Skessuhorn - 21.01.2015, Blaðsíða 9
9MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2015
Nánari upplýsingar á rsk.is
442 1000
Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is
Launamiðar og
verktakamiðar
Skilaskyldir eru allir þeir sem innt
hafa af hendi launagreiðslur,
hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki,
happdrættis- og talnavinninga
(skattskylda sem óskatt skylda),
greiðslur til verktaka fyrir þjón-
ustu (efni og vinnu) eða aðrar
greiðslur sem framtalsskyldar
eru og/eða skattskyldar.
Bifreiðahlunnindamiðar
Skilaskyldir eru allir þeir sem
í rekstri sínum eða annarri
starfsemi hafa haft kostnað af
kaupum, leigu eða rekstri fólks-
bifreiðar.
Hlutafjármiðar
Skilaskyld eru öll hlutafélög,
einkahlutafélög, samlagshluta-
félög, samvinnuhlutafélög og
sparisjóðir.
Viðskipti með hlutabréf
og önnur verðbréf
Skilaskyldir eru bankar, verð-
bréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar
sem annast kaup og sölu,
umboðsviðskipti og aðra um-
sýslu með hlutabréf og önnur
verðbréf.
Bankainnstæður
Skilaskyldar eru allar fjármála-
stofnanir og aðrir aðilar sem taka
við fjármunum til ávöxtunar.
Lánaupp lýsingar
Bankalán, fasteignaveðlán,
bílalán og önnur lán. Skilaskyld-
ar eru allar fjármálastofnanir
(bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir,
tryggingafélög, fjármögnunar-
leigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé
til einstakl inga.
Stofnsjóðsmiðar
Skilaskyld eru öll samlagsfélög,
sameignarfélög og samvinnu-
félög, þ.m.t. kaupfélög.
Takmörkuð skattskylda
- greiðsluyfirlit
Skilaskyldir eru þeir sem innt
hafa af hendi hvers konar
greiðslur til erlendra aðila og
annarra, sem bera takmarkaða
skattskyldu hér á landi.
Greiðslumiðar
– leiga eða afnot
Skilaskyldir eru þeir sem innt
hafa af hendi hvers konar
greiðslur fyrir leigu eða afnot
af lausafé, fasteignum og
fasteignaréttindum eða öðrum
réttindum.
Hlutabréfakaup
skv. kaupréttarsamningi
Skilaskyld eru öll hlutafélög sem
gert hafa kaupréttarsamninga
við starfsmenn sína samkvæmt
staðfestri kaupréttaráætlun.
Sama á við um söluréttar-
samninga.
Fjármagnstekjumiði
Þeir aðilar sem innheimt hafa
vexti skulu skila þessum miða og
tilgreina þar sundurliðun á mót-
takendum og þá staðgreiðslu
fjármagnstekjuskatts sem haldið
hefur verið eftir. Hér er einkum
um að ræða smærri innheimtu-
aðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum
miða er eingöngu hægt að skila
rafrænt.
Vakin er athygli á launamiðareit nr. 405, þar sem færa skal íþrótta- og líkamsræktarstyrki.
Einnig er vakin athygli á launamiðareit nr. 410, þar sem færa skal samgöngustyrki.
Minnt er á að upplýsingum um húsnæðishlunnindi skal skila á launamiða. Húsnæðishlunnindi eru allt að 5% af
fasteignamati íbúðarhúsnæðis 31. des. 2013, sem látið er launþega í té endurgjaldslaust eða með óeðlilega lágu
endurgjaldi. Sjá nánar í lið 2.8 í skattmati ríkisskattstjóra vegna tekjuársins 2014.
Athugið að sameignarfélög og samlagsfélög eiga að skila stofnsjóðsmiða með upplýsingum um
eignarhluti eigenda og úttekt af höfuðstól.
2015
Skil á upplýsingum
vegna
skattframtals
Skilafrestur á eftirtöldum gögnum vegna framtalsgerðar 2015 er til 30. janúar
en þeir sem skila á rafrænu formi hafa þó frest til 10. febrúar 2015