Skessuhorn - 14.01.2015, Page 31
31MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Hafþór Ingi Gunnars-
son hefur verið ráðinn
aðstoðarþjálfari meist-
araflokks Skallagríms í
körfubolta og mun hann
því standa vaktina með
Finni Jónssyni þjálfa
á hliðarlínunni í vet-
ur. Frá þessu er skýrt á
heimasíðu Skallagríms.
Hafþór tekur við kefl-
inu af Brynjari Þór Þor-
steinssyni sem var aðstoðarþjálfari
Péturs Ingvarssonar fyrir áramót.
Hafþór kemur með miklar reynslu
inn í Skallagrímsliðið, enda á hann
að baki langan feril sem leikmaður
í úrvalsdeild. Hann er einn leikja-
hæsti maður meistara-
flokks Skallagríms frá
upphafi. Sem kunnugt
er þurfti hann að leggja
körfuboltaskóna á hill-
una í desember 2013
vegna þrálátra meiðsla.
Ferill Hafþórs í úrvals-
deild spannaði 16 ár
og lék hann lengstum
með Skallagrími, upp-
eldisfélagi sínu, en að
auki nokkur tímabil með Snæfelli
í Stykkishólmi. Hafþór hefur einn-
ig komið að þjálfun yngri flokka í
langan tíma og þjálfar hann í dag
efnilegt lið drengja- og unglinga-
flokks Skallagríms. þá
Snæfellingar lentu í vand-
ræðum með Fjölni þegar lið-
in mættust í Grafarvoginum
í Dominosdeildinni sl. föstu-
dagskvöld. Fjölnismenn voru með
yfirhöndina fram eftir leik en í síðasta leik-
hluta tóku Snæfellingar völdin og náðu að
innbyrða sigur, 88:84. Það kann að hafa sleg-
ið gestina út af laginu að þeir voru seinir á
ferð vegna hálku og vandræða í ferðalaginu
að vestan og seinkaði leiknum um stundar-
fjórðung af þeim sökum.
Fjölnir var með þriggja stiga forskot eftir
fyrsta leikhluta 19:16 og þeir leiddu einnig
með þremur stigum í hálfleik 38:35. Heima-
menn voru áfram með frumkvæðið í leikn-
um í þriðja leikhluta en Snæfellingum tókst
að jafna áður en blásið var til lokafjórðungs í
stöðunni, 59:59. Þá var það Snæfell sem tók
öll völd á vellinum undir handleiðslu Aust-
in Bracey sem skoraði fyrstu sjö stig á loka-
kaflanum og dreif liðsfélaga sína með sér.
Reynsla Snæfells réð því að þeir héldu sjó
eftir mörg áhlaup Fjölnis, sem hefðu getað
jafnað í lokin og sent leikinn í framlengingu.
Klókindi gestanna kom í veg fyrir það og sig-
urinn var því þeirra.
Chris Woods skoraði 24 stig fyrir Snæfell,
Sigurður Á Þorvaldsson 23, Austin Bracey
18. Snæfellingar sækja Hauka heim á Ásvelli
í næstu umferð og fer leikurinn fram annað
kvöld, fimmtudagskvöldið 15. janúar.
þá
Kvennalið ÍA í fótboltanum byrjar
nýja árið vel. Það lék sinn fyrsta
leik í Faxaflóamótinu gegn Sel-
fossi í Akraneshöllinni síðast-
liðið föstudagskvöld og sigraði 2:1.
Markalaust var í hálfleik en úrvalsdeildarlið Sel-
foss komst yfir snemma í seinni hálfleik. Skaga-
konur sem spila í 1. deildinni næsta sumar svör-
uðu með tveimur mörkum og sigruðu því. Fyrst
skoraði Unnur Ýr Haraldsdóttir eftir stoðsendingu
frá Maren Leósdóttur. Þegar um fimm mínútur
voru eftir af leiknum fengu ÍA konur hornspyrnu
sem Eyrún Eiðsdóttir tók og eftir klafs í teignum
tókst Birtu Stefánsdóttur að koma boltanum inn
fyrir línuna, 2:1 fyrir ÍA.
Næsti leikur ÍA í Faxaflóamótinu verður laug-
ardaginn 17. janúar gegn Breiðabliki í Kópavogi
en næsti heimaleikur verður föstudaginn 30.
janúar klukkan 19:15 gegn Aftureldingu.
þá
Karlalið ÍA sigraði Þrótt 3:1 á
Fótbolta.net mótinu í Akra-
neshöllinni sl. laugardag. Gest-
irnir náðu forystunni snemma leiks
en Albert Hafsteinsson jafnaði metin fyr-
ir Skagamenn fyrir leikhlé eftir hornspyrnu.
Staðan 1:1 í hálfleik. Fljótlega í síðari hálf-
leik náði Arnar Már Guðjónsson forystunni
fyrir ÍA og Garðar Gunnlaugsson bætti svo
við þriðja markinu og tryggði sigurinn. Loka-
tölur í leiknum 3:1. Aðrir leikir ÍA í Fotbolta.
net mótinu verða gegn Breiðabliki í Fífunni
nk. laugardag 17.janúar kl 10:30 og gegn FH
í Akraneshöllinni laugardaginn 24 janúar kl
11:15. Leikið verður um sæti í mótinu dag-
anna 27.-31. janúar.
þá
Eftir langt jólahlé fóru
Skagamenn á Hlíðar-
enda síðastliðinn föstu-
dag þar sem þeir mættu
Val í fyrstu deildinni í körfu-
boltanum. Úr varð hörkuviðureign
þar sem Skagamenn knúðu fram
70:67 sigur og bættu þar með stöðu
sína í deildinni, eru nú komnir með
tíu stig og sem stendur í fjórða sæti
deildarinnar. Jafnræði var með lið-
unum í fyrsta leikhluta en staðan
eftir hann var 23:22 heimamönn-
um í vil. ÍA var mun betra liðið í
öðrum leikhluta og í hálfleik voru
Skagamenn með ellefu stiga for-
ystu 48:37. Ólíkt mörgum leikjum í
vetur héldu Skagamenn sjó í þriðja
leikhluta, þó síðari hálfleikurinn fari
sennilega ekki í sögubækurnar fyr-
ir frábæran sóknarleik. Báðum lið-
um gekk illa að skora en þó heima-
mönnum verr en gestunum. Stað-
an var 61:46 Skagamönnum í vil
fyrir lokaleikhlutann og litlar vís-
bendingar um að Valsmenn kæmu
til baka. Það gerðu þeir hins vegar
svo um munaði. Þeir skiptu í svæð-
isvörn og pressuvörn allan völl-
inn sem Skagamenn virtust eiga í
miklum erfiðleikum með. Svo virt-
ist sem gestirnir væru að falla í þá
gryfju að ætla að halda forskotinu,
frekar en að auka við það. Vals-
menn skoruðu til að mynda síðustu
átta stigin í leiknum. Lokamínút-
an var æsispennandi en niðurstaðan
eins og áður segir 70:67 fyrir ÍA.
Hjá Skagamönnum var Jamarco
Warren sigahæstur með 19, Ás-
kell Jónsson kom næstur með 16,
Fannar Freyr Helgason 14, Magn-
ús Bjarki Guðmundsson og Ómar
Örn Helgason 8 hvor, Birkir Guð-
jónsson 3 og Þorleifur Baldvins-
son 2.
Í næstu umferð fá Skagamenn
Hamar frá Hveragerði í heimsókn
og fer leikurinn fram í íþróttahús-
inu við Vesturgötu annað kvöld,
fimmtudagskvöldið 15. janúar. þá
Skallagrímsmenn mættu
einbeittir og ferskir til
leiks gegn Keflavík í
tólftu umferð Dominos
deildarinnar í körfubolta
síðastliðið föstudagskvöld. Um
hörkubaráttu var að ræða þar sem
Keflvíkingar sigruðu að lokum með
þriggja stiga mun, 78:75. Mikil
batamerki voru á leik Skallagríms-
liðsins og ljóst að ef spilamennskan
verður svona áfram eru Borgnes-
ingar líklegir til að verja sæti sitt í
úrvaldsdeildinni.
Skallagrímsmenn byrjuðu leikinn
af krafti og voru með yfirhöndina
eftir fyrsta leikhluta 25:21. Liðin
þéttu varnir sínar í öðrum leikhluta
og þá var minna skorað. Borgnes-
ingar voru áfram ívið betri og leiddu
með sex stigum í hálfleik, 40:34.
Skallagrímsmenn byrjuðu betur
í þriðja leikhluta og náðu að auka
forskoti í níu stig strax í byrjun hans
með þremur vítaskotum frá Dav-
íð Ásgeirssyni. Það reyndist mesta
forskot Skallagrímsmanna í leikn-
um. Næstu mínútur tók við slæmur
kafli hjá gestunum og heimamenn
gengu á lagið. Þegar um fimm mín-
útur voru eftir af leikhlutanum var
staðan orðin 60:49 fyrir Keflavík.
Skallagrímsmenn löguðu þó stöð-
una fyrir lok leikhlutans en þá var
hún 64:57 fyrir heimamenn. Skalla-
grímsmenn héldu áfram að saxa á
forskot Keflvíkinga í fjórða leik-
hluta og komst munurinn niður í
tvö stig 69:67. Keflvíkingar náðu að
komst í fimm stiga forskot en undir
blálokin tókst Skallagrímsmönnum
að minnka muninn í eitt stig 76:75
með vítaskotum frá nýja mannin-
um Magnúsi Þór Gunnarssyni þeg-
ar tæp hálf mínúta var eftir. Kefl-
víkingum tókst að bæta við tveimur
stigum þegar ellefu sekúndur voru
eftir af leiknum og það reyndust tvö
síðustu stig leiksins.
Tracy Smith skoraði 23 stig fyr-
ir Skallagrím, Páll Axel Vilbergsson
16, Magnús Þór Gunnarsson 14,
Davíð Ásgeirsson 11, Sigtryggur
Arnar Björnsson 7, Egill Egilsson 3
og Daði Berg Grétarsson 1. Næsti
leikur Skallagríms í Dominosdeild-
inni verður nk. fimmtudagsköld 15.
janúar þegar Grindvíkingar koma í
heimsókn.
þá
Skallagrímsmenn í Borgarnesi fengu
á fimmtudaginn öflugan liðsstyrk. Þá
var skrifað undir samning við Kefl-
víkinginn Magnús Þór Gunnarsson
um að leika með Skallagrími í Dom-
inosdeildinni út leiktíðina. Á sama
tíma voru endurnýjaðir samningar
við tvo aðra bakverði Skallagríms-
liðsins, Davíð Ásgeirsson og Sig-
trygg Arnar Björnsson. Skallagrímur
tefldi fram sínu sterkasta liði á föstu-
daginn þegar Borgnesingar sóttu
Keflvíkinga heim suður með sjó, í
leik sem þeir töpuðu naumlega. Þar
lék Magnús Gunnarsson gegn sínu
uppeldisfélagi sem hann hefur leik-
ið mest með um tíðina. Hann hef-
ur einnig spilað með Njarðvíking-
um og Grindvíkingum, sem hann lék
með núna fyrri hluta vetrar. Skalla-
grímur er fyrsta liðið utan Suður-
nesja sem Magnús leikur með. Hann
hefur verið ein besta skyttan í körfu-
boltanum á Íslandi um langan tíma
og er 34 ára gamall. Gjarnan er tal-
að um hann sem 20 stiga mann í
leik enda er Finnur Jónsson nýráð-
inn þjálfari Skallagríms hress með að
fá hann í raðir Skallagríms. „Heldur
betur er þetta góð viðbót hjá okkur,
eykur gæðin í liðinu og á æfingum,
auk meiri samkeppni,“ segir Finnur
þjálfari. þá
Snæfellskonur virðast illviðráð-
anlegar í Dominsdeildinni og
eru stöðugt að styrkja stöðu
sína á toppi deildarinnar. Á
þrettándanum sigruðu þær Hauka-
konur á Ásvöllum, en Haukarnir hafa ver-
ið eitt þriggja liðanna sem berjast á toppn-
um. Lokatölur urðu 72:61 fyrir Snæfelli sem
er núna með 28 stig og sex stiga forskot á
Keflavík og Hauka. Kristin McCarthy spil-
aði frábærlega í liði Snæfells, skoraði 29 stig
og tók 15 fráköst. Næst kom Hildur Sigurðar-
dóttir með 18 stig, 8 fráköst og 5 stoðsend-
ingar, auk þess að spila frábærlega í vörn-
inni gegn Lele Hardy sem var allt í öllu hjá
Haukum. Í næstu umferð fá Snæfellskonur KR
í heimsókn og fer leikurinn fram í Hólminum
í kvöld, miðvikudag.
þá
Í síðustu viku voru veitt verð-
laun fyrir bestu frammistöðu
í Domino’s deildum karla og
kvenna á fyrri hluta keppnis-
tímabilsins. Í úrvalslið kvennadeildarinn-
ar voru valdar tvær úr toppliði Snæfells, þær
Hildur Sigurðardóttir og Gunnhildur Gunn-
arsdóttir. Aðrar sem valdar voru í liðið eru
Sara Rún Hinriksdóttir Keflavík, Ragna Mar-
grét Brynjarsdóttir Val og Lele Hardy Hauk-
um, sem jafnframt var valin besti leikmaður
deildarinnar. Besti þjálfarinn í kvennadeild-
inni var valinn Ingi Þór Steinþórsson Snæ-
felli. Dugnaðarforkurinn í kvennadeildinni
var Ragnheiður Benónýsdóttir Val. Sigmund-
ur Már Herbertsson var valinn besti dómar-
inn í báðum deildum. KR átti þrjá leikmenn
í úrvalsliði karla og að auki besta þjálfar-
ann, Finn Frey Stefánsson. Besti leikmaður-
inn var: Michael Craion KR og dugnaðarfork-
urinn Sveinbjörn Claessen ÍR.
þá
Karlalið Víkings Ólafsvík tryggði sér um helgina
Íslandsmeistaratitilinn innanhúss í Futsal (knattspyrna
innanhúss) þegar liðið lagði Leikni/KB með fjórum
mörkum gegn engu í úrslitaleik í Laugardalshöll. Varnar-
leikur Víkings var agaður og fengu Breiðhyltingar úr litlu
að moða í leiknum. Það sem að marki kom varði svo
Vignir Snær Stefánsson í marki Víkings. Í undanúrslitum
sigraði Víkingur Fjölni 6:5. Í úrslitaleiknum skoruðu Eyþór
Helgi Birgisson, Kristinn Magnús Pétursson, Brynjar Krist-
mundsson og eitt markanna var sjálfmark Breiðhyltinga.
Víkingur varð því Íslandsmeistari innanhúss í Futsal í
annað skiptið í sögu félagsins en síðast vann liðið árið
2013 eftir spennandi úrslitaleik gegn Valsmönnum. Í
kjölfarið tók Víkingur þátt í Evrópukeppni og var riðill
Víkings leikinn í Ólafsvík. Á heimasíðu Víkings segir að
forvitnilegt verði að fylgjast með hvort forráðamenn
félagsins sækist eftir því að taka þátt þetta árið en það
mun að öllum líkindum liggja fyrir á vormánuðum.
þá
Tvær úr Snæfelli
í úrvalslið
Snæfellskonur með
góðan sigur
Hafþór Ingi Gunnarsson.
Nýr aðstoðarþjálfari
meistaraflokks Skallagríms
Sigur hjá
Skagakonum
Skagamenn
sigruðu Þrótt
Reynslusigur
Snæfellinga
Víkingur Íslands-
meistari í Futsal
Íslandsmeistarar Víkings í Futsal. Efri röð frá vinstri: Antonio Grave, Suad Begic, Tomasz Luba, Eyþór Helgi Birgisson, Steinar
Már Ragnarsson, Kristinn Magnús Pétursson og Ejub Purisevic þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Vignir Snær Stefánsson, Alfreð Már
Hjaltalín, Brynjar Kristmundsson og Emir Dokara. Ljósmynd: Gunnar Örn Arnarson.
Finnur Jónsson þjálfari Skallagríms
býður Magnús Gunnarsson velkominn.
Skallagrímur fær öflugan liðsstyrk
Skallagrímsmenn töpuðu með
litlum mun í Keflavík
Skagasigur á Val í körfuboltanum