Skessuhorn


Skessuhorn - 21.01.2015, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 21.01.2015, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2015 Út er komin reglugerð um velferð nautgripa. Er hún byggð á nýjum lögum um velferð dýra auk laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Í tilkynningu frá Matvælastofn- un segir að fjölmörg nýmæli séu í reglugerðinni, þar á meðal að leggja skuli af básahald nautgripa innan 20 ára og að öll ný fjós skuli vera lausagöngufjós. Bændum er gert að koma upp sérstökum burðar- stíum innan tíu ára. „Tilgangur reglugerðarinnar er að tryggja vel- ferð og heilbrigði nautgripa með góðri meðferð, umsjá og aðbúnaði. Í anda hinna nýju laga um dýravel- ferð er sérstaklega tekið fram að leitast skuli við að nautgripir geti lifað í samræmi við sitt eðlilega at- ferli eins og framast er kostur. Þá er undirstrikað að reglugerðin til- greinir lágmarkskröfur um einstök atriði og þannig gert ráð fyrir að bændur gefi sjálfir út leiðbeiningar um góða búskaparhætti, þ.e. gefi út lýsingu á fyrirmyndarbúskap.“ Tæplega helmingur kúa á Íslandi eru haldnar í básafjósum og því er sérstaklega tiltekið í reglugerðinni að þær skuli geta óhindrað lagst niður, legið eðlilega, risið á fætur, staðið, hreyft sig og sleikt, auk þess sem básarnir skuli uppfylla mál sem tilgreind eru í sérstökum viðauka reglugerðarinnar. Í reglugerðinni er nýmæli þess efnis að gerð er krafa um sérstaka þekkingu nautgripabænda, annað hvort í formi náms eða reynslu af kúabúskap og bændur eiga að venja nautgripi við umgengni við menn, bæði utan- og innandyra. Sér- stök áhersla er lögð á slysavarnir og sjúkdómavarnir, varðandi mót- töku og afhendingu dýra og að- fanga og aðgengi þjónustuaðila og gesta. Annað dýrahald með naut- gripum er rýmkað frá fyrri reglum, en þó verður áfram óheimilt að halda önnur klaufdýr með naut- gripum þannig að bein snerting á milli þeirra eða saurmengun geti átt sér stað. Slysavörnum eru gerð skil og taka til tækja, búnaðar, við- halds og möguleika til rýmingar, auk vinnulags svo sem við tæmingu haughúsa. Með reglugerðinni eru viðaukar, einn sem tilgreinir hvernig eigi að meta holdafar og hjálpar þannig við að meta fóðurástand gripa. Annar viðauki er um hvernig eigi að skjóta nautgripi, auk þess sem tiltek- in grein í reglugerðinni fjallar um hvernig megi aflífa nautgrip heima á bæ. „Þetta er til mikilla bóta og kemur í veg fyrir rangt vinnulag við aflífun. Einnig er bændum nú skylt að tilkynna Matvælastofnun ef þeir aflífa nautgrip vegna slyss eða al- varlegra veikinda og læknismeð- ferð er ekki möguleg. Þetta er mik- ilvægt því héraðsdýralæknir þarf að meta hvort taka eigi sýni til grein- ingar eða ekki, auk þess sem yfirlit fæst um neyðaraflífun nautgripa og þannig gæti það stuðlað að upp- götvun sjúkdóma eða ástands sem hægt væri að bregðast við.“ mm Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið hefur staðfest ákvörðun Matvælastofnunar að stöðva mark- aðssetningu mjólkur og slátur- gripa frá kúabúi í Vesturumdæmi. „Matvælastofnun stöðvaði haustið 2013 til bráðabirgða markaðssetn- ingu eftir að stofnuninni hafði ver- ið meinað að framkvæma eftirlit á bænum. Stöðvunin var síðan aftur- kölluð nokkrum dögum síðar eft- ir að stofnuninni var gert kleift að framkvæma eftirlit með starfsstöð- inni. Hin tímabundna stöðvun var kærð til atvinnuvega- og nýsköpun- arráðuneytis vegna þess tjóns sem bóndinn taldi sig hafa orðið fyrir. Með úrskurði sínum staðfesti ráðu- neytið hins vegar umrædda ákvörð- un Matvælastofnunar.“ Frá þessu er greint í tilkynningu frá Mast. Í úrskurði ráðuneytisins seg- ir að matvælafyrirtækjum sé skylt að veita opinberum eftirlitsaðil- um óhindraðan aðgang til eftirlits á þeim stöðum þar sem framleiðsla eða dreifing matvæla á sér stað. Eftirlitsaðili getur komið til eftir- lits hvenær sem er. Matvælastofn- un var skylt að framkvæma eftirlit á þessu býli og bóndanum var skylt að aðstoða starfsmenn stofnunarinn- ar við framkvæmd eftirlitsins. Kær- andi fékk svigrúm til að heimila eft- irlitið en kom í veg fyrir það. „Matvælastofnun gætti meðal- hófs og braut ekki rannsóknarreglu stjórnsýslulaga með framgöngu sinni, enda tálmaði framferði bónd- ans eftirlitsskyldur Matvælastofn- unar. Ákvörðun Matvælastofnunar fól í sér bráðabirgðaráðstöfun þar til unnt var að framkvæma eftirlitið. Matvælastofnun felldi síðan bráða- birgðaákvörðun sína úr gildi þeg- ar eftirlit hafði farið fram á býlinu, enda byggði sú ákvörðun á að tryggt væri að gæði, öryggi og hollusta af- urða sem og merkingar þeirra væru réttar og fullnægjandi.“ mm Það var ekki aðeins breyting á lög- regluumdæmum á Vesturlandi um síðustu áramót heldur birtust einn- ig nokkur ný og ung andlit í lög- regluliðunum, einkum í Snæfellsbæ og Borgarnesi. Þegar blaðamað- ur Skessuhorns var á ferð í Ólafs- vík í síðustu viku kíkti hann við á lögreglustöðina. Þá voru á vakt- inni Páll Fannar Helgason og Eva Dröfn Ólafsdóttir sem komu til starfa í Ólafsvík í byrjun árs. Þau sögðust bæði hafa sóst eftir starfi á Snæfellsnesi og þeim litist mjög vel á sig í Ólafsvík. „Ég þekki mig reyndar svolítið hérna á svæð- inu. Fyrir nokkrum árum var ég í Stykkishólmi einn vetur. Kom með Inga Þór körfuboltaþjálfara og spil- aði einn vetur með meistaraflokki Snæfells. Það er gaman að kynnast núna öðrum svæðum á Snæfells- nesi,“ sagði Páll Fannar. Eva Dröfn segist minna þekkja til Snæfellsness en hún hafi samt tekið það svæði fram yfir önnur þegar hún sótti um starfið. „Ég hef komið á Danska daga í Hólminum, það var það eina. Mér fannst þetta svæði svona mátu- lega langt frá borginni. Vaktafyrir- komulagið býður upp á góð frí og ég er mjög jákvæð gagnvart því að búa hérna. Ég fékk góða íbúð á fall- egum stað hérna í bænum,“ segir Eva Dröfn. Ungir lögreglumenn leita út á land Þau Páll Fannar og Eva Dröfn eru bæði borgarbörn að uppruna. Hún úr Vesturbænum en hann úr Laug- ardalnum. Þau voru í starfsþjálf- un síðasta sumar hjá lögreglunni á höfuð borgarsvæðinu og útskrif- uðust úr Lögregluskólanum í des- ember síðastliðnum. Þá voru 16 lögreglumenn útskrifaðir frá skól- anum, þar af ellefu lögreglukon- ur. Skólinn var þess vegna kallað- ur „Kvennaskólinn“ síðustu misser- in. Af þessum sextán kusu ellefu að fara til starfa út á land. Auk þeirra tveggja sem fóru til Ólafsvíkur fóru fjórir í Borgarnes, tveir á Akureyri, tveir á Egilsstaði og einn á Húsa- vík. Blaðamaður skýtur því inn í hvort ungir lögreglumenn séu núna að taka af skarið meðal embættis- manna hérlendis að leita út á land til að vinna, en oft hefur verið tal- að um að erfitt sé að fá fólk til starfa út á land. „Meðan niðurskurður er og lítið um nýráðningar hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu og Suð- urnesjum þýðir ekkert annað en fara út á land. Það gefur okkur líka heil- mikla reynslu og bætir við það sem við höfum verið að gera hingað til,“ segja Páll Fannar og Eva Dröfn. Fá einstaklega góðar viðtökur Spurð hvers vegna þau hafi val- ið starf lögreglumannsins, eru þau Páll Fannar og Eva Dröfn sammála um að það hafi verið vegna fjöl- breytninnar. „Þetta er mjög áhuga- vert starf og maður veit ekkert hvað næsti dagur ber í skauti sér. Auðvi- tað getur maður lent í ýmsu en það er samt enginn beygur í okkur,“ segir Eva Dröfn. „Fólkið hérna hef- ur tekið mjög vel á móti okkur. Þeg- ar við höfum verið í almennu eftir- liti og stöðvað fólk af ýmsum ástæð- um, þá hefur það bara tekið því vel. Boðið okkur velkomið til starfa og líka látið í ljóst ánægju sína með að við skulum vera á ferðinni og lög- gæslan sé sýnileg,“ sagði Páll Fann- ar. Bæði sögðu þau að það væri svo sem ekki mikið að gerast í Ólafs- vík og nágrenni á þessum árstíma. Það yrði þó til bóta þegar líkams- ræktarstöðin Sólarsport yrði opnuð að nýju, en það fylgir meðal ann- ars starfi lögreglumannsins að halda sér í þokkalegu líkamlegu formi. „Þangað til allavega skokka ég úti eftir vinnu og það er fallegt að skoða bæinn í rökkrinu,“ segir Páll Fann- ar. Hann bætir því við að það hafi verið dimmt og drungalegt þegar hann kom til starfa 5. janúar. „En það gleður náttúrlega augað að sjá lífið í bænum, eins og við höfnina þar sem sjómennirnir eru að störf- um og starfsfólkið í fiskvinnslunni,“ sagði Páll Fannar. „Okkur líst ákaf- lega vel á þetta samfélag hérna. Hér er örugglega mjög gott að ala upp börn og líka mjög ákjósanlegt fyrir börn að alast upp,“ sögðu þau Páll Fannar og Eva Dröfn að endingu. þá Básafjós munu heyra sögunni til innan tveggja áratuga Ráðuneytið staðfestir stöðvun á sölu mjólkur og sláturgripa Páll Fannar Helgason og Eva Dröfn Ólafsson. Ungt lögreglufólk til starfa í Snæfellsbæ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.