Skessuhorn - 21.01.2015, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2015
Áhugasamir á fjölmennum fundi um náttúrupassann í Borgarnesi
Söguloftið í Landnámssetrinu í
Borgarnesi var þéttskipað síðdeg-
is þriðjudaginn 13. janúar síðast-
liðinn. Ragnheiður Elín Árnadótt-
ir ráðherra atvinnuvega og nýsköp-
unar mætti þar á fund til að gera
grein fyrir tillögum að náttúrupassa
og skiptast á skoðunum við heima-
fólk. Fundurinn var liður í funda-
röð ráðherrans um landið að undan-
förnu. Ragnheiður Elín fór vel yfir
málið og þær hugmyndir og áform
sem liggja að baki náttúrupassanum.
Hann er hugsaður sem tekjustofn til
að standa undir brýnum og nauðsyn-
legum framkvæmdum á fjölförnum
ferðamannastöðum, sem og stuðla
að því að íslenskri náttúru verið skil-
að í sem bestu horfi til komandi kyn-
slóða. Ráðherra kvaðst vongóð um
að almenn sátt væri að myndast um
náttúrupassann í þinginu en vænt-
anlega myndu tillögur um hann taka
einhverjum breytingum á næstunni,
til að mynda vegna þeirra sjónar-
miða sem komið hafa fram hjá fólki
á fundum víðsvegar um land að und-
anförnu. Ráðherra sagði mjög mik-
ilvægt að samstaða ríkti um þetta
mál en stefnt væri að því að frum-
varp um náttúrupassa verði þingfest
seinna í þessum mánuði.
Eins og einn bíómiði
Skiptar skoðanir voru um náttúru-
passann á fundinum og margar fyrir-
spurnir frá breiðum aldurshópi bár-
ust til ráðherrans sem veitti grein-
argóð svör. Ungur námsmaður sem
lagði orð í belg taldi að náttúrupass-
inn væri ekki leið til að auka áhuga
ungs fólks til að ferðast um landið
sitt. Nefnt var hvort náttúrupass-
inn yrði ekki enn eitt eftirlitskerf-
ið til viðbótar. Það innlegg kom frá
Ragnari Frank sveitarstjórnarmanni
í Borgarbyggð. Til mótvægis nefndi
Vífill Karlsson hagfræðingur hjá
SSV að náttúrupassinn væri ekkert
ósvipað fyrirbæri og veiðikortið sem
hann hefði góða reynslu af. Náttúru-
passinn væri líka mjög ódýr, aðeins
eins og einn bíómiði í verði. Fyrst
að flutningur stofnana út á land væri
í umræðunni mætti gjarnan mynda
litla, sæta stofnun um náttúrupass-
ann og þess vegna staðsetja hana í
Borgarfirði, bætti Vífill við á gam-
ansömum nótum. Ráðherra sagði
að þvert á móti væri stefnt að ein-
földu kerfi og ekki einu eftirlits-
kerfinu í viðbót. Umsýsla verði hjá
Ferðamálastofu og Framkvæmda-
sjóði ferðamannastaða. Eftirlit verði
í höndum sérstakra „náttúruvarða“ á
vegum Ferðamálastofu. Vöktun fer
fram á fjölsóttustu áfangastöðunum
en áætlað væri að lista upp 10-12
fjölförnustu ferðamannastaðina í
landinu í eigu opinberra aðila, rík-
is og sveitarfélaga. Ráðherra sagði
að mjög mikilvæg væri fyrir fram-
göngu málsins það samstarf sem
komist hafi á milli ríkis og sveitar-
félaga. Hún kvaðst líka vonast eftir
að einkaaðilar myndu ganga til sam-
starfs og óska eftir aðild að náttúru-
passanum. Náttúrupassinn myndi
þó ekki koma í veg fyrir að einka-
aðilar gætu tekið upp aðgangseyri á
ferðamannastöðum, en reyndar væri
sú gjaldtaka lögfræðilegt álitamál
sem biði úrskurðar.
Vantrú fólks á markaða
tekjustofna
Umræðan einkenndist talsvert af
vantrú fólks á því að peningarnir sem
fengjust af náttúrupassanum myndu
nýtast til þeirra verkefna sem þeim
væri ætlað samkvæmt frumvarp-
inu. Þetta var sami tónn og á öðrum
fundum um málið að undanförnu
og virðist sem landsmenn almennt
séu brenndir af því að stjórnvöld
um tíðina hafi ekki staðið nægjan-
lega vörð um markaða tekjustofna,
svo sem bensíngjald, útvarpsgjald
og fleira. Geir Waage í Reykholti
kvaðst hafa komið með opnum huga
til fundarins en hann hefði á hon-
um tekið afstöðu gegn náttúrupass-
anum og myndi aldrei kaupa pass-
ann né þiggja að gjöf. Hann sagði
að reynslan af mörkuðum tekju-
stofnum sem þessum í landinu hefði
eyðilagt tiltrú almennings í landinu
til skattheimtu. Það væri alltaf seilst
lengra og lengra í henni. „Það var
sagt í baðstofunum í gamla daga að
af mjóum þvengjum lærðu hundarn-
ir að stela,“ sagði Geir og taldi það
eiga vel við í þessu sambandi.
Ferðamönnum verði
ekki mismunað
Fundarmenn voru þeirrar skoðun-
ar að vernda þyrfti íslenska náttúru
og tímabært að bregðast við aukn-
um ferðamannastraumi til lands-
ins. Margir vildu fara aðrar leiðir
til að afla þeirra peninga og reyndar
ætti ríkisvaldið allt eins að geta var-
ið hluta stóraukinna tekna af ferða-
mönnum til úrbóta á ferðamanna-
stöðum. Nefnt var að betra væri að
ná þessum tekjum svo sem í gegn-
um komugjöld til landsins, til dæmis
af flugmiðum. Ráðherra hélt því til
haga í sínum svörum að ekki hefði
tekist að halda í horfinu með úrbæt-
ur á ferðamannastöðum vegna þess
að markaða tekjustofna vantaði til
þess og ljóst að á næstunni yrði bar-
átta um fjármagn milli málaflokka
mikil, meðal annars vegna aukinna
útgjalda til heilbrigðismála. Ragn-
heiður Elín nefndi sem aðalrök fyr-
ir náttúrupassa að þetta væri sú leið
sem mismunaði ekki erlendum og
innlendum ferðamönnum, eins og
t.d. gjald af flugmiðum myndi gera.
Flugmiðagjald myndi einnig leggj-
ast á innanlandsflugið sem mætti illa
við því. „Þá væri þetta orðinn lands-
byggðarskattur og við höfum frek-
ar verið að skoða að lækka skatt-
lagningu á innanlandsflugið,“ sagði
Ragnheiður Elín. Hún sagði líka að
gistináttaskattur legðist á eina grein
og talinn þyngja rekstur smærri
rekstraraðila. Þá bryti landamæra-
gjald í bága við EES-samninginn.
Tekjurnar að mestu frá
erlendum ferðamönnum
Sterk rök með náttúrupassanum
voru nefnd á fundinum. Meðal ann-
ars af Kjartani Ragnarssyni í Land-
námssetrinu. Voru þau að lang-
stærstur hluti teknanna kæmi frá
ferðamönnum hingað til lands, eða
85-90%. Með honum myndi nást
til hópa sem lítið hafi verið að skila
í ríkiskassann til þessa, svo sem far-
þega skemmtiferðaskipa. Í framsögu
ráðherrans kom meðal annars fram
að um 870.000 erlendir ferðamenn
komu til landsins árið 2013 með
flugi og skemmtiferðaskipum. Millj-
ón gesta múrinn kunni að hafa verið
rofinn 2014, en tölur um ferðamenn
á liðnu ári liggja ekki fyrir. Í könnun-
um hefur komið fram að langflest-
ir ferðamenn koma til að skoða ís-
lenska náttúru. Uppbygging og við-
hald á innviðum ferðamannastaða
hefur ekki þróast í takt við fjölg-
un ferðamanna. Árleg fjárfestingar-
þörf er áætluð um einn milljarður
króna til næstu ára. Aðgerða er þörf
strax. Náttúrupassi yrði að mati ráð-
herrans skilvirk og sanngjörn leið til
að standa undir uppbyggingu ferða-
mannastaða. Áætlaðar tekjur fyrstu
þrjú árin, varlega áætlaðar, nemi
4,0-5,2 milljörðum króna miðað við
spá um fjölda ferðamanna. Þeir sem
eru aðilar að náttúrupassanum fá
82,5% af úthlutuðu fjármagni. Mót-
framlag vegna framkvæmda, eins
og nú er í Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða, fellur niður. Eitt verð
fyrir alla með náttúrupassanum er
1.500 krónur. Gildistími er þrjú ár
og passinn er ætlaður fyrir 18 ára og
eldri. Reyndar kom fram á fundin-
um hugmynd sem margir tóku und-
ir, það er um ævipassa. Ráðherra var
meðal þeirra sem tók undir hug-
myndina, sem gæti orðið til einföld-
unar í ljósi þess að margir erlend-
ir ferðamenn koma bara einu sinni
til landsins. Það var fundarstjórinn
sjálfur Vilhjálmur Egilsson rektor
Háskólans á Bifröst, sem skaut þess-
ari hugmynd fram snemma á fund-
inum.
Sala og innheimta á
náttúrupassanum
Ragnheiður Elín Árnadóttir ráð-
herra sagði að markmiðið með nátt-
úrupassanum væri að vernda sam-
eign þjóðarinnar, náttúru Íslands.
Um leið að styðja við eina stærstu
atvinnugrein landsins, ferðaþjón-
ustuna. Náttúrupassinn yrði leið til
að stuðla að sjálfbærri ferðamennsku
og verndun náttúrunnar. Meirihluti
tekna verði nýttur til uppbyggingar
og viðhalds á innviðum ferðamanna-
staða. Þá færu um 7,5% til málefna
sem tengjast öryggi ferðamanna,
þar á meðal björgunarsveitanna.
Reiknað væri með að hámarkshlut-
fall teknanna til umsýslu náttúru-
passans yrði 3,5%. Á fundinum var
talsvert rætt um hvernig staðið yrði
að sölu á náttúrupassanum og inn-
heimtu. Ráðherra sagði að stærstum
hluta yrði Netið nýtt til þess, enda
erlendir ferðamenn langstærsti hóp-
urinn sem myndi nýta náttúrupass-
ann. Þá væru gáttirnar inn í landið
ekki margar; Leifsstöð, Norræna og
hafnir sem tækju á móti skemmti-
ferðaskipunum. Hugmynd væru
um að landsmenn gætu hakað í reit
á skattaframtalinu hvort þeir vildu
kaupa náttúrupassa.
Ýmiss misskilningur
á ferðinni
Spurt var um atriði eins og til dæm-
is fræðsluþáttinn á fundinum. Ráð-
herra sagði að gert væri ráð fyrir
honum í tillögunum. Fundarmenn
voru margir fylgjandi því að um-
ræðan um náttúrupassa og gjaldtöku
á ferðamannastöðum yrði kláruð
sem fyrst og þessvegna gott ef frum-
varp sem sátt væri um yrði lagt fram
í vetur. Í upphafi fundarins gat ráð-
herra þess að ýmiss misskilningur
hefði komist á kreik varðandi nátt-
úrupassann, svo sem að meira segja
þyrfti að reiða hann fram ef fólk færi
í berjamó, á alla ferðamannastaði
eða jafnvel keyrði fram hjá fjalli sem
það vildi skoða. Fyrir fólk sem vill
kynna sér ýmislegt varðandi tillög-
ur og áform um náttúrupassann, er
rétt að fara inn á vefinn stjornarrad.
is og á vefsvæði atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytis. Þar er ýmislegt
að finna um náttúrupassann.
þá
Ragnheiður Elín Árnadóttir atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og Vilhjálmur
Egilsson fundarstjóri.
Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV á tali við Einar Kr Guðfinnsson alþingismann og þingforseta og Óðinn Sigþórsson í
Einarsnesi.
Söguloftið var þéttskipað áhugafólki um náttúru og ferðamennsku. Meðal annarra forsvarmenn ferðaþjónustufyrirtækja í
landshlutanum.
Þór Víkingsson veitingamaður á Bifröst bar fram fyrstu fyrirspurnina af
fjölmörgum til Ragnheiðar Elínar ráðherra.