ég hef fengist við með bæjarfulltrúum og starfsmönnum bæjarins á síðasta ári og þau verk- efni sem eru á mínu borði við upp- haf ársins 2015. Breyttar áherslur í bæjarstjórn Í aðdraganda kosninganna setti H- listinn fram skýra stefnu sem er ætl- að að styrkja stöðu samfélagsins og stuðla að því að atvinnulífið eflist svo standa megi undir þeim marghátt- uðu verkefnum sem sveitarfélögum er ætluð. Til þess að takast á við það verkefni þurfti bæjarstjórn að efna til uppstokkunar við rekstur bæjar- ins. Þær aðgerðir munu taka tíma en eru nauðsynlegar því tekjur hafa ekki dugað fyrir útgjöldum mörg undanfarin ár og það ógnar starf- semi bæjarfélagsins. Óvissa í fjár- málastjórn kann ekki góðri lukku að stýra til langframa og því eru breytt- ar áherslur í rekstri og við fjármála- stjórn nauðsynlegar svo styrkja megi og efla efnahag bæjarins. Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2015 afgreidd í bæjarstjórn Fjárhagsáætlun Stykkishólmsbæj- ar fyrir árið 2015 var samþykkt á síðasta bæjarstjórnarfundi fyrir jól. Mikil vinna var lögð í gerð fjár- hagsáætlunar og náið samráð haft við forstöðumenn stofnana bæjar- ins. Þær tillögur sem unnið var með eru byggðar á úttekt Atvinnuráð- gjafar Vesturlands og ráðgjafastof- unnar R3-ráðgjöf. Reyndir ráðgjaf- ar voru fengnir til þess að gera út- tekt á rekstri bæjarins og leggja fram tillögur um fjárhagslega og rekstr- arlega endurskipulagningu til sam- ræmis við þær athugasemdir sem Eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfé- laga gerði með bréfi, dags. 28. ágúst sl. en nefndin hafði áður sent bréf og gert athugasemdir um rekstur sveit- arfélagsins. Allar aðgerðir miða að því marki að koma böndum á vöxt útgjalda og nýta sem best þær tak- mörkuðu tekjur sem bæjarsjóð- ur hefur en útgjöld á hvern íbúa í Stykkishólmi eru há miðað við sam- bærileg sveitarfélög og starfsmenn mun fleiri en er hjá sveitarfélögum af svipaðri stærð. Auknar kröfur til fjár- málastjórnar sveitar- félaga Með sveitarstjórnarlögum sem tóku gildi 1. janúar 2012 var sveitarfé- lögum sett ströng viðmið um af- komu og fjárhagsstöðu. Má þar helst nefna kröfu um jákvæða sam- anlagða rekstrarniðurstöðu á þriggja ára tímabili og að heildarskuldir og skuldbindingar A og B hluta sveit- arsjóðsverði ekki hærri en 150% af reglulegum tekjum. Stykkishólms- bær þarf eins og önnur sveitarfélög að taka tillit til þessa í áætlunum sín- um fyrir árið 2015. Gert er ráð fyr- ir að skuldaprósenta sveitarfélags- ins verði um 131,6% á árinu 2015. Samkvæmt áætlun mun Stykkis- hólmsbær halda jákvæðri rekstrar- niðurstöðu á þriggja ára tímabili og því uppfylla reglur. Erum á réttri leið Bæjarstjórn hefur með afgreiðslu fyrstu fjárhagaáætlunar þessa kjör- tímabils markað skýra stefnu, stefnu aðhalds og varfærni í útgjöldum og fjárfestingum. Þegar Eftirlitsnefndinni um fjár- mál sveitarfélaga hafði verið kynnt- ar ákvarðanir bæjarstjórnar um fjárhaglega og rekstrarlega endur- skipulagningu barst bréf frá nefnd- inni þar sem segir m.a: „EFS hefur yfirfarið upplýsing- ar sveitarfélagsins og er það niður- staða nefndarinnar að óska ekki eft- ir frekari upplýsingum vegna fyr- irspurnar þessarar. Jafnframt tel- ur nefndin það góða og ábyrga af- stöðu bæjarstjórnar að leita eftir áh- áðri ráðgjöf vegna mögulegrar hag- ræðingar í rekstri sveitarfélagsins.“ Það má því segja að bæjarstjórn sé á réttri leið með þeim ákvörðun- um sem teknar voru við undirbún- ing og afgreiðslu fjárhagsáætlun- ar. Ástæða er til þess að þakka for- stöðumönnum stofnana bæjarins þeirra hlutdeild og frumkvæði við að gæta aðhalds í rekstri, en verk- efninu er ekki lokið. Næsta skref- ið er enn frekari endurskipulagn- ing sem tryggir nauðsynlega hag- kvæmni í rekstri og það mun leiða til fækkunar starfsmanna. Lækkun útsvars og hækkun fasteignagjalds Til að standa undir kostnaði við rekstur sveitarfélagsins var óhjá- kvæmilegt að styrkja tekjustofna þess með hækkun á gjaldskrám sem ekki höfðu fylgt verðlagsþróun og í sumum tilvikum verið óbreytt- ar árum saman. Gjaldskrár hækka að jafnaði um 3,4%. Fasteignamat íbúðarhúsnæðis lækkar að meðaltali um 2,5% og því hefðu fasteigna- gjöld að óbreyttu lækkað. Álagn- ingarstuðlar fasteignagjalda breyt- ast. Í fyrsta lagi hækkar álagningar- stuðull íbúðahúsnæðis úr 0,43% í 0,50%, í öðru lagi hækkar álagning- arstuðull lóðaleigu íbúðarhúsnæðis úr 1,37% í 1,40% og í þriðja lagi hækkar álagningarstuðull holræsa- gjalds íbúðahúsnæðis úr 0,19% í 0,20%. Álagningarstuðull atvinnu- húsnæðis verður óbreyttur. Til að koma til móts við eigendur fast- eigna sem greiða útsvar hefur verið ákveðið að útsvarshlutfall árið 2015 lækki úr 14,52% í 14,37%. Ætti það að geta verið hvatning fyrir þá sem eiga fasteignir hér og gætu einn- ig átt lögheimili og greitt útsvar til Stykkishólmsbæjar. Helstu niðurstöðutölur fjárhags- áætlunar Stykkishólmsbæjar fyr- ir árið 2015 eru þessar: Tekjur A og B hluta eru áætlaðar 1.030,1 m.kr. en rekstrargjöld 913,6 m.kr. Fjár- magnsliðir eru 79,4 m.kr. Tekjur um- fram gjöld verða því um 36,7 m.kr. Handbært fé frá rekstri eru 138,2 m.kr., fjárfestingar 78,350 m.kr., af- borganir langtímalána 143,8 m.kr., lántaka verður 100,0 m.kr. og hand- bært fé í árslok er áætlað 57,5 m.kr. sem er mikil breyting frá síðasta ári þegar einungis voru 130 þúsundir króna handbærar í árslok. Mun það auðvelda mjög alla fjármálastjórn. Framkvæmdir og fjárfestingar Helstu framkvæmdir og fjárfesting- ar eru svo sem hér er tilgreint: Und- irbúningur vegna viðbyggingar við grunnskóla sem hýsi einnig tón- listarskóla og Amtbóksafn, bygging útiklefa við sundlaug, fyrsti áfangi viðgerðar húsnæðis Eldfjallasafns- ins með styrk frá Húsafriðunarsjóði, hönnun og framkvæmdir við Maðka- vík vegna fráveitu, gatnagerð við Hjallatanga og Víkurgötu, lagfær- ing gangstétta, stígagerð meðfram þjóðvegi að Hamraendum, stíga- gerð í Súgandisey, bætt aðgengi við grunnskóla og íþróttahús og sund- laug, endurbætur á bílastæði og að- gengi við Dvalarheimili, endurbæt- ur í ferjuhöfn, deiliskipulag hafnar- svæðis og endurskipagnig bílastæða á hafnarsvæði, deiliskipulag í nýrækt og við Reitarveg, hlutdeild í svæðis- skipulagi og hlutafjárframlag vegna byggingar leiguíbúða. Til þess að fjármagna fram- kvæmdir er gert ráð fyrir eignasölu og er unnið að því að selja húsnæði Amtsbókasafnsins og Tónlistarskól- ans fáist viðunandi tilboð í eignirnar. Jafnframt er sala þessara eigna háð því að áform um nýtingu þeirra fast- eigna verði til atvinnuuppbygging- ar og fjölgi atvinnutækifærum enda um að ræða hús á einstökum lóðum. Nýting þessara húseigna og breyt- ingar á þeim falli að deiliskipulagi bæjarins sem gerir strangar kröfur um húsafriðun og umhverfismál. Önnur mikilvæg verk- efni sem unnið er að Það sem af er kjörtímabilinu hefur verið unnð fullum fetum að ýmsum málum sem munu taka mikinn tíma og flokkast undir að vera meðal mik- ilvægustu verkefna sem á borði bæj- arstjórnarinanr eru. Þar má nefna að tryggja uppbyggingu öldrunarþjón- ustu með sameiningu Dvalarheim- ilis og hjúkrunardeildar Sjúkrahúss HVE. Þau áform eru í samræmi við það samkomulag sem unnið var og sátt ríkir um innan bæjarstjórnar og við ráðuneyti og stjórnendur Heil- brigðisstofnunar Vesturlands. Þess er að vænta að það verkefni fái fjár- veitingu sem hluti af starfsemi HVE þegar ró færist yfir heilbrigðismál- in innan ráðuneyta og á Alþingi. Þá má nefna vinnu við að skipuleggja iðnaðarsvæði vegna þörungavinnslu sem er mjög áhugavert verkefni. Íbúaþróun, atvinnutæki- færi og húsnæðismál Við áramót eru íbúar Stykkishólms 1108. Er því um nokkra fjölgun að ræða á milli ára en mikil hreyfing hefur verið á íbúum s.l. ár. En það er mikilvægt að íbúum fjölgi og bet- ur má ef duga skal. Sú þjónusta sem byggð hefur verið upp í þágu íbúa og atvinnulífsins verður ekki rek- in og jafnframt gerðar kröfur um framþróun nema tekjur aukist og tekjur munu ekki aukast nema at- vinnutækifærum fjölgi. Til þess að manna megi nýjar stöður þarf íbúð- arhúsnæði. Það er því eitt af mikil- vægustu viðfangsefnum þessa árs að tryggja framboð íbúða með því að byggðar verði leigu- og söluíbúð- ir. Að því verki verða að koma ein- staklingar og fyrirtæki í samstarfi við bæinn sem gerir ráð fyrir því að leggja til gatnagerðargjöld sem hlutafjárframlag til félags sem hefði það hlutverk að byggja, selja eða leigja íbúðarhúsnæði. Það er von mín að okkur tak- ist að snúa áralangri vörn til sókn- ar með nýjum atvinnutækifærum og að skelveiðar geti hafist sem fyrst. Samfélagið þarf mjög á því að halda að vel launuð störf verði til á borð við það sem var, þegar skelveiðarnar voru og hétu í atvinnumálum Stykk- ishólms. Gildir einu hvort það verð- ur við veiðar og vinnslu sjávarfangs, ferðaþjónustu, nýtingu þörunga eða aðrar þær arðbæru greinar sem kunna að skjóta rótum. Að lokum er ástæða til þess að óska sýslumanni og starfsfólki hins nýja embætt- is Sýslumanns Vesturlands til ham- ingju með að höfuðstöðvar embætt- isins skuli verða í Stykkishólmi. Það styrkir stöðu Stykkishólms í stjórn- sýslunni. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.